Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Blaðsíða 20
Ú
tgerðarfyrirtækið Samherji
hefur greitt langmestan arð
til hluthafa sinna af öllum ís
lenskum sjávarútvegsfyrir
tækjum hér á landi síðastlið
in fimm ár. Um 1.200 milljónir króna
skilja að Samherja og næsta útgerð
arfyrirtækið á listanum af hæstu arð
greiðendunum á tímabilinu 2006–
2011, Síldarvinnsluna í Neskaupstað.
Samherji hefur greitt rúmlega 3.900
milljónir króna í arð til hluthafa
sinna en Síldarvinnslan ríflega 2.700.
Svo vill til reyndar til að Samherji er
stærsti einstaki hluthafi Síldarvinnsl
unnar með 45 prósenta eignarhlut og
nýtur því góðs af arðgreiðslunum út
úr fyrirtækinu.
Þetta er meðal þess sem kem
ur fram í úttekt DV á arðgreiðslum
út úr 12 stærstu sjávarútvegsfyrir
tækjum landsins á árunum 2007 til
2012. Miðað er við úthlutaðar afla
heimildir þegar stærð fyrirtækj
anna er metin en HB Grandi, Sam
herji og Þorbjörn eru í þremur efstu
sætunum yfir kvótahæstu útgerðir
landsins. Samherji og dótturfélag
þess, Síldarvinnslan í Neskaupstað,
hafa greitt langmestan arð út úr sín
um fyrirtækjum. Þar á eftir koma
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum
og Ísfélag Guðbjargar Matthías
dóttur.
Arðurinn rennur til hluthafanna
Mikil umræða hefur verið um kvóta
frumvörp ríkisstjórnarinnar síðast
liðna mánuði og hvort íslensk út
gerðarfyrirtæki muni geta staðið
skil á þeim auknu veiðigjöldum sem
kveðið er á um í öðru frumvarpinu
og jafnframt haldið áfram rekstri.
Yfirlit DV sýnir að arðgreiðslurnar
sem hluthafar útgerðanna taka út úr
rekstrinum nema í mörgum tilfell
um hærri upphæðum en þau veiði
gjöld sem fyrirtækin greiða til ríkis
ins samkvæmt núgildandi lögum.
Þetta eru fjármunir sem teknir eru
út úr rekstrinum á útgerðarfélögun
um og sem renna til hluthafa þeirra
beint eða eignarhaldsfélaga í þeirra
eigu. Sum þessara eignarhaldsfélaga
sitja á milljörðum króna í peningum
á meðan önnur nota arðgreiðslurnar
út úr útgerðunum til að greiða niður
skuldir sínar.
Starfsemi Samherja að mestu
erlendis
Sú staðreynd að Samherji er lang
efst í röð þeirra útgerða sem greiða
mestan arð til hluthafa sinna kem
ur ekki á óvart þegar litið er til þess
hversu umsvifamikið fyrirtækið er
víða um heiminn. Samherji er orð
ið eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki
Evrópu; er risi í sjávarútveginum í
álfunni. Arðgreiðslurnar út úr fyrir
tækinu eru ein birtingarmynd þessa.
Stærstu hluthafar Samherja eru
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri
þess, og Kristján Vilhelmsson. Sam
herji ræður yfir 7 prósentum kvót
ans í landinu miðað við þorskígild
istonn en einungis um 30 prósent af
starfsemi fyrirtækisins fer fram hér á
landi. 70 prósent af starfsemi Sam
herja er því erlendis, meðal annars
við strendur VesturAfríku, í Þýska
landi, Englandi, Póllandi og Fær
eyjum. Því er að stóru leyti um að
ræða arð vegna tekna sem aflað er
erlendis.
6,6 milljarðar í arð
Samanlagðar arðgreiðslur út úr Sam
herja og dótturfélaginu Síldarvinnsl
unni nema 6,6 milljörðum króna síð
astliðin fimm ár. Framkvæmdastjóri
Síldarvinnslunnar, Gunnþór Ingva
son, hefur verið einna mest áberandi
meðal útgerðarmanna í baráttunni
gegn kvótafrumvörpum ríkisstjórn
arinnar og hefur hann sagt að frum
vörpin muni geta gengið af útgerð
arfélögunum dauðum. Sú barátta
Gunnþórs er því meðal annars háð
í nafni Samherja, stærsta hluthafa
Síldarvinnslunnar, enda snúast deil
urnar um kvótafrumvörpin meðal
annars um hagsmuni Samherja –
samanlögð kvótaeign Samherja og
Síldarvinnslunnar nemur um 11,4
prósentum af heildarkvóta landsins.
„Það er of mikið í húfi til að ég geti
leyft ykkur að ganga með þessum
hætti að mikilvægustu mjólkurkú
okkar. Nytin munu minnka og belj
an vendast. Við munum ekki fæða
hana eins og þarf […] Gerum þetta
þannig að hún færi börnunum okkar
líka framtíð,“ sagði Gunnþór á borg
arafundi um kvótafrumvörpin sem
haldinn var í Neskaupstað fyrr í maí
á sama tíma og hann lyfti upp mynd
af börnunum sínum.
Arðurinn hærri en veiðigjöldin
Í tilfelli þessara tveggja útgerðarfyrir
tækja eru arðgreiðslurnar út úr þeim
„Samanlagð-
ar arðgreiðslur
út úr Samherja og
dóttur félaginu Síldar-
vinnslunni nema 6,6
milljörðum króna
síðastliðin fimm ár
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
20 Fréttir 18.–20. maí 2012 Helgarblað
Arðurinn stundum hærri
en veiðigjöldin til ríkisins
n 6,6 milljarða arður út úr Samherja og Síldarvinnslunni n Yfirlit yfir arðgreiðslur 12 stærstu útgerðanna 2006 til 2011 n Útgerðirnar í Vestmannaeyjum arðsamar