Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Blaðsíða 96
Loksins
eitthvað
spennandi
á RÚV!
Draugagangur
í útsendingu
n Þær voru heldur undarlegar
útvarpsfréttirnar klukkan sjö á
fimmtudagsmorgun hjá Rás 2
en svo virtist sem draugagang
ur væri í útsendingu fréttanna.
Ítrekað heyrðist í Rás 1 dynja inn
í fréttatímann þar sem þýð rödd
útvarpsþulu tilkynnti yfir frétta
lesarann að hlustendur væru
að hlusta á Rás 1. Skyndilega
varð svo þögn á báðum rásum
og þá heyrðist karlmannsrödd
segja:„Hvað ert þú að gera hér?“
Þar með lauk útsendingunni
heldur snögglega. Reyndin var
sú að rásirnar tvær runnu saman
vegna tæknilegra örðugleika sem
orsakaði þennan draugagang í
fréttatímanum.
Hrafninn sjötugur
n Sjónvarpsmaðurinn Ingvi
Hrafn Jónsson fagnar sjötugs
afmæli sínu í dag, föstudag, á
Hamarsvelli í Borgarfirði en þar
fer fram Opna ÍNN mótið í golfi
honum til heiðurs. „Þetta er
meira en venjulegt mót því Ingvi
Hrafn á afmæli þennan dag. Þeir
sem kjósa að heiðra kallinn með
nærveru sinni eða á annan hátt
mæta auðvitað,“ segir í mótslýs
ingu. Ingvi Hrafn er landsmönn
um að góðu kunnur fyrir störf
sín fyrir framan sjón
varpsvélarnar
bæði hjá RÚV
og Stöð 2 en síð
astliðin ár hef
ur hann sagt
sína skoðun á
málefnum
líðandi
stund
ar á
sjón
varps
stöð
inni
ÍNN.
Fallega fólkið
er á Íslandi
n „Sólin sest aldrei og fólkið
þarna er mjög myndarlegt,“
sagði bandaríski leikarinn Ben
Stiller í spjallþætti Jimmy Kimmel
á miðvikudagskvöld. Stiller er
nýkominn til Bandaríkjanna
eftir að hafa verið á Íslandi
vegna nýjustu myndar sinnar,
The Secret Life of Walter Mitty.
Óhætt er að segja að Stiller hafi
farið fögrum orðum um land og
þjóð í þættinum. Kimmel spurði
Stiller meðal annars að því hvort
það væri gott að sólin settist
aldrei. „Já, það er það á
meðan fólkið er svona
myndarlegt.“ Stiller
mun staldra stutt við
í Bandaríkjunum en
hann lýsti því yfir í
samtali við DV á
dögunum að
hann myndi
koma aftur
fljótlega og
verða hér á
landi fram í
september.
J
á, ég myndi alveg segja að við höf
um slegið í gegn hér í Norrænu,“
segir Sigurður Júlíus Guðmunds
son, meðlimur í Hinsegin kór
Reykjavíkur, sem er nú staddur í Fær
eyjum eftir tveggja daga ferð með Nor
rænu. Hópurinn mun syngja á fær
eyskum hinsegin dögum.
Kórinn lét hvorki sjávarloftið né
tollfrjálst áfengi hafa áhrif á stífar æf
ingar og segja má að kórinn hafi sleg
ið upp tónleikum fyrir farþega Nor
rænu. „Æfingarnar voru opnar en við
vorum reyndar aðeins afsíðis. Það var
fólk sem fylgdist með og skemmti sér
vel. Við fengum meira að segja framlög
til styrktar starfinu.“
Kórinn var stofnaður í júlí í fyrra
en meðal markmiða hans frá upp
hafi var að taka þátt í baráttu hinseg
in fólks í Færeyjum. Landið er þekkt
fyrir miður hófsama afstöðu gagnvart
hinsegin fólki. Hafa þarlend yfirvöld
meðal annars verið gagnrýnd af Norð
urlandaráði og þingmönnum annarra
Norðurlanda vegna kerfislægra for
dóma og mismununar gagnvart hópn
um.
En óttast kórmeðlimir fordóma eða
slæmt viðhorf? „Við höfum bara engar
áhyggjur af því,“ segir Sigurður sem
telur afar ólíklegt að hópur fólks sem
syngur í hinsegin kór taki fordóma
mjög nærri sér. „Án þess að ég vilji á
nokkurn máta gera lítið úr þeim for
dómum sem fyrirfinnast í Færeyjum.
Ég held samt að þeir muni ekki beinast
gegn okkur.“
Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykja
vík, flytur ávarp á færeyskum hinseg
in dögum eftir að kórinn syngur. Þetta
er í fyrsta sinn síðan árið 2007 sem
gengið er til stuðnings hinsegin fólki
í landinu. Sigurður segist ekki gera
sér grein fyrir hversu margir taki þátt í
göngunni. Hann segir þó að dagskrá
in sé þétt og nokkuð viðamikil. „Mið
að við það geri ég ráð fyrir að gangan
sé nokkuð stór á færeyskan mæli
kvarða.“
Hýrir hljómar í Norrænu
n Hinsegin kórinn á færeyskum hýrprýðisdögum
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 27.–29. Júlí 2012 86. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Hýrir hljómar Hinsegin kór Reykjavíkur lætur ekki áfengi eða öldugang lækka í sér róminn.
mynd eva ágúSta aradóttIr