Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Qupperneq 45

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Qupperneq 45
45Helgarblað 18.–20. maí 2012 Uppáhaldslíkamsræktin Slökun, hreinsun og gott form Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, framkvæmdarstjóri „Hot jóga hjá Jóhönnu í Sporthúsinu er uppáhalds líkamsræktin mín. Þessir tímar gefa mér óendanlega mikið. Hot jóga er allt í senn slökun, hreinsun, þjálfar einbeitingu og kemur kroppnum í sitt langbesta form. Allt saman mjög mikilvægir þættir sem hjálpa mér við að takast á við þau krefjandi verkefni sem bíða mín á degi hverjum.“ „Tvöfaldur skolli“ „Ekki alvond sýning“ Tiger Woods PGA Tour 13 Svar við bréfi Helgu sex mínútur og fimmtán sek- úndur. Þetta er kjarninn Þetta er einmitt Sigur Rós. Þessi hæga stemning og fín- gerða uppbygging nær niður í moldina, í dýpstu rætur hljómsveitarinnar. Kannski má segja að platan eigi sterk- astan skyldleika með plöt- unni sem stundum er kölluð Svigaplatan. „Þetta er ekki það sem við lögðum upp með. Hins vegar er þetta tónlistin okkar. Þetta er tónlistin sem við höfum alltaf gert. Þetta er okkar kjarni. Það urðu ákveðnar breyt- ingar á plötunni Takk. Þar braust fram spilagleði og við litum aðeins upp úr þessum þungu, hægu og erfiðu lögum og brugðum á leik. Platan Suð var svo toppurinn á þess- ari stemningu. Valtari er að sumu leyti miklu alvarlegri plata.“ Varúð Rembihnútur Dauðalogn En ekki einu sinni tilvísanir í söguna geta nokkurn tímann verið gamlar þegar allt heldur áfram. Hér eru lög sem heita Varúð, Rembihnútur, Dauða- logn og Varðeldur. Fyrir þá sem hlustuðu á síðustu plötu, Með suð í eyrum, þá er þetta beint framhald, því þar eru lögin Ára bátur, Íllgresi, Fljótavík og Straumnes. „Jú, þetta er gegnumgang- andi. Ekki síst á þessari plötu, sem hefur þetta aukna rými í sér. Fyrir mig persónulega þá eru þarna lög eins og til að mynda Dauðalogn, þar sem ég er alltaf kominn gangandi upp á heiði þegar ég fer að hlusta. Aleinn. Úti er stillt veður, aleinn uppi á fjalli. Það merkilega gerist að jafnvel þótt maður hafi alla víðáttuna í kringum sig, þá er það eina sem gerist inni í manns eigin höfði. Ekkert gerist fyrir utan höfuðið. Þar er bara auðnin.“ Flestar eru þessar hug- myndir kunnuglegar fyrir venjulega Íslendinga sem þekkja til fyrir utan höfuð- borgina. Hugsa eins Ætli hér sé á ferðinni skipu- lögð hugmyndafræði í texta- smíðinni? Ekki hefur alltaf verið hægt að greina orðaskil í textum Sigur Rósar og slíkt kemur fyrir á Valtara. „Þegar við semjum textana þá setjumst við gjarnan fjórir saman, hlustum á lögin og skrifum niður í blindni það sem okkur kemur til hugar. Ég skrifa niður eitthvað sem ég sé fyrir mér eða einhver hugrenningatengsl sem lagið ýtir af stað. Það vill svo til að oftast nær erum við fjórir á svipuðum slóðum í þessum hugmyndum okkar um lögin. Þess vegna má alveg segja að tónlistin semji sjálf textana.“ Hér virðist vera sama uppi á teningnum og við samhæf- ingu piltanna í laginu Fjögur píanó. Ekki leggja línur „Þessi plata, aftur eins og Sviga platan, er þannig að það er mikilvægast að fólk fái sjálft að skynja hana og skilja, án þess að við séum eitt- hvað að leggja því línurnar. Ég segi þetta sérstaklega af því að nú er ég búinn að út- skýra mína upplifun af laginu Dauðalogni. Það er mikilvægt að fólk haldi í sína eigin upp- lifun. Þetta er ekki platan þar sem maður gengur út úr hljóðverinu og getur ekki hlustað á hana í tvö ár. Þetta er platan sem maður á alveg eftir að hlusta á, loksins þegar hún er tilbúin.“ Ferðataskan Núna blasir tónleikaferð við fjórmenningunum. Fyrstu drög að dagskrá eru tilbúin. „Við byrjum á því að spila á tónleikahátíðum í sum- ar og verðum svo á Iceland Airwaves í haust. Þetta verða rétt rúmlega þrjátíu tónleikar á árinu. Það er svona hófleg dagskrá. Fyrsti leggurinn, eins og kallað er, er reyndar tæpir tveir mánuðir. Á næsta ári verður svo allur heimurinn lagður undir. Það er misjafnt eftir lönd- um hvað þetta eru stórir staðir sem við spilum á. Oft á tíðum eru þetta svona sex þúsund manna staðir. Svo þegar við spilum í London eða Los Angeles eru staðirnir stærri.“ „Við skildum ekki þessa plötu“ „Þetta var mjög skrýtin plata að vinna. Sum lögin byrjuðu líf sitt sem hefðbundið popp eða rokk. Loka- útgáfan segir ekki alltaf alla söguna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.