Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Qupperneq 46
46 | Sport 20.–22. maí 2011 Helgarblað
Besti stjórinn
Sir Alex Ferguson
Manchester United
n Það hefði í raun verið hægt að
kasta upp hlutkesti á milli Ferguson
og Holloway. Gengið eftir áramót
hefur þó ekki verið neitt til að hrópa
húrra fyrir hjá Holloway, aðeins
16 stig af 60 mögulegum. Á meðan
sigldi Sir Alex tólfta úrvalsdeildar-
titlinum í höfn með United-lið sem
margir vilja meina að sé hans slak-
asta frá upphafi. Hann tók fram úr
Liverpool og er bú-
inn að gera Man-
chester United
að sigursælasta
félagsliði Eng-
lands auk þess
sem það má alveg
færa rök fyrir því
að hefði hann stýrt
einhverju
öðru liði í
toppbarátt-
unni hefði
það orðið
meistari.
Svo mikill
áhrifa-
valdur er
hann.
Komu einnig til greina: Ian Holloway
(Blackpool) og Roberto Mancini (Manches-
ter City)
Drýgsti leikmaðurinn
Dirk Kuyt
Liverpool
n Hollenska
markamaskín-
an sem endaði
á kantinum hjá
Liverpool er alveg
lygilegur. Klár-
lega leikmaður
sem allir þjálfarar
væru til í að hafa í sínu liði. Hann
getur hlaupið endalaust, gefur sig
alltaf 100 prósent í leikinn og berst
til síðasta blóðdropa. Hann er þó
ekki bara eitthvert vélmenni. Eins og
aðrir Hollendingar er hann sterkur
á boltanum og er fáránlega drjúgur
við að skora mörk. Einnig einhver
albesta vítaskytta deildarinnar. Það
má alveg segja sem svo að Dirk Kuyt
sé einhver alvanmetnasti leikmaður
í heimi.
Komu einnig til greina: Leighton Baines
(Everton) og Brede Hangeland (Fulham)
Vanmetnasti leikmaðurinn
Christopher Samba
Blackburn
n Þessi magnaði varnarmaður er
einfaldlega ástæðan fyrir því að
Blackburn er ekki fallið. Hann hefur
verið stoð og stytta Blackburn-liðs-
ins undanfarin ár, ekki bara frábær
varnarmaður heldur einnig naskur
við að skora við og við. Það væri
virkilega gaman að sjá Samba fá
tækifærið í stærra liði en spurningin
er auðvitað hvort það henti honum
betur að vera kóngur í minna liði.
Hvað sem því líður er þetta leik-
maður sem fær ekki alltaf mikið hól
en er á meðal bestu miðvarða ensku
úrvalsdeildarinnar.
Komu einnig til greina: Darren Bent
(Aston Villa) og Yaya Toure (Manchester
City)
Ofmetnasti leikmaðurinn
Gareth Barry
Manchester City
n Gareth Barry var Aston Villa.
Vegna frammistöðu sinnar þar fékk
hann kallið í landsliðið þar sem
hann hefur staðið sig um margt
ágætlega. Hann þénar nú vel eftir
að hafa skipt yfir til Manchester
City fyrir tveimur árum en þar hefur
hann algjörlega týnst. City hefur vel
haft efni á öðrum frábærum miðju-
mönnum og hefur það komið á dag-
inn þegar Barry spilar inn á milli
annarra frábærra leikmanna kemur
í ljós að hann er miðlungsmaður í
toppliði. Virkilega ofmetinn leik-
maður sem á eflaust ekki marga
daga eftir á Borgarleikvanginum í
Manchester.
Komu einnig til greina: Theo Walcott
(Arsenal) og Matthew Upson (West Ham)
Sá sem bætti sig mest
Nani
Manchester United
n Það eru fáir leikmenn í heim-
inum meira hataðir af sínum eigin
stuðningsmönnum og Nani. Sífellt
væl hans yfir minnstu tæklingum
og endalausar dýfur í grasið geta
gert hvaða United-mann sem er
gráhærðan. Það breytir því þó ekki
að hann fór úr því að vera ódýra út-
gáfan af Ronaldo yfir í algjöran lykil-
mann Manchester United. Níu mörk
og 18 stoðsendingar, fleiri stoðsend-
ingar en nokkur annar, sanna það.
Hann fékk líka viðurkenningu frá
félögum sínum og var valinn leik-
maður ársins hjá United. Haldi hann
áfram að bæta sig gæti þetta orðið
en mesta uppsveifla nokkurs leik-
manns hjá einu liði.
Komu einnig til greina: Leighton Baines
(Everton) og Johan Elmander (Bolton)
Sá sem dalaði mest
Frank Lampard
Chelsea
n Miðjumaðurinn magnaði hjá
Chelsea hélt í hefðina og skoraði
enn og aftur yfir tíu mörk í deildinni.
Það er þó engum blöðum um það
að fletta að Frank Lampard var ekki
skugginn af sjálfum sér á þessari
leiktíð. Alltaf þegar Chelsea vantaði
einhverja töfra frá sínum aðalmanni
á miðjunni var hann týndur og tröll-
um gefinn. Það er öllum fyrirgefið að
eiga eitt slakt tímabil og velkist eng-
inn í vafa um að Lampard sé ekk-
ert búinn sem fótboltamaður. Hann
náði þó aldrei að spila nálægt sinni
getu á tímabilinu.
Komu einnig til greina: Gael Clichy (Arse-
nal) og Jonny Evans (Manchester United)
Mark tímabilsins
Wayne Rooney
Man. United gegn Man. City
n Þarf svo sem ekkert að ræða þetta
neitt mikið frekar. Manchester City
var komið í hörku titilbaráttu þegar
það mætti á Old Trafford og var farið
að sjá Englandsmeistaratitilinn í
hillingum. Gestirnir voru búnir að
jafna leikinn og voru líklegri til að
vinna þegar Wayne Rooney skoraði
líka þetta rosalega mark með bak-
fallsspyrnu skástrik klippu. Sending-
in sem kom frá Nani fór af varnar-
manni og upp í loftið þannig að
erfiðara var að reikna út flug boltans.
Eins og Rooney sagði eftir leikinn:
„Þetta mark mun fylgja mér til ævi-
loka.“
Komu einnig til greina: Cheik Tioté
(Newcastle gegn Arsenal) og Samba-mark
Bolton (Bolton gegn Úlfunum)
Endurkoma tímabilsins
Kenny Dalglish tekur
við Liverpool
n Liverpool var í molum þegar Roy
Hodgson var loksins rekinn og goð-
sögnin Kenny Dalglish tók við. Hann
fór hægt af stað og vann ekki í fyrstu
þremur leikjum sínum. En síðan fór
allt að gerast. Hann verslaði skyn-
samlega í janúarglugganum og fékk
þar Úrúgvæjann Luis Suarez sem
hefur lyft sóknarleik liðsins upp á
annað plan. Liverpool fór á mikið
skrið og fór að raða inn stigum.
Eftir að hafa ekki hátt möguleika á
Evrópusæti fékk það hálfgerðan úr-
slitaleik gegn Tottenham um síðustu
helgi um Evrópudeildarsæti sem
tapaðist reyndar. Öll nótt er þó ekki
úti enn. Kenny hefur sýnt að hann
kann þetta og fólk skal hafa augun á
Liverpool á næsta tímabili.
Komu einnig til greina: Manchester United
vann West Ham 4–2 eftir að hafa lent
2–0 undir og Newcastle kom til baka gegn
Arsenal eftir að hafa lent 4–0 undir.
Mestu mistökin
Endasprettur
Tottenham
n Tottenham vann frábæran sigur á
Liverpool um síðastliðna helgi og er
í bílstjórasætinu um fimmta sætið
fyrir lokaumferðina, það síðasta sem
gefur keppnisrétt í Evrópudeildinni.
Það er þó ekki keppnin sem Totten-
ham ætlaði sér í. Harry og strákarnir
ætluðu sér aftur í Meistaradeildina
og áttu ágætan möguleika hvað það
varðar. Áður en kom að Liverpool-
leiknum vann Tottenham þó ekki í
fimm leikjum í röð, gerði aðeins tvö
jafntefli og rakaði því ekki inn nema
tveimur stigum af fimmtán mögu-
legum. Þar með kastaði liðið Meist-
aradeildardraumnum út í hafsauga
og missti næstum því af Evrópu-
deildarsætinu.
Komu einnig til greina: Enn og aftur styrkti
Arsenal sig ekki í janúarglugganum og nýir
eigendur Blackburn ráku Sam Allardyce
Það besta og versta í enska boltanum
Flestir leikir: Átján leikmenn hafa
spilað 37 leiki hingað til
Flest rauð spjöld: 2 – Lee Catter-
mole (Birmingham), Craig Gardner
(Birmingham), Laurent Koscielny
(Arsenal), Youssouf Mulumbu (WBA),
Ryan Shawcross (Stoke)
Flest gul spjöld: 14 – Cheik Tiote
(Newcastle)
Flestar aukaspyrnur: 114 – Kevin
Davies (Bolton)
Hæsti leikmaðurinn: 202 cm – Nicola
Zigic (Birmingham)
Lægsti leikmaðurinn: 165 cm – Aaron
Lennon (Tottenham), Adam Reed
(Sunderland)
Actim-tölfræðin
Edwin Van der Sar
Nemanja Vidic
Nigel de Jong
Carlos Tevez
Bacari Sagna
Nani
Ashley Cole
Florent Malouda
Vincent Kompany
Samir Nasri
Dimitar Berbatov
Lið ársins
Besti leikmaðurinn
Nemanja Vidic
Manchester United
n Þegar horft verður til baka á
tímabilið 2010/2011 minnast
menn þess að velski kantmaður-
inn Gareth Bale var valinn bestur.
En fyrir hvað? Góða byrjun á
tímabilinu og þrennu gegn Inter
þegar Tottenham var þá þegar 4–0
undir? Kantmaður sem gaf eina
stoðsendingu allt tímabilið. Þetta
verður ekki kallað annað en sögu-
fölsun. Serbneski miðvörður-
inn Nemanja Vidic bar höfuð og
herðar yfir aðra leikmenn tíma-
bilsins og á einhvern stærstan
þátt í því að „slakasta“ Manches-
ter United-lið Sir Alex Ferguson
er Englandsmeistari. Án nokkurs
vafa besti miðvörður heims.
Komu einnig til greina: Rafael Van
der Vaart (Tottenham) og Carlos Tevez
(Manchester City)