Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Page 6
6 Fréttir 18.–20. maí 2012 Helgarblað R agna Erlendsdóttir, móðir Ellu Dísar, bíður þess að fá fullt forræði yfir dóttur sinni aftur. Ella Dís dvelur á stofn- un fyrir fötluð börn í Bret- landi og Ragna hitti hana í fyrsta skiptið í mánuð fyrir skemmstu. „Það var rosa gaman að sjá hana, hún hreyfði sig og var ánægð að sjá mig. Hún grátbað mig um að fara með sig heim. Horfði á hurðina og horfði á mig og bara: „Taktu mig heim.“ Það var ótrúlega erfitt að þurfa að fara frá henni, hún grét og ég grét,“ segir Ragna. Bjargaði lífi hennar Ragna var að hluta til svipt forræði yfir dóttur sinni í kjölfar þess að hún fór með hana frá Íslandi til Bretlands í desem ber síðastliðnum í trássi við vilja barnalækna á Barnaspítala Hringsins sem töldu hana of veika til að fljúga „Þetta er leiðindastaða og allt frekar erfitt. En það fer ágætlega um hana þarna og konurnar sem sjá um hana virðast sjá vel um hana. Hún er hrein og svona og henni gengur rosa vel, er farin að hreyfa sig meira og er öll að koma til. Ef guð lofar þá losnar hún kannski úr öndunarvélinni, en mað- ur getur ekkert sagt um það. Það er leiðinlegt hvernig þetta mál byrjaði allt saman og að setja mig í þessa að- stöðu eftir allt sem ég hef gert gott fyrir hana. Ég bjargaði lífi hennar þó ég segi sjálf frá og ef það væri ekki fyrir mig og mínar endalausu beiðnir um prufur og að hitta lækna þá hefði þetta aldrei fundist,“ segir Ragna. Rifin milli tveggja landa „Við erum bara að vinna að því að koma Ellu Dís heim, það verða vænt- anlega bara ein réttarhöld í viðbót. Þetta gengur samt ekki eins fljótt og ég vil en ég lít björtum augum á þetta,“ segir Ragna sem hefur verið á Íslandi undanfarið þar sem hún á tvær aðrar dætur sem eru í leik- skóla og skóla hér á landi. „Ég er rifin milli tveggja landa,“ segir Ragna sem finnst afar erfitt að vera frá Ellu Dís. Læknar erlendis hafa samkvæmt Rögnu greint Ellu Dís með genagalla sem kann að hafa orsakað veikindi hennar. Gallinn veldur því að líkami hennar vinnur illa úr vítamínum. „Hún fær súperskammt af B2, öðru nafni riboflavin, þannig að það sé alltaf forði í maganum á henni. Þeir eru ekki búnir að útskýra þetta nógu vel fyrir mér en stutta útgáfan er sú að líkami hennar nýtir ekki B-víta- mín og jafnvel önnur vítamín einn- ig, en þetta kemur allt í ljós á næstu vikum.“ Leitar að húsnæði Ragna og dætur hennar eru heimilis- lausar eins og er og búa hjá ömmu og afa Rögnu. „Ég er ekki með neitt húsnæði eins og er og bý heima hjá ömmu og afa en ég þarf að finna hús- næði. Félagsbústaðir og Öryrkja- bandalagið eiga ekki neitt. Ég á ekk- ert heimili til að bjóða henni upp á, ég er að leita að leiðum til að leysa úr því. Það er náttúrulega erfitt að bjóða henni heim til sín þegar maður hef- ur ekkert að bjóða. Hún gæti þann- ig séð verið hjá ömmu og afa en það er þröngt, líka því það fylgir eðlilega mikið dót með henni. Í þessari fimm ára baráttu við veikindi Ellu Dísar misstum við allt og ég er á barmi gjaldþrots. Þetta réttarmál er búið að taka það litla sem við áttum eftir.“ Þrátt fyrir að hafa staðið í deilum við læknana á Barnadeild Hrings- ins segist Ragna ekki óttast að koma heim með Ellu Dís. „Það er búið að segja mér það að þeir treysti sér al- veg til að hugsa um hana og eru til- búnir að vera í samstarfi við ensku læknana og ég verð að treysta því. Ef hún þarf að fara út þá styðja þeir það en setja það ekki í mínar hendur, þeir eru búnir að segjast vilja taka á móti henni og halda áfram þaðan sem þarf að halda áfram.“ Skrifar bók Ragna segist hafa bjartsýnina að vopni í baráttunni. „Á maður ekki alltaf að vera bjartsýnn? Ég er búin að ná þetta langt. Ég trúði því allt- af að það fyndist hvað væri að Ellu og ég trúi að þetta verði allt betra bráðum. Það gefur manni ekki neitt að vera neikvæður. Ég ætla bara að vera jákvæð og þakklát. Ella er á lífi og eins og einn góður maður sagði við mig: Ég veit þér líður eins og barninu þínu hafi verið rænt en hugsaðu þér ef þú værir eins og foreldrar Madeleine McCann. Einhver rændi barninu þeirra og þau vita ekki neitt. Ég get allavega alltaf hitt hana. Ég er bara í ferli og þetta er ekki eins slæmt og maður heldur.“ Ragna er einnig að skrifa bók um baráttuna. „Þar ætla ég að segja frá öllu. Hvernig Ella upplifði þetta og ég og systur hennar og bara frá þessu öllu. Mig hefur lengi langað að gera þetta og er svona að fara að byrja á því. Ég er búin að tala við tvö forlög sem vilja að ég skrifi bók- ina og sýni þeim hana svo. Þannig að ég er bara að vinna í þessu.“ n „Ég á ekkert heimili til að bjóða henni upp á, ég er að leita að leiðum til að leysa úr því. „Erfitt að fara frá hEnni“ Grétu báðar Ragna segir þær báðar hafa grátið þegar hún fór frá henni. Þær höfðu ekki hist í mánuð. Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is Systurnar Ella Dís með systrum sínum. Þær eru á Íslandi en Ella í Bretlandi. „Ég er rifin milli tveggja landa Snjóflóð féll á vélsleðamenn Laust fyrir klukkan hálf tvö á miðvikudag barst lögreglunni á Akureyri tilkynning um að snjóflóð hefði fallið í suður- hlíðum Kerlingar á Glerárdal ofan Akureyrar og hefðu tveir vélsleðamenn lent í flóðinu og væru afdrif þeirra óljós. Voru þá þegar ræstar út björgunar- sveitir Landsbjargar á svæð- inu og undirbúningur aðgerða hafinn, segir í tilkynningu frá lögreglunni. Lögreglu barst ör- fáum mínútum síðar aftur sím- tal frá mönnum þessum og þá jafnframt staðfesting á að báðir þessir menn hefðu komist af sjálfdáðum úr flóðinu og væru óslasaðir og var þá öll aðstoð afturkölluð. Þarna höfðu nokkrir vél- sleðamenn verið á ferðinni, á leið upp á fjallið Kerlingu og lentu tveir þeir öftustu í fleka- flóði sem fór af stað í kjöl- far þeirra sem á undan voru. Annar mannanna grófst í flóð- inu en náði að komast upp úr því af sjálfdáðum. Sá var með bakpoka með útblásanlegum loftpúðum sem ætlað er að koma mönnum til aðstoðar í aðstæðum sem þessum og náði maðurinn að virkja loftpúðana og má telja líklegt að það hafi hjálpað til að halda honum efst í flóðinu. Félagar mannsins sáu því allan tímann hvar hann var staddur í flóðinu. Dýrt að reka bæjarstjóra Ásmundur Friðriksson hefur verið rekinn úr starfi bæjarstjóra í Garði. Auglýst verður eftir viðskipta- menntuðum bæjarstjóra. Þetta var samþykkt á aukafundi í bæjar- stjórn Garðs á miðvikudagskvöld. Ásmundur kemur til með að þiggja laun í 32 mánuði eftir starfslokin, nokkuð sem hann tjáði RÚV að komi til með að kosta bæjarfélag- ið hátt í fimmtíu milljónir króna þegar upp er staðið. „Mér finnst það dýrt ósætti að það kosti bæinn tæpar 50 milljónir,“ sagði Ásmundur um málið. Um fimmtíu bæjarbú- ar sóttu fundinn og urðu nokkuð snörp orðaskipti og heitar umræð- ur á fundinum þegar skýrsa um Gerðaskóla var rædd. Þurfti meðal annars að vísa áhorfendum úr húsi. Kolfinna S. Magnúsdóttir, bæjar- fulltrúi sjálfstæðismanna, myndaði nýlega meirihluta með L-lista og N- lista. Skipað var í embætti formanns skólanefndar á fundinum og var Eiríkur Hermannsson, eiginmaður Oddnýjar Harðardóttur fjármála- ráðherra settur í það embætti. Ás- mundur segir það vera merki þess að fjármálaráðherrann sé að hafa afskipti af bæjarmálum í Garði en Oddný og eiginmaður hennar eru búsett í Garði. n Ragna hitti Ellu Dís í fyrsta skipti eftir að hafa verið aðskilin í mánuð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.