Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Síða 26
26 Fréttir 18.–20. maí 2012 Helgarblað
Íslendingar vilja hafa forseta
n Vilja takmarka hve lengi sami forseti getur setið í embætti
m
ikill meirihluti þjóðarinn-
ar telur að það ætti að vera
hámark á því hversu mörg
kjörtímabil forseti Íslands
megi sitja. Slíka fyrirmynd má til
dæmis finna í Bandaríkjunum,
en forsetar þar vestra mega að-
eins sitja tvö kjörtímabil. Þá segj-
ast rúm 70 prósent landsmanna
vera á móti því að embætti for-
seta Íslands verði lagt niður. RÚV
greindi frá þessu á fimmtudags-
kvöld, en félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands kannaði nýverið
afstöðu fólks til forsetaembættis-
ins og hafði stofnunin sjálf frum-
kvæði að gerð könnunarinnar sem
var gerð dagana 17 apríl til 7 maí á
þessu ári.
Þeir sem tóku þátt í könnuninni
voru spurðir: Kjörtímabil forseta
Íslands er fjögur ár. Ert þú á þeirri
skoðun að það ætti að vera hámark
á því hversu mörg kjörtímabil einn
forseti má sitja? Af þeim sem svör-
uðu sögðust 64 prósent vera á því
að það ættu að vera mörk á því
hversu lengi forseti megi sitja, en
36 prósent sögðust telja að eng-
in mörk ættu að vera á því. Þá var
einnig spurt hversu mörg kjör-
tímabil fólk teldi að sami forseti
ætti að fá að sitja að hámarki. Því
svaraði um þriðjungur að þeir
teldu að hann ætti að fá að sitja
tvö kjörtímabil, tæpur helmingur
að hann ætti að fá að sitja þrjú og
fimmtungur að hann ætti að fá að
sitja fjögur eða fleiri kjörtímabil.
Þá var einnig spurt að því hvort
leggja ætti embættið niður og var
spurningin svohljóðandi: Ert þú
sammála eða ósammála því að
leggja skuli forsetaembættið niður?
Fjórtán prósent þeirra sem
svöruðu sögðust vera því mjög eða
frekar sammála, þrettán prósent
hvorki sammála né ósammála, en
73 prósent sögðust vera því mjög
eða frekar ósammála.
„Brilljant“ lausn
á Nasa-málinu
Hugmynd um „brilljant úrlausn“
á reitnum þar sem skemmtistað-
urinn Nasa stendur nú er víst til.
Hún byggist ofur einfaldlega á
því að Nasa verði þar áfram segir
poppstjarnan Páll Óskar Hjálmtýs-
son. Söngvarinn hefur síðastliðin
ár varað við lokun staðarins sem
hann segir eina raunverulega tón-
leikastað borgarinnar. Páll skrifar
opið bréf til Jóns Gnarr borgar-
stjóra í Fréttablaðinu á fimmtudag
þar sem hann ítrekar að nauðsyn-
legt sé að grípa til aðgerða. Engan
tíma megi missa.
„Ég tel að besta lausnin á þess-
um reit sé að leyfa Nasa að standa
og halda starfsemi þess áfram.
Ríki og borg eiga að kaupa þetta
húsnæði og tryggja áframhald-
andi lista- og menningarstarfsemi
þar inni. Húsafriðunarnefnd á að
friða þetta hús að innan sem utan.
Restin af gamla Landsímahúsinu,
sem má svo sannarlega flikka upp
á og gera fallegra, verði svo notuð
undir skrifstofur Alþingis. Mér
skilst að þar sárvanti húsnæði.
Ég skora því á Alþingi að kaupa
gömlu símahúsin.“
Eins og kunnugt er hyggst eig-
andi hússins, Pétur Þór Sigurðs-
son, lögfræðingur, rífa húsið og
byggja nýtísku hótel í staðinn. Þá
ráðagerð kallar Páll Óskar „eitt
mesta og ömurlegasta umhverfis-
og menningarslys í sögu Reykja-
víkur.“
Popparinn ítrekar að hvorki
Harpa né aðrir slíkir tónleikastað-
ir geti nokkurn tíma komið í stað
Nasa. Þá fullyrðir hann að enginn
frekari skortur sé á hótelum í mið-
borg Reykjavíkur og reyndar sé
hótelvæðing miðborgarsvæðisins
farin að minna á „pitsu- og vídeó-
leiguæðið á síðasta áratug 20.
aldarinnar.“
Bessastaðir Íslendingar vilja hafa forseta á Bessastöðum.
Í samstarf á
hæsta tindi
Valitor og Ferðafélag Ísland fóru
ótroðnar slóðir við að undirrita
nýjan samstarfssamning fyrir viku.
Viðar Þorkelsson, forstjóri Val-
itor, og Páll Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Ferðafélags Íslands,
gerðu sér nefnilega lítið fyrir og
skruppu upp á Hvannadalshnjúk
ásamt fríðu föruneyti þar sem
skrifað var undir. Eftir 10 klukku-
stunda göngu fór undirskriftin
fram um hádegisbil á föstudeg-
inum í roki og kulda en björtu
skyggni og fögru útsýni. „Valið
er táknrænt fyrir áherslu beggja
félaganna á ná sem bestum ár-
angri í öllu okkar samstarfi,“ segir
Viðar í tilkynningu. Valitor hefur
verið aðalsamstarfsaðili Ferða-
félags Íslands undanfarin fimm
ár og hefur meðal annars styrkt
félagið til uppbyggingar á göngu-
leiðum, til skiltagerðar og bættrar
aðstöðu á hálendi Íslands.
H
ópur þingmanna íhugar nú
hvort nýta skuli heimild í
þingsköpum Alþingis sem
kveður á um tafarlausa at-
kvæðagreiðslu um að ljúka
umræðu á þingi og greiða atkvæði
um málið sem fyrir liggur. Ákvæð-
ið sem varðar tafarlausa atkvæða-
greiðslu um að ljúka málum hefur
ekki verið notað á liðnum áratug-
um. „Sömuleiðis geta níu þingmenn
krafist þess að greidd séu atkvæði
um það umræðulaust hvort umræðu
skuli lokið, umræðutími eða ræðu-
tími hvers þingmanns takmarkaður,“
segir í 64 grein þingskapa en grein-
in fjallar um valdheimildir svo enda
megi umræður sem „dragast úr hófi.“
Forseti Alþingis getur samkvæmt
sama ákvæði úrskurðað að ræðutími
hvers þingmanns skuli ekki fara fram
úr ákveðinni lengd. Sömuleiðis get-
ur forseti þingsins stungið upp á að
umræðum sé hætt og einnig getur
forseti lagt til, hvort heldur í byrjun
umræðu eða síðar, að umræðum um
mál skuli lokið að liðnum ákveðnum
tíma. Tillaga forseta skulu umræðu-
laust bornar undir atkvæði og aðeins
þarf meirihluta viðstaddra. Ekki ligg-
ur ljóst fyrir hvort formleg liðsöfnun
til beitingar ákvæðinu sé hafin.
90 stjórnarfrumvörp bíða
Fjöldi umdeildra mála bíður nú af-
greiðslu þingsins en um níutíu
stjórnarfrumvörp bíða nú afgreiðslu
þingsins. Þar af eru umdeild mál
líkt og rammaáætlun, breytingar á
fiskveiðistjórnun sem og atkvæða-
greiðsla um ráðgefandi þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Þar af eru þrjátíu
stjórnarfrumvörp sem bíða fyrstu
umræðu á þinginu en frumvörp
krefjast þriggja umræða í þingsal auk
úrvinnslu nefnda.
Umræða um þingsályktunartil-
lögu stjórnskipunar- og eftirlits-
nefndar um almenna atkvæða-
greiðslu þar sem gert er ráð fyrir að
almenningur verði spurður fimm
spurninga til úrvinnslu á tillögum
stjórnlagaþings hafa þegar verið
ræddar í rúmlega 30 tíma á Alþingi.
Samkvæmt starfsáætlun þingsins er
gert ráð fyrir að þingfrestun verði í
lok mánaðarins. Afar litlar líkur eru
á að sú áætlun haldi ef áfram heldur
sem á horfir.
Allir möguleikar skoðaðir
Ekki náðist að samþykkja þings-
ályktunartillögu stjórnskipunar-
nefndar í tæka tíð svo kosningarnar
gætu farið fram meðfram forseta-
kosningum. Sjálfstæðismenn sem
og hluti framsóknarmanna voru
meðal annars sagðir hafa með
klækjabrögðum komið í veg fyrir
að almenningur yrði spurður álits
um tillögur stjórnlagaráðs. Full-
trúar flokkanna hafa ítrekað neitað
að standa fyrir tilraunum til óeðli-
legra tafa og ekki viljað kannast við
málþóf. Fyrri umræða um þings-
ályktunartillöguna stóð í rúmlega
tíu stundir. Það er nokkuð yfir hefð-
bundnum tíma.
Samkvæmt heimildum DV var
vilji til þess meðal ákveðinna þing-
manna stjórnarmeirihlutans og
innan Hreyfingarinnar að nýta sér
ákvæði um að níu þingmenn geti
krafist tafarlausrar atkvæðagreiðslu
um mál. Þannig hefði mögulega
verið hægt að skera á hnútinn sem
málið var komið í um leið og hægt
hefði verið að samþykkja þjóðar-
atkvæðagreiðslu meðfram forseta-
kosningum áður en frestur rynni
út. Ekkert varð að beitingu ákvæðis-
ins þá en það mun nú aftur vera til
skoðunar hvort tilefni sé til beiting-
ar þess svo klára megi umdeild mál
fyrir þinglok.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
n Níu þingmenn geta krafist tafarlausrar atkvæðagreiðslu um þingmál
Þingsköp Alþingis
Ef umræður dragast úr hófi fram getur
forseti úrskurðað að ræðutími hvers
þingmanns skuli ekki fara fram úr
ákveðinni tímalengd.
n Forseti getur stungið upp á að um-
ræðum sé hætt og einnig getur forseti
lagt til, hvort heldur í byrjun umræðu
eða síðar, að umræðum um mál skuli
lokið að liðnum ákveðnum tíma.
Eigi má þó, meðan nokkur þingmaður
kveður sér hljóðs, takmarka ræðutíma
við nokkra umræðu svo að hún standi
skemur en þrjár klukkustundir alls. Til-
lögur forseta skulu umræðulaust bornar
undir atkvæði og ræður a atkvæða
úrslitum.
n Sömuleiðis geta níu þingmenn krafist
þess að greidd séu atkvæði um það
umræðulaust hvort umræðu skuli lokið,
umræðutími eða ræðutími hvers þing-
manns takmarkaður.
n Nú hefur verið samþykktur
takmarkaður umræðutími eða ákveðinn
ræðutími hvers þingmanns og skal þá
forseti skipta umræðutímanum í heild
sem jafnast á milli fylgismanna og and-
stæðinga máls þess sem er til umræðu,
án þess að hann sé bundinn við í hvaða
röð þingmenn hafa kvatt sér hljóðs, eða
milli flokka ef hentara þykir.
n Ákvæði þessarar greinar ná einnig til
ræðutíma ráðherra.
Þingmenn íhuga
að kæfa málÞóf
Málþófið kæft Hópur þingmanna
íhugar að nýta ákvæði þingskapa um
að níu þingmenn geti krafist tafar-
lausrar atkvæðagreiðslu án umræðu.