Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Side 75
„Ég fann til djúpstæðrar skammar“
Viðtal 27Helgarblað 27.–29. júlí 2012
kjörtímabilinu. Samt sem áður hef-
ur ríkisstjórn Samfylkingarinnar og
Vinstri-grænna náð gríðarlega góð-
um árangri og þess vegna fyndist
mér eftirsóknarvert, ef kjósendur
eru sammála mér, að við störfuðum
saman áfram.“
Ríkir pabbadrengir
Í ræðu sem Sigríður Ingibjörg hélt
1. maí síðastliðinn spurði hún hvort
fólk héldi virkilega að ríkum pabba-
drengjum hefði frekar tekist að leiða
þjóðina úr hruninu en Samfylk-
ingunni.
En um hvaða ríku pabbadrengi
var hún að tala?
„Það eru náttúrlega ríkir pabba-
drengir í íslenskri pólitík. Þeir leiða
tvo stjórnmálaflokka á Íslandi: Sjálf-
stæðisflokkinn og Framsóknarflokk-
inn,“ svarar hún skýrt og skorinort.
Nú er óhjákvæmilegt að spyrja hvort
hún gæti hugsað sér að starfa með
Sjálfstæðisflokknum eða Fram-
sóknarflokknum í ríkisstjórn á næsta
kjörtímabili ef til þess kæmi.
„Í stjórnmálum er ekki hægt að
segja aldrei. En óháð því að ég er ekki
hlynnt hugmyndafræði Sjálfstæðis-
flokksins, þá er Sjálfstæðisflokkurinn
ekki tilbúinn til að takast á við fram-
tíðina. Hann hefur ekki horfst í augu
við eigin vandamál. Forystan í Sjálf-
stæðisflokknum er óskýr og veik og
með óskýra framtíðarsýn og lýtur
ennþá leiðsögn Davíðs Oddssonar.“
En hvað um Framsóknarflokk-
inn?
„Veit einhver hvert Framsóknar-
flokkurinn er að fara? Framsókn
virðist ekki njóta mikils fylgis og
ekki standa vel,“ svarar Sigríður
Ingibjörg.
Umfjöllunin ósanngjörn
Samkvæmt mánaðarlegum skoðana-
könnunum Þjóðarpúls Gallups hef-
ur fylgi Samfylkingarinnar minnkað
síðan flokkurinn myndaði ríkisstjórn
ásamt Vinstri-grænum. Þegar Sam-
fylkingin fór í ríkisstjórn árið 2009
var fylgi hennar 28 prósent. Síðan þá
hefur fylginu hrakað um 10 prósent
og mældist síðast í apríl um 18 pró-
sent.
Sigríður Ingibjörg telur minnk-
andi fylgi eiga sér tvær meginskýr-
ingar; annars vegar þá að Sam-
fylkingin hafi þurft að takast á við
óvinsæl verkefni og hins vegar að
umfjöllun um Samfylkinguna hafi
verið og sé enn ósanngjörn. „Þar
eigum við reyndar stundum við
okkur sjálf að sakast því ég held
að stundum svari Samfylkingin
ekki nóg vel fyrir sig. Við mættum
vera duglegri að gera fólki nánari
grein fyrir starfi ríkisstjórnarinn-
ar.“ Hún segir umfjöllunina á þingi
einkennast einkum af málum sem
litlu skipti og þar af leiðandi sé
þeim gefinn alltof mikill gaumur
í samfélaginu í stað grundvallar-
málefna.
Í íslenskri menningu að viður-
kenna ekki mistök
Eins og áður sagði hvatti hún
bankastjórn Seðlabankans til að
segja af sér um leið og hún tilkynnti
um afsögn sína. Bankastjórnin varð
ekki við beiðni hennar eins og al-
kunna er. Reyndar sögðu afar fáir
af sér, sem setið höfðu í umdeild-
um stöðum eða ætla mátti að bæru
einhverja ábyrgð á hruninu. Lítið
fór fyrir afsökunarbeiðnum og flest-
ir stjórnmálamenn sátu sem fastast.
Skýringuna segir Sigríður Ingibjörg
eiga rætur í íslenskri menningu.
„Það er eitthvað í íslenskri menn-
ingu um að fólk megi ekki viður-
kenna mistök sín. Ég held að það sé
mjög hættulegt. Ef fólk er tilbúið til
að viðurkenna að það hafi ekki stað-
ið sig nægilega vel verður erfiðara
að læra af mistökunum sem áttu sér
stað. Ég held líka að auðveldara sé að
fyrirgefa ef fólk sýnir iðrun. En fólk er
hrætt við að verða gagnrýnt harka-
lega ef það játar á sig mistök,“ segir
Sigríður Ingibjörg en tekur fram að
mikið umbótastarf hafi farið fram í
Samfylkingunni eftir bankahrunið,
en slíkt gildi ekki jafn mikið um aðra
stjórnmálaflokka.
Að lokum bið ég hana að lýsa í
stuttu máli sínu Drauma-Íslandi.
Ekki stendur á svari: „Að
vera stoltur aðili að Evrópusam-
bandinu. Ég vil búa í lýðræðissam-
félagi með öflugum fjölmiðlum
og gagnrýnni umræðu. Í drauma-
landinu mínu er efnahagslegur
stöðugleiki og félagslegt réttlæti
haft í hávegum auk virðingar fyr-
ir umhverfi og auðlindum þjóðar-
innar.“ Spurð hvort Ísland eigi
möguleika á að verða slíkt drauma-
land, svarar hún játandi. „Öll tæki-
færi eru til þess og ríkur vilji hjá
mörgum til að stefna þangað.“ n
Hafði aðrar skoðanir á stjórnmálum en foreldrarnir Foreldrar Sigríðar Ingibjargar
studdu Sjálfstæðisflokkinn. Faðir hennar sá til þess að hún fylgdist vel með stjórnmálum
þrátt fyrir ungan aldur. mynd eyÞÓR ÁRnASOn
„Það eru náttúrlega
ríkir pabbadrengir
í íslenskri pólitík