Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Blaðsíða 10
F
ótboltamaðurinn Mark Don-
inger hefur verið ákærður fyrir
tvær grófar líkamsárásir gegn
fyrrverandi kærustu sinni í
fyrra. Mark er 22 ára miðju-
vallarleikmaður sem var leikmaður
úrvalsdeildarliðs ÍA í knattspyrnu,
en var á dögunum seldur yfir til
Stjörnunnar í Garðabæ. Ákærurnar
verða dómteknar í september.
Stjörnunni var kunnugt um að
Mark hefði verið ákærður fyrir lík-
amsárásirnar og að hann hefði ver-
ið dæmdur fyrir tilefnislausa líkams-
árás í apríl á þessu ári, en þá hlaut
hann fjögurra mánaða skilorðs-
bundinn dóm til þriggja ára fyrir að
kasta bjórglasi í höfuð annars manns
á skemmtistaðnum Gamla Kaupfé-
laginu á Akranesi í apríl í fyrra. Heim-
ildir DV herma að fjölmargir sem
tengjast Stjörnunni séu afar ósáttir
við þessi félagaskipti og telja að það
sé óásættanlegt að Mark sé fenginn
í liðið undir þessum kringumstæð-
um. Enginn af forráðamönnum
Stjörnunnar vildi tjá sig um málið.
Sakaður um grófa líkamsárás
Mark er ákærður fyrir tvær grófar lík-
amsárásir gagnvart 21 árs konu sem
var kærasta hans á þessum tíma. Þar
sem um tvö aðskilin mál er að ræða er
ákæran í tveimur liðum, en þær áttu
sér báðar stað í fyrra. Er Mark Don-
inger annars vegar ákærður fyrir að
hafa þann 22. maí 2011 ráðist á kon-
una á skemmtistaðnum Breiðinni
á Akranesi. Hann er ákærður fyrir
að hafa kýlt hana hnefahöggi í and-
litið með þeim afleiðingum að hún
féll niður á billjarð-borð sem hún
sat á. Hann mun síðar þetta sama
kvöld hafa gert atlögu að konunni
aftur og hent henni í götuna og rifið
í hár hennar og ýtt henni í götuna. Þá
reif hann í hár hennar og ýtti ítrek-
að í götuna aftur þegar hún reyndi
að standa aftur upp. Konan hlaut við
það áverka; mar og bólgu á kjálka-
beini, mar og yfirborðsáverka á hné
auk þess sem hún tognaði á ökkla.
Sagður hafa skallað
kærustu sína
Þá er hinn liður ákærunnar á hendur
Mark á þann veg að hann er ákærður
fyrir að hafa þann 30. október sama
ár ráðist aftur á konuna, rifið í hár
hennar, hrist hana og hent henni upp
í rúm. Samkvæmt ákærunni er Mark
gefið að sök að hafa einnig sest ofan
á konuna þegar inn í svefnherberg-
ið var komið, slegið hana utan und-
ir og tekið um munn og nef henn-
ar með þeim afleiðingum að konan
átti erfitt með andardrátt. Þá segir
að hann hafi skallað hana þannig að
enni hans skallaði munn hennar.
Í ákærunni, sem DV hefur und-
ir höndum, segir að konan hafi hlot-
ið yfirborðsáverka í andliti og á hálsi
auk þess sem báðar varir hennar hafi
sprungið.
Mark er ákærður samkvæmt 217.
grein almennra hegningarlaga frá
1940, en þar segir: „Hver, sem gerist
sekur um líkamsárás, enda sé hún
ekki svo mikil sem í 218. gr. segir, skal
sæta sektum eða [fangelsi allt að 6
mánuðum], en fangelsi allt að 1 ári,
ef háttsemin er sérstaklega vítaverð.“
Segir kæruna hafa
verið fellda niður
Í útvarpsviðtali á X-inu þann 20. júlí
síðastliðinn sagði Mark Doninger að
hann teldi að önnur ákæran gegn sér
yrði felld niður. Lögreglan á Akranesi
kannaðist í gær ekki við að önnur
ákæran eða báðar hefðu verið felld-
ar niður þegar leitað var eftir upplýs-
ingum um málið. Enn fremur fékk
blaðamaður upplýsingar um að mál-
ið væri í hefðbundnu ferli innan lög-
reglunnar enda væri þegar búið að
gefa út ákæruna.
Brot á siðareglum
Í 10. grein siðareglna Stjörnunnar seg-
ir að leikmönnum beri ávallt að vera
til fyrirmyndar varðandi framkomu
jafnt utan vallar sem innan og hafa
það hugfast að þeir séu fyrirmyndir
yngri iðkenda. Í 11. grein siðaregln-
anna segir að leikmenn megi aldrei
samþykkja eða sýna ógnandi eða of-
beldisfulla tilburði. Þrátt fyrir að Mark
hefði ekki verið leikmaður Stjörnunn-
ar þegar líkamsárásirnar eru sagð-
ar hafa átt sér stað eða dómur féll,
bentu viðmælendur DV á það að siða-
reglurnar væru til einskis ef Stjarnan
færi ekki eftir þeim og vísuðu sérstak-
lega til dómsins sem Mark fékk í apríl.
Enginn vill svara
Hjá Stjörnunni vísaði hver forráða-
maður félagsins á annan, en að lok-
um kom í ljós að það var meist-
araflokksráð karla sem annast
félagaskipti í meistaraflokki. Fram-
kvæmdastjóri Stjörnunnar, Páll
Grétarsson, vildi ekki tjá sig um
málið og formaður Stjörnunnar, Jó-
hann Steinar Ingimundarson, vildi
ekki heldur tjá sig um málið og vís-
aði á knattspyrnudeildina. Sagði
Jóhann að hún stýrði alfarið leik-
mannaráðningum. Varaformaður
knattspyrnudeildar Stjörnunnar,
Sturla Þorsteinsson, vildi ekki tjá sig
um málið og vísaði á meistaraflokks-
ráðið. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
náðist ekki í Sæmund Friðjónsson,
formann ráðsins, en hann hafði áður
sagt í fjölmiðlum að hann vildi ekki
tjá sig um málið, en að Stjörnunni
hefði verið kunnugt um fortíð og mál
Marks Doninger.
Þetta eru að mörgu leyti sömu
viðbrögð og fengust frá ÍA þegar leit-
að var eftir viðbrögðum við því að
Mark hefði verið ákærður fyrr í sum-
ar. Þá sagði Þórður Guðjónsson,
framkvæmdastjóri knattspyrnufé-
lags ÍA, að liðið vildi ekki tjá sig um
málið að svo stöddu og þetta væri
einkamál leikmannsins. Stuttu síð-
ar flutti Mark sig um set og samdi við
Stjörnuna. n
Segja Stjörnuna
brjóta Siðareglur
10 Fréttir 27.–29. júlí 2012 Helgarblað
Ákærður fyrir líkamsárás Margir eru ósáttir við félagaskiptin og segja að það sé brot á
siðareglum Stjörnunnar að ráða Mark.
n Ósáttir við kaup á Mark Doninger n Ákærður fyrir líkamsárásir„Vera ávallt til
fyrirmyndar
varðandi framkomu,
jafnt utan vallar sem
innan og hafa hugfast
að þú ert fyrirmynd
yngri iðkenda
Siðareglur Stjörnunnar
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is
Röntgen-
mynd tekin
daginn eftir
Dregið hefur verið úr þjónustu
við sjúklinga á bráðamóttöku
Landspítalans. Séu meiðsl fólks
ekki mjög alvarleg er ekki tek-
in röntgenmynd af meiðslun-
um að næturlagi heldur búið um
þau með gipsspelku eða teygju-
bindi og fólk beðið um að koma
aftur daginn eftir. Yfirlæknir segir
þetta vera vegna þrenginga í efna-
hagskerfinu. Þessi sparnaðarað-
gerð á bráðamóttökunni hófst
í vor. Næturvaktin er skilgreind
sem öryggisvakt en ekki með-
ferðarvakt. Öllum alvarlegum
og nauðsynlegum tilvikum er þó
sinnt áfram sem áður. Fréttastofa
RÚV greinir frá þessu.
Kastaðist
út úr bílnum
Bílvelta varð á þjóðveginum
nærri Borgarnesi um klukkan 16
á fimmtudaginn. Ökumaðurinn,
kona á sjötugsaldri, kastaðist út
úr bílnum. Bíllinn valt nokkrum
sinnum en konan var ein í bíln-
um. Samkvæmt lögreglunni í
Borgarnesi var konan talin tals-
vert slösuð og var hún því flutt
með þyrlu Landhelgisgæslunnar á
slysadeild Landspítalans.
Glæfraakstur
vélhjólamanna
Mikil hætta var á ferðum
þegar ungir vélhjólaeigendur
tóku upp myndband sem þeir
settu síðan á Youtube. Mynd-
bandið sýnir glæfraakstur á
götum Ísafjarðarbæjar. Meðal
annars má sjá þá keyra á öfug-
um vegarhelmingi á miklum
hraða. Í myndbandinu sést að
þeir hugsa ekkert um gang-
andi vegfarendur því þeir gefa
í þegar þeir aka fram hjá þeim.
Myndbandinu er ætlað að
sýna hæfni þeirra á vélhjólum
og hæfni þeirra til að prjóna á
þeim. Lögreglan á Ísafirði segir
málið grafalvarlegt. Fréttastofa
RÚV greindi frá þessu á
fimmtudagskvöld.