Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Qupperneq 62
Leno góður gæi
Fetar í fótspor stóru systur
n Elín Lovísa er litla systir Klöru Elias í The Charlies
M
ig hefur alltaf langað
að verða söngkona
og ólst upp við að
fylgjast með stóru
systur. Það hefur alltaf kitlað
að feta í hennar fótspor,“
segir Elín Lovísa Elíasdóttir
söngkona en lag Elínar,
Hring eftir hring, verður
frumflutt í dag, föstudag, í
morgunþættinum á Fm957.
Elín Lovísa er litla systir
Klöru Elíasdóttur sem öðlað-
ist frægð með stelpnaband-
inu Nylon. Í dag gengur Klara
undir nafninu Klara Elias
og býr í Los Angeles ásamt
Ölmu Goodman og Camillu
Stones en saman mynda þær
stöllur bandið The Charlies.
Elín Lovísa er 21 árs og
er því fimm árum yngri en
Klara. „Ég var bara í áttunda
bekk þegar þær byrjuðu
með Nylon og fannst alveg
æðislegt að fylgjast með
þeim. Ég var náttúrulega
aðdáandi númer eitt,“ segir
Elín Lovísa sem heimsótti
stelpurnar í The Charlies í
fyrra. „Það var æðislegt að fá
að kíkja inn í þeirra líf þótt
ekki væri nema í smástund,“
segir Elín sem er fullviss um
að The Charlies nái að slá í
gegn í Ameríku. „Ég hef enga
trú á öðru.“
Elín Lovísa, sem er í við-
skiptafræði í Háskólanum í
Reykjavík, kom fyrst fram á
sjónarsviðið árið 2010 með
lagið Það birtir alltaf til, sem
hún söng með Kristmundi
Axel. Nýja lagið var samið af
strákunum í ReddLights en
textinn af Ölmu í The Char-
lies.
Aðspurð segist Elín horfa
upp til Robin og Beyoncé.
„Beyoncé er í uppáhaldi en
ég er líka mikið fyrir svona
popptónlist eins og Robin
er að gera. Ég set stefnuna
þangað og var að reyna að
skapa þannig stemmingu
með þessu lagi. Það eru
svo fleiri lög fram undan og
draumurinn er að gefa út
pötu. Helst fyrir jól.“
Þær systur hafa aldrei
sungið opinberlega saman og
Elín segir þær alls ekki líkar í
útliti. „En við erum með eins
per sónuleika enda erum við
bestu vinkonur. Við höfum
oft sungið saman í veislum og
svona en kannski er það bara
næsta verkefni – að gefa út lag
saman. Það væri náttúrulega
æðislegt að geta fetað í henn-
ar fótspor og flutt til Banda-
ríkjanna og reynt að koma
sér á framfæri þar. Það væri
draumurinn. En við sjáum
hvað gerist.“ indiana@dv.is
62 Fólk 18.–20. maí 2012 Helgarblað
The Charlies Vinna hörðum
höndum að því að slá í gegn í
Ameríku.
Elín Lovísa Segist vera aðdáandi
númer eitt þegar kemur að stóru
systur.
Þ
etta er rosalega
spennandi. Sérstak-
lega skemmtilegt því
að þáttur Jay Leno
er eitthvað sem ég
horfði alltaf á þegar ég var lít-
il,“ segir Nanna Bryndís Hilm-
arsdóttir, söngkona hljóm-
sveitarinnar Of Monsters and
Men, en hljómsveitin á að
koma fram hjá spjallþátta-
kónginum þann 29. júní.
„Ég horfði alltaf á þetta rétt
áður en ég fór að sofa. Það
verður svolítið skrítið að fá
að sjá hann,“ segir hún. Það
er óhætt að segja að frægðar-
stjarna Of Monsters and Men
hafi risið hratt og þau notið
mikillar velgengni í Banda-
ríkjunum sem og hérlendis.
The Tonight Show með Jay
Leno er vinsælasti spjall-
þátturinn vestanhafs og er
sýndur á bandarísku sjón-
varpsstöðinni CBS. Í síðustu
viku kom hljómsveitin fram
í spjallþætti leikarans Jimmy
Fallon og komst hún vel frá
því verki og hlaut mikið lof
fyrir. Þá var lag þeirra einnig
spilað í Grey’s Anatomy á
dögunum.
Leno góður gæi
„Það hafa allir sagt við okkur
að Jay Leno sé rosalega góður
gæi og komi alltaf í búnings-
herbergið að hitta gestina
sem troða upp svo kannski
fáum við að hitta hann,“ segir
Nanna sem segir að það verði
örugglega skrítið að fá að taka
í spaðann á kappanum.
Tollvörðurinn þekkti þau
Nanna segir að þau hafi ekki
upplifað að vera þekkt á götu
í Bandaríkjunum en segja
að það hafi verið gaman að
fyrsti maðurinn sem þau
hittu í Bandaríkjunum hafi
þó kveikt á perunni og þekkt
þau. Það var tollvörðurinn
á flugvellinum í Bandaríkj-
unum sem tók upp símann
og spilaði lag hljómsveitar-
innar fyrir þau. „Fyrsti mað-
urinn sem sá okkur þegar við
vorum kominn til landsins,“
segir Nanna og hlær. „Það
var mjög skrítið en líka mjög
ánægjulegt.“
Sambúðin gengur vel
„Sambúðin gengur bara
rosalega vel, við erum búin
að eyða miklum tíma saman
í rútunni og svona og það
hefur bara verið mjög gott,“
segir Nanna. Hún segir það
hjálpa mikið til að hljóm-
sveitin sé mjög náin og að
það sé þá hægt að leita til
hinna þegar á bjátar. „Við
erum öll svo góðir vinir,“ seg-
ir hún. Hljómsveitin hefur
verið á Íslandi í nokkra daga
til að hlaða rafhlöðurnar
og fer út á miðvikudag til
Bandaríkjanna þar sem
við tekur næsti leggur
tónleikaferðalagsins.
astasigrun@dv.is
n Nanna í Of Monsters and Men hlakkar til að hitta Leno
Löng leið að baki Það er liðinn nokkur
tími frá því að bandið úr Garðinum heimsótti
heimabæ sinn enda búið að vera á fleygiferð
um heiminn með tónlist sína. mynd Hörður SvEinSSon
Frumsýndi
kærastann
Anna Mjöll Ólafsdóttir hefur fund-
ið hamingjuna á ný eftir skilnað
við ellilífeyrisþegann og auðkýf-
inginn Cal Worthington. Hjóna-
band þeirra Cal vakti ekki síst
athygli vegna 50 ára aldursmunar
sem á þeim var.
Anna Mjöll og nýi kærastinn,
Luca Ellis, virðast afar lukkuleg
af myndinni að dæma þar sem
þau heimsækja saman Universal
-myndverið í Los Angeles.
Anna Mjöll og Luca opin-
beruðu samband sitt á Face-
book fyrr í þessum mánuði. Luca
er djasssöngvari í Los Angeles í
Kaliforníu í Bandaríkjunum og
þau hafa starfað saman í tónlist í
nokkur ár.
Bjarni Ben
og Bieber-æðið
Einhver óprúttinn vinnufélagi
Bjarna Benediktssonar, formanns
Sjálfstæðisflokksins, hefur komist
í Facebook-síðu hans. Að minnsta
kosti þykir mörgum ólíklegt að
Bjarna þyki Justin Bieber svo
ómótstæðilegur tónlistarmaður að
hann skrái sig á sérstaka aðdá-
endasíðu hans. Skráning Bjarna
Benediktssonar fór ekki framhjá
spéfuglum sem náðu myndum af
þessum vísbendingum um meint-
an tónlistarsmekk sjálfstæðis-
mannsins.
Spjallþáttakóngur „Það hafa
allir sagt við okkur að Jay Leno
sé rosalega góður gæi,“
segir Nanna.
Með syninum
á Akureyri
Eftir að óvissunni var létt af fað-
erni sonar Kristrúnar Aspar virð-
ist Sveinn Andri Sveinsson hafa
tekið föðurhlutverkið með trompi.
Sveinn Andri póstar iðulega
myndum af syni sínum sem hefur
fengið nafnið Baltasar Breki og
býr með móður sinni á Akureyri.
Sveinn Andri virðist ekki láta fjar-
lægðina á milli bæjar-
félaganna stöðva sig í
að hitta son sinn og
heimsótti móður og
son fyrir norðan á
dögunum. Sveinn
hafði á orði á Face-
book-síðu sinni að
vetrarlegt væri
á Akureyri
en þar væri
þó alltaf
jafn fallegt
um að
litast.