Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Page 20
20 Fréttir 27.–29. júlí 2012 Helgarblað
Pútín herðir tökin
V
ladimír Pútín, forseti
Rússlands, er töffari og
hörkutól. Hann er fimm-
tugur og er hinn sterki
leiðtogi Rússlands. Hann
vill að öllum líkindum einnig láta
hugsa um sig á þessum nótum.
Hann er júdókappi og veiðimað-
ur, en myndir af honum, berum
að ofan við laxveiðar, vöktu mikla
athygli á sínum tíma.
Kominn í hásætið
Enda þurftu Rússar algjörlega að
snúa við blaðinu frá hinum vodka-
marinerða Boris Jéltsín, sem var
forseti Rússlands á árunum 1991–
1999. Hann var að niðurlotum
kominn í lok ársins 1999, þegar
hann öllum að óvörum útnefndi
KGB-manninn Vladimír Pútín sem
æskilegan eftirmann sinn. Í for-
setakosningum sem fylgdu fékk
Pútín um 53 prósent atkvæða. Há-
sætið í Kreml var hans.
Rússland hafði þá gengið í
gegnum næstum áratug af harka-
legum efnahagsaðgerðum, sem
nauðsynlegt var að grípa til eftir
fall Sovétríkjanna, árið 1991. Rúss-
ar stóðu einnig í grimmilegu stríð í
Tsjetsjeníu, Suður-Rússlandi, sem
vildi kljúfa sig frá ríkinu, frá 1994–
1996 og svo aftur frá 1999–2000.
Frá 2001–2009 stóð síðan yfir í
Tsjetsjeníu svokölluð „and-hryðju-
verka-aðgerð“ þar sem Rússar og
samverkamenn þeirra beittu sér
af mikilli hörku við „upphreinsun“
og höfðu sigur. Hrikaleg mann-
réttindabrot voru framin í þess-
um átökum; launmorð, mannrán,
nauðganir og þess háttar.
Stjórnarskrá löguð fyrir Pútín
En það var eitt vandamál: Stjórnar-
skrá Rússlands hentaði ekki Pútín,
sem mátti aðeins sitja tvö fjögurra
ára kjörtímabil, frá 2000–2008. Því
var fundinn millileikur. Vinur hans
frá heimaborginni Sankti Péturs-
borg, Dimitrí Medvedev, gerð-
ist forseti frá 2008–2012, en Pútín
varð forsætisráðherra. Pútín bauð
sig aftur fram á þessu ári og sigr-
aði í forsetakosningum. Og nú var
búið að breyta stjórnarskránni á
þann veg sem passar Pútín bet-
ur; hann getur nú setið tvö sex
ára kjörtímabil og því verið forseti
Rússlands frá 2012–2024. Hásætið
er því aftur hans, en Medvedev
er nú forsætisráðherra. Þetta má
kalla stólaskipti með stæl.
Fjöldi blaðamanna myrtur
Í kjölfar forsetakosninganna,
sem haldnar voru í byrjun mars
og Pútín vann með 63 prósent-
um atkvæða, kom til mikilla mót-
mæla í Rússlandi, en háværar
raddir um kosningasvindl heyrð-
ust. Til að mynda sagði fulltrúi
frá Öryggis- og samvinnustofn-
un Evrópu að það hefði í raun
ekki verið nein samkeppni í kosn-
ingunum, enda hefði Pútín stjórn
á nánast allri fjölmiðlaumfjöllun.
Rússneska ríkið rekur Rás eitt og
Rússland 1. Orkurisinn Gazprom,
sem er stjórnað af ríkinu, stjórn-
ar svo sjónvarpsstöðinni NTV. Sá
sem stjórnar í Kreml stjórnar því
í raun helstu fjölmiðlum Rúss-
lands. Fjölmiðlafrelsi í landinu
hefur verið mjög ábótavant og er
blaðamennska hættulegt starf þar
í landi; síðan 1993 hafa 165 blaða-
menn verið myrtir í Rússlandi. Það
gerir um átta blaðamenn að með-
altali ári.
Samtök skilgreind sem
„erlendir útsendarar“
Frá því að Pútín sór embættis-
eiðinn í maí síðastliðnum hef-
ur hann ekki setið auðum hönd-
um. Fyrirrennari hans, Medvedev,
stóð fyrir ýmsum umbótum á
sviði mannréttindamála, en að
undanförnu hefur Pútín bakk-
að með þessar tilslakanir. Fyr-
ir skömmu samþykkti rússneska
þingið, Dúman, lög sem kveða á
um að ýmis samtök (e. NGO, Non-
govermental organi sation), sem
þiggja fé frá öðrum löndum til
starfseminnar þurfi að skrá sig sem
„erlenda útsendara“. Þá voru kröf-
ur um bókhald og endurskoðun
gagnvart samtökunum hertar
verulega og harðar refsingar eru
boðaðar, fylgi samtökin ekki þess-
um nýju reglum.
Einnig hefur Dúman hert lög
um fundafrelsi og meiðyrði og
eru dæmi um að sektir sem snúa
að þessu hafi verið 300-faldað-
ar. Fréttaskýrendur telja að þess-
ar aðgerðir séu meðal annars við-
brögð rússneskra stjórnvalda við
miklum mótmælum sem urðu eft-
ir þingkosningar sem haldnar voru
í desember, þar sem andstæðingar
Pútíns sögðu að kosningasvindl
hefði farið fram. Flokkur Pútíns,
Sameinað Rússland, fékk um 50
prósent atkvæða í kosningunum.
Pönkkvendi í gæsluvarðhald
fram á næsta ár
En það mál sem vakið hefur hvað
mesta athygli að undanförnu
er mál pönksveitarinnar „Pussy
Riot“ sem er skipuð þremur kon-
um. Þær frömdu mótmælagjörn-
ing, eins konar pönkbæn, gegn
Pútín í kirkju einni í Moskvu fyrir
skömmu. Atriðið fór fram á svæði
sem er eingöngu ætlað presti kirkj-
unnar. Þetta var meira en yfir-
völd þoldu og var sveitarmeðlim-
ir handteknir, en tvær kvennanna
eru mæður. Nú er útlit fyrir að þær
þurfi að dúsa í varðhaldi í hálft ár
í viðbót. Fjöldi leikara og ýmsir
þekktir einstaklingar hafa skorað á
stjórnvöld að sleppa konunum.
Líkindi við Kodorkovskí-málið
Málið þykir sláandi líkt með-
ferðinni á auðmanninum Mikhaíl
Kodorkovskí, sem á sínum tíma
gerðist svo kræfur að ögra Pútín
og völdum hans. Eftir stórfurðu-
leg réttarhöld var Kodorkovskí
dæmdur í níu ára fangelsi árið
2005. Hann var svo kærður aftur
og var dómurinn lengdur um þrjú
ár. Kodorkovskí, sem eitt sinn var
einn af ríkustu mönnum heims í
krafti Yukos-olíufélagsins, verð-
ur því á bak við lás og slá til ársins
2017. Hans glæpur var í raun að
draga völd og áhrif Pútíns í efa. Yu-
kos var síðan þvingað í gjaldþrot
og leyst upp.
Tvöföld krísa í Rússlandi
– mjúk harðstjórn
Doktor Kristian Gerner er pró-
fessor í sagnfræði við háskólann
í Lundi og hefur ritað fjölda dag-
blaðagreina og skrifað bækur um
Austur-Evrópu og Rússland. Í sam-
tali við DV segir hann að ástandið
í Rússlandi sé í raun tvöföld krísa:
„Það er um að ræða efnahagslega
krísu og lögmætis-krísu. Pútín hef-
ur tapað trúverðugleika hjá stór-
um hópi fólks, sem telst til milli-
stéttarinnar. Þetta veldur meðal
annars því að ungt fólk flýr nú frá
Rússlandi. Fjármagnið flýr einnig
Rússland og það er alvarlegt.“
Aukin pressa
Gerner segir að það sé aukin pressa
um allt rússneska samfélagið og að
það ríki stöðnun í framleiðslukerf-
inu, ekki ólíkt því sem var uppi á
teningnum árin fyrir fall Sovétríkj-
anna. ,,Það þarf menn með nýjar
hugmyndir í Rússlandi, en því mið-
ur er Pútín ekki sá maður,“ segir
Gerner. „Pútín reynir að koma því
að hjá Rússum að Rússland eigi sér
fjandmenn og það er mjög dæmig-
erð hegðun fyrir hann,“ segir Gern-
er. Hér vísar hann meðal annars til
þeirra laga sem skilgreina hjálp-
ar- og mannúðarsamtök sem „er-
lenda útsendara“, eins og sagt er
frá í greininni. „Þetta er veikleika-
merki á stjórninni að mínu mati og
þýðir að kerfið er hugmyndafræði-
lega staðnað.“
„Mjúk“ harðstjórn
Hann telur að það sem sé í gangi
nú megi flokkast sem „mjúk harð-
stjórn“ og dregur upp samlíkingu
við þá tíma þegar andstæðingar
stjórnarinnar voru læstir inni á
geðveikrahælum eða neyddust til
að flýja land. Þetta einkenndi með-
al annars stjórnartíð Yuri Andro-
pov (fyrrverandi yfirmaður KGB!) á
árunum 1982–1984. „En það er líka
greinileg almenn stöðnun í gangi,
sem einnig einkenndi tímann fyr-
ir Andropov, Brésnev-tímabilið
frá 1964–1982. Það er í raun mjög
greinilegt,“ segir Gerner.
Hann telur að þrátt fyrir það
sem sé nú að gerast í Rússlandi
sé von fyrir lýðræðið: „Ég á góða
vinkonu í Moskvu og við spjöllum
saman á Facebook. Hún segir að
það sé margt í gangi, fólk sé að mót-
mæla og að margir séu óhrædd-
ir við að segja skoðanir sínar. En
hún segir jafnframt að ástandið sé
mjög óstöðugt og að það sé líklegt
að það verði þannig áfram,“ sagði
Kristian Gerner, sagnfræðiprófess-
or, að lokum við DV. n
n Rússland komið með ,,mjúka harðstjórn“, segir sérfræðingur
Maðurinn með völdin
Aðgerðir Vladimírs Pútín að
undanförnu benda til þess að
hann sé að herða tökin á rúss-
nesku samfélagi, á kostnað
lýðræðis og mannréttinda.
Mynd: ReuTeRS
„Mjúk harðstjórn“ Kristian Gerner,
doktor í sagnfræði við háskólann í Lundi og
sérfræðingur í málefnum Rússlands, segir
að nú ríki hugmyndafræðileg stöðnun í
Rússlandi.
Mynd: CLAeS HedbeRg
„Þetta er veikleika-
merki á stjórninni
að mínu mati og þýðir
að kerfið er hugmynda-
fræðilega staðnað
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
Fréttaskýring