Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Blaðsíða 79
ámakurs-
maÐurINN
31Helgarblað 27.–29. júlí 2012
Sakamál Myrti mæðgin Aðfaranótt 17. júní árið 2000 myrti dansk-þýski morðinginn Peter Lundin sambýliskonu sína, Marianne Pedersen, og tvo syni hennar, Dennis, 10 ára, og Brian, 12 ára, í húsi við Nørregårdsvej 26 í Rødovre í Danmörku. Að morðunum loknum hlutaði hann líkin í sundur. Þann 15. mars árið 2001 var hann dæmdur til lífstíðarfangelsis. Reyndar var Peter enginn nýgræðingur því árið 1991 myrti hann móður sína, í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum, og losaði sig við líkið með
aðstoð föður síns.U m s j ó n : K o l b e i n n Þ o r s t e i n s s o n k o l b e i n n @ d v . i s
n Marcel Lychau Hansen hefur mörg ódæði á samviskunni n Fékk lífstíðardóm 2011„Þú átt
ekki að
bana neinum,
í mesta lagi slá
einhverja niður
og koma DNA-
sýnunum fyrir
M
aður er nefndur Marcel
Lychau Hansen, Amager
maðurinn eins og hann
var kallaður. Mál hans
hefur verið fyrirferðar
mikið í dönskum fjölmiðlum undan
farið enda hefur hann verið önnum
kafinn við miður geðslegar athafnir
til margra ára. Marcel fæddist 1965,
2. október nánar tiltekið, í Tønder.
Móðir hans var þýsk en faðir hans
danskur og var hann miðjubarn
hjónanna. Marcel ólst upp á Dragør
á Ámakur. Hann kvæntist æskuást
sinni og eignuðust þau tvo syni. Þau
skildu 2007 eftir 20 ára hjúskap, eða
þar um bil.
Á níunda áratug liðinnar aldar
vann Marcel sem flutningabílstjóri
auk þess sem hann var ræstingamað
ur í flugskýli SAS á flugvallarsvæði
Kaupmannahafnar. Marcel er greini
lega ýmislegt til lista lagt, því hann
iðkaði knattspyrnu og kom einnig að
þjálfun í þeirri göfugu íþrótt.
Dökka hliðin
Undanfarin misseri hefur komið í
ljós að Marcel átti sína dökku hlið.
Þann 16. febrúar 1987 hleypti 73
ára ekkja, Edith Louise Andrup, þá
óþekktum manni inn í íbúð sína í
Valby. Eftir að hafa svæft Edith með
eter kyrkti ódæðismaðurinn hana
með berum höndum. Síðan lét hann
greipar sópa um íbúðina og eftir að
hafa kveikt á kerti opnaði hann fyr
ir alla gashana með það fyrir augum
að sprengja íbúðina í loft upp.
Marcel var yfirheyrður af lög
reglunni á sínum tíma vegna
morðsins, í ljós kom að hann hafði
haft hönd í bagga við flutninga fyr
ir hana mánuði fyrr – en hann var
ekki formlega ákærður fyrir morðið
fyrr en 2010 og í desember 2011 var
hann sakfelldur fyrir það og ýmisleg
fleira, eins og á eftir að koma í ljós.
Fleira á samviskunni
Fertug kennslukona, Lene Buchardt
Rasmussen, fór hjólandi heiman
frá sér 29. ágúst 1990. Í farteski sínu
hafði hún sjónauka góðan, enda ætl
unin að skoða fuglalíf í Kalvebodal
menningnum á VesturÁmakur.
Þegar Lene hafði ekki skilað sér
þegar húmaði að kveldi hafði eig
inmaður hennar samband við lög
regluna. Daginn eftir hófst mikil
leit og 3. september fannst reiðhjól
hennar og örfáum dögum síðar líkið
af henni; henni hafði verið nauðgað
og síðan hafði hún verið kyrkt með
snúru. Marcel, þó ódæðismaður
inn hafi ekki verið þekktur þá, hirti
af fórnarlambi sínu forláta silfurúr,
sem einhvers konar minjagrip.
Liðu nú mörg ár og slóðin var
orðin köld því ekki tókst að finna
DNAsamsvörun í gagnasafni lög
reglunnar við sæði sem hafði fund
ist á vettvangi. En í nóvemberbyrjun
2010 dró til tíðinda þegar lögreglan
gat upplýst að samsvörun hefði
fundist í nauðgunarmálum; einu frá
2005 og öðru frá 2010.
Eplið og „eikin“
Þann 19. október 1995 braust
Marcel inn í villu á Ingolfs Allé á
Ámakur. Þar yfirbugaði hann tvær
fjórtán ára stúlkur, eina fimmt
án ára og 23 ára konu, og nauðg
aði þeim öllum. Hann hafði síðan
á brott með sér skartgripi að verð
mæti 65.000 danskra króna, eða um
1,5 milljónir íslenskra króna, og út
tektarkort sem hann notaði víða í
kjölfarið. Eitthvað af skartgripun
um fannst síðar í fórum eldri son
ar Marcels, sem á eftir að koma
við sögu síðar og ljóst að eplið féll
ekki svo langt frá „eikinni“ hvað þá
feðga varðar.
Árið 2005, í maíbyrjun, lét Marcel
til skarar skríða á stúdentagörðum á
Ámakur. Þar hélt hann 24 ára konu
fanginni í tvo klukkutíma, nauðgaði
henni og ógnaði með hníf, auk þess
sem hann batt fyrir augu hennar.
Síðar kom í ljós að hann hafði sval
að þorsta sínum og drukkið mjólk
beint úr fernu úr ísskápnum. Síðar
fannst erfðaefni hans á fernunni og
fingraför á dyrakarmi.
Þann 22. júlí 2007 var konu
nauðgað skammt frá Vangede
kirkju hjá Gentofte. Konan slapp
með skrekkinn og síðar var Marcel
ákærður fyrir þá nauðgun en þar
sem sönnunargögn voru af skorn
um skammti var hann sýknaður af
verknaðinum.
Þann 25. september 2010 var 17
ára stúlku nauðgað og ógnað með
hníf í svonefndum nýlendugarði
á Ámakur. Þegar ódæðismaður
inn, Marcel, flúði af vettvangi missti
hann smokkinn sinn skammt frá.
Erfðaefni leiddi lögregluna á rétta
slóð og um miðjan næsta mánuð
var Marcel handtekinn á heim
ili sínu og ákærður fyrir morðið á
Lenu Buchardt Rasmussen og tvær
nauðganir.
Fleiri kærur
Varðhaldsúrskurður yfir Marcel litu
dagsins ljós. Réttarhöld yfir Marcel
hófust 2. nóvember í fyrra og stóðu
fram til 22. desember. Lýsti Marcel
sig saklausan af öllum ákæruatrið
um.
Marcel var sakfelldur fyrir tvö
morð, sex nauðganir og tilraun til
íkveikju og fékk í kjölfarið lífstíðar
dóm sem hann ákvað að áfrýja
ekki.
Síðar átti eftir að koma í ljós að
á meðan Marcel var í varðhaldi
hafði hann gert bíræfna tilraun til
að afvegaleiða lögregluna. Þann
15. desember komst lögreglan að
því að Marcel hafði náð að smygla
eigin sæði og hráka út úr fangels
inu.
Móttakandinn var sonur
Marcels, en það var kærasta hans
sem færði lögreglunni fjögur bréf,
frá Marcel og afklippta fingur af
gúmmíhanska sem innihéldu sæði
og hráka. Marcel hafði hvatt son
sinn til að ráðast á einhverja konu
og koma sæðinu og hrákasýnum
fyrir á vettvangi: „Þú átt ekki að
bana neinum, í mesta lagi slá ein
hverja niður og koma DNAsýnun
um fyrir.“
Sonur Marcels var ákærður, en
síðar var fallið frá ákærum á hend
ur honum. n
Handtakan DNA-greining varð Marcel Lychau Hansen að falli.
Ámakursmaðurinn Komst upp með ódæði sín í fjölda ára.