Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Blaðsíða 52
52 Stjórnmál 18.–20. maí 2012 Helgarblað
H
neykslismál hafa
löngum verið við
loðandi heim stjórn
málanna. Ekki er þar
með sagt að stjórn
málamenn í meira mæli en aðr
ir „lendi“ í hneykslismálum, en
þeir eru, eðli starfs síns sam
kvæmt, opinberar persónur og
því berskjaldaðri en margur
annar hvað uppljóstranir varðar.
Hvað fólk telur til hneykslis
er eflaust æði misjafnt. Sumir
myndu telja hneyksli að þing
maður stígi ölvaður í ræðustól
á Alþingi, aðrir að dæmdur af
brotamaður eigi afturkvæmt á
Alþingi. Víst má til sanns veg
ar færa að hneykslismálin geta
verið öllu alvarlegri en framan
greind dæmi, til dæmis þegar
um er að ræða fjölþreifni hátt
settra stjórnmálamanna. Slíkt
þykir ekki góð latína í landi
hinna frjálsu og hugrökku,
Bandaríkjunum, ekki einu sinni
þó um sé að ræða fullt sam
þykki þeirra aðila sem bendl
ast við slíkt. Frakkar líta hliðar
spor sinna stjórnmálamanna
ekki jafnalvarlegum augum og
Bandaríkjamenn þó þeim, að
sjálfsögðu, hugnist ekki kyn
ferðislegt ofbeldi af hálfu nokk
urs manns.
Mikið kvennagull – eða
hvað?
Newt Gingrich heitir bandarísk
ur stjórnmálamaður sem nýlega
naut nokkurrar umfjöllunar
vegna áhuga síns á forsetaemb
ætti Bandaríkjanna. Gingrich
vonaðist til að hljóta tilnefningu
Repúblikanaflokksins en sá að
hann hefði ekki erindi sem erf
iði.
Hvað sem þeim draum hans
líður þá hafa „einkamál“ hans
vakið einhverja eftirtekt, enda
virðist sem hann kalli ekki allt
ömmu sína hvað kvennamál
varðar og væri án efa kallað
ur dækja (e. slut) ef hann væri
kvenmaður.
Í hnotskurn var málum svo
háttað hjá Newt Gingrich að á
meðan hann var enn í hjóna
bandi með eiginkonu sinni
númer tvö, Marianne Ginther,
(sem reyndar var hjákona hans
meðan hann var kvæntur eig
inkonu númer 1, Jackie Batt
ley) hóf hann ástarævintýri með
starfskonu bandaríska þings
ins, Callistu Bisek. Callista Bi
sek varð síðan eiginkona hans
númer 3.
Að sögn Marianne fór Ging
rich fram á skilnað eftir að hún
vísaði á bug þeirri hugmynd
hans að þau byggju við opið
hjónaband.
Lygamörður með meiru
Lærlingur í Hvíta húsinu, Mon
ica Lewinsky, komst að því að
Bill Clinton, forseti Bandaríkj
anna og einn valdamesti mað
ur heims á þeim tíma, 1998, var
ekki allur þar sem hann var séð
ur. Monica fullyrti á þeim tíma
að hún hefði í allnokkur skipti á
árunum 1995 til 1997 tekið þátt
í kynferðislegum athöfnum með
forsetanum fláráða.
Fláráða segi ég því hann nýtti
öll þau meðul sem hann hafði
yfir að ráða til að vísa þeim full
yrðingum á bug og þannig gera
Monicu ótrúverðuga.
En málið vatt upp á sig og
brátt var Bill Clinton flækt
ur í eigin lygavef líkt og fluga í
köngulóarvef.
Að sögn Monicu hafði ver
ið um að ræða hinar ýmsu
kynferðislegu athafnir aðrar en
beint samræði og blönduðust
vindlahylki inn í þessar safaríku
umræður sem tröllriðu heims
byggðinni.
Bill Clinton var ákærður fyr
ir að hafa borið ljúgvitni um
málið, en var síðan sýknaður
af þeim ákærum. Monica Lew
insky hefur hin síðari ár reynt af
fremsta megni að forðast sviðs
ljósið.
Ástarævintýri herra
alheims
Sumum kann að finnast sem
hjónaband Arnolds Schwarzen
egger, leikara og fyrrverandi
ríkisstjóra Kaliforníu, og Mariu
Shriver hafi enst ótrúlega lengi
miðað við þær sviptingar sem
virðast einkenna hjúskaparmál
þar vestur frá.
Í aldarfjórðung voru
skötuhjúin gift og ekki virtist
sem þar bæri skugga á. En ekki
er allt sem sýnist. Arnold hafði
nefnilega leikið tveimur skjöld
um til langs tíma – verið úlfur í
sauðargæru og ekki haft fyrir því
að leita bráðar of langt frá gren
inu.
Um mitt síðasta ár ljóstraði
Los Angeles Times því upp að
Arnold hefði eignast son utan
hjónabands um fjórtán árum
áður og móðirin væri eng
in önnur en Mildred Patricia
„Patty“ Baena.
Margir hváðu eflaust þeg
ar nafn ástkonunnar var gert
opinbert, enda ekki um frægð
arkvendi að ræða heldur heim
ilishjálp Arnolds og Mariu til 20
ára. Arnold hafði keypt handa
Patty fjögurra herbergja hús
með sundlaug árið 2010. Að
sögn Patty var hún bara ein af
mörgum og hefur leikkonan
Birgitte Nielsen, fyrrverandi frú
Stallone, upplýst að hafa átt ást
arævintýri með honum eftir að
samband hans og Mariu Shri
ver hófst. Unnið er að skilnaði
þeirra um þessar mundir.
Svipur, búr og ýmisleg
annað
Það getur verið mikið áhættu
spil að sækjast eftir opin
beru embætti eða vel launaðri
stöðu í henni Ameríku – og
reyndar víðar eins og dæmin
hafa sannað. Jack heitir maður
nokkur Ryan. Árið 2004 lang
aði Jack mikið til að fá sér sæti
í öldungadeildinni fyrir Illin
ois, enda sætið ekki upptekið.
Á lokasprettinum var það eng
inn annar en núverandi for
seti Bandaríkjanna, Barack
Obama, sem slóst við Jack um
hituna.
Í kjölfarinu var skilnað
ur hans og leikkonunnar Jeri
Ryan sem höfðu látið gott heita
árið 1999. En í heimullegum
skilnaðarskjölum var ýmislegt
fróðlegt að sjá – að einhverra
mati – og á meðal annarra fór
Chicago Tribune fram á að
skjölin yrðu gerð opinber. Um
síðir var hluti þeirra opinber
aður þvert á vilja Jeri og Jack
og í ljós kom ýmislegt sem ekki
telst til framdráttar verðandi
öldungadeildarþingmanni.
Í skjölunum var haft eftir
Jeri að Jack hefði farið þess á
leit að hún viðhefði kynferðis
legar athafnir í kynlífsklúbb
um í New York, New Orleans
og París – í klúbbum sem Jeri
sagði vera „afkáralega klúbba
með búrum og svipum og öðr
um tækjum hangandi niður úr
loftinu“.
Ryan dró sig út úr kapp
hlaupinu um hið auða sæti fyr
ir Illinois í öldungadeildinni
bandarísku.
Ó Donna
Hér fyrr meir söng mexíkósk/
bandaríski söngvarinn Richie
Valens ástaróð til sinnar heitt
elskuðu; Ó Donna. Richie Val
ens kemur reyndar ekki frekar
við sögu hér, en Donna nokkur
mun hins vegar koma lítillega
við sögu.
Árið 1987 virtist sem demó
kratinn Gary Hart stæði með
pálmann í höndunum í slagn
um um forsetaembættið í
Bandaríkjunum í það minnsta
hvað Demókrataflokkinn varð
aði. Fljótlega eftir að Hart til
kynnti um framboð sitt fengu
sögusagnir um framhjáhald af
hans hálfu vængi.
Gary Hart henti gaman að
sögusögnunum og sagði að
fréttamenn myndu fljótt verða
leiðir á að leita að einhverju
sem ekki væri.
Fréttamennirnir tóku
áskoruninni og eins og við var
að búast hnutu þeir fyrr en
varði um sönnunargögn um
ótryggð Harts.
Þann 5. maí fékk blaðið
Miami Herald í hendurnar
ljósmynd af Gary Hart og ljós
hærðri konu sem ekki var eig
inkona hans. Fylgdi myndinni
sú fregn að Hart hefði eytt nótt
inni í félagsskap konunnar um
borð í snekkju sem hét því við
eigandi nafni Monkey Busi
ness, sem gæti útlagst Apaspil
á okkar ylhýra.
Hver veit nema Hart hafi
andvarpað: „Ó Donna,“ þeg
ar upp um hann komst. Hart
varðist hetjulega og ákvað að
láta ekki deigan síga fyrr en
hann hafði beðið afhroð í for
kosningunum í New Hamp
shire í mars 1988.
Heimildir: msn.com,
wikipedia og fleiri miðlar.
Flærð og fjölþreifni
„ … í klúbbum
sem Jeri sagði
vera „afkáralega
klúbba með búrum
og svipum og öðrum
tækjum hangandi
niður úr loftinu“.
n Ófáir stjórnmálamenn hafa flækst í hneykslismál n Flest tengjast hvílubrögðum
Newt Gingrich og eiginkona númer 3 Gingrich var ekki við eina fjölina felldur, svo ekki sé meira sagt.
Lærlingurinn og forsetinn árið 1995 Tími Monicu Lewinsky í návist
Bills Clinton varð henni dýrkeypt lexía.
Leitaði ekki langt frá greninu Arnold Schwarzenegger greip til heim-
ilishjálparinnar Patty í harðindum.
Vildi eitthvað annað en eiginkonan Jack Ryan og eiginkonan Jeri litu
kynlíf ekki sömu augum.
Ó Donna Gary Hart fór flatt á því í forsetaslagnum 1988 að láta grípa sig
glóðvolgan með ungri blómarós, Donnu Rice.