Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2012, Síða 10
10 Fréttir 18. júní 2012 Mánudagur
Þessir fengu
fálkaorðu
Forseti Íslands sæmdi á sunnu-
daginn, 17. júní ellefu Íslendinga
heiðursmerki hinnar íslensku
fálkaorðu. Þeir eru:
1. Gissur Guðmundsson, mat-
reiðslumeistari og forseti Al-
þjóðasamtaka matreiðslumeist-
ara, Reykjavík, riddarakross fyrir
forystu í alþjóðasamtökum mat-
reiðslumeistara og á vettvangi ís-
lenskra matreiðslumeistara.
2. Gunnar Finnsson, fyrrverandi
varaframkvæmdastjóri og for-
maður Hollvina Grensásdeildar,
Reykjavík, riddarakross fyrir störf í
þágu endurhæfingar og heilbrigð-
ismála.
3. Halldór Þorgils Þórðarson,
tónlistarmaður og fyrrverandi
skólastjóri, Búðardal, riddarakross
fyrir störf í þágu tónlistar og tón-
listarmenntunar í heimabyggð.
4. Ingibjörg Björnsdóttir, list-
dansari og fyrrverandi skóla-
stjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir
brautryðjandastörf á vettvangi ís-
lenskrar danslistar.
5. Jóhannes Einarsson, fyrrver-
andi skólameistari, Hafnarfirði,
riddarakross fyrir störf í þágu iðn-
menntunar og verknáms.
6. Kristín Marja Baldursdóttir
rithöfundur, Reykjavík, riddara-
kross fyrir ritstörf og framlag til ís-
lenskra bókmennta.
7. Ólafur Haralds Wallevik pró-
fessor, Reykjavík, riddarakross fyr-
ir rannsóknir og þróun umhverfis-
vænna byggingarefna.
8. Sigríður Hafstað frá Tjörn,
Svarfaðardal, riddarakross fyrir
störf í þágu heimabyggðar, félags-
mála og menningar.
9. Sigrún Helgadóttir, líf- og
umhverfisfræðingur, Reykjavík,
riddarakross fyrir framlag til um-
hverfismenntunar og náttúru-
verndar.
10. Sæmundur Sigmundsson bif-
reiðarstjóri, Borgarnesi, riddara-
kross fyrir störf í þágu fólksflutn-
inga og ferðaþjónustu.
11. Þórdís Bergsdóttir forstöðu-
maður, Seyðisfirði, riddarakross
fyrir framlag til ullariðnaðar og
hönnunar.
n Gista á fjögurra stjörnu hóteli n Kostnaður vegna uppihalds að fullu greiddur
Í
slenskum sveitarstjórnarmönn-
um hefur verið boðið til höfuð-
stöðva Evrópusambandsins í
Brussel. Ferðin er að öllu leyti
kostuð af Evrópusambandinu
og fá sveitarstjórnarmennirnir sem
þiggja boðið meðal annars greidd-
an uppihaldskostnað meðan á
ferðinni stendur. Samkvæmt heim-
ildum DV hefur öllum sveitarstjórn-
um á landinu verið boðið að taka
þátt í ferðinni. Heimildir DV herma
einnig að sveitarstjórnarmönnun-
um sé boðið að fá uppihaldskostn-
aðinn annaðhvort greiddan út í
reiðufé sem afhent er í umslagi eða
lagðan inn á bankareikning sinn.
Kynna sambandið með boðs-
ferðum
Evrópusambandið hefur skipulagt
margar boðsferðir fyrir Íslendinga til
að kynna sambandið. Til að mynda
hefur blaðamönnum verið boðið í
heimsókn í sambandið til að kynna
sér starfsemi þess. Sveitarstjórnar-
mönnum hefur samkvæmt heim-
ildum DV áður verið boðið í ferðir
sem þessar en sérstaka athygli vekur
að Samband íslenskra sveitarfélaga
á fulltrúa í samninganefnd Íslands
gagnvart Evrópusambandinu.
Karl Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
sveitarfélaga, segir að sambandið
komi hins vegar ekki nálægt heim-
sókninni. Hann segir að hugsan-
lega hafi þó verið sendur póstur á
sveitarfélögin í gegnum sambandið
þar sem ferðin væri kynnt. „Við ber-
um engan kostnað af þessu,“ sagði
Karl aðspurður um þátttöku sam-
bandsins í skipulagningu ferðar-
innar. Hann vísaði því á bug að
sambandið hefði milligöngu um
skráningu í ferðina. Samband ís-
lenskra sveitarfélaga rekur sendi-
skrifstofu í Brussel og er forstöðu-
maður þeirrar skrifstofu á meðal
þeirra sem nefndir eru í tölvupósti
þar sem minnt er á boðsferðina.
Finnst að allir ættu að nýta
boðið
„Það er mjög mikilvægt að kjörnir
fulltrúar kynni sér þetta eins vel og
þeir geta,“ segir Halldór Halldórs-
son, formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga. „Það er líka gott að
mínu mati að hluti af þessu sé
þannig að við þurfum ekki að vera
að leggja út stórar fjárhæðir í þessu.“
Halldór er sjálfur ekki þátttakandi í
ferðinni. „Ég tel að þetta geti verið
mjög gagnlegt. Þetta er bara liður í
þessu aðildarumsóknarferli og ger-
ir fólk hæfara til að taka afstöðu og
miðla upplýsingum, því það er hlut-
verk þeirra sem fara að miðla upp-
lýsingum.“
Halldór segist ekki hafa upplýs-
ingar um hversu margir íslensk-
ir sveitarstjórnarmenn hafi ákveðið
að taka þátt í ferðinni. „Vonandi eru
bara þokkalega margir sem nýta sér
þetta. Mér finnst það mikilvægt,“
segir Halldór.
Á fjögurra stjörnu hóteli
Evrópusambandið sér um skipulag
ferðarinnar og sér til að mynda um
að bóka gistingu á fjögurra stjörnu
hóteli í Brussel. Þröngur rammi er
um allt ferðaskipulagið og er ekki í
boði fyrir sveitarstjórnarmennina að
lengja eða stytta ferðina á kostnað
sambandsins. Allur aukakostnaður
sem ekki er tiltekinn í boðinu fellur
á sveitarstjórnarmennina sjálfa, eins
og kostnaður vegna minibars á hót-
elherbergjum.
Uppihaldskostnaðurinn sem
Evrópusambandið greiðir fyrir
hvern og einn þátttakanda tek-
ur mið af kostnaði sem sambandið
greiðir vegna gistingar og annarra
fyrirfram skilgreindra hluta. Þátt-
takendur geta heldur aldrei feng-
ið meira en 80 evrur á dag vegna
ferðarinnar og miðast það þá við að
þeir sjái sjálfir um að greiða hótel-
kostnaðinn.
Á gráu svæði gagnvart
siðareglum
Ljóst er að boðsferðir á borð við
þessa eru á gráu svæði þegar kem-
ur að siðareglum íslenskra sveitar-
félaga. Til að mynda kveða siðar-
eglur Reykjavíkurborgar, stærsta
sveitarfélags á landinu, á um að
„kjörnir fulltrúar þiggja ekki gjaf-
ir, fríðindi eða önnur hlunnindi
frá viðskiptamönnum eða þeim,
er leita eftir þjónustu Reykja-
víkurborgar nema að um sé að
ræða óverulegar gjafir“. Boðsferð
til Evrópusambandsins, þar sem
uppihald og hótelkostnaður er
greiddur, getur vart talist óveruleg.
Mikil umræða var í kring-
um boðsferð flugfélagsins WOW
air sem Einar Örn Benediktsson,
borgarfulltrúi Besta flokksins,
„Við berum engan
kostnað af þessu.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Ekki á gráu svæði Halldór Halldórsson, formaður Sambands sveitarfélaga, segir boðsferðir af þessu tagi ekki vera á gráu svæði gagnvart siðareglum. Mynd BB.is
Öllum boðið Evrópusambandið stendur fyrir boðsferðinni og er öllum sveitarstjórnum
boðið að senda fulltrúa. Mynd HElgi HraFn guðMundsson
sveitarstjórnarmenn
fara frítt til brussel
n 1,7 milljónir barna vefja sígarettur á Indlandi n Vinna 14 tíma á dag til að vefja þúsund sígarettur fyrir tvo dali í kaup á dag
Óttar Proppé Í Brussel í boði ESBgísli Marteinn Meðal þeirra sem fara
Samkomulag um
þinglok að nást
Búast má við því að stjórn og
stjórnarandstaða komist að
samkomulagi um þinglok í byrjun
vikunnar, en samkvæmt fréttastofu
RÚV hefur það frestast vegna þess
að formaður Framsóknarflokksins
krafðist þess á föstudaginn að fá
samkomulag um framhaldið stað-
fest skriflega. Sigmundur Davíð
segir ríkisstjórnina aldrei standa
við gefin fyrirheit og í ljósi reynsl-
unnar vilji framsóknarmenn ekki
semja við stjórnarflokkana öðruvísi
en skriflega. Við upphaf þingfund-
ar á sunnudaginn sakaði hins vegar
Mörður Árnason, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, þá Sigmund Davíð
og Bjarna Benediktsson, formann
Sjálfstæðisflokksins, um að spilla
fyrir þinglokum. Sagði hann þá
jafnframt troða á rétti þingmanna
og þjóðarinnar og koma í veg fyrir
að þingið fari fram með eðlilegum
hætti.