Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Blaðsíða 12
Bankamenn á grænni grein 12 Fréttir Fyrirspurn um Nubo vísað frá n Bæjarfulltrúi gekk ósáttur út af fundi F ormaður bæjarráðs á Akur- eyri neitar að færa til bókar fyrirspurn sem Sigurður Guð- mundsson, bæjarfulltrúi A-list- ans, lagði fram. Fyrirspurnin, sem lögð var fram undir liðnum önnur mál á fundi bæjarráðs Akureyrar- bæjar á fimmtudag, snertir félagið GáF ehf. sem stofnað var til að standa að samningum og samstarfi við kín- verska fjárfestinn Huang Nubo. Sigurður er áheyrnarfulltrúi í bæj- arráði og er þetta í fyrsta sinn sem bæjarráð ákveður að virða fyrirspurn áheyrnarfulltrúa að vettugi. Eftir að ákvörðun þess efnis hafði verið tekin yfirgaf Sigurður fundinn án þess að skrifa undir greinargerð. Að sögn Odds Helga Halldórsson- ar, sem situr í bæjarráði Akureyrar, barst bæjarráðinu álit frá innanríkis- ráðuneytinu í mars þar sem bent var á að áheyrnarfulltrúum bæri ekki að leggja fram fyrirspurnir. „Þeir mega það ekki samkvæmt skilgreiningu ráðuneytisins,“ segir Oddur. Hann bendir á að fram að þessu hafi bæj- arráðið túlkað hlutverk áheyrnar- fulltrúa mjög frjálslega en nú hafi verið ákveðið að fylgja tilmælum ráðuneytisins. Sú ákvörðun hafi ekk- ert með þessa tilteknu fyrirspurn að gera, hvað þá málefni Huang Nubo. Oddur segir að sér þyki vinnubrögð Sigurðar hafa verið óeðlileg en nú hafi allir sæst. Ekki náðist í Sigurð við vinnslu fréttarinnar. Í síðustu viku fullyrti Bergur El- ías Ágústsson, stjórnarmaður í GáF ehf. og bæjarstjóri Norðurþings, að skrifað yrði undir formlegan leigu- samning við Huang Nubo innan tíð- ar, líklega í lok ágúst. Fyrirætlanir Nubos eru umdeildar á Norðurlandi en hann hefur lýst yfir áhuga á að reisa 100 glæsihýsi, hótel og golfvöll á Grímsstöðum á Fjöllum. johannp@dv.is Golfkortið færðu hjá okkur 180 hrinGir samtals Frí spilun á 31 golfvelli ALLT AÐ 6 HRINGIR Á HVERJUM VELLI! Einstaklingskort Aðeins kr. 9000 Fjölskyldukort Aðeins kr. 14000 Gekk út af fundi Sigurður Guðmundsson var ósáttur við að fyrirspurn hans væri ekki færð til bókar. Þ að borgar sig að vinna í banka og þá sérstaklega þegar litið er til stjórnunar- starfa. Höskuldur Hrafn Ólafsson, bankastjóri Arion banka, heldur sæti sínu sem launa- hæsti bankastjóri landsins og námu mánaðartekjur hans um 3 millj- ónum króna á árinu 2011. Þetta er nokkur lækkun frá árinu á und- an og það sama er uppi á teningn- um hjá öðrum bankastjórum. Þó er greinilegt að laun bankamanna hafa tekið snöggan kipp upp á við eftir tímabundnar lækkanir í kjölfar bankahrunsins. Það á sérstaklega við um þá banka sem komnir eru í hend- ur einkaaðila. Ríkisbankinn rekur lestina Birna Einarsdóttir fylgir fast á hæla Höskuldi með 2,6 milljónir á mánuði og Sigurður Atli Jónsson, sem ráð- inn var bankastjóri MP banka um mitt síðasta ár, var með mánaðar- tekjur upp á 1,5 milljónir að með- altali á árinu. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, vermir neðsta sætið þegar litið er á meðal- tekjur bankastjóra með um 1,1 millj- ón á mánuði. Athygli vekur að það er rúmlega tveimur milljónum minna en árið áður. Þess má geta að Lands- bankinn er eini stóri bankinn sem er í meirihlutaeigu ríkisins. Launahæstu starfsmenn skila- nefnda bankanna á síðasta ári voru Ársæll Hafsteinsson, lögmað- ur í skilanefnd Landsbankans, með 3,3 milljónir á mánuði, og Krist- ján Óskarsson, framkvæmdastjóri skilanefndar Glitnis, með 3,1 milljón. Skilanefndirnar luku störfum í árslok 2011 og færðust verkefni þeirra þá til slitastjórna. Í slitastjórnum bank- anna eru launahæstar Herdís Hall- marsdóttir, lögmaður í slitastjórn Landsbankans, með 2,5 milljónir á mánuði, og Steinunn Guðbjarts- dóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, með 2,3 milljónir. Ellefuföld lágmarkslaun Millistjórnendur bankanna höfðu sennilega ekki áhyggjur af salti í grautinn á síðasta ári. Laun þeirra virðast yfirleitt vera á bilinu 1,6– 2 milljónir á mánuði. Með rúm- ar 2 milljónir voru til að mynda Halldór Bjarkar Lúðvígsson, fram- kvæmdastjóri fjárfestingasviðs Arion banka, og Una Steinsdóttir, fram- kvæmdastjóri viðskiptasviðs Íslands- banka. Í Landsbankanum er Hrefna Sigfinnsdóttir fremst meðal jafningja með tæplega 2 milljónir. Það er rúm- um 700 þúsund krónum hærra en mánaðarlaun forsætisráðherra og 11 sinnum hærra en lágmarkslaun, sem voru 182 þúsund krónur samkvæmt kjarasamningum ársins 2011. Gunnar Helgi Hálfdanarson, for- maður bankaráðs Landsbankans, þénaði rúmar 500 þúsund krónur á mánuði og þykir það ekki há upp- hæð fyrir mann í hans stöðu. Til samanburðar má nefna að Agnar Kofoed-Hansen, óbreyttur fulltrúi í bankaráði Arion banka, var með 1,8 milljónir á mánuði, og Friðrik Klem- enz Sophusson, stjórnarformaður Ís- landsbanka og fyrrverandi fjármála- ráðherra, var með um 1,5 milljónir. z Ólafur Kjaran Árnason blaðamaður skrifar olafurk@dv.is „Millistjórnendur bankanna höfðu sennilega ekki áhyggjur af salti í grautinn. n Millistjórnendur bankanna með drjúgt forskot á forsætisráðherra 27.–29. júlí 2012 Helgarblað Launahæstur Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, var með um 3 milljónir í mánaðartekjur árið 2011. Hann er launahæsti bankastjóri landsins. Tveimur þriðju lægri Mánaðartekjur Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Lands- bankans, voru ekki nema rúmlega þriðjung- ur mánaðarlauna Höskuldar H. Ólafssonar, kollega hans hjá Arion banka. Verkalýðsforingi æfur: Vill segja upp samningum „Ég segi: Verkafólk, látum þetta ekki yfir okkur ganga,“ segir Vil- hjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, og er harðorður um fréttir af því að laun tekjuhæstu Íslending- anna hafi samkvæmt tekjublöð- um hækkað í fyrsta skipti frá hruni. Vilhjálmur segir þetta áfellisdóm yfir svokallaðri sam- ræmdri launastefnu sem Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, og Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, hafi unnið út frá í kjara- samningum 2010. „Þessi launastefna átti að tryggja stöðugleika í íslensku samfélagi. Nú kemur í ljós að forstjórar, framkvæmdastjór- ar, bankamenn og aðrir milli- stjórnendur voruað hækka um hundruð þúsunda á mánuði, en á sama tíma fékk almennt verkafólk einungis 11.000 króna hækkun á sínum launum sam- kvæmt þessari margfrægu sam- ræmdu launastefnu sem þessir snillingar gengu frá.“ Vilhjálmur segir að bullandi launaskrið sé hjá fyrirtækjum samkvæmt þessum fréttum en það nái eins og ætíð aðeins til stjórnenda en enn og aftur sitji almennt launafólk á hakanum. „Ástæðan fyrir þessu launa- skriði er sagt 700 milljarða af- skriftir sem fyrirtækin hafa feng- ið á liðnum misserum og því segi ég að það er ekkert annað í stöðunni en að segja kjarasamn- ingum upp í janúar og krefj- ast þess að verkafólk fái álíka launahækkanir og stjórnendur skömmtuðu sér á síðasta ári.“ Vilhjálmur minnist þess að hafa þurft að hlusta á forsvars- menn SA vara við því við gerð síðustu kjarasamninga að at- vinnulífið myndi ekki þola hækkun lágmarkslauna upp í 200 þúsund krónur. „Núna kem- ur fram að þessir snillingar sem stjórna þessum fyrirtækjum eru að hækka sín laun um allt að 300 þúsund krónur á mánuði.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.