Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Qupperneq 54
54 Sport 18.–20. maí 2012 Helgarblað
Kom, sá, sigraði og hvarf
n Darren Clarke vann Opna breska árið 2011. Síðan hefur árangurinn verið hörmung
T
æpt ár er síðan Írinn Dar
ren Clarke birtist á sjónarsviði
golfs að nýju eftir langt hlé eftir
veikindi og þunglyndi og vann
Opna breska golfmótið, eitt af stór
mótum golfsins, með miklum bravúr.
Síðan hefur lítið til hans spurst.
Clarke fór reyndar ekki neitt. Hann
hefur tekið þátt í ófáum golfmót
unum síðan en að mestu árangurs
laust. Hann hefur aldrei síðan náð
að blanda sér í hóp tíu efstu á nein
um mótum og það sem af er þessu ári
hefur Clarke varla náð gegnum nið
urskurð á neinu alvöru móti. Sjálfur
viðurkennir hann að stolt hans sé nú
orðið verulega sært. Erfitt sé að viður
kenna að sigurinn á Opna breska hafi
ekki reynst sú lyftistöng sem hann
vonaðist til.
Clarke var lengi vel einn öflugasti
kylfingur Evrópu og þótt víðar væri
leitað. Hann var á mikilli uppleið á
svipuðum tíma og Tiger Woods fór
að skelfa aðra keppendur á grænum
golfgrundum. Í kjölfar þess að eigin
kona hans greindist með krabbamein
og lést síðar lá vegur hans mjög niður
á við og fyrir Opna breska í fyrra átti
í raun enginn von á að Clarke ætti
nokkra möguleika.
Þar spilaði karlinn hins vegar af
bragðsvel og fullur sjálfstrausts og
vann það mót eftirminnilega. Þótti
ýmsum líklegt að sigurinn kæmi
Clarke aftur í fremstu röð en það hef
ur verið fjarri lagi. „Ég er gramur við
sjálfan mig fyrir að vera alltaf að reyna
of mikið. Allt of mikið. Ekki bara til að
réttlæta sigurinn á Opna breska held
ur til að sýna að sá sigur var engin til
viljun. En ég get ekki kennt leti um. Ég
er að skjóta boltum í alls kyns veðrum
heimavið alla daga svo æfingaleysi er
ekki vandamálið. Ég býst við að reyna
að halda áfram eins og ég get þang
að til hlutirnir fara að detta fyrir mig.
Annað get ég ekki gert á þessu stigi.“
Hvar endar
Gylfi?
Forráðamenn Swansea reyna nú
ákaft að kaupa Gylfa Sigurðsson
landsliðsmann af þýska liðinu
Hoffenheim en sjálfur hefur Gylfi
lýst yfir vilja til að vera lengur hjá
enska liðinu þar sem hann hefur
spilað með góðum árangri í vetur.
Þegar hefur einu tilboði frá Bret
unum verið hafnað. Hafa for
ráðamenn Hoffenheim ítrekað
sagt að Gylfi fari ekkert enda sé
hann þýska liðinu mikilvægur og
verði það áfram. Á því hefur Gylfi
sjálfur hins vegar afar takmark
aðan áhuga.
Eldganga
Beckhams
Það kemur í hlut knattspyrnuhetj
unnar David Beckham að hlaupa
fyrsta spölinn með Ólympíukynd
ilinn frá Aþenu. Hetjan hleypur
þó ekki lengra en út á flugvöll þar
sem sendinefnd flýgur áfram með
kyndilinn til Bretlands. Þar mun
verða hlaupið áfram tæpa 1.300
kílómetra um Bretland þvert og
endilangt frá Cornwall í suðri til
Shetlandseyja í norðri áður en
kyndlinum er skilað til London
þar sem Ólympíuleikarnir hefjast
þann 28. júlí næstkomandi.
Cristiano hinn
fullkomni
Jose Mourinho er ekki vanur að
skafa af hlutunum. Hann telur
landa sinn Cristiano Ronaldo full
komnasta knattspyrnumann allra
tíma og mun betri en Leo Messi.
„Ronaldo er sérstakur og fullkom
inn. Hann skorar mörk með skalla,
aukaspyrnum, af 300 metra færi
og klárar skyndisóknir. Cristiano
gerir allt sem þarf að gera.“
Launalækkun
hjá Grétari
Grétar Rafn Steinsson, leikmaður
Bolton, þarf líklegast að taka á sig
feita launaskerðingu í kjölfar falls
Bolton úr ensku úrvalsdeildinni
eins og aðrir leikmenn liðsins. Fé
lagið hyggst draga verulega saman
í rekstrinum og þar á meðal skera
launagreiðslur til leikmanna niður
um heilan helming.
Þ
að verður bara ekki keppt
í sterkustu deild fótbolt
ans án þess að hafa erlenda
leikmenn,“ fullyrðir Valur
Smári Heimisson, fram
kvæmdastjóri knattspyrnudeildar
ÍBV. Það félag er með níu erlenda
leikmenn í leikmannahópi sínum
í Pepsideild karla í knattspyrnu
þetta sumarið. Félögin Selfoss og
Grindavík eru einnig með fjölmarga
erlenda leikmenn í sínum röðum
en mikill fjöldi þeirra hefur vakið
töluverða athygli boltaáhugamanna
nú við byrjun leiktíðarinnar.
Það er ekki nýtt að erlendir leik
menn spili knattspyrnu hér á landi
en að þeim fari hægt og bítandi
fjölgandi ár frá ári vekur upp spurn
ingar. Sumir telja það til marks um
að stóreflt barna og unglingastarf
félaganna til margra ára sé kannski
eftir allt saman ekki að skila sér með
nægilega góðum hætti ef talin sé
þörf á því að líta alltaf út fyrir land
steinana eftir leikmönnum. Svo eru
hinir sem benda á að erlendir leik
menn, og töluverður fjöldi þeirra,
leiki í öllum deildum heims og það
bæði geri fótboltann almennt betri
en ekki síður íslenska liðsfélaga
þeirra.
Þeir erlendu oft ódýrari
en þeir innlendu
Bæði Valur Smári Heimisson, fram
kvæmdastjóri knattspyrnudeildar
ÍBV, og Óskar Sigurðsson, formað
ur knattspyrnudeildar Selfoss, full
yrða að oft á tíðum séu kröfur góðra
íslenska leikmanna einfaldlega of
miklar til að smærri félög geti með
góðu móti staðið undir þeim. Það sé
reynsla þeirra að með samningum
við erlend lið eða akademíur um
leikmenn séu slegnar tvær flugur í
einu höggi; kostnaði sé haldið niðri
eins og hægt er en þeir leikmenn
sem hingað komi séu líka nægilega
góðir til að spila í erfiðustu deild
inni á Íslandi.
„Við hér á Selfossi misstum fjöl
marga leikmenn frá síðustu leik
tíð og þurftum að taka meðvitaða
ákvörðun um hvort við vildum
reyna að halda liðinu í efstu deild,“
segir Óskar. „Okkur reyndist erfitt
að fá til okkar leikmenn af mismun
andi ástæðum og þótt hér séu flink
ir og upprennandi strákar í yngri
flokkum eru þeir ekki nógu öflug
ir til að spila í efstu deild daginn út
og inn. Okkar eina leið var að reyna
að fá til okkar erlenda leikmenn í
nægilegum gæðaflokki til að bæta
liðið okkar og mér sýnist það hafa
tekist framar vonum þetta sumarið.“
Undir þetta tekur Valur Smári
sem gengur svo langt að segja að
frá bæjardyrum Vestmannaeyinga
verði ekki keppt í bestu deild lands
ins án erlendra leikmanna. „Til þess
er potturinn sem við getum valið úr
hér í Eyjum einfaldlega ekki nógu
stór. Við þurfum að sækja góða er
lenda stráka ef við ætlum okkur að
vera með í deildinni.“
Eðlileg gagnrýni eða fordómar?
Logi Ólafsson, þjálfari Selfoss, veltir
fyrir sér hvort verið geti að fordómar
liti umræðu um erlenda leikmenn á
Íslandi. „Í hvaða deild í knattspyrnu
eru ekki erlendir leikmenn? Þeir
eru alls staðar og mér finnst þessi
umræða dálítið kjánaleg. Við vilj
um gjarnan að okkar strákar fari
utan og geri það gott en hingað má
svo ekki hver sem er koma án þess
að sumir reki upp ramakvein. Mín
skoðun er að þeir erlendu leikmenn
sem hafa verið að spila hérlend
is hafa aðeins gert deildina okkar
betri og skemmtilegri. Þeir læra af
komu sinni hingað og hafa flest
ir reynst liðum sínum afar vel. Þeir
eru duglegir og kappsamir og gera
alla í kringum sig betri fyrir vikið.
Það á jafnt við á æfingum og í leikj
um.“
Vonlaust að keppa
án útlendinganna
n Gagnrýni á mikinn fjölda erlendra leikmanna í efstu deild
Fjöldi erlendra
leikmanna
Selfoss 7
Grindavík 6
ÍBV 9
Fram 4
Breiðablik 2
Valur 1
ÍA 2
KR 1
Fylkir 1
FH 0
Stjarnan 3
Keflavík 2
Útlendingaslagur? Leikmenn Selfoss
og ÍBV takast á í fyrsta leik sumarsins.
Bæði lið hafa í sínum röðum mikinn fjölda
erlendra leikmanna en reynslan af þeim
hefur verið góð. mynD Gunnar már HaukSSOn
Horfinn Darren Clarke fagnar góðum sigri á Opna breska í Sandwich fyrir tæpu ári.
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar