Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Blaðsíða 2
S á fáheyrði atburður átti sér stað í Héraðsdómi Reykja- ness þann 27. apríl síðast- liðinn, að Börkur Birgisson, einnig þekktur sem Axar- Börkur, hrækti að dómara þegar honum var gert að afplána eftir- stöðvar fyrri dóma. Börkur var fyrir dómi vegna rofs á skilorði en hann er grunaður um aðild að stórfelld- um líkamsárásum og ólögmæta nauðung ásamt félaga sínum Ann- þóri Kristjánssyni. Brot gegn valdstjórninni Börkur hefur verið ákærður fyrir athæfið en að hrækja á dómara í starfi flokkast undir brot gegn vald- stjórninni og geta viðurlög við slíku broti varðað allt að sex ára fangels- isvist. Samkvæmt heimildum DV vita menn ekki til þess að brot af þessu tagi hafi áður átt sér stað inni í dómsal og er það litið alvarlegum augum. Hæstiréttur dæmdi Börk til sjö og hálfs árs fangelsisvistar árið 2005 fyrir líkamsárás sem hann framdi á veitingastaðnum A. Hansen árið 2004. Beitti hann öxi í líkamsárás- inni sem þótti sérstaklega hrottaleg og aðeins tilviljun réð því að maður- inn komst lífs af. Alvarlegir áverkar Um miðjan mars var Börkur hand- tekinn ásamt félaga sínum Annþóri Karlssyni, þekktasta handrukkara Ís- lands, og eru þeir nú báðir ákærðir fyrir stórfelldar líkamsárásir og ólög- mæta nauðung. Í einu málanna eru þeir Annþór og Börkur grunaðir um að hafa ráð- ist ásamt fleiri mönnum í heimild- arleysi inn í hús og veist hrottalega að þeim sem þar voru með golfkylf- um, spýtum, handlóðum og hafnar- boltakylfu með þeim afleiðingum að mennirnir hlutu alvarlega áverka. Eitt fórnarlambanna hlaut þver- brot á hægri sköflungi, brot á hægri hnéskel, 6 sentimetra opinn og gap- andi skurð á framanverðum hægri sköflungi, bólgur og mar á hægri fótlegg, úlnliðum og höndum. Ann- ar hlaut skurð á enni og þriðji mað- urinn 3 sentimetra stjörnulaga sár á hnakka, brot á ölnarbol, skrap sár á báðum öxlum, stórt mar á upp- handlegg vinstra megin, mar á báð- um framhandleggjum yfir öln, mar á miðjum framhandlegg og mar á vísi- fingri hægri handar. Samkvæmt heimildum DV varð Annþóri og Berki vel til vina þegar þeir sátu inni á Litla-Hrauni. Eftir að hafa hlotið reynslulausn eiga þeir í sameiningu að hafa verið umfangs- miklir í undirheimum Reykjavíkur. Langir brotaferlar að baki Annþór og Börkur eiga báðir langan brotaferil að baki. Annþór Kristján hefur frá árinu 1993 hlotið 10 refsi- dóma fyrir skjalafals, þjófnað, nytjastuld, líkamsárás, húsbrot, frelsissviptingu og fíkniefnabrot. Hæstiréttur dæmdi hann í þriggja ára fangelsi árið 2005 fyrir grófa lík- amsárás þar sem hann barði mann til óbóta með kylfu. Börkur og Annþór eru meðstjórn- endur í fyrirtækinu Mebbakk sem var stofnað í apríl á síðasta ári. Meb- bakk rekur meðal annars sólbaðstof- una Bahamas á Grensásvegi. 2 Fréttir 18.–20. maí 2012 Helgarblað „Ertu komin til að koma í deilur?“ Forseti Ís- lands var í viðtali í mánu- dagsblaði DV. Þar fór hann mikinn og sakaði meðal annars DV um að vinna að framboði Þóru Arnórsdóttur og sagði Svavar Halldórsson mis- nota fréttatíma sjónvarpsins til þess að flytja fréttir af eiginkonu sinni. „Það blasir við hjá Ríkisútvarpinu að Svavar Halldórsson fékk að mis- nota fréttatíma sjónvarpsins til þess að búa til áróðursfrétt gegn mér á sama tíma og var verið að vinna könnun um fylgi Þóru, mín og ann- arra til að undirbúa framboð gegn mér,“ sagði forsetinn meðal annars í viðtalinu. Milljarðar í vasann DV greindi frá því á miðvikudag að Samherji hefði grætt 17 millj- arða á veiðum sem fyrirtækið hefur staðið fyrir við Afríku- strendur. Fjár- festing þeirra í Afríku hefur þannig borgað sig upp og arðgreiðslur til fyrirtækisins nema um fjórum milljörðum. „Samherji keypti út- gerðina sem á og rekur sex verk- smiðjutogara sem stunda fisk- veiðar við strendur Vestur-Afríku, af útgerðarfyrirtækinu, af útgerð- arfyrirtækinu Sjólaskipum á vor- mánuðum 2007 fyrir um 190 millj- ónir evra, um 16 milljarða króna miðað við gengi krónunnar á þeim tíma“ sagði meðal annars í frétt- inni. „Ég vil fá sjálfsvirð- inguna aftur“ Lára Kristín Brynjólfsdótt- ir sagði frá nauðungarvist- un sinni á geðdeild í viðtali í mánudags- blaði DV. Þar sagði hún frá því að hún hefði verið nauðungarvistuð á geð- deild í marga mánuði með ranga greiningu. Hún var sögð vera með geðklofa en hefur núna fengið þá greiningu að hún sé einhverf. Saga Láru er ekki einsdæmi en DV hefur undanfarið fjallað um einhverfu kvenna. „Ég vil segja sögu mína öðrum til varnaðar, ég vil ekki að fleiri þurfi að þjást eins og ég gerði. Ég fæ ekki líf mitt til baka, en ég vil fá sjálfsvirðinguna aftur,“ segir Lára Kristín í viðtalinu. Fréttir vikunnar í DV 1 2 3 Lúxusíbúðir rokseljast Íbúðir í hinum svokölluðu Skugga- hverfisblokkum Reykjavíkur hafa rokið út á tæpum mánuði eftir að þær voru settar á sölu. Viðskipta- blaðið greinir frá því að níu íbúðir af fjörutíu hafi selst í blokkunum við Vatnsstíg 16 til 18 en verðið er frá 44 milljónum fyrir tveggja herbergja íbúð og upp í tæpar hundrað millj- ónir króna fyrir stærstu íbúðirnar nálægt þakíbúðinni. Íbúðirnar eru 132 og upp í 180 fermetrar, á nítján hæðum, en þak- íbúðin er sú stærsta, 276 fermetrar og segir Viðskiptablaðið markaðs- virði hennar vera yfir hundrað millj- ónum króna. Vill hreinsa út hjá RÚV Herdís Þorgeirsdóttir vill að ut- anaðkomandi einstaklingar stýri kosningaumfjöllun RÚV til að tryggja að hún sé hlutlaus. Hún segir að Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir hafi ótví- rætt forskot á aðra frambjóðend- ur þar sem fólk þekki þau af fyrri störfum. Þóra eins og flestir vita hefur verið starfsmaður Ríkisút- varpsins og segir Herdís það gefa henni forskot. Hún gerir meðal annars athugasemdir við að Þóra hafi sagt það á Pressunni að hún væri að skoða stöðu sína gagn- vart framboði, þremur mánuðum áður en hún ákvað formlega að fara í forsetaframboð. „Þarna situr þessi frambjóðandi í þrjá mán- uði í skjóli Kastljóss og Útsvars, án þess að Ríkisútvarpið geri nokkuð í því,“ segir Herdís í fréttum Stöðv- ar 2 á fimmtudag. Herdís segir að það hafa verið rétt af Þóru að draga sig þá í hlé þegar ljóst var að hún væri að skoða að fara í fram- boð. Þá segir hún að frambjóðendur til forsetakosninganna nú eigi rétt á því að vera kynntir í fjölmiðlum með hlutlægum hætti þannig að tryggt sé að allir frambjóðendurnir hafi sama aðgang að fjölmiðlum. Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is „Samkvæmt heim- ildum DV vita menn ekki til þess að brot af þessu tagi hafi áður átt sér stað inni í dómsal og er það litið alvarlegum augum. ákærður Vinir Félagarnir Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson sátu saman inni á Litla-Hrauni. (Skjáskot af Facebook) fyrir að hrækja að dómara n Börkur Birgisson ósáttur við úrskurð í héraðsdómi Í gæsluvarðhald Börkur Birgisson færður í járnum fyrir dómara í mars síðastliðnum þegar gæsluvarðhald var framlengt yfir honum í Heraðsdómi Reykjaness.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.