Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Page 22
Myrkraverk í Mexíkó
„ Þegar þeir fóru lá
ég eftir á gólfinu.
Mér blæddi og mig verkj-
aði um allan líkamann.
Konan sagði mér að
hunskast á lappir. Þetta
hafi ekki verið svo slæmt.
Þ
ær voru aðeins fjórtán ára
gamlar. Tvær frænkur frá
litlum bæ í hjarta Mexíkó
sem í janúar 2010 höfðu
farið saman í skemmti
ferð í farandtívolí. En sú saklausa
ferð breyttist á einu augabragði í
algjöra martröð. Stúlkurnar urðu
fórnarlömb mansals, og voru í
marga mánuði þvingaðar með of
beldi, í vændi og þeim gefin fíkni
efni. Hrollvekjandi saga stúlknanna
er sögð í fréttaskýringaröð CNN,
Freedom Project. Þjáningar þeirra
voru þó ekki til einskis því mál þeirra
varð til þess að yfirvöld fengu mikil
væga innsýn í undirheima mansals
í Mexíkó. Þar varð vakning og þau
skáru upp herör gegn því.
Rænt við strætóskýli
Stúlkurnar, sem nefndar eru Maria
og Lupe í umfjöllun CNN til að
vernda þær og fjölskyldur þeirra,
voru þann 27. janúar 2010 staddar
einar í strætóskýli snemma kvölds á
heimleið eftir tívolíferðina. Þær segja
að vöruflutningabíll hafi staðnæmst
við skýlið. Tveir grímuklæddir menn
stukku út og án þess að hika námu
þeir frænkurnar á brott. „Ég fann að
eitthvað var sett yfir nefið á mér og
það síðasta sem ég man eftir var að
kalla á hjálp,“ segir Lupe þegar hún
rifjar hið örlagaríka kvöld upp. Þeim
var byrlað ólyfjan og þær misstu
allt tímaskyn. Þær rönkuðu við sér í
dimmu herbergi þar sem þær voru
geymdar að eigin sögn í nokkra daga.
Þetta var því miður aðeins upphaf
rauna þeirra.
Barin og nauðgað
Eftir nokkra daga segir Maria að kona
hafi birst í herbergi þeirra. Hún tjáði
stúlkunum að héðan í frá ynnu þær
fyrir hana. Þær höfðu ekki hugmynd
um hvað hún meinti. Lupe var fjar
lægð úr herberginu og Maria skilin
ein eftir. Karlmaður kom inn í her
bergið og að sögn Mariu barði hann
hana miskunnarlaust áður en hann
nauðgaði henni. Maðurinn og konan
hótuðu henni lífláti ef hún sýndi ekki
samstarfsvilja.
Þetta kvöld var Maria þvinguð til
að eiga mök við 23 karlmenn.
„Þegar þeir fóru lá ég eftir á gólf
inu. Mér blæddi og mig verkjaði um
allan líkamann. Konan sagði mér að
hunskast á lappir. Þetta hafi ekki ver
ið svo slæmt.“
Þetta var upphafið á margra mán
aða þjáningum stúlknanna. Þær voru
seldar svokölluðum melludólg sem
þvingaði þær til að stunda vændi með
ofbeldi og vímuefnum. Ef þær voru
ekki „vingjarnlegar“ við viðskipta vini
dólgsins, voru þær lamdar.
Áhyggjufull fjölskylda
Á sama tíma, í heimabæ þeirra, var
þeirra sárt saknað af fjölskyldunni.
Ættingjar og vinir lögðust í umfangs
mikla leit að þeim þar sem talið var
að þær hefðu týnst í bænum. Síðar
var leitað í næstu bæjum og leitar
svæðið stækkað.
Faðir Lupe, sem kallaður er
Franc isco, rifjar upp í samtali við
CNN að hann hafi verið viti sínu
fjær af örvæntingu. Hann skipulagði
leitina og skipti fjölskyldunni upp í
leitarhópa. Hengdar voru upp aug
lýsingar um allar trissur. Á endanum
ákvað Francisco, í félagi við bróð
ur sinn, að leita á hinum ýmsu bör
um meðfram þjóðvegum. Þeir fóru
á fjölmarga bari í Moreloshéraði
í námunda við Mexíkóborg. Þeim
bauð við því sem þeir sáu. Ótal stúlk
ur undir lögaldri sem hefðu átt að
vera í skólanum voru þess í stað látn
ar vinna sem vændiskonur.
Maria var látin vinna á einu af
fjöl mörgum slíkra öldurhúsa, á átján
tíma vöktum að því er hún rifjar upp.
„Mér fannst ég vera svo skítug.“
Hún var fóðruð á áfengi og fíkni
efnum og var hún sannfærð um að
hún ætti skammt eftir ólifað. Henni
var haldið fanginni í húsi og rifj
ar upp hvað henni brá þegar hún
sá að komið var með stúlku þangað
sem var mun yngri en hún sjálf. Hún
spurði stúlkuna hversu gömul hún
væri. Svarið: átta ára.
Gjörspilltur bjargvættur
Maria segir að hún hafi einu sinni
náð að strjúka eftir nokkrar tilraun
ir. Hún slapp, hljóp út á götu og fann
þar lögreglumann á næsta götu
horni. Hún taldi að hún væri hólpin.
En henni rann kalt vatn milli skinns
og hörunds þegar hún áttaði sig á því
að lögreglumaðurinn var á launa
skrá melludólgsins. Og hann skilaði
Mariu aftur til hans í húsið þar sem
hún fékk barsmíðar að launum fyrir
strokutilraunina.
Sá ljósið
Þremur mánuðum eftir að Mariu og
Lupe var rænt hafði sú fyrrnefnda
að sögn glatað allri von. Þar til hún
sá ljósið – bókstaflega. Hún segist
aldrei gleyma þeim degi, 14. apríl.
Þá vaknaði hún við sólargeisla sem
brutust inn í herbergið undan fata
skáp í dimmu herberginu. Maria
náði að ýta skápnum frá og fyrir aft
an hann fann hún ólæsta hurð. Hún
hljóp eins hratt og hún gat, í nokkr
ar klukkustundir að því er henni
fannst. Þar til hún rakst á ungan
mann sem virtist virkilega hafa
áhyggjur af henni. Hann færði hana
að hópi ungra kristinna karlmanna
sem gáfu henni að borða, hýstu hana
um nóttina og keyptu fyrir hana
strætómiða heim. Eftir að hafa heimt
Mariu úr helju fór fjölskylda hennar
rakleiðis til lögreglunnar sem gerði
áhlaup á vændishúsið. Tíu manns
voru handteknir, sex stúlkum und
ir lögaldri var bjargað, þar á meðal
Lupe. En því miður var hin átta ára
gamla stúlka ekki ein þeirra.
Mikilvæg innsýn
Victor Carranca, ríkissaksóknari í
Pueblaríki, segir að mál Mariu og
Lupe hafi veitt yfirvöldum mikilvæga
n Hrollvekjandi frásögn úr undirheimum Mexíkó n Frænkum rænt eftir tívolíferð
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Í klóm glæpamanna Ungar
stúlkur eru þvingaðar í vændi og
beittar ofbeldi. Hér má sjá ungar
vændiskonur á Degi hinna dauðu í
október síðastliðnum þar sem þær
minnast látinna kvenna í vændis-
heiminum á táknrænan máta.
Mynd: ReuteRS
Hrollvekjandi frásögn Maria sagði sögu sína í fréttaskýringaþætti CNN. Hún og frænka
hennar vinna nú í því ásamt fagaðilum að endurheimta líf sitt. Mynd: SkjÁSkot af vef Cnn
22 Erlent 27.–29. júlí 2012 Helgarblað
Jafnrétti reynist
mikil tekjulind
Enn fækkar vopnum andstæðinga
hjónabanda samkynhneigðra ef
marka má nýjustu fréttir frá New
Yorkborg. Giftingarnar eru nefni
lega að reynast mikil og áður ónýtt
tekjulind fyrir New Yorkborg sem
halaði inn 259 milljónum dala,
eða sem nemur 32 milljörðum ís
lenskra króna á síðasta ári, í tekjur
þeim tengdum. Þetta er fyrsta árið
sem hjónabönd samkynhneigðra
eru lögleg í New York. 8.200 hjú
skaparvottorð voru gefin út fyrir
samkynhneigð pör í fyrra, 11 pró
sent af öllum giftingum í borginni.
Þá greinir Bloombergfréttastof
an frá því að 200 þúsund gestir
hafi ferðast til borgarinnar til að
vera viðstaddir giftingarnar. Allt
tikkar þetta í kassann með bein
um og óbeinum hætti og Micha
el Bloomberg, borgarstjóri New
York, er hæstánægður. „Þetta
jafnrétti hefur gert borgina okkar
opnari og frjálsari, en einnig skap
að störf og styrkt efnahag okkar,“
segir borgarstjórinn.
Kim Jong-Un
genginn út
Heimsbyggðin hefur sýnt ástar
málum norðurkóreska einræðis
herrans Kim JongUn mikinn
áhuga undanfarnar vikur eftir að
fregnir bárust af því að hann væri
að slá sér upp með poppstjörn
unni Hyon Songwol fyrr í þessum
mánuði. Nú berast af því fréttir frá
NorðurKóreu að einræðisherr
ann sé genginn í það heilaga, og
sú heppna sé ekki poppsöngkon
an. Samkvæmt ríkisfjölmiðlinum
heitir hin nýbakaða eiginkona Ri
Sol Ju en meira er ekki vitað um
þá ágætu kona að svo stöddu.
En hjónin má sjá á meðfylgjandi
mynd.
Maðurinn sem
fann upp
hlaupa brettið
látinn
William Staub, maðurinn sem
fann upp hlaupabrettið, er látinn
96 ára að aldri. Þessi uppfinning
hans sem átti eftir að gjörbylta lík
amsrækt næstu áratugi leit fyrst
dagsins ljós seint á sjöunda ára
tug síðustu aldar. Það bretti sam
anstóð af 40 stálrúllum og app
elsínugulu belti sem knúið var
áfram af litlum mótor. Strax var
hægt að stilla tíma og hraða með
litlu stjórnborði. Staub var véla
verkfræðingur að mennt og fékk
hugmyndina eftir að hafa les
ið bókin Aerobics eftir Kenneth
Cooper árið 1968.