Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Síða 42
42 | Lífsstíll 20.–22. maí 2011 Helgarblað Smiðsbúð 6 210 Garðabæ Sími 564 5040 Sitness Kr. 39.900,- Góðir fyrir bakið! Veltikollar og hnakkstólar w w w .h ir zl an .i s Body Balance Kr. 39.900,- Bonanza Kr. 65.900,- svart leður Í slendingar hafa löngum verið mjög hrifnir af því að byggja palla til að minnka viðhaldið á garðinum en í þessum efnum er hægt að fara aðr- ar leiðir. Til dæmis getur verið einstak- lega fallegt að nota grjót og möl til að gera garðinn fallegan og þetta kostar lítið viðhald. Japanir eiga sína zen-garða þar sem mölin er notuð í stað grass og svo er þetta rakað eftir kúnstarinnar reglum. Þó að amatör garðhönnuður á Íslandi gangi kannski ekki svo langt að raka mölina í garðinum í takt við tómið er sniðugt að nota zen-garða sem inn- blástur fyrir hönnun á lítilli lóð. Einnig er fallegt að koma gróðri fyr- ir á milli stórra steina, leggja stéttar og hellur og skreyta með pottablómum og trjám. Í mörgum tilfellum ætti að vera óþarfi að rífa upp mosa því hann getur verið mjög fallegur og þá er fal- legt að nota hann með öðrum gróðri, til dæmis í pottum. Speglar, kamínur og tjarnir ásamt flottum garðhúsgögnum eru stolt hvers garðeiganda og í ágúst getur ver- ið ákaflega fallegt að hengja jólaser- íuna út til að lýsa upp sumarnóttina. Hér eru nokkrar myndir sem gefa góðar hugmyndir að skemmtilegri garðhönnun. Fegraðu garðinn með grjóti og möl Möl í garðinn Hellur, möl og gróður fara fallega saman sé rétt að þessu staðið. Náttúrusteinn Tröppur úr náttúru- steini eru fallegar í litlum garði. Hellusteinar notaðir til að móta Mótaðu með hellusteinum og gróðursettu fallegar plöntur eða lítil tré í mölinni. Skemmtileg útfærsla Viður og möl í skemmtilegum bakgarði. Slípaðir steinar Víða má fá fallega slípaða steina til þess að nota til skrauts. Um leið og sólin hækkar fara garðálfar á stjá og byrja að taka til í garðinum eða hanna hann upp á nýtt: Gosbrunnur í garðinn Það eru til margs konar gerðir af skemmti- legum gosbrunnum sem njóta sín vel í litlum sem stórum görðum. Bæði geta þeir verið niðurgrafnir eða frístandandi eins og þessi fallegi gosbrunnur sem hér sést en hann er úr náttúrusteini. Gosbrunna er bæði hægt að kaupa hér sem erlendis og eru þeir til mikillar prýði í garðinum og gefa góða stemningu. Vorganga á Seltjarnarnesi Klukkan 20.00 miðvikudaginn 25. maí verður farið í fyrstu garðgönguna á vegum Garðyrkjufélags Íslands. Þetta verður vorblómaganga þar sem laukar og primulur í blóma verða skoðaðar. Leiðsögn verður í höndum Elínar Snorradóttur og Vilhjálms Lúðvíkssonar en endað verður í Urtagarð- inum á Nesi. Áhugasamir eiga að mæta við Nesstofu á Seltjarnarnesi klukkan 20.00 stundvíslega. Ekki klippa öspina Færst hefur í vöxt að garðeigendur klippi eða sagi ofan af háum trjám, sérstaklega ösp. Þetta er miður og ekki til eftirbreytni. Kollun, eins og þetta kallast, eyðileggur möguleika trjánna til að vaxa eðlilega. Nýjar greinar keppast við að mynda nýjan topp, fjöldi greina vex fram með lélega festu í stofninum, vaxtarlag trésins skekkist og ójafnvægi myndast í krónunni. Ef um aspir er að ræða getur kollunin orðið til þess að aspirnar reyni að endurheimta greinamiss- inn með því að senda upp rótarskot víðs vegar um garðinn. Dagblöð á illgresið Fólk er ávallt að reyna að finna auðveldar leiðir til að losna við illgresi úr garðinum en ein leiðin er að nota dagblöð. Ef eitthvert beðið er til dæmis fullt af arfa sem þú nennir ekki að reita þá er hægt að vökva illgresið vel, dreifa svo úr dagblöðum yfir það svo að sólin komist ekki í gegn og strá svo til dæmis tréspæni yfir. Þetta gerir það að verkum að illgresið deyr. Slakað á í hengirúminu Marga dreymir um að eiga flott hengirúm þar sem hægt er að slaka á í garðinum og lesa góða bók eða jafnvel sofna. Hengirúm sóma sér líka vel á veröndinni eða pallinum en þá er bara um að gera að taka þau inn yfir veturinn. Hægt er að fá margar gerðir af hengirúmum, bæði hefðbundin og svo flóknari gerðir sem þurfa meira rými. Á heimasíðunni hammocks.com er hægt að skoða mikið úrval hengirúma og fá skemmtilegar hugmyndir. Krakkarnir elska líka hengirúm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.