Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Blaðsíða 8
björgólfur
enn með
ítök innan
StraumS
n Umboðsmaður Alþingis úrskurðaði foreldrum fatlaðs drengs í hag
U
mboðsmaður Alþingis hef-
ur úrskurðað foreldrum fatl-
aðs drengs sem sóttust eftir
styrk til bílakaupa í hag. Úr-
skurðarnefnd almannatrygginga
synjaði árið 2010 foreldrum drengs-
ins um aðstoð til kaupa á bíl, sér-
útbúnum fyrir son hjónanna, en
hann er bundinn hjólastól. Hafnaði
nefndin hjónunum á grundvelli laga
um félagslega aðstoð þar sem segir
að líða verði fimm ár á milli styrkja
en að víkja megi frá þeim skilyrðum
ef bifreiðin eyðileggst. Hjónin höfðu
þremur árum áður fengið milljón
króna styrk til að kaupa bíl.
Í úrskurði umboðsmanns kem-
ur fram að hjónin hafi þá keypt bif-
reið frá árinu 1999 og látið útbúa í
hana hjólastólalyftu fyrir son sinn. Á
tæplega þriggja ára tímabili var bíll-
inn bilaður og ógangfær í um átján
mánuði. Segir í úrskurði umboðs-
manns að kostnaður við að gera
við bifreiðina hafi verið langt um-
fram verðmæti hans. Telur umboðs-
maður að með höfnuninni hafi úr-
skurðarnefnd almannatrygginga
túlkað lögin þröngt og ekki í anda
reglnanna. Tilgangur þeirra sé að
tryggja réttindi fatlaðra.
Úrskurðarnefndin taldi að
undanþáguákvæði laganna ættu
aðeins við þegar bíll skemmd-
ist skyndilega, til að mynda við
árekstur. Telur umboðsmaður að sú
túlkun sé of þröng. Það er því niður-
staða hans að rétt sé að umsókn-
in verði tekin fyrir aftur. Þá kem-
ur einnig fram að bifreiðin sem um
ræðir hafi verið seld í partasölu fyrir
150 þúsund krónur.
8 Fréttir 27.–29. júlí 2012 Helgarblað
Ekki í anda laganna Umboðsmaður
Alþingis telur að úrskurðarnefnd almanna-
trygginga hafi farið gegn anda laga um
félagslega aðstoð með því að synja
styrktarbeiðni foreldra fatlaðs drengs.
Eiga rétt á styrk fyrir soninn
S
traumur fjárfestingarbanki hf.
annaðist sölu á fyrirtækinu
Plastprenti fyrir Framtaks-
sjóð Íslands, en kaup Kvos-
ar á Plastprenti hafa vakið
harðar deilur. Heimildir DV herma að
Björgólfur Thor Björgólfsson hafi enn
nokkur ítök innan Straums, meðal
annars í gegnum suðurafríska félagið
Standard Bank sem er meðal stærstu
kröfuhafa bankans. Félag Björgólfs-
feðga, Samson Global Holding, var
stærsti hluthafi Straums fyrir hrun og
Björgólfur Thor var stjórnarformað-
ur bankans. Athygli vekur að leiðir
Björgólfs Thors og Þorgeirs Baldurs-
sonar, forstjóra Kvosar, hafa oft legið
saman á síðustu árum en ekki er hægt
að fullyrða að þessi tengsl hafi haft
áhrif á söluferli Plastprents.
Ævintýri í Austur-Evrópu
Stutt er síðan Kvos fékk fimm millj-
arða afskrifaða hjá Landsbankanum
og Arion banka en jafnframt má nefna
að Kvos, móðurfélag prentsmiðjunn-
ar Odda, átti hlut í Plastprenti þegar
félagið var tekið til gjaldþrotaskipta
árið 2009. Því eiga margir bágt með að
skilja hvers vegna meirihluti stjórnar
Framtakssjóðsins samþykkti kaupin.
Þorgeir Baldursson settist í stjórn
Landsbankans árið 2003 og sat þar
fram að hruni bankans. Eins og flest-
ir vita var Björgólfur Thor aðaleig-
andi Landsbankans á þeim tíma.
Athygli vekur að Björgólfur og Þorge-
ir fjárfestu í sömu löndunum á útrás-
arárunum. Í Búlgaríu átti Björgólfur
fyrirtækið BTC en þar rak Oddi, fyrir-
tæki Þorgeirs, prentsmiðjuna Delta+.
Björgólfur Thor átti í viðamiklu fast-
eignabraski víða um Austur-Evrópu,
meðal annars í Rúmeníu en Kvos
ehf. eignaðist stærstu prentsmiðjuna
þar í landi árið 2006, fyrirtækið Info-
press.
Samstarfsmaður Björgólfs í
Straumi
Ekki er að sjá að núverandi stjórn-
endur Landsbankans séu hliðholl-
ir Þorgeiri Baldurssyni og Kvos, enda
lagðist bankinn gegn kaupum Kvos-
ar á Plastprenti. Talsmenn bankans
útskýrðu afstöðuna á þá leið að ekki
væri tilhlýðilegt að Kvos fengi að eign-
ast Plastprent svo stuttu eftir að félag-
ið hefði fengið milljarða króna afskrif-
aða.
Sigurgeir Guðlaugsson settist í
stjórn Straums í fyrra en ráðningin
vekur upp spurningar um það hvort
Björgólfur sé enn viðriðinn félagið.
Sigurgeir var náinn samstarfsmaður
Björgólfs á árunum fyrir hrun. Hann
stýrði samruna og yfirtökum Actav-
is á árunum 2003 til 2006 og var um
tíma framkvæmdastjóri tveggja félaga
í eigu Björgólfs, annars vegar Novator
Healthcare og hins vegar Novator
Partners.
Beðið ákvörðunar
Samkeppniseftirlitsins
Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarfor-
maður Framtakssjóðs Íslands, hef-
ur svarað gagnrýni á Plastprents-
söluna á þá leið að stjórninni beri
ekki „að setjast í siðferðilegt dóm-
arasæti“ þegar teknar eru ákvarð-
anir um sölu fyrirtækja. Til að taka
þátt í söluferli Plastprents þurftu
félög að sýna fram á 250 milljóna
króna fjárfestingargetu. Kristþór
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Ísafoldarprentsmiðju og
samkeppnisaðili Kvosar og Odda,
hefur látið í ljósi efasemdir um að
Kvos hafi getað uppfyllt þetta skil-
yrði. Ekki hafa fengist skýr svör um
uppfyllingu skilyrðanna frá Straumi
en að sögn Þorgeirs Baldursson-
ar hafa núverandi hluthafar Kvos-
ar auk nýrra innlendra fjárfesta
aflað þeirrar upphæðar. Hann seg-
ir að ef allt gangi að óskum verði
fjármunirnir notaðir til hlutafjár-
aukningar í Plastprenti en áður en
slíkt getur orðið þarf Samkeppn-
iseftirlitið að staðfesta kaupin. Að
sögn Péturs Þ. Óskarssonar, tals-
manns Framtakssjóðs Íslands, gæti
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins
þó dregist í nokkra mánuði og enn
er óljóst hvort kaupin ganga í gegn.
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannpall@dv.is
Fyrirlesari frjálshyggjumanna:
Keyrði banka
á hausinn
Fyrrverandi stjórnarformaður
breska bankans Northern Rock,
Matt Ridley, er staddur hér á
landi á vegum Rannsóknarseturs
um nýsköpun og hagvöxt, RNH.
Meðal stofnenda RNH eru með-
limir Eimreiðarhópsins, boðbera
frjálshyggjunnar hér á landi.
Ridley flytur fyrirlestur sinn:
Hvers vegna ég er bjartsýnn af
skynsemisástæðum. Fyrirlestur-
inn byggir á bók hans um skyn-
sama bjartsýnismanninn sem
kom út árið 2010 (e. The Rational
Optimist: How Prosperity Evol-
ves).
Frægastur er Northern Rock
fyrir að hafa árið 2007 orðið fyrsti
breski bankinn í 150 ár sem féll
undan bankaáhlaupi.
Breska ríkissjónvarpið segir í
frétt sinni af skýrslutöku af Ridley
fyrir breska þingið að hann hafi
verið grillaður af nefndinni.
Ridley varði gjörðir bankans
sem og viðskiptamódel bankans.
hann sagði greiðslufallið tilkomið
vegna ófyrirsjáanlega breytinga
á fjármálamarkaði. Seðlabanki
Bretlands varaði í janúar 2007
banka við yfirvofandi kulda á
lánamörkuðum. Fyrir nefndinni
viðurkenndi Ridley að hafa séð
þær viðvaranir.
„Við vorum óundirbúin og
næstum enginn sá hvað var í
vændum. Þeir sem sáu hvað var
í vændum voru ekki í aðstöðu til
að vara alla aðra við,“ sagði Ridley
í viðtali við Journal í Newcastle
um hvers vegna Northern Rock
féll árið 2010, sama ár og bók
hans um skynsama bjartsýnis-
manninn kom út. Breskir skatt-
greiðendur lögðu árið 2007 fram
271 milljarð króna til bjargar
bankanum. Breska blaðið The
Guardian hefur af þessum sökum
efast um hversu skynsöm bjart-
sýni Ridleys geti talist. Bresk-
ir skattgreiðendur töpuðu 78
milljörðum króna á bankanum
sem nú er í eigu Virgin. Hvorki
Háskóli Íslands né RNH telur
ástæðu til að nefna störf Ridleys á
bankamarkaði í fréttatilkynningu
um komu hans.
n Spurningar vakna um Björgólf Thor og umdeild kaup á Plastprenti
Þorgeir Baldursson Þorgeir var stjórn-
armaður í Landsbankanum þegar Björgólfur
var aðaleigandi bankans.
Björgólfur Thor
Á útrásarárunum
fjárfestu þeir Þorgeir
á svipuðum slóðum
en vart þarf að taka
fram að Björgólfur var
talsvert stórtækari í
sínum viðskiptum.