Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Page 4
4 Fréttir 18.–20. maí 2012 Helgarblað
Bæjaryfirvöld ekki upplýst
n Gríðarlegt jarðrask á Úlfarsfelli n Reykjavík ber ábyrgð
Þ
að var búið að ganga frá
því milli bæjarfélaganna að
samráð yrði haft um verk-
efnið á öllum stigum. En
það var farið af stað með þetta án
þess að við vissum af því,“ segir
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri
í Mosfellsbæ, um það mikla rask
sem á sér stað á efsta tindi Úlfars-
fells þar sem beltagrafa og fleiri
stórvirk vinnutæki eru að störfum
vegna endurvarpsstöðvar sem þar
á að rísa. Áformað er að 40 metra
hátt mastur rísi á tindinum. Mörg-
um blöskrar umgengnin sem á sér
stað í þessari náttúruparadís þar
sem hundruð útivistarfólks njóta
þess að vera í fallegri náttúru.
Úlfarsfellið tilheyrir bæði Mos-
fellsbæ og Reykjavík. Framkvæmd-
irnar eru á því svæði sem Reykja-
vík ræður. Eftir að íbúi í Úlfarsárdal
kvartaði í síðustu viku var gert hlé á
framkvæmdum. Á þriðjudaginn fór
síðan allt í fullan ganga aftur eftir að
starfsmenn Reykjavíkurborgar höfðu
úrskurðað að ekki stæðu efni til þess
að stöðva þær. Haraldur hafði sam-
band við Reykjavíkurborg vegna
þessa. Hann segir að niðurstaðan
hafi orðið sú að stofna samráðshóp
beggja bæjarfélaganna.
„Þessum hópi er ætlað að ræða
og finna lausnir á slæmri umgengni
á fjallinu,“ segir Haraldur sem sjálfur
er útvistarmaður og gengur gjarnan
á Úlfarsfell.
Grafa risti í sundur klettabelti Beltagrafa vann mikil umhverfisspjöll á Úlfarsfelli á
dögunum. Reykjavík að kenna segir bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Margir í spreng
í miðbænum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
þurfti aðfaranótt fimmtudags að
hafa afskipti af á annan tug ein-
staklinga sem gerst höfðu sekir
um brot gegn lögreglusamþykkt
Reykjavíkur. Með öðrum orðum
höfðu minnst 15 manns verið
kærðir fyrir að kasta af sér vatni
á almannafæri í miðborginni en
talsverður erill var í miðbænum
þar sem margir gerðu sér glaðan
dag með tilheyrandi ölvun. Nokkr-
ir voru handteknir á höfuðborgar-
svæðinu grunaðir um akstur undir
áhrifum áfengis eða vímuefna.
Unglingspiltar voru handtekn-
ir grunaðir um innbrot í heima-
hús í austurborginni og að stela
þaðan verðmætum. Betur fór en
á horfðist um klukkan hálf fimm
um nóttina þegar ekið var á gang-
andi vegfaranda við Lækjargötu í
Reykjavík. Sá sem fyrir bifreiðinni
varð hlaut minniháttar meiðsl en
var fluttur á slysadeild Landspítal-
ans til aðhlynningar.
Hættulegur
íshellir myndast
í Gígjökli
Lögreglan á Hvolsvelli hefur
neyðst til að girða af svæði við
Gígjökul við Þórsmerkurleið þar
sem varhugaverður íshellir hefur
myndast. Af þessum sökum varar
lögreglan ferðamenn og ferða-
þjónustuaðila sérstaklega við
svæðinu. „Mikið hrun, bæði ís og
grjót er við hellismunnann og því
getur verið hættulegt að fara inn
í hellinn,“ segir í viðvörunarskila-
boðum lögreglunnar. Íshellirinn
hefur því verið girtur af með lög-
regluborða til að varna því að fólk
hætti sér of nærri grjóthruninu. Á
næstu dögum verður að auki sett
upp skilti þar sem varað verður
við hættunni á nokkrum tungu-
málum.
R
eykjanesbær hefur eignast
víkingaskipið Íslending eftir
að hafa breytt rúmlega 100
milljóna kröfu sinni á hend-
ur eignarhaldsfélagi skipsins í
hlutafé í því í fyrra. Þetta kemur fram
í ársreikningi Reykjanesbæjar sem
samþykktur var og undirritaður á
fundi bæjarstjórnar á þriðjudaginn,
þann 15. maí. Eignarhaldsfélagið sem
Reykjanesbær á nú nærri 100 prósenta
hlut í heitir Íslendingur ehf. en ásamt
því að eiga skipið heldur það utan um
rekstur á safninu Víkingaheimum í
Reykjanesbæ.
Orðrétt segir um þetta í ársreikningi
bæjarins: „Reykjanesbær breytti kröfu
sinni á Íslending ehf. að fjárhæð um
101,3 milljónum króna í hlutafé í árs-
lok 2011 á genginu 1. Fyrir átti Reykja-
nesbær hluti í félaginu að fjárhæð
um 8,1 milljón króna. Í árslok nemur
hlutabréfaeignin um 109,4 milljónum
króna sem er um 99,76 % hlutur.“
Þetta þýðir að íbúar í Reykjanesbæ
eru nú orðnir nánast hundrað prósent
eigendur að víkingaskipi og rekstrar-
félagi þess. Áður hafði skipið verið í
eigu bæjarins, Gunnars Marels Egg-
ertssonar, sem smíðaði Íslending,
olíu félagsins Olís auk þess sem Íslend-
ingur ehf. átti tæpan fjórðung í sjálfum
sér.
Eignast Víkingaheima
Reykjanesbær eignast einnig safn-
ið Víkingaheima, sem byggt var utan
um Íslending, samhliða yfirtökunni á
skipinu og rekstrarfélagi þess. Eignar-
haldið á Víkingaheimum er í gegn-
um eignarhaldsfélagið Útlending ehf.
sem er dótturfélag Íslendings ehf. Vík-
ingaheimar voru opnaðir um sum-
arið 2007 en safnið var byggt sérstak-
lega utan um skipið. Heildarskuldir
Útlendings vegna byggingar safnsins
námu tæpum hálfum milljarði króna í
árslok 2010. Skuldirnar voru við Spari-
sjóðinn í Keflavík, sem var yfirtekinn af
Landsbankanum eftir fall hans í fyrra,
og við Reykjanesbæ.
Landsbankinn afskrifar skuldir
Orðrétt segir um þetta í ársreikningi Ís-
lendings ehf. fyrir árið 2010: „Félagið
hefur unnið að fjárhagslegri endur-
skipulagningu á árinu 2011 og mun
þeirri vinnu líklega ljúka fyrir lok ársins
2011. Endurskipulagningarferlið hefur
verið unnið samhliða fyrir dótturfélag
félagsins Útlending ehf. Allt bendir til
þess að skuldir Útlendings ehf. í árs-
lok 2011 verði lækkaðar um 60–70%
og að Reykjanesbær muni skuldajafna
kröfu sinni á félögin og breyta í hlutafé
í Íslendingi ehf. að fjárhæð rúmar 100
milljónir króna og eignast þar með
yfir 99% hlut í félaginu. Áætlað er að
eignir samstæðu Íslendings ehf. muni
í árslok 2012 nema um 438 milljónum
króna og að skuldir samstæðunnar
eftir leiðréttingu og endurskipulagn-
ingu verði á sama tíma um 185 millj-
ónir króna.“
Þessi niðurstaða Reykjanesbæjar í
málum Íslendings og Útlendings þýð-
ir í reynd að skuldir þessara tveggja fé-
laga fara úr samtals rúmlega 600 millj-
ónum króna og niður í tæplega 200
milljónir. Reykjanesbær tekur á sig
þessa afskrift að hluta auk þess sem
Landsbankinn afskrifar þá kröfu sem
hann erfði frá Sparisjóðnum í Keflavík.
Gunnar sagði Steinþór hafa
reddað lánum
Í viðtali við DV í fyrrasumar sagði
Gunnar Marel Eggertsson frá því að
Steinþór Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins og stjórnarmaður í
Sparisjóðnum í Keflavík, hefði séð
um fjármögnun á Íslendingi ehf. og
dótturfélagi þess. „Það kom bara
þannig til að Steinþór var gerður að
framkvæmdastjóra Íslendings og
hann gekk bara inn í sparisjóðinn og
fékk vilyrði fyrir þessum lánum. Það
var ekkert flókið,“ sagði Gunnar Mar-
el.
Steinþór sagði sjálfur í samtali við
DV á þessum tíma að Íslendingur
væri ekki tæknilega gjaldþrota. „Varð-
andi Íslending þá er það rekstrarfélag
sem er alls ekki tæknilega gjaldþrota
og á meðal annars skipið sem er met-
ið á annað hundrað milljónir,“ sagði
Steinþór í samtali við blaðið.
Nú hefur hins vegar komið á dag-
inn að þeir aðilar sem fjármögnuðu
víkingaskipið og byggingu Víkinga-
heima hafa annaðhvort þurft að af-
skrifa kröfur sínar vegna þessarar fjár-
festingar eða að breyta þeim í hlutafé í
víkingaverkefninu í Reykjanesbæ.
Bærinn eignast 100
milljóna víkingaskip
„Það kom bara
þannig til að Stein-
þór var gerður að fram-
kvæmdastjóra Íslendings
og hann gekk bara inn í
Sparisjóðinn og fékk vil-
yrði fyrir þessum lánum.
n Ríkisbankinn afskrifar skuldir frá Sparisjóðnum í Keflavík
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Reykjanesbær eignast víkingaskip Reykjanesbær hefur nú breytt 100 milljóna kröfu sinni á hendur Íslendingi ehf. í tæplega 100
prósenta eignarhlut í félaginu. Samhliða þessu eignast bærinn fasteignina sem hýsir skipið.
Landsbankinn afskrifar Landsbankinn
afskrifar hundraða milljóna skuldir út af
byggingu Víkingaheima. Steinþór Jónsson var
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og fram-
kvæmdastjóri Íslendings, auk þess sem hann
var stjórnarmaður í Sparisjóðnum í Keflavík.