Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Síða 26
Fjármál og stjórnun fyrirtækja Þúsundir króna á mánuði
Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar 10.710
Finnur Árnason forstjóri Haga 6.506
Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónus 6.116
Sigsteinn P. Grétarsson forstjóri Marels á Íslandi 6.024
Hjörleifur Pálsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Össurar 5.594
Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips 5.521
Helgi Vilhjálmsson framkvæmdastjóri Góu 5.510
Brynjólfur Bjarnason fyrrverandi forstjóri Skipta 5.368
Ásbjörn Gíslason forstjóri Samskipa 5.104
Rannveig Rist forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi 5.073
Bergþór Konráðsson stjórnarformaður Eignabjargs (dótturfélags Arion banka) 4.952
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir forstjóri Actavis 4.768
Ingimundur Sigurpálsson forstjóri Íslandspósts 4.762
Tómas Már Sigurðsson forstjóri Alcoa í Evrópu 4.325
Sigurður Viðarsson forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar 3.897
Árni Oddur Þórðarson stjórnarformaður Marels 3.828
Magnús Scheving athafnamaður í Latabæ 3.798
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar 3.756
Guðmundur Hauksson fyrrverandi sparisjóðsstjóri SPRON 3.716
Kjartan Már Friðsteinsson framkvæmdastjóri Banana 3.694
Egill Jónsson framkvæmdastjóri hjá Össuri 3.650
Jón Guðmann Pétursson forstjóri Hampiðjunnar 3.643
Valur Valsson fyrrverandi bankastjóri Íslandsbanka og stórmeistari Frímúrara 3.511
Ragnhildur Geirsdóttir stjórnarmaður Landsbréfa ehf. (dótturfélags Landsbankans) 3.510
Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group 3.493
Katrín Olga Jóhannesdóttir stjórnarformaður Já 3.427
Hreggviður Jónsson forstjóri Veritas Capital 3.421
Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa lónsins 3.342
Einar Benediktsson forstjóri Olís 3.224
Gunnar Ingi Sigurðsson framkvæmdastjóri Hagkaupa 3.210
Birkir Hólm Guðnason forstjóri Icelandair 3.187
Kristján Óskarsson framkvæmdastjóri Skilanefndar Glitnis 3.133
Halldór Jörgen Jörgensson framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi 3.126
Hermann Jónasson fyrrverandi forstjóri Tals 3.125
Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka 2.994
Úlfar Steindórsson forstjóri Toyota 2.904
Ruth Elfarsdóttir fjármálastjóri Fjarðaáls 2.887
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group 2.824
Steinn Logi Björnsson forstjóri Skipta 2.808
Hermann Guðmundsson fyrrverandi forstjóri N1 2.775
Sigþór Einarsson fyrrverandi aðstoðarforstjóri Icelandair Group 2.729
Gunnar Karl Guðmundsson fyrrverandi forstjóri MP banka 2.659
Pétur Þorsteinn Óskarsson samskiptasviði Skipta 2.650
Einar Þorsteinsson forstjóri Járnblendiverksmiðunnar á Grundartanga 2.645
Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka 2.634
Einar Örn Ólafsson forstjóri Skeljungs 2.622
Kristinn Björnsson fyrrverandi forstjóri Skeljungs 2.604
Jón Finnbogason fyrrverandi forstjóri Byrs 2.528
Jón Karl Ólafsson forstjóri JetX/Primera Air 2.527
Herdís Hallmarsdóttir slitastjórn Landsbankans 2.519
Orri Hauksson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins 2.420
Viðar Þorkelsson forstjóri Valitor 2.399
Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Símans 2.383
Guðmundur Þóroddsson forstjóri Reykjavik Geothermal 2.376
Árni Tómasson fulltrúi í bankaráði Íslandsbanka 2.349
Hjálmar Sigurþórsson forstöðumaður fyrirtækjaþjónustu Tryggingamiðstöðvarinnar 2.339
Knútur G. Hauksson forstjóri Kletts og formaður HSÍ 2.290
Alfreð Hjaltalín framkvæmdastjóri Sóma 2.290
Hannes Hilmarsson framkvæmdastjóri flugfélagsins Atlanta 2.283
Haukur Oddsson forstjóri Borgunar 2.283
Guðmundur Örn Gunnarsson fyrrverandi forstjóri VÍS 2.275
Steinunn Guðbjartsdóttir slitastjórn Glitnis 2.271
Helga Hlín Hákonardóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Saga Capital 2.245
Hörður Sigurgestsson fyrrverandi forstjóri Eimskips 2.240
Geir Valur Ágústsson fjármálastjóri Air Atlanta 2.226
Sigurður Þór Ásgeirsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Álversins í Straumsvík 2.224
Bogi Þór Siguroddsson stjórnarformaður Johans Rönning 2.223
Guðjón Auðunsson forstjóri Reita 2.217
Kjartan Georg Gunnarsson framkvæmdastjóri Lykils (bílafjármögnunar MP banka) 2.202
Jörundur Jörundsson framkvæmdastjóri innanlandssviðs Samskipa 2.174
Axel Gíslason fyrrverandi forstjóri hjá VÍS 2.172
Örn Gústafsson forstjóri Okkar líftrygginga 2.165
Birna Pála Kristinsdóttir framkvæmdastjóri steypuskála Álversins í Straumsvík 2.152
Júlíus Þorfinnsson framkvæmdastjóri Stoða Invest 2.141
Ágúst Hafberg framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Norðuráli 2.131
Kjartan Eiríksson framkvæmdastjóri Kadeco 2.130
Heiðrún Jónsdóttir framkvstjóri lögfræðideildar Eimskips 2.126
Janne Sigurðsson forstjóri Fjarðaráls 2.119
Garðar Hannes Friðjónsson forstjóri Eikar 2.118
Örn Valdimarsson hagfræðingur Eyrir Investment 2.113
Sverrir Viðar Hauksson formaður Bílgreinasambandsins 2.058
Halldór Bjarkar Lúðvígsson framkvæmdastjóri fjárfestingasviðs Arion banka 2.030
Katrín Pétursdóttir framkvæmdastjóri Lýsis 2.028
Björn Víglundsson framkvæmdastjóri sölusviðs Vodafone 2.028
Guðmundur Hallvarðsson stjórnarformaður Hrafnistu 2.026
Una Steinsdóttir framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka 2.012
Vilhelm Már Þorsteinsson framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Íslandsbanka 2.002
Jensína Kristín Böðvarsdóttir framkvæmdastjóri þróunarsviðs RÚV 1.989
Björk Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka 1.973
2 Tekjublaðið 27. júlí 2012
Stórlaxarnir sleppa
M
eð hverju árinu sem líð-
ur verður fyrirkomulagið
við birtingu álagningar-
skrár launafólks einkenni-
legra. Lögin um tekjuskatt, sem
kveða á um að ríkisskattstjóri skuli
birta upplýsingar á pappírsformi
í húsakynnum embættisins, að-
eins í nokkrar vikur síðsumars, eru
barn síns tíma. Þau voru samin
árið 1983, árið sem ég fæddist, og
sett ári síðar. Fyrst þessar upplýs-
ingar eru á annað borð opinberar,
er óboðlegt annað en að birta þær
á tölvutæku formi. Hægðarleikur
væri að opna fyrir gátt á netinu með
þeim takmörkunum sem menn
vilja á því hafa. Norðmenn og Sví-
ar hafa fyrir margt löngu tekið slíkt
fyrirkomulag upp. Til þess að aflétta
hálf-leyndinni þarf lagabreytingu.
Það er svo önnur umræða hvort
þessar upplýsingar eigi að vera op-
inberar. Þegar lögin voru sett kom
fram það álit meirihluta efnahags-
og viðskiptanefndar að útgáfa skatt-
skráarinnar væri í heild til þess fall-
in að skapa bæði gjaldendum og
skattayfirvöldum virkt aðhald með
það að markmiði að koma í veg fyrir
undanskot frá skatti. Þessu eru ekki
allir sammála; eins og breytinga-
tillögur þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins frá því fyrir hrun bera vott
um. Þar var lagt til að leynd myndi
alfarið hvíla yfir upplýsingum um
framlag einstaklinga til sveitarfé-
laga sinna. Fjármál væru
einkamál.
DV birtir í dag
tekjur um 2.500 Ís-
lendinga, flestra lands-
þekktra. Upplýsingarn-
ar gefa í mörgum
tilvikum góða
hugmynd um
mánaðarlaun
einstaklinga en
þó er hæng-
ur á því. Þeim
sem reka eigið
fyrirtæki; eins og
til dæmis fjölmörgum listamönn-
um og lögmönnum, er í sjálfsvald
sett hvað þeir greiða sér í laun. Þeir
geta þannig gefið upp hófleg laun
en á bak við tjöldin greitt sér millj-
óna arðgreiðslur út úr fyrirtækjum
sínum án þess að af þeim fjármun-
um sé greitt útsvar til sveitarfélags-
ins. Fjármagnstekjur eru ekki inni
í þeim tölum sem hér birtast. Það
er ein skýringin á því hvers vegna
nafntogaðir auðmenn eru skráð-
ir með lágmarkslaun, eða jafnvel
minna. Stórlaxarnir sleppa.
Upplýsingarnar í blaðinu
eru birtar með fyrirvara um
innsláttarvillur og að upp-
lýsingar frá skattstjóra séu
réttar.
Baldur
Guðmundsson
umsjónarmaður
Tekjublaðsins.
Mikil handavinna Blaðamenn DV sækja upplýsingarnar, í ágætri aðstöðu skattstjóra.
Birting á rafrænu formi, í þágu gagnsæis, er löngu tímabær.
Fjórar milljónir
á mánuði
n Tómas Már Sigurðsson, fyrrver-
andi forstjóri Alcoa Fjarðaáls, var
með 4.324.605 krónur í tekjur á
mánuði fyrir árið 2011. Tómas
hætti í starfi sínu um áramótin
og tók við starfi forstjóri Alcoa í
Evrópu með aðsetur í Genf í Sviss.
Gera má ráð fyrir að laun hans
hafi hækkað töluvert við það en
þau verða ekki skráð hér á landi
á næsta ári þar sem hann verð-
ur búsettur í Genf. Tómas hefur
umsjón með öllum starfsstöðv-
um Alcoa í Evrópu sem eru um 50
talsins.
Laun í FME
n Aðalsteinn Leifsson, formaður
stjórnar FME og lektor við við-
skiptadeild Háskólans í Reykja-
vík, var með 1.093.246 krónur í
mánaðarlaun í fyrra. Aðalsteinn
var í fréttum DV í byrjun árs þegar
hann tilkynnti um þá ákvörðun
stjórnar FME að segja Gunnari
Anderson, forstjóra FME, upp
störfum.
Tengd uppsögn Gunnars var
ásökun á hendur þeim Ársæli
Valfells og Inga Frey Vilhjálms-
syni, fréttastjóra DV, um að hafa
brotið lög um bankaleynd en Ár-
sæll viðurkenndi að hafa afhent
DV upplýsingar um fjármál þing-
mannsins Guðlaugs Þórs Þórðar-
sonar. Málið var fellt niður og
engin ákæra gefin út á hendur
þeim. Gunnar Andersen var með
1.580.199 krónur á mánuði 2011.