Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Page 37
Viðtal 37Helgarblað 18.–20. maí 2012 útskýrir hann þegar blaðmaður spyr hvort það sé brjálað að gera. Hann segir okkur hafa verið falið landið með öllum sínum náttúru­ undrum til varðveislu, ekki bara fyrir núlifandi mannkyn heldur fyrir alla þá sem eiga eftir að lifa á jörðinni. Honum finnst sem Íslendingar horfi ekki nógu mikið fram fyrir sig og hafi í raun bara hálfa sýn sem þarf að fara að víkka út. „Hvað viljum við barnabörnunum okkar? Viljum við barnabörnunum okkar það að þau muni standa frammi fyrir því að leysa þessi vandamál sem við höfum ekki bara heykst á að leysa, heldur gert þau verri. Þetta er grundvöllurinn í þessu sem ég er að gera. Ég tel að lífsfylling okkar sjálfra aukist við að reyna að gera það sem gleður afkom­ endur okkar og eflir frelsi þeirra og velferð um alla framtíð. Erlendis eru til embætti með heitinu „umboðs­ maður ófæddra“. Það mætti vera til hér líka. Ég og hvert okkar um sig ætti að líta á sig sem slíkan.“ Ómar talar með öllum líkaman­ um, iðar til og frá í sæti sínu á Borg­ inni og baðar út höndunum til að leggja áherslu á mál sitt. Hann talar af hugsjón og það sést langar leiðir á lík­ amstjáningunni hve málstaðurinn er honum hugleikinn. Peningurinn fór endurbætur Nú er hann að berjast við að klára stóra kvikmynd um Gjástykki og Leirhnjúk sem hefur vinnuheitið Sköpun jarðarinnar og ferðir til Mars. Hann strandaði við gerð hennar fyrir tveimur árum vegna bágrar fjárhags­ stöðu. „Það fór af stað hreyfing fyrir tveimur árum. Þetta er mynd sem undir öllum venjulegum kringum­ stæðum kostar 60 til 70 milljónir. Ég ætla mér að klára hana á þessu ári en núna í þessari ofurneysluhyggju okkar þá koma áreitin alls staðar að. Nú allt í einu þarf að fara að bjarga Eldvörpum sem er gígaröð hérna á Reykjanesinu og fleiri slíkum undr­ um. Það kom allt í einu upp einhver stjórnarskrá og það fór næstum hálft ár í það,“ segir Ómar sem reynir að sinna starfi bjargvættar íslenskrar náttúru og er duglegur að vinna verk sem fáir vilja vinna. „Þeir peningar sem ég fékk fyrir tveimur árum til að losa mig úr skuldaklafanum eða úr hengingar­ ólinni fóru allir í að gera þetta að­ eins betur. Ég var búinn að vera einn að reyna að gera þetta við ófull­ komnar aðstæður. Við fórum í fyrra í leiðangra til að klára þetta mál í al­ mennilegum myndgæðum og ég sé vonandi fram úr því núna með því að fá örlítið meiri styrki til að klára þessu miklu stóru mynd. Gjástykki – Leirhnjúkur er bara miðjan í stórri sýn á Ísland frá Reykjanestá til Öxar­ fjarðar á heimsmælikvarða,“ segir Ómar og sýpur á kókinu. Vill komast á erlendan markað „Ég er ekki eins illa staddur og fyrir tveimur árum því ég hef áttað mig á því núna að ef ekkert af þessu hefði gerst fyrir tveimur árum þá hefði ég bara verið stopp þá og ekki verið bú­ inn að þessu öllu sem ég er þó búinn að gera síðan þá. Ég væri með þessa mynd í vandræðum. Ég er mjög þakklátur fyrir það sem gerðist þá en kemst alltaf í sama farið því þetta er svo stórt og maður er bara einn,“ seg­ ir Ómar og hlær léttur í lund. Hann segist þó eiga von á einhverjum styrkjum sem vonandi geti bjargað þeirri mynd fyrir horn, eins og hann orðar þar. Ómar segir myndina verða að vera nógu góða til að hægt sé að þýða hana og koma á erlendan markað. Hann segir það hafa klikkað hjá sér frá því hann fór sjálfur að gera mynd­ ir fyrir 11 árum. „Málin eru svo stór sem ég er að berjast fyrir að þau vinnast ekki hérna heima. Við erum lítil þjóð og lítil þjóð getur verið að dunda sér við að gera ýmislegt en ef umheimurinn veit hvernig við erum að fara með dýrgripi mannkynsins, lítur þetta ekki alveg eins út fyrir okkur. Ljóðið Kóróna landsins er mitt grundvallarljóð, einkum þessar hendingar: „Ísland er dýrgripur alls mannkyns- ins sem okkur er fenginn að láni, við eigum að vernda og elska það land svo enginn það níði né smáni.“ Þetta er hryggjarstykki í því sem ég er að gera. Skömm okkar út á við og afkomenda okkar verður meiri ef við vöndum okkur ekki.“ Biður guð að gefa sér tíma Kvikmyndin um Gjástykki og Leir­ hnjúk er þó ekki eina stóra verk­ efnið sem Ómar vinnur að um þess­ ar mundir, en hann er meðal annars búinn að vera með stóra kvikmynd í vinnslu síðastliðin sex ár sem ber heitið Brúarjökull og innrásirnar í Ís­ land. Hann segir það vera flottasta verkefni sitt og sé í raun Hollywood­ verkefni og eina verkefnið sem gæti gefið verulegar tekjur, því það snerti sögu seinni heimsstyrjaldarinnar. „Hún snýst allt í kringum þýska vís­ indakonu og einn flugvöll sem er á norðausturhálendinu sem nú er orðinn skráður og viðurkenndur af Flugmálastjórn sem fjögurra brauta flugvöllur fyrir allar vélar í innan­ landsflug, þar með talið Fokker F50. Í kringum þennan flugvöll, þýsku vísindakonuna og breytta heimsstyrjöld er hugmynd um stóra, stóra mynd. Og svo náttúru­ lega stóra myndin um siglingarn­ ar á Örkinni en hún verður að bíða af því að það svæði er farið og ég verð að láta þau svæði sem lifa enn hafa forgang,“ segir Ómar og það bregður fyrir dapurleika í glaðlegu andlitinu. En myndin um sigling­ arnar á Örkinni eru einstakar upp­ tökur af siglingum hans um lón Kárahnjúkavirkjunar. „Myndin er tekin við aðstæður sem voru algjör­ lega einstæðar og enginn upplifði nema stundum bara ég einn, þeg­ ar ég var einn á bátnum eða með Ætlar að syngja í eigin jarðarför „Þeir peningar sem ég fékk fyrir tveim- ur árum til að losa mig úr skuldaklafanum eða úr hengingarólinni þeir fóru allir í að gera þetta aðeins betur. Fer sínar eigin leiðir Ómar er nýbúinn að taka upp þrjú lög sem hann ætlar að syngja í sinni eigin jarðarför og finnst ekkert sjálfsagðara. „Þá segja menn: jarðarfarir eru alltaf „live“, en ég svara: neinei, af hverju skyldi hún vera „live“ úr því að „I‘m dead?““ myndir sigtryggur ari jóHannsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.