Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2012, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2012, Page 3
Fréttir 3Miðvikudagur 9. maí 2012 Þ rír íslendingar vinna nú að heimildamynd um starf danska sjónþjálfarans dr. Leos Angart, sem er frum- kvöðull í þeirri hugmynda- fræði að bæði fjarsýnir og nærsýn- ir geti með réttum og markvissum augn æfingum stórbætt sjón sína og losað sig við gleraugun fyrir fullt og allt. Angart er hér á landi í vikunni til þess að halda tvö námskeið fyrir börn og fullorðna um hvernig hægt sé að losna við gleraugun með æf- ingunum sem hann kennir. Nám- skeiðin fara fram í HR og kostar tæp- ar 30 þúsund krónur á annað þeirra. Angart nefnir barnanámskeiðið Ma- gic Eyes, en það hefur fengið heitið Kraftaverkaaugu hér á landi. DV hefur rætt við konu sem seg- ist hafa stórbætt sjón sína síðan hún byrjaði að gera æfingarnar sem Angart kennir. Þrír augnlæknar sem DV ræddi við setja hins vegar mikla fyrirvara við þessar æfingar. Einn þeirra segist stór- efast um að slíkar æfingar skili raun- verulegum árangri til lengri tíma. Leo segist sjálfur hafa leiðrétt eigin sjónskekkju og nærsýni, sem var -5.5 á nokkrum vikum eftir að hafa notað gleraugu samfleytt í 26 ár. Hann segir það rangt að sjón- inni hraki með aldrinum og að sjón- vandamál séu tilkomin vegna erfða. Þvert á móti beiti flestir sjóninni ekki rétt, noti hana á einhæfan hátt og geri aldrei æfingar til að viðhalda henni. Hann segir að flestir sem geri æfingarnar hans nái mjög miklum árangri. Eins og hver önnur líkamsrækt Birgir Róbert Jóhannsson er einn þre- menninganna sem standa að því flytja sjónþjálfarann til landsins. Þeir segja enga peninga í spilunum fyrir sig, þeir vinni að þessu verkefni frítt en hafi sérstakan áhuga á því að „gróðursetja þessa þekkingu hér á landi“, eins og Birgir kemst sjálfur að orði. Birgir segir að líkja megi sjón- skekkju við stífa öxl. Í kringum aug- að eru sex vöðvar sem þarf að þjálfa. Hann bendir á að þeir sem eru með mínus einn til tvo í sjón, geti tekið af sér gleraugun og togað augun til hliðar og þá sjái þeir skýrt í miðj- unni. „Með þessu er ekki verið að gera neitt annað en að toga sjón- himnuna og gera þá vinnu utan frá sem þessir vöðvar eiga að gera með því að breyta lögun augans. Það sem ég er að segja er að þetta er eins og allir aðrir vöðvar í líkamanum. Ef þú þjálfar ekki ákveðna bakvöðva þá verða þeir slappir. Ef þú ferð að reyna of mikið á veika vöðva þá ofþreytir þú þá og þeir bólgna upp. Það sama á við um augun.“ Margir efins Birgir segist vera vel meðvitaður um að ýmsir telji að æfingakerfið sem þeir eru að kynna hér á landi sé eitt- hvað „hókus pókus“, eins og hann orðar það. „Þessar æfingar voru til í miklu einfaldara formi í gamla daga. Augun eru hluti af líkamanum og við getum þjálfað allt í líkamanum. Svo er árið 2012 og allir eru vanir því að setja upp gleraugun og þá spyr fólk mig alltaf: „Af hverju heldur þú að það eigi að vera hægt að þjálfa aug- un?“ Ég segi á móti: „Af hverju ekki?“ Spurður hvort þessar aðferðir séu skottulækningar, segir hann svo ekki vera. „Allir sem koma á námskeið eru fólk sem vinnur inni og glápir á skjá- inn allan daginn,“ segir hann og tekur fram að það sé ekki endilega óhollt, en við það geti sjónin orðið slappari. Um þær æfingar sem sjónþjálfarinn er að kynna fyrir Íslendingum segir hann: „Þetta er eins og að fara í rækt- ina. Hann er ekki að gera neitt ann- að en að bjóða þér sömu æfingar fyrir augnsvæðin. Svo þarft þú bara að fara í ræktina og gera sjónæfingar.“ Birgir segist ekki gefa mikið fyrir afstöðu augnlækna, sem efast um virkni æfinganna. „Þegar við fórum af stað með þetta konsept þá voru svo margir sem vissu ekkert um þetta en eru á móti því bara til að vera á móti. Það koma hins vegar engin svör þeg- ar maður spyr þetta fólk á móti.“ Hann segist vona að aðferðirnar sem þeir kenna verði það útbreiddar að fólk fari sjálft að gera þessar æfingar og bera vitni um virkni þeirra. „Þá skiptir engu máli hvað augnlæknar og sjóntæknifræðingar segja.“ Hvar eru vísindalegu sannanirnar? DV hefur leitað til þriggja augnlækna, tveir þeirra vildu ekki tjá sig undir nafni, en sögðust stórefast um að slík- ar æfingar gætu lagað sjónina til lengri tíma. Annar tók þó fram að hann hefði ekki kynnt sér starf Leos Angart í þaula. Gunnar Sveinbjörnsson, formaður Augnlæknafélags Íslands, spyr hvaða alvöru rannsóknir, sem hafa birst í rit- rýndum fagtímaritum, liggi að baki aðferðum danska sjónþjálfarans. Þeg- ar farið er inn á vefsíðu sjónþjálfarans, vísar hann hann ekki á neinar slíkar rannsóknir. Gunnar segist ekki hafa kynnt sér aðferðir Danans sérstaklega en er efins. Hann nefnir dæmi um að ástæðan fyrir nærsýni sé að lengd augans er of mikil. „Augað er of stórt og hvernig þú ætlar að hafa áhrif á það með æfing- um skil ég ekki. Þú ætlar að minka líf- færið.“ Hann bendir á að sjónæfingar séu ekki nýjar af nálinni. „Ég á bók frá 1940 sem er um þetta sama, svo þetta eru ekki nýjar æfingar en þær hafa ekki slegið í gegn.“ Augnlæknir fullur efasemda Augnlæknir sem DV ræddi við og hefur kynnt sér aðferðir augnþjálf- arans, segist hafa mjög miklar efa- semdir um þær. „Ef þeir segja að þú getir þjálfað þig úr -5 og upp í núll, þá áttu samkvæmt kenningunni að geta haldið áfram að þjálfa þig og orðið +5. Í stuttu máli hafa engar rannsóknir sýnt að þetta sé mögu- legt á nokkurn einasta hátt. Það er verið að leika sér með taugateygjur í augasteininum sem við notum til að fókusera. Hann stirðnar hægt og bít- andi og er orðinn frekar gagnslaus upp úr fertugu. Þess vegna þurfum við öll lesgleraugu, það er þó mis- mikið og gerist mishratt. Það er ein- staka sinnum hægt að ná pínu ár- angri með smá þjálfun en það er allt dæmt til að hverfa með tímanum út af öldrun.“ Hann fordæmir einnig að á sama tíma og með öllu sé bannað að aug- lýsa viðurkenndar læknismeðferðir á Íslandi þá sé athyglisvert að menn sem hafi ekki menntun á þessu sviði geti flutt inn mann sem ætlar að taka á heilbrigðisvandamálum og auglýst hann á fullu. „Það má ekki einu sinni kynna með eðlilegum hætti venju- legar læknismeðferðir hvort sem það er vegna gláku, leiseraðgerðir eða hvað sem er,“ segir hann og bætir við: „Þetta er í sjálfu sér ekki hættulegt en samkvæmt okkar áliti hefur það eng- in áhrif. Allir augnlæknar hvetja fólk til að mæta í skoðun og ræða þessi mál því fáfræðin um augun er gríð- arleg.“ n Danskur augnþjálfari fullyrðir að æfingar lagi sjónina n Augnlæknar vilja sjá sannanir segist laga slæma sjón með æfingum Kennir fólki að sjá betur„Í stuttu máli hafa engar rannsóknir sýnt að þetta sé mögulegt á nokkurn einasta hátt Leo Angart Danskur sjónþjálfari býður upp á námskeið þar sem fólk lærir æfingar sem eiga að laga sjónina verulega. Hjördís Einarsdóttir, stærðfræðikennari á Egilsstöðum, var með slæma sjón. Hún átti að fá gleraugu sem voru mínus fimm, hún var með sjónskekkju og fjar- sýni. „Þetta voru orðin þrí- eða fjórskipt gleraugu sem kostuðu hátt í 170 þúsund krónur,“ segir Hjördís sem ákvað árið 2010 að skrá sig á námskeið sem Leo Angart hélt hér á landi til þess að þjálfa sjónina. Hún fór í sjónmælingu hjá augnlækni áður en hún hóf að gera æfingarnar sem hún lærði, til þess að geta betur mælt hvort sjónin batnaði. Hún viðurkennir að hlegið hafi verið að henni, þar sem fólk taldi víst að hún væri að láta gabba sig út í skottulækningar. „Ég gat ekki lesið blöðin eða horft á tölvu- skjá nema vera með plús tvo gleraugu til að horfa á skjáinn, núna nota ég engin gleraugu til að lesa,“ segir hún. „Ég fór þangað inn með opinn huga og maður gat ekki gert annað en að prófa þessar æfingar. Ég fann strax mun. Svo hélt maður bara áfram í þessum æfingum og þegar ég kom tæpu ári seinna í sjón- mælingu þá var ég kominn með gleraugu sem voru -2,5. Augnlæknirinn hafði skoðað mig í millitíðinni og hafði merkt að það var komin breyting. Fjarsýnin var farin.“ Hjördís segir að hún geti varla sett gömlu gleraugun lengur upp. „Ég finn alveg ofboðslegan mun, en þetta eru æfingar og maður þarf að sinna þessu alveg eins og venjulegum líkamsæfingum,“ segir Hjördís sem stefnir á að losna alveg við gleraugun. „Ef ég gat þetta þá hlýt ég að geta hitt. Það er nákvæmlega eins og ef þú lendir í slysi og missir getu í fæti eða hendi, þú þarft að þjálfa vöðvana upp. Okkur hefur ekki verið kennt að augun þurfa líka sína leikfimi.“ Hjördís segist alltaf byrja morgnana á að nudda vöðva í kringum augun. „Svo set ég kaldan og heitan bakstur til skiptis, þrisvar sinnum. Svo tek ég orkuæfingar og er svo að gera þessar augnæfingar jafnt og þétt yfir daginn, stundum gleymi ég þessu.“ Hjördís Einarsdóttir segist hafa stórbætt sína eigin sjón: „Ég finn alveg ofboðslegan mun“Valgeir Örn Ragnarssonblaðamaður skrifar valgeir@dv.is Heldur námskeið um allan heim Leo Angart heldur meðal annars nám- skeið, Kraftaverkaaugu, fyrir börn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.