Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Blaðsíða 6
Við skuldum 1.759 milljarða
n Teikn um að hagur Íslendinga sé að vænkast
F
ramtaldar eignir einstaklinga
námu rúmlega 3.611 milljörð-
um króna í árslok 2011 sam-
kvæmt niðurstöðum álagningar
ríkisskattstjóra 2012. Í skýrslu ríkis-
skattstjóra segir að í skattframtölum
einstaklinga og niðurstöðum álagn-
ingar séu ákveðin teikn um að hagur
Íslendinga sé að vænkast eftir harðæri
síðustu ára. Framteljendum í skatt-
grunnskrá fjölgar um þúsund milli ára
og eru nú 261.764. Skattskyldar tekjur
hækka um tæpa 75,6 milljarða og eru
þeir nú rúmlega 954 milljarðar, þar af
eru útvarsskyldar tekjur 876 milljarð-
ar, 63,7 milljörðum hærri en fyrir ári.
Fjármagnstekjur eru tæpir 78,3 millj-
arðar, 12 milljörðum betur en fyrir
ári. Ríkisskattstjóri segir í úttekt sinni
að þó að tekjur séu aftur farnar að
hækka séu bætur enn mjög háar og
fjármagnstekjur hvergi nærri því sem
eðlilegt getur talist í venjulegu árferði.
Í úttekt hans á eignum og skuldum
Íslendinga kemur fram að áðurnefnda
eignaaukningu megi rekja alfarið til
þess að matsverð fasteigna hækkar
um 209 milljarða rúmlega milli ára en
aðrar eignir rýrna eða falla í verði.
Landsmenn áttu tæpa 495 millj-
arða króna á bankareikningum í árs-
lok 2011, tæpum 46,8 milljörðum
minna en fyrir ári. Þá eiga færri inn-
stæður í bönkum nú en fyrir ári.
Íslendingar skulduðu tæpa 1.759,4
milljarða í árslok 2011 og hafa skuld-
ir okkar minnkað um tæplega 118,7
milljarða milli ára. Aðrar skuldir, það
er námslán, skuldir vegna kaupa
á ökutækjum, sumarbústöðum og
verðbréfum, greiðslukortaskuldir og
fleira lækka um 91,2 milljarða. Þessar
skuldir námu 635,2 milljörðum í árlok
2011. Verðmæti framtalinna eigna jó-
kst meira en skuldirnar og því hækkar
það nú um 263 milljarða á milli ára og
segir ríkisskattstjóri þetta vera nokkra
breytingu því á síðustu árum hafi eigið
fé rýrnað frá ári til árs.
mikael@dv.is
6 Fréttir 27.–29. júlí 2012 Helgarblað
Hönnunarkeppni
um útilaug
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti
á fundi sínum í morgun tillögu
um hönnunarsamkeppni um út-
færslu útilaugar við Sundhöll
Reykjavíkur. Hugmyndir um úti-
laug hafa lengi verið til skoðunar
hjá borginni og mun samkeppnin
að sögn yfirvalda taka mið af
þeirri vinnu. Það var í maí síðast-
liðnum sem starfshópur skilaði
skýrslu til borgarráðs um endur-
bætur og hugsanlega stækkun
Sundhallarinnar. Skipulags- og
byggingarsviði og framkvæmda-
og eignasviði Reykjavíkurborgar
hefur verið falið að hafa forystu
um hönnunarsamkeppnina í
samvinnu við ÍTR og Arkitekta-
félag Íslands.
Pokinn, sem
má ekki borða,
bannaður
Neytendastofa hefur lagt bann við
markaðssetningu á vörum sem
innihalda DMF-dímetýlfúmerat.
DMF er efni sem getur drepið
myglusveppi. Efnið er oftast notað
til að koma í veg fyrir að húsgögn,
skór og ýmsar vörur mygli þegar
þær eru flutt frá hitabeltislöndun-
um, t.d. Kína og öðrum ríkjum í
Asíu. Efnið er oftast í litlum pok-
um sem eru festir innan í húsgögn
eða sett hjá vöru, til dæmis í skó-
kassa. Iðulega er tekið sérstaklega
fram að bannað sé að borða inni-
hald pokans. Ástæða þess að vör-
ur með þessu efni eru nú bannað-
ar er að það getur valdið miklum
og alvarlegum ofnæmisviðbrögð-
um svo sem útbrotum, bruna og
jafnvel öndunarvandamálum sem
hefur reynst afar erfitt að með-
höndla. Bann þetta gildir á öllu
EES-svæðinu og það er á ábyrgð
innflytjenda varanna að tryggja að
þetta efni sé ekki notað til að
vernda vörur sem þeir flytja inn.
Þorvaldur sleppur
við 462 milljónir
Þ
orvaldur Lúðvík Sigur-
jónsson, fyrrverandi for-
stjóri Sögu Capital, er í
hópi 20 stærstu skuldara
Sparisjóðsins í Keflavík.
Samkvæmt heimildum DV nema
uppreiknaðar skuldir hans 514
milljónum króna en um 90 pró-
sent þeirra hafa nú verið afskrifað-
ar. „Ég veit ekkert um þessi mál,“
sagði Þorvaldur þegar DV leitaði
til hans en hann segist ekki kann-
ast við afskriftirnar.
Fram kemur í skýrslu Ríkisend-
urskoðunar um fyrirgreiðslu við
fjármálafyrirtæki að heildarkostn-
aður ríkisins vegna Sparisjóðsins
í Keflavík sé um 25.000 milljón-
ir króna. Afskriftir Þorvaldar eru
því um 2 prósent af þeim skuldum
sparisjóðsins sem leggjast á skatt-
greiðendur. Ljóst er að sparisjóð-
urinn færði niður útlán fyrir rúm-
ar átján þúsund milljónir króna og
afskrifaði sjö þúsund milljónir síð-
ustu tvö árin fyrir fall hans. Starfs-
menn sjóðsins, stjórnendur og fé-
lög þeim tengd áttu greiða leið að
lánum hjá sjóðnum án fullnægj-
andi trygginga.
Fram kom í DV í fyrra að Þor-
valdur skuldaði Arion banka og
Landsbankanum gríðarlega háar
fjárhæðir en ólíklegt er þó að þær
komist í hálfkvisti við skuldirn-
ar sem hann fékk afskrifaðar í
Keflavík. Þorvaldur viðurkennir að
hafa tekið lán hjá sparisjóðnum en
vill ekki segja orð um hversu háar
skuldirnar eru. „Það varðar bara
engan um,“ segir Þorvaldur.
Skuldafen og yfirheyrslur
Þorvaldur Lúðvík hefur verið yfir-
heyrður í tveimur málum sérstaks
saksóknara. Annars vegar í rann-
sókn á meintum umboðssvik-
um er tengjast sölu Sögu Capital
á skuldabréfi í vörslu Glitnis árið
2008. Hins vegar hefur Þorvald-
ur verið bendlaður við markaðs-
misnotkun Kaupþings á útrás-
arárunum en Þorvaldur var
framkvæmdastjóri deildar eigin
viðskipta hjá Kaupþingi fram til
ársins 2006.
Samkvæmt lánabók bankans
tók Þorvaldur rúmlega 1.600 millj-
óna króna lán hjá Kaupþingi á síð-
asta ári sínu í starfi. Hann not-
aði lánið til kaupa á hlutabréfum
í bankanum, seldi þau og hagnað-
ist um 800 milljónir króna. Í kjöl-
farið tók hann þátt í stofnun fjár-
festingabankans Sögu Capital og
keypti 12 prósenta hlut í honum.
Ekki fyrir hagnaðinn af hlutabréf-
unum í Kaupþingi heldur fyrir lán
sem hann tók hjá Icebank í gegn-
um félagið Maríutásu. Í árslok
2009 skuldaði Maríutása Icebank
rúman milljarð, en félagið var úr-
skurðað gjaldþrota í fyrra.
Launahæstur þrátt fyrir
ofurskuldir
Saga Capital var tekið til slita-
meðferðar í maí síðastliðnum en
starfsleyfi félagsins var afturkall-
að í fyrra. Skuld Sögu Capital við
ríkið nemur um 19.600 milljónum
króna en talið er að lánið sé tap-
að að langmestu leyti. Ríkissjóð-
ur veitti Sögu lánið í mars 2009 á
tveggja prósenta vöxtum þrátt fyr-
ir að ávöxtunarkrafan væri á þeim
tíma um tólf prósent. Með því að
núvirða lánið tókst stjórnendum
Sögu að sýna jákvætt eigið fé í bók-
haldi sínu. Lánveiting ríkisins til
Sögu var umdeild og er nú til rann-
sóknar hjá Eftirlitsstofnun EFTA.
Saga Capital tapaði samtals 8.300
milljónum króna á árunum 2008–
2010. Samt sem áður var Þorvald-
ur Lúðvík launahæsti forstjóri fjár-
málafyrirtækja á Íslandi á árinu
2010 en tekjur hans námu 25 millj-
ónum það árið.
Vill að Nubo fjárfesti á Íslandi
Menn voru ekki á eitt sáttir þegar
Þorvaldur Lúðvík var ráðinn fram-
kvæmdastjóri Atvinnuþróunarfé-
lags Eyjafjarðar í janúarbyrjun á
þessu ári, enda hafði hann stöðu
grunaðs manns á þeim tíma. Ekki
fékkst staðfest við vinnslu fréttar-
innar hvort breyting hefði orðið
á réttarstöðu hans. Í starfi sínu
sem framkvæmdastjóri hefur Þor-
valdur verið einn ötulasti hvata-
maður þess að Kínverjinn Huang
Nubo fái að leigja og ráðast í stór-
framkvæmdir á Grímsstöðum á
Fjöllum. Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar hefur, ásamt Atvinnu-
þróunarfélagi Þingeyinga, séð
um samningsgerð við Nubo fyrir
hönd GáF ehf. sem er eignarhalds-
félag sem sex sveitarfélög stofn-
uðu vegna verkefnisins. Þorvaldur
hvatti til þess að eignarhaldsfélag-
ið yrði stofnað og hefur átt ríkan
þátt í samstarfi sveitarfélaganna.
n Sparisjóðurinn í Keflavík afskrifaði hjá einum stærsta skuldaranum
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannpall@dv.is
Þorvaldur Lúðvík Þrátt fyrir
skuldafen og yfirheyrslur hjá sérstök-
um saksóknara er Þorvaldur Lúðvík
framkvæmdastjóri Atvinnuþróunar-
félags Eyjafjarðar. Þessa dagana
vinnur hann að samningum við
umboðsmenn Huang Nubo.„Ég veit
ekkert
um þessi mál
Á réttri leið? Framtaldar eignir Íslendinga
námu rúmlega 3.600 milljörðum í árslok
2011. Skuldir voru um 1.759 milljarðar.
MyNd: Hörður SVeiNSSoN