Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Side 16
Kvótinn Keypti Moggann
16 Fréttir 18.–20. maí 2012 Helgarblað
E
igendur Morgunblaðs-
ins eiga þriðjung fulltrúa
í aðalstjórn LÍÚ en sömu
eigendur leggja sérstaka
áherslu á átökin um sjávar-
útveg í efnistökum Morgunblaðs-
ins. Auk Icesave leggja eigendur
blaðsins áherslu á átökin vegna
hugsanlegrar inngöngu Íslands í
Evrópusambandið og svo deilurn-
ar um Icesave-reikningana. Þetta
er meðal þess sem kom fram í við-
tali Viðskiptablaðsins við Óskar
Magnússon, útgefanda og einn
eigenda blaðsins, í upphafi maí.
Lognið á Morgunblaðinu
„Blaðið var í logni sem flestum
virtist líða vel með, í nokkurs kon-
ar átakalausum Samfylkingarblæ,“
sagði Óskar við Viðskiptablaðið.
„Hins vegar voru stór þjóðfélags-
leg mál sem ég og aðrir eigendur
töldum að þyrfti að leggja áherslu
á og að fengju efnislega umfjöllun.
Þar bar hæst Icesave-málið,“ segir
Óskar sem í sama viðtali þakkar
Morgunblaðinu fyrir núverandi
stöðu Icesave-deilunnar. „Síðan
voru fram undan átök um aðild að
Evrópusambandinu og eins sjáv-
arútvegsmál. Við ákváðum að taka
þessa áhættu.“
Berorður útgefandi
Viðtal Viðskiptablaðsins við Óskar
er athyglisvert fyrir þær sakir að
þar er eigandi fjölmiðilsins sem
jafnframt er útgefandi miðilsins
nokkuð berorður um áherslur og
ástæður eignarhalds fjölmiðils-
ins. Óskar var til að mynda spurð-
ur hvernig hann mæti þann árang-
ur sem náðst hefur með baráttu
blaðsins og nefndi þar Icesave
sérstaklega. „Ég þakka Morgun-
blaðinu að miklu leyti hvernig það
mál fór. Það má þó ekki gleyma
mjög öflugu starfi sjálfsprottinna
hreyfinga í því máli, en ef fjölmið-
ill eins og Morgunblaðið hefði
ekki beitt sér eins og það gerði þá
tel ég að Icesave-málið væri í öðr-
um farvegi núna og orðinn mikill
skuldabaggi á þessari þjóð.“ Óskar
segir þó að blaðið hafi aðeins beitt
sér með ritstjórnarlegu efni blaðs-
ins, það er leiðurum og Reykja-
víkurbréfum. Staksteinar eru ekki
nefndir sérstaklega í viðtalinu
en þess má þó vænta að þeir falli
undir það sem kallað er ritstjórn-
arlegt efni.
Sóst eftir Davíð
„Með ráðningu á Davíð vorum við
að sækjast eftir ákveðnum hlut-
um sem hann býr yfir og senni-
lega enginn annar,“ sagði Óskar
um ráðningu Davíðs Oddssonar,
fyrrverandi seðlabankastjóra og
forsætisráðherra, sem ritstjóra.
Davíð sat samfleytt á forsætisráð-
herrastóli lengur en nokkur ann-
ar hefur gert hér á landi. Um við-
brögðin við ráðningu Davíðs segir
Óskar þau hafa verið meiri en bú-
ist var við. Aðspurður um upp-
sagnir á áskrift að blaðinu sagði
hann: „Þær fóru fram með skipu-
lögðum hætti af ákveðnum póli-
tískum öflum hér í samfélaginu.“
Hann sakar RÚV enn fremur
um „einstakt hlutleysisbrot“ og
segir fréttastofu RÚV hafa auglýst
áskriftasíma Morgunblaðsins svo
segja mætti upp blaðinu. „Það er
alveg einstakt hlutleysisbrot sem
með engu móti er hægt að kalla
fréttamennsku.“
Miðlun viðsýnnar umræðu
Á vef fjölmiðlanefndar má finna
upplýsingar um eigendur og rit-
stjórnarstefnu fjölmiðla. Í til-
felli Morgunblaðsins er ritstjórn-
arstefnan skráð sem: „Miðlun
víðsýnnar umræðu, frétta og
umfjöllun um margvísleg mál-
efni.“ Stefna sem blaðið hefur haft
svo árum skiptir og var í gildi löngu
áður en núverandi eigendur blaðs-
ins tóku við. Það vekur athygli að
nýir eigendur hafi ekki séð ástæðu
til að skrá hina nýju stefnu blaðsins
sem útgefandi þess lýsir í nýlegu
Viðskiptablaðsviðtali, hjá Fjöl-
miðlastofu.
Árvakur, útgáfufélag Morgun-
blaðsins, er í eigu tveggja fyrir-
tækja, Þórsmörk ehf. á 99 prósenta
hlut í fyrirtækinu en restina á fyr-
irtæki í eigu Óskars Magnússonar
sem heitir Áramót.
Meðal fyrirtækja sem eiga í
Þórsmörk eru útgerðarfélagið
Rammi, Krossanes sem er í eigu
Samherja, Páll Hreinn Pálsson einn
eigenda útgerðarfélagsins Vísis hf,
Hlynur A ehf. fyrirtæki Guðbjargar
Matthíasdóttur eiganda Ísfélags
Vestmannaeyja. Kaupfélag Skag-
firðinga, stærsti eigandi Fisks, er
meðal eigenda Þórsmerkur sem
og Fjárfestingarfélagið GIGAS en
eigendur þess tengjast Stálskipum
ehf. Þá má nefna Skollaborg ehf,
sem er í eigu Einars Vals Kristjáns-
sonar hluthafa í Hraðfrystihús-
inu - Gunnvör hf. Þannig fara að-
ilar tengdir handhöfum aflamarks
með rúmlega 70 prósent hlutafjár í
Þórsmörk ehf. eiganda nánast alls
hlutafjár í Árvakri.
83 þúsund þorskígildistonn
„Þessi fyrirtæki fá samtals úthlut-
að 27,16% af heildarkvótanum á Ís-
landsmiðum,“ skrifar Ingimar Karl
Helgason fréttamaður á vefritinu
Smugunni um eignarhald Morg-
unblaðsins í febrúar síðastliðn-
um. Það þýðir að bak við aðila sem
tengjast eignarhaldi Morgunblaðs-
ins eru rúmlega 83 þúsund þorsk-
ígildistonn sé miðað við úthlutaðar
aflaheimildir fiskveiðiárið 2010–
2011. Til samanburðar má nefna
að allur strandveiðikvóti sem út-
hlutað var á síðasta fiskveiðiári er
aðeins tæplega sjö þúsund þorsk-
ígildistonn en byggðakvóti er í
heild tæplega sex þúsund tonn. n
n Áhersla eigenda Morgunblaðsins er á átökin um sjávarútveg n Eiga um þriðjung kvótans á Íslandi n Þrettánfaldur byggðakvóti„Með ráðningu
á Davíð vorum
við að sækjast eftir
ákveðnum hlutum
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is Útgerðarfélög sem eiga í Þórsmörk ehf, sem á 99 prósent í Árvakri, útgáfufélagagi
Morgunblaðsins og mbl.is, og hlutdeild þeirra af heildaraflamarki. Listinn er til
glöggvunar og er ekki tæmandi.
Eigendur Árvakurs
Tölur um eignarhald á Þórsmörk eru frá febrúar síðastliðnum sem og tölur um
kvótaúthlutun fyrirtækja. Listinn byggir á samantekt Ingimars Karls Helgasonar,
fréttamanns Smugunnar. Smugan er meðal annars í eigu Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs, Steingríms J. Sigfússonar sjávarútvegsráðherra, Ögmundar Jónassonar
innanríkisráðherra auk Lilju Skaftadóttur sem einnig á hlut í DV.
Ólafur Helgi
Marteinsson
Rammi hf.
6,69% eign í Þórsmörk ehf.
4,16% af heildaraflamarki
Þorsteinn Már
Baldvinsson
Krossanes ehf.
20,8% eign í Þórsmörk ehf.
Í eigu Samherja hf.
6,22% af heildaraflamarki –
Samherji á einnig 45% í Síldarvinnslunni hf.
1,69% af heildaraflamarki
Páll Hreinn Pálsson
3,35% eign í Þórsmörk ehf.
Páll á hlut í Vísi hf.
4,30% af heildaraflamarki
Þórólfur Gíslason
Kaupfélag Skagfirðinga
3,35% eign í Þórsmörk ehf.
Kaupfélagið á FISK-Seafood hf.
4,74% af heildaraflamarki
Guðbjörg
Matthíasdóttir
Hlynur A ehf.
26,77% eign í Þórsmörk ehf.
Guðbjörg á Ísfélag Vestmannaeyja hf.
1,67% af heildaraflamarki
Guðrún Helga
Lárusdóttir
Fulltrúi Stálskipa í stjórn LÍÚ
og á 20% í GIGAS
Fjárfestingarfélagið GIGAS ehf.
6,69% eign í Þórsmörk ehf.
Meðal eigenda eru aðilar tengdir
Stálskipum ehf.
1,26% af heildaraflamarki
Einar Valur
Kristjánsson
Skollaborg ehf.
2,81% eign í Þórsmörk ehf.
Einar er hluthafi í Hraðfrystihúsinu -
Gunnvör hf
3,12% af heildaraflamarki
„Útgerðin þjóðnýtt“ Haft
er eftir Sigurgeir B. Kristjánssyni,
framkvæmdastjóra Vinslustöðvarinnar
í Vestmannaeyjum, að frumvarp
ríkisstjórnarinnar sé sama og þjóðnýting.
Skipið úr landi „Nýjasta skipið selt úr
landi?“ Haft er eftir Gunnlaugi Sævari
Gunnlaugssyni, stjórnarformanni Ísfélags
Vestmannaeyja, á forsíðu blaðsins að
hugsanlega þurfi að selja nýjasta skip
félagsins úr landi verði kvótafrumvörp
ríkisstjórnarinnar að veruleika.
Hagsmunabarátta
útgerðarmanna
Auglýsingaherferðir útgerðarmanna vekja oftar en ekki deilur
Auglýsingaherferðir og hagsmunabarátta á vegum útgerðarfyrirtækja og samtaka þeirra
er langt í frá nýtt fyrirbæri. Auglýsingarnar líkt og ummæli talsmanna útgerðarfyrirtækja
vekja oftar en ekki hörð viðbrögð. DV hefur tekið saman nokkur dæmi um herferðir
útgerðarmanna og LÍÚ síðustu ár.
„Hér má ekki
fleira hrynja“
Útgerðarmenn blésu til
auglýsingaherferðar gegn fyrirhugðum
breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu
í mars árið 2010. Þann 4. mars birtust
til að mynda sex heilsíðuauglýsingar
frá ýmsum útgerðarfélögum og
hagsmunaaðilum í sjávarútvegi. Nokkru
áður höfðu fulltrúar Landssambands
íslenskra útvegsmanna tilkynnt um
að þeir væru hættir að mæta á fundi
sáttanefndarinnar. Svo fór að fulltrúar
LÍÚ komu seinna aftur til funda með
fyrirvörum.
Auglýsingaherferðin vakti mikla athygli enda myndræn mjög. Í einni auglýsingunni
mátti sjá kross reistan rétt við sjó yfir fyrirsögninni „Fyrningarleið“. Önnur auglýsing
sagði sjávarútveg helsta drifkraft í endurreisninni eftir hrun. „Hér má ekki fleira hrynja,“
var fyrirsögnin. Þriðja auglýsingin varaði við því að sjávarútvegurinn yrði gerður að
„tilraunadýri stjórnmálamanna“.
Útvegsmannafélag
Reykjavíkur
Dala – Rafn ehf Frár eh
f Grím
snes ehf
Farsæll ehf
Guðmundur ehf
Steinunn SH
Útgerðarfélagið
Glófaxi
Útnes ehf.
Rifi
Stálskip ehf