Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2012, Page 11
Fréttir 11Mánudagur 18. júní 2012
Hetja fær
ekki borgað
É
g hef ekki fengið neina hald-
bæra skýringu á því,“ segir
Þórarinn Björn Steinsson sem
hefur ekki ennþá fengið bæt-
ur frá Sjóvá, tryggingafélagi
Norðuráls,
en honum voru dæmdar skaða-
bætur í janúar, vegna líkamstjóns
sem hann hlaut eftir að hafa bjarg-
að samstarfskonu sinni.
Talað var um fullnaðarsigur í
því samhengi en Þórarinn hafði
barist fyrir rétti sínum í málinu í
sjö ár. Þórarinn varð fyrir líkams-
tjóni þegar hann, í félagi við annan
mann, bjargaði samstarfskonu sinni
í kjölfar vinnuslyss. Héraðsdómur
Reykjavíkur hafði áður hafnað því
að Norðurál væri skaðabótaskylt í
málinu og þess vegna var ákvörðun
Hæstaréttar um að snúa þeim dómi
við mikil gleðitíðindi fyrir Þórarin
sem hlaut varanlega örorku við að
framkvæma þessa hetjudáð þann
21. september 2005.
Lítið um svör
Nú eru liðnir fimm mánuðir frá því
að lokadómur féll en Þórarinn hef-
ur einungis fengið lítinn hluta af
því sem hann á inni hjá trygginga-
félaginu. „Þeir eru eitthvað að draga
að borga þetta,“ segir hann í samtali
við DV. Þórarinn segir að trygginga-
félagið hafi fengið kröfuna senda
frá lögfræðingi hans í mars. „Þeim
voru gefnar tvær eða þrjár vikur til
að svara, en eru í rauninni ekki enn-
þá búnir að því.“
Hann segir tryggingafélagið Sjó-
vá hafa borgað hluta af þeim skaða-
bótum sem hann á inni en langt í
frá alla upphæðina. Þórarinn kveðst
enga skýringu hafa fengið á þessari
töf. „Dómurinn féll í janúar,“ seg-
ir hann og minnir á að heilir fimm
mánuðir séu liðnir síðan. Hann
segir lítið um svör þegar eftir þeim
er leitað hjá tryggingafélaginu. „Það
gengur mjög illa fyrir minn lög-
fræðing að fá einhver almennileg
svör frá þeim.“
Stefnir í aðra málsókn
„Þetta kemur sér auðvitað bölvan-
lega,“ segir Þórarinn sem vill ekki
gefa upp hversu mikið hann á inni
hjá Sjóvá. „Ég vil ekki vera að gefa
upp einhverjar upphæðir en þær
eru töluverðar.“ Hann segir málið í
heild sinni vera hundleiðinlegt en
þetta síðasta útspil tryggingafélags-
ins um að tefja greiðslurnar toppi
það sem á undan hafi gengið.
„Þetta er auðvitað hundleiðin-
legt mál og nú stefnir í að við þurf-
um að stefna þeim aftur fyrir dómi
til þess hreinlega að fá þetta greitt.
Þetta var auðvitað búið að vera sjö
ára ferli og hafa fimm mánuðir bæst
við það eða frá því að dómurinn
féll.“
Í viðtali við DV í kjölfar dómsins
talaði Þórarinn um fullnaðarsigur,
og að dómurinn skipti máli fyrir alla
launamenn í landinu. Með dómn-
um hefði hann sjálfur fengið viður-
kenningu á þeim skaða sem hann
lenti í og að þessir aðilar [Norðurál],
væru skaðabótaskyldir vegna hans.
„Þetta eru náttúrulega gleðitíð-
indi fyrir mig, og ekki bara fyrir mig
heldur fyrir launamenn í landinu.“
Sigri ekki náð
DV sagði fyrst frá málinu en Þórar-
inn hlaut alvarleg bakmeiðsli þegar
hann lyfti ofan af samstarfskonu
sinni svokallaðri bakskautsklemmu
sem fallið hafði á hana, klemmu
sem vegur 620 kíló. Í dómi Hæsta-
réttar segir meðal annars að við-
brögð Þórarins hefðu verið til
þess fallin að draga úr tjóni sam-
starfskonu hans, og hefðu því ver-
ið í þágu hagsmuna Norðuráls, sem
vinnuveitanda hennar.
Aðspurður hvort honum finnist
að sigur hafi náðst í málinu, í ljósi
þess að hann hafi ekki ennþá feng-
ið greiddar skaðabæturnar, segir
Þórarinn erfitt að líta þannig á mál-
ið. „Þeir hafa sagst ætla að borga og
segjast ætla að borga en svo gerist
ekkert.“ Hann segist hafa velt því
fyrir sér hver ástæðan fyrir þessari
tregðu væri, hvort tryggingafélagið
eigi ekki fyrir greiðslunni, og spyr
að lokum eilítið kíminn: „Er Sjálf-
stæðisflokkurinn ekki einfaldlega
búinn að tæma sjóðina hjá þeim?“
Ekki náðist í talsmann Sjóvár við
vinnslu þessarar fréttar.
n Bíður ennþá eftir skaðabótum eftir vinnuslys
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Hetja Þórarinn Björn Steins-
son hefur ekki ennþá fengið
þær bætur sem honum voru
dæmdar í Hæstarétti í janúar.
MYND: DV/SIGTRYGGUR ARI
Þórarinn Björn var á forsíðu
DV í mars 2011.
n Gista á fjögurra stjörnu hóteli n Kostnaður vegna uppihalds að fullu greiddur
Ekki á gráu svæði Halldór Halldórsson, formaður Sambands sveitarfélaga, segir boðsferðir af þessu tagi ekki vera á gráu svæði gagnvart siðareglum. MYND BB.IS
þáði. Einar Örn varði ákvörðun
sína um að þiggja ferðina með
þeim rökum að hann hefði far-
ið í eigin nafni en ekki sem borg-
arfulltrúi í ferðina. Það á ekki
við um þá sem þiggja boðsferð
Evrópusambandsins.
Halldór segir boðsferðina
ekki vera á gráu svæði gagn-
vart siða reglum. „Nei, ég get
ekki séð það. Þetta er bara hluti
af því sem kjörnir fulltrúar taka
sér fyrir hendur. Ég get ekki séð
að þetta sé á gráu svæði. Þetta
er ekki skemmtiferð,“ segir hann
og bendir á að þátttakendur í
ferðinni þurfi að taka þátt í mik-
illi dagskrá. „Fólk er bara að fara
þarna í vinnuferð.“
Fá peningabúnt í umslagi
Þátttakendum í ferðinni stend-
ur til boða að fá greiddan uppi-
haldskostnað í seðlum sem af-
hentir eru hverjum og einum í
umslagi. Samkvæmt heimild-
um DV hefur slíkt fyrirkomulag
tíðkast innan Evrópusambands-
ins um nokkurra ára skeið til að
koma í veg fyrir að greiðslurnar
stoppuðu hjá stjórnvöldum eða
þeim aðila sem einstaklingarn-
ir sem væru í boði sambands-
ins hverju sinni störfuðu fyrir.
Greiðslurnar taka mið af kostn-
aði við hvern stað sem boðið er
á og eiga að duga fyrir máltíð-
um og ferðakostnaði inna hverr-
ar borgar.
Sendinefnd Evrópusam-
bandsins gat ekki svarað spurn-
ingum DV varðandi ferðina en
upplýsingabeiðni DV liggur enn
hjá sendinefndinni.
sveitarstjórnarmenn
fara frítt til brussel