Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Qupperneq 28
Slátrarinn
Svarar fyrir
StríðSglæpi
28 Erlent 18.–20. maí 2012 Helgarblað
R
atko Mdladic, fyrrverandi
hershöfðingi Bosníu-Serba,
var á miðvikudag dreginn
fyrir Alþjóðadómstólinn í
Haag, þar sem hann svar-
ar til saka fyrir stríðsglæpi. Meðal
annars fyrir að hafa stýrt aftökum á
8.000 múslimum í bosníska bænum
Srebrenica.
Komið að skuldadögum
Mdladic, sem er sjötugur, er ákærð-
ur í ellefu liðum fyrir þjóðarmorð,
stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyn-
inu á borgarastyrjaldarárum fyrrver-
andi Júgóslavíu á árunum 1992–95.
Um er að ræða versta mál sinnar teg-
undar síðan í síðari heimsstyrjöld-
inni. Nú er komið að skuldadögum.
Á mánudag lagði lögmaður Mdla-
dic fram kröfu um að réttarhöldun-
um yrði frestað um hálft ár á þeim
forsendum að saksóknari hefði flask-
að á að leggja fram sönnunargögn
í tæka tíð og þá sakaði hann sömu-
leiðis hollenskan dómara málsins
um hlutdrægni vegna fyrri starfa.
Réttarhöldin hófust á miðvikudag
að viðstöddum fjölskyldum fórnar-
lambanna, en á fimmtudag bárust
þau tíðindi að réttarhöldunum yrði
frestað um óákveðinn tíma.
Fannst í geymsluskúr í Serbíu
„Fórnarlömb Ratkos Mdladic hafa
beðið þess í nærri tvo áratugi að sjá
hann sitja á sakamannabekk,“ sagði
Param-Preet Singh, yfirráðgjafi hjá
Human Rights Watch, fyrir réttar-
höldin. „Þessi réttarhöld sýna að
þeir sem sakaðir eru um grimmd-
arverk verða að gera sér grein fyrir
að langur armur réttvísinnar verður
ekki umflúinn.“ Mdladic tókst að fara
huldu höfði í nærri sextán ár þangað
til yfirvöld handsömuðu hann loks í
maí 2011, með því að lögreglusveit
gerði áhlaup á lítið hús hans í norð-
urhluta Serbíu.
Þessi eftirlýstasti stríðsglæpa-
maður Evrópu fannst í garðinum
með bakið upp að vegg í geymslu-
skúr. Hann var með tvær skamm-
byssur á sér en gafst þó upp án átaka
og var framseldur til Hollands til að
svara til saka.
Réttarhöldin yfir Mdladic koma
í kjölfar annars tímamótadóms sem
féll á dögunum þar sem fyrrverandi
forseti Líberíu, Charles Taylor, var
fundinn sekur um aðild að stríðs-
glæpum í Síerra Leóne.
Fyrirlítur enn óvini sína
Frá fyrsta degi í varðhaldi hefur Mdla-
dic sýnt mótþróa og virðist síður en
svo hafa snúið baki við þeirri fyrirlitn-
ingu sem hann hafði á óvinum sínum.
Í dómsal hefur hann beint ógnandi
handabendingum að ekkjum fórnar-
lambanna í Srebrenica, þar sem hann
dró fingur þvert yfir háls sér líkt og
hann væri að skera á háls. Hann hef-
ur einnig truflað dóminn með því að
setja á sig hatt og neitað að tjá sig. Þá
hefur hann óskað eftir að máli hans
verði frestað sökum slæmrar heilsu.
En öll þessi klækjabrögð hafa verið til
einskis þó formgalli tefji þau nú
Dótturdauði gerði hann að
skrímsli
Það er óhugnanlegt til þess að
hugsa að ekki sé lengra síðan en í
júlí 1995 sem hershöfðinginn fyrr-
verandi leiddi hersveit sína inn í
bæinn Srebrenica. Á nokkrum dög-
um höfðu hermenn Mdladic kerf-
isbundið myrt átta þúsund mús-
limska menn og drengi. Í kjölfarið
fékk hershöfðinginn viðurnefnið
„Slátrarinn frá Bosníu“.
Rúmlega ári fyrir þjóðarhreins-
anirnar í Srebrenica, nánar tiltekið
í mars 1994, átti sér stað atburður
sem þeir sem þekktu Mdladic per-
sónulega segja að hafa gjörbreytt
honum í „blóðþyrst skrímsli“. Þá
fannst Ana, 23 ára gömul dóttir
hans, látin. Líklegast er talið að hún
hafi svipt sig lífi með uppáhalds-
skammbyssu föður síns en Mdla-
dic hélt því fram að hún hefði ver-
ið drepin af óvinum hans. Hið virta
tímarit Newsweek hafði eftir fyrr-
verandi yfirmanni í herliði hans:
„Margir telja að hann hafi misst vit-
ið. Líf Mdladic skiptist í tvo hluta –
fyrir og eftir andlát Önu. Hann náði
sér aldrei. Hann var niðurbrotinn
maður.“
Eftir að Mdladic var handtekinn
fékk hann, í fylgd sérsveitarmanna,
að heimsækja leiði dóttur sinnar í
Belgrad, í nokkrar mínútur þann 1.
júní 2011.
„Margir telja að
hann hafi misst
vitið. Líf Mdladic skiptist
í tvo hluta – fyrir og eftir
andlát Önu. Hann náði
sér aldrei.
n Ratko Mdladic dreginn fyrir dóm n Lét taka 8 þúsund manns af lífi
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Fyrir dómi Mdladic sést hér fyrir Alþjóðaglæpadómstólnum í Haag á miðvikudag.
Með fjöldamorð á sam-
viskunni Þessi mynd af
Mdladic var tekin í lok júlí
1995. Þá voru hersveitir hans
nýbúnar að myrða 8 þúsund
manns í Srebrenica.
Fjöldagröf Árið 1996 fundust ótal fjöldagrafir eftir voðaverkin í Srebrenica. Hér sjást sérfræðingar grafa upp eina slíka.
Hræddir Grikkir
tóku út milljarða
Í ljósi yfirvofandi stjórnarkreppu
og nýrra kosninga í Grikklandi
er erfitt að lá Grikkjum það að
vera eilítið skelkaðir um hag sinn
og framtíð miðað við allt sem á
undan er gengið. Á mánudaginn
þustu þúsundir Grikkja í banka
sína og tóku út sem nemur sam-
tals 115 milljörðum króna í ljósi
óvissunnar. Hagfræðingar hafa
síðan varað við því að bankakerfið
eins og það leggur sig geti hrunið
haldi óðagotið áfram að því er
Wall Street Journal greinir frá. Inn-
stæðueigendur óttast að Grikk-
land kunni að vera á leið úr evru-
samstarfinu og líst ekki á blikuna
varðandi sparnað sinn.
Abbast ekki
upp á ömmu
„Bak við tjöldin er hún bara amma
okkar, svo einfalt er það,“ sagði
Harry prins í viðtali við Katie Cou-
ric hjá ABC í vikunni aðspurður
hvernig það væri að eiga sjálfa
Englandsdrottningu sem ömmu.
„Ég lærði það strax frá unga aldri
að maður abbast ekki upp á
ömmu,“ bætti Vilhjálmur prins við
en brot úr viðtali bandarísku sjón-
varpskonunnar við prinsana hefur
verið birt á netinu en verður sýnt í
heild í lok mánaðarins. Í viðtalinu
slá prinsarnir tveir á létta strengi
með Couric. Harry sýnir hennir
leynihurð í Buckingham-höll og
upplýsir að amma hans sé ekki
búin að samþykkja vinabeiðni
hans á Facebook.
Elsti jógakennari
heims er 91 árs
Hún hefur kennt í 61 ár en hin 91
árs gamla Tao Porchon-Lynch hef-
ur nú verið viðurkennd af Heims-
metabók Guinness sem elsti jóga-
kennari veraldar. Og Tao gamla er
ekkert á þeim buxunum að leggja
jógamottuna á hilluna. „Ég mun
kenna uns ég hætti að anda og
flýg á vit nýrra ævintýra á annarri
plánetu,“ segir hin eiturhressa Tao
sem kennir hópi nemenda í dans-
stúdíói skammt utan New York-
borgar. Hún segir að læknirinn
sem skipti um mjaðamalið í henni
fyrir mörgum árum kalli hana
kraftaverkakonuna. Eftir aðgerð-
ina sendi hún honum mynd af sér
í lótusstellingunni og stakk þar
með upp í lækninn og allar dóms-
dagsspár hans.