Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2012, Page 12
Disney berst gegn offitu barna
n Ætla að hætta að auglýsa skyndibitamat í kringum efni ætlað börnum
W
alt Disney-samsteypan
undirbýr nú nýjar reglur
varðandi auglýsingar í
kringum sjónvarpsefni sem
ætlað er börnum. Samsteypan er sögð
ætla að útiloka ákveðnar skyndibita-
auglýsingar frá sjónvarpsstöðvum
sínum, útvarpsstöðvum og vefsíðum.
Fyrirtækið á ABC-sjónvarpsstöðvarnar
sem og margar kapalsjónvarpsstöðvar.
Frá þessu er greint á vef Reuters.
Bandaríkin berjast við mikil
vandamál vegna offitu og eru börn
ekki laus við vandamálið. Samkvæmt
heilbrigðisyfirvöldum vestanhafs er
þriðjungur barna í Bandaríkjunum
yfir kjörþyngd og er ljóst að vanda-
málið er raunverulegt. Í skýrslu sem
unnin var af heilbrigðisyfirvöldum
árið 2006 var komist að þeirri niður-
stöðu að markaðssetning á skyndi-
bitafæði léki þar lykilhlutverk.
Samkvæmt heimildum Reuters
ætlar Disney að setja skýr viðmið
um næringargildi í þeim mat sem
auglýstur er í kringum barnaefni
sem sýnt er á miðlum fyrirtækis-
ins. Stærstu matvælaframleiðendur
heims hafa þegar samþykkt slík við-
mið. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem
Disney lætur sig þessi mál varða en
árið 2006 voru settar reglur um notk-
un karaktera sem fyrirtækið á höf-
undaréttinn að, eins og Mikka mús, í
markaðssetningu á óhollum mat.
Óvíst er hversu miklum árangri
ákvörðun Disney á eftir að skila en
ákvörðun fyrirtækisins kemur í kjöl-
far yfirlýsingar frá borgarstjóra New
York-borgar, Michael Bloomberg,
um bann við sölu sykraðra drykkja í
meira en hálfs lítra umbúðum.
12 Erlent 6. júní 2012 Miðvikudagur
Handsömuð
eftir 17 ár
Lögregla í Japan handtók á sunnu-
dag konu sem grunuð er um aðild
að hryðjuverkum í neðanjarðar-
lestum í Tókýó, árið 1995. Konan,
sem nú er fertug, hefur verið á
flótta undanfarin sautján ár.
Naoko Kikuchi var meðlim-
ur í trúarsamtökum sem boðuðu
heimsendi og stóðu að árásinni.
Árásin kostaði þrettán manns lífið,
auk þess sem þúsundir urðu fyrir
verulegum skaða vegna eiturá-
hrifa af sarín-gasi, sem hryðju-
verkamennirnir beittu í árásinni.
Ekki notaðir í auglýsingar Disney heimilar ekki notkun á karakterum sem fyrirtækið á
höfundaréttinn að í markaðssetningu á óhollum mat.
B
andaríska tímaritið Forbes
hefur útnefnt bandarísku
söng- og leikkonuna Jenni-
fer Lopez sem áhrifamesta
einstaklinginn í skemmt-
anabransanum. Sérstaka athygli
hefur vakið að táningurinn Justin
Bieber er í þriðja sæti. Þetta kemur
fram í úttekt á áhrifamestu einstak-
lingunum í skemmtanabransanum
sem birt er í nýjustu útgáfu tímarits-
ins. Þar er gerð tilraun til að mæla
áhrif stjarnanna með tilliti til tekna
og umsvifa.
Ekki nóg að syngja og dansa
Ekki virðist vera nóg að kunna
að syngja, dansa eða leika þegar
kemur að því að vera áhrifamik-
ill í skemmtanabransanum. Í dag
eru helstu stjörnurnar búnar að
gefa út sína eigin fatalínu og fjár-
festa í sprotafyrirtækjum. Lopez
hefur þó ekki ráðist í fjárfestingar
í sprota fyrirtækjum en hún hef-
ur notað frægð sína til að afla sér
tekna sem andlit alþjóðlegra vöru-
merkja og sem dómari í einum vin-
sælasta raunveruleikasjónvarps-
þætti heims. Lopez tekur sæti Lady
Gaga á listanum.
Sjónvarpskonan Oprah Winfrey
er í öðru sæti listans en hún hefur
í langan tíma þótt einna áhrifarík-
asti einstaklingur heims, þó víðar
væri leitað en í skemmtanabrans-
anum. Hún hætti þó á síðasta ári
með spjallþáttinn sinn og hefur
átt í miklu basli með rekstur OWN
Network kapalsjónvarpsstöðvar
sinnar.
Bieber skýst upp listann
Justin Bieber er svo í þriðja sæti
á listanum en hann hefur á stutt-
um tíma skotist upp listann. Hann
er einn þeirra einstaklinga sem er
hvað þekktastur fyrir sönghæfileika
sína en peningarnir eru farnir að
streyma inn úr algjörlega ótengd-
um áttum. Bieber hefur byggt upp
þétt fjárfestinganet í samráði við
fjármálastjóra sinn.
Söngpilturinn hefur dælt millj-
ónum inn í ýmiss konar sprota-
fyrirtæki í tæknigeiranum og virð-
ist hann vera búinn að koma því
þannig fyrir að hann þurfi ekki að
treysta eingöngu á söngferilinn til
að sjá fyrir sér. Meðal fjárfestinga
sem Bieber hefur ráðist í eru Spoti-
fy, Tinychat og Enflick. Forbes
gengur svo langt að kalla tán-
inginn áhættufjárfesti (e. venture
capitalist).
Frægð og peningar
skipta mestu
Listinn virkar þannig að stjörn-
um úr kvikmyndum og sjónvarpi,
fyrirsætum, íþróttamönnum, rit-
höfundum, tónlistarmönnum og
uppistöndurum er raðað í röð sem
byggir á tekjum og frægð. Tekjurn-
ar eru mældar út frá upplýsingum
frá bandarískum skattayfirvöldum
og frægðin eftir sýnileika í fjölmiðl-
um og á samskiptasíðum á borð við
Twitter og Facebook. Listinn hefur
verið birtur árlega frá árinu 1999.
n Forbes birtir lista yfir áhrifamestu einstaklingana í skemmtanabransanum
Bieber er orðinn
áhættufjárfestir
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Trónir á toppnum Jennifer Lopez trónir á
toppi listans.
Áhrifamikill Frægð og
fjárfestingastarfsemi Justins
Bieber hefur komið honum í
þriðja sætið á lista Forbes yfir
áhrifamesta fólkið í skemmt-
anabransanum. Mynd REuTERs
Hinn kanadíski 29 ára gamli klám-
myndaleikari Luka Rocco Magnotta
náðist loksins á internetkaffi í
Berlín á mánudag. Hann hefur ver-
ið á flótta síðan hann setti mynd-
band á netið af sjálfum sér, þar
sem hann er að myrða fyrrverandi
kærasta sinn, Jun Lin, í íbúð sinni í
Montreal.
Í mynd-
bandinu sést
hvar hann er
sker líkama Jun
í parta og legg-
ur sér einnig til
munns hluta
af holdi hans
en hann sést
líka hafa kynferðislega tilburði við
manninn eftir dauða hans. Hann
sendir svo líkamsparta Jun á marga
staði í Kanada, meðal annars til
höfuðstöðva forsætisráðherra
Kanada.
Vitni sáu hann í austurhluta Par-
ísar en Luka dvaldi þar í tvær næt-
ur með öðrum manni sem hann
hitti á næturklúbbi þangað til mað-
urinn rakst á mynd af honum á
internetinu. Luka fór svo til Berlínar
á föstudagskvöldið og kom snemma
á laugardag þangað og náðist ekki
fyrr en á mánudag. Meðan Luka
hefur verið á flótta hefur hann samt
haldið áfram að birt alls kyns mynd-
ir á netinu, og er þar til að mynda
mynd með textanum „It was Luka
Magnotta“ skrifuðum í blóði en
þessi mynd er tölvugerð.
Við handtökuna var Luka
Magnotta hinn rólegasti. Lög-
reglan spurði hann: „Ert þú sá eftir-
lýsti?“ og svaraði Luka Magnotta
strax: „Já, ég er hann“ og var hann
þá handjárnaður án þess að veita
mótspyrnu og leiddur út. Luka
á að baki langa sögu af sjúkum
uppátækjum en hann hefur birt
myndband af sér á internetinu þar
sem hann er að gefa snáki lifandi
kettling að borða og einnig af sjálf-
um sér að kæfa kettlinga í plast-
poka.
KlámleiKari
handteKinn
Birti myndband af morði