Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2012, Side 26
26 Fólk 6. júní 2012 Miðvikudagur
Heimildamynd um Bítlabæinn
n Óli Geir heldur stærstu tónlistarhátíð sumarsins og framleiðir heimildamynd
Í
fyrstu þá ætluðum við
bara að mynda alla hátíð-
ina en svo komu til okkar
strákar sem hafa verið að
vinna mikið í þessu, bæði
klippa fyrir Latabæ og gera
stuttmyndir með Hilmi Snæ
og fleira, og höfðu mikinn
áhuga á að gera heimilda-
mynd um tónlistarsöguna í
Keflavík,“ segir athafnamað-
urinn Ólafur Geir Jónsson,
betur þekktur undir nafninu
Óli Geir. Hann stendur fyrir
tónlistarhátíðinni Keflavík
Music Festival sem haldin
verður dagana 7. til 10. júní
næstkomandi. Hugmyndin
að myndinni kviknaði við
skipulagningu hátíðarinnar
og fannst því aðstandend-
um hennar tilvalið að tengja
þetta tvennt saman. Að sögn
Óla Geirs er um að ræða
langstærstu tónlistarhátíð
sumarsins.
En eins og alþjóð veit
þá hefur Keflavík alið af sér
marga stórstjörnuna á tón-
listarsviðinu. Má þar nefna
nöfn á borð við Rúnar Júlí-
usson, Gunnar Þórðarson,
Magnús Kjartansson og Jó-
hann Helgason. Hljómsveit-
irnar Hljóma og Trúbrot
þekkja flestir sem komn-
ir eru til vits og ára, en þeir
sem yngri eru þekkja að
minnsta kosti Valdimar,
Klassart og Of Monsters and
Men sem er á barmi heims-
frægðar. Nafnið Bítlabær-
inn hefur lengi loðað við
Keflavík en þar er einnig
hljóðverið Geimsteinn sem
er án efa eitt þekktasta og
merkilegasta hljóðver á Ís-
landi.
Það er því verðugt verk-
efni að gera heimildamynd
um alla tónlistarsögu bæjar-
ins, en handritsgerð og kvik-
myndataka er í höndum Og-
films. „Þeir byrja að mynda
hérna á hátíðinni, ætla að
taka hana alla upp og ætla
svo að fara mjög djúpt í
alla tónlistarsöguna hérna í
bænum. Alveg frá Rúna Júl
og Hljómum og svo Of Mon-
sters and Men-ævintýrið.“
Heimildamyndin verður
frumsýnd á Ljósanótt í sept-
ember en Óli Geir segist svo
vonast til að koma henni inn
í bíóhús á Íslandi, gefa út á
DVD og jafnvel senda á kvik-
myndahátíðir erlendis.
Hægt er að nálgast miða
á Keflavík Music Festival á
midi.is og Gallerí Keflavík.
Unnsteinn
í Þórubol
Unnsteinn Manúel Stefáns-
son úr Retro Stefson vakti
mikla athygli á Hlustenda-
verðlaunum FM957 íklædd-
ur bol með mynd af Þóru
Arnórsdóttur.
Unnsteinn klæddist
bolnum er hann steig á svið
með þeim Opee, fyrrverandi
meðlimi Quarashi og grímu-
klædda tónlistarmanninum,
Gabríel og flutti með þeim
sumarsmellinn Sólskin.
Orðinn
flugþjónn
Vilhjálmur Þór Davíðsson,
fyrrverandi herra Gay Ís-
land, er orðinn flugþjónn.
Vilhjálmur er kominn með
vinnu hjá Icelandair og sam-
kvæmt fésbókinni gæti hann
ekki verið hamingjusam-
ari með lífið. „Einn af mín-
um stærstu draumum hefur
nú orðið að veruleika,“ er á
meðal þess sem Vilhjálm-
ur skrifar á síðuna sína. Vil-
hjálmur hefur lýst því hvern-
ig líf hans tók breytingum til
batnaðar þegar hann kom
út úr skápnum. Í viðtali við
DV sagðist hann hafa verið
óhamingjusamur unglingur
sem hafi orðið fyrir aðkasti
þar sem hann var of feitur.
Hallgrímur
selur íbúðina
Rithöfundurinn Hallgrím-
ur Helgason hefur sett íbúð
sína á Laugarnesvegi á sölu
og birti hlekk á auglýsingu
á fasteignavef Vísis á Face-
book-síðu sinni á þriðjudag.
„Íbúð til sölu (ath: diskó-
kúlan fylgir ekki) - opið hús í
dag,“ skrifaði Hallgrímur við
hlekkinn, en á einni mynd-
anna má sjá glitta í diskó-
kúlu hangandi úr loftinu.
Nokkrar fyrirspurn-
ir um íbúðina birtust í
athugasemdakerfinu undir
hlekknum og setti Hallgrím-
ur sig í stellingar sölumanns-
ins þegar hann svaraði þeim:
Laugarnesvegur - heitasta
hverfið í dag - Frú Lauga á
næsta horni, ísbúðin Lauga-
læk og pólski Pylsugerðar-
meistarinn... auk Laudals-
laugar, Laudals ofl“.
Gerir heimildamynd Óli
Geir segir að farið verið djúpt
í tónlistarsögu Keflavíkur í
heimildamyndinni.
É
g kom heim og nánast
beint í að verja masters-
verkefnið mitt,“ segir
Greta Salóme Stefáns-
dóttir Eurovision-fari en
hún útskrifast á laugardag með
mastersgráðu í tónlist frá Lista-
háskóla Íslands. Greta gerði
það gott og fékk 9 í einkunn
fyrir verkefnið, sem verður
að teljast glæsilegur árangur
þar sem hún var á sama tíma
að undirbúa sig og keppa fyr-
ir Íslands hönd í Eurovision, í
fullu starfi hjá Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands auk þess spila á
fjölmörgum öðrum stöðum og
undirbúa sína fyrstu plötu.
Lagið partur af verkefninu
„Verkefnið var fólgið í því að
sýna fram á mínar hugmynd-
ir um heildrænan tónlistar-
mann. Meðal annars hvernig
þær hugmyndir voru fram-
kvæmdar í kringum lagið
Mundu eftir mér,“ segir Greta
og var því Eurovision-framlag-
ið í raun partur af verkefninu
en óhætt er að segja að Greta
hafi sýnt fram á hvað það er
að vera heildrænn tónlistar-
maður með því að semja lag-
ið, útsetja það, leika á hljóð-
færi og syngja.
Þó álagið hafi verið mikið
á Gretu undanfarið ætlar
hún ekkert að slá af. „Ég
er að fara að gefa út plötu
í haust og um leið og ég er
búin að taka við skírtein-
inu á laugardaginn byrja ég
að vinna í henni af fullum
krafti.“ Greta er þegar byrj-
uð að semja og móta plötuna
sem hún segir að verði popp-
uð þrátt fyrir klassískan bak-
grunn sinn. „Ég stalst til að
setjast við píanóið í kring-
um Eurovision og masterinn
til að semja og móta nokkr-
ar hugmyndir. Þetta verð-
ur poppuð plata þó svo að
strengir verði áberandi. Enda
verða þeir það held ég alltaf í
öllu sem ég geri.“ Greta mun
vinna plötuna í samstarfi
við útgáfufyrirtækið Senu og
tónlistarmanninn Þorvald
Bjarna.
Slakar á í sólinni
Greta viðurkennir að álag-
ið hafi verið full mikið á
köflum en það sé ástríða
hennar á tónlist sem haldi
henni gangandi. „Allt sem
ég er að gera tengist þessari
ástríðu. Námið, keppnin,
Sinfó og platan. Stundum
líður manni samt eins og það
séu ekki nægilega margar
klukkustundir í deginum til
að sinna þessu öllu. En fjöl-
skyldan mín og kærastinn
hafa stutt ótrúlega vel við
mig og þetta væri ekki hægt
án þeirra.“
Aðspurð hvernig henni
hafi liðið eftir Eurovision
og hvort hún hafi upplifað
spennufall segist hún ekki
hafa gert það. „Ég hafði bara
ekki tíma til að spá of mikið
í þetta þar sem mastersverk-
efnið tók við um leið og ég
kom heim. Ég fer í þriggja
vikna frí til Spánar í sumar
með fjölskyldunni og þá næ
ég kannski að slaka aðeins á.
En þá verður platan komin
á fullt þannig að maður á ef-
laust ekki eftir að hugsa um
annað,“ segir hún og hlær.
Aldrei að segja aldrei
Greta segist ekki einu sinni
hafa hugleitt hvort hún gæti
hugsað sér að taka aftur þátt
í Eurovision. „Núna er ég
bara að einbeita mér að allt
öðru og ég sé það ekki fyrir
mér eins og er. En maður á
aldrei að segja aldrei.“
asgeir@dv.is
Beint frá Bakú
í mastersvörn
n Fékk níu fyrir verkefnið n Plata á leiðinni n Langþráð frí á Spáni
Greta
Salóme
Er margt til
lista lagt.