Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Síða 43
G leði er einkennandi í sum- artískunni,“ segir Ellen Loftsdóttir stílisti. „Ég hef líka tekið eftir því hversu vinsælt suðuramerískt handbragð er. Í þeim mynstrum leynast skær- ir litir sem eru fallegir í þessu róm- antíska samhengi. Dæmi um þetta eru handsaumaðir flíkur frá Perú, einstaklega fallegar. Ég hef líka tekið eftir því að kringlótt sólgler- augu eru vinsæl núna og blóma- mynstur. Það er til dæmis flott að fara í pils og skyrtu við með sitt- hvoru blómamynstrinu.“ Ellen segir skó með bæði þykk- um hæl og botni halda vinsældum sínum. „Það er klassískt að vera í grófari skóm við fínlegri flíkur og ég er líka hrifin af höttum. Sjálf get ég ekki verið með þá en finnst alltaf skemmtilegt að sjá aðra bera þá.“ Ellen segir skæra liti og litadýrð haldast í hendur við afslappað og náttúrulegt yfirbragð. „Appelsínu- gulur varalitur er heitur í sumar og skær naglalökk. Morange-litur- inn frá MAC virðist til dæmis vera að slá í gegn. En annars er fólk að hætta að fara langt frá eigin útliti, það leyfir náttúrulegum háralit að njóta sín og húðinni líka. Það er ekki verið að nota mikið af efnum í hárið eða á húðina og útkoman er því afslöppuð og náttúruleg.“ Vínrauður er tískuliturinn Stefán Svan hjá Sævari Karli hef- ur starfað í tískubransanum árum saman. Hann segist alltaf feginn því að sjá litadýrð og frjálslegri snið yfir sumartímann. Í sumar segist hann hrifnastur af ljósum fallegum litum, beinhvítum, sand- litum og kamel. „Þessum litum er teflt gegn gallaefni, dekkri litum, svo sem dökkbláum, ljósbláum, fjólubláum, bleikum og svo tísku- litnum vínrauðum. Vínrauði lit- urinn verður ráðandi í sumar og verður áfram vinsæll næsta vetur.“ Stefán spáir, eins og Ellen, þykkbotna skóm og kringlóttum sólgleraugum vinsældum í sumar. „Gleraugun eru að minnka, þau eru að verða kringlóttari. Ray-Ban eru með gleraugu í þessum stíl, með hálfhring niður. Ég sé alltaf fyrir mér svona flugorrustumenn frá fjórða áratugnum. En síðan eru þessi risastóru býflugnagleraugu svolítið á leiðinni út.“ Siglingaföt og strandarfílingur þykir Stefáni líka alltaf klassískur. „Hann er klassískur strandarfíl- ingurinn, röndóttar peysur og bol- ir. Það væri gaman að sjá röndóttu flíkurnar í jökkum og pilsum frekar en bolum og peysum. Svo er gam- an að sjá að það er einhver gamall fimmta áratugs amerískur sjarmi yfir tískunni sen mætti líkja við háskólaíþróttastemningu, jafnvel rugbyfíling, peysur yfir öxlum og þannig lagað.“ Lífsstíll | 43Helgarblað 20.–22. maí 2011 Hvað er að gerast? n FM Belfast á Nasa Stuðhljómsveitin FM Belfast verður með magnaða tónleika á Nasa á föstudag- ksvöldið. FM Belfast sló fyrir þó nokkru í gegn á Íslandi og á virkilega tryggan aðdáendahóp. Hljómsveitin ætlar að slá upp mikilli veislu á Nasa en fram kemur einnig Prins Póló. Miðinn kostar ekki nema þúsund kall í forsölu en fimmtán hundruð við hurðina. n Bryndís tekur Janis Söng- og leikkonan Bryndís Ásmundsdóttir mun halda tónleika á laugardagskvöldið þar sem hún túlkar hina mögnuðu Janis Joplin ásamt hljómsveit. Bryndís sló í gegn sem Janis í sýningu um líf hennar sem sýnd var lengi í Íslensku óperunni. Var Bryndís tilnefnd til Grímunnar sem besta söng- kona ársins fyrir þá sýningu. Tónleikarnir á laugardagskvöldið hefjast klukkan 20.00, miðinn kostar 2.900 krónur og er til sölu á midi.is. n Ólöf og Skúli opna listahátíð Skúli Sverrisson og Ólöf Arnalds sjá um opnunartónleika Listahátíðarinnar í ár. Þau tvö hófu samstarf sitt árið 2005 þegar Skúli fékk Ólöfu til liðs við sig við gerð Seríu I. Þar hófst náið samstarf sem hefur leitt af sér fjórar hljómplötur í heild. Tónleikarnir fara fram í Norðurljósasal Hörpu og hefjast klukkan 21 en miða er hægt að nálgast á midi.is. n Kaufmann og Sinfó Einn fremsti óperusöngvari samtímans, þýski tenórinn Jonas Kaufmann, kemur fram á stórglæsilegum tónleikum ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð í Reykjavík á laugardaginn. Tónleikarnir fara fram í Eldborg, aðalsal Hörpu, og mun Kaufman þar meðal annars syngja þekktar aríur úr óperunum Carmen og Cavalleria Rusticana. Tónleikarnir, sem eru hluti af Listahátíð í Reykjavík, hefjast klukkan 17.00. Uppselt er á þá. n Tangótónleikar í Salnum Kristjana Arngrímsdóttir heldur tangó- tónleika í tilefni af útgáfu geisladisksins Tangó fyrir lífið. Með henni leika þau Daníel Þorsteinsson, Hjörleifur Örn Jónsson, Lára Sóley Jóhannsdóttir, Páll Barna Szabó og Pétur Ingólfsson. Gestir Kristjönu verða börn hennar, Ösp og Örn Eldjárn. Tónleik- arnir hefjast klukkan 20.00 og kostar miðinn 3.000 krónur. Nánari upplýsingar á midi.is. n Hlustendaverðlaun FM957 Á laugardagskvöldið fara fram tón- listarverðlaun FM957 en þau verða haldin í Silfurbergi í Hörpu. Á hátíðinni verður allt uppáhaldstónlistarfólk hlustenda FM957 verðlaunað auk þess sem fjöldi listamanna stígur á svið. Veitt verða verðlaun í sjö flokkum. Hægt er að kaupa sér miða á há- tíðina á midi.is. Veislan hefst klukkan 21.00 og kostar miðinn auðvitað 1.957 krónur. n Caribou á Nasa Hinn eini og sanni Caribou kemur fram á Nasa á sunnudagskvöldið á Nasa. Caribou er sviðsnafn Daniels Victors Snaith sem einnig er þekktur undir nafninu Manitoba. Hann breytti nafninu úr Manitoba í Caribou árið 2004. Síðustu tvær plötur Caribou hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda. Andorra (2008) fékk meðal annars kanadísku Pol- aris-verðlaunin. Miðaverð er krónur 3.800 en tónleikarnir hefjast klukkan 22.00. 20 maí Föstudagur 21 maí Laugardagur 22 maí Sunnudagur Gleði og litadýrð í sumar Stefán Svan í Sævari Karli spáir því að vínrauður verði sterkur litur í sumar og verði áfram vinsæll næsta vetur, skór með þykkum botni og kringlótt sól- gleraugu. Ellen Loftsdóttir stílisti segist hrifin af suðuramerísku handbragði, skærum litum, kringlótt- um sólgleraugum og afslöppuðu og náttúrulega yfir- bragði. Bæði telja þau gleði einkenna tískuna í sumar. Skærir litir og rómantík Ellen Lofts- dóttir stílisti er hrifin af suðuramerísku handbragði í tískunni. Skærir litir, jafnvel neonlitir finnast í mynstruðum, hand- gerðum flíkum frá Perú. Feginn að sumarið sé komið Stefán Svan hjá Sævari Karli gleðst alltaf yfir sumartímanum og þeirri litadýrð sem honum fylgir. Skærir litir á varir og neglur Appelsínurauðar varir eru heitar í sumar. Tískuvaraliturinn í sumar er frá MAC og kallast Morange. Kringlótt sólgleraugu Bæði Ellen og Stefán nefna að kringlótt sólgleraugu verði vinsæl í sumar. Mynstur, hattar og sólgleraugu Skemmtileg mynstur sem minna á Suður- Ameríku, hattar og sólgleraugu. Falleg taska Hippaleg taska undir suðuramerískum áhrifum. Siglingatíska Hér er röndótt pils við brúna blússu falleg samsetning. Stefán mælir með því að reyna að útfæra klassíska tísku á frumlegan máta. Ray-Ban-sólgleraugu Þessi eru frá Ray- Ban og heita Club-master.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.