Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2012, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2012, Blaðsíða 6
Hjón vilja í Hæstarétt n Sjö umsækjendur um stöðu dómara S jö umsóknir bárust innanrík­ isráðuneytinu um embætti tveggja dómara við Hæstarétt. Tvær stöður hæstaréttardóm­ ara voru auglýstar í byrjun júlí. Umsækjendur eru doktor Aðal­ heiður Jóhannsdóttir, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, Arnfríður Einarsdóttir, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, Ása Ólafsdóttir, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, Bene­ dikt Bogason, settur hæstaréttar­ dómari, Brynjar Níelsson hæstarétt­ arlögmaður, Helgi I. Jónsson, settur hæstaréttardómari, og Ingveldur Þ. Einarsdóttir, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur. Þau Brynjar og Arn­ fríður eru hjón. Skipað verður í em­ bættin frá og með 1. október 2012, eða eftir að dómnefnd sem fjallar um hæfni umsækjenda um dóm­ araembætti hefur lokið starfi. Einn landsdómsdómari er með­ al umsækjenda, Benedikt Boga­ son, sem taldi að sýkna bæri Geir H. Haarde af öllum ákæruliðum. Helgi I. Jónsson átti upphaflega að sitja í landsdómi en vék þar sem hann var tímabundið settur hæstaréttardóm­ ari og gat því ekki setið í dómnum fyrir hönd héraðsdóms. 6 Fréttir 8. ágúst 2012 Miðvikudagur V ið höfum alltaf borgað reikn­ ingana okkar, meira að segja rétt eftir kreppu; alltaf. Við höfum aldrei komist í van­ skil. Maðurinn minn er kom­ inn með fínar tekjur og þeir fá fyrsta veðrétt í verðmætri eign á Reyðarfirði – samt hafna þeir því að flytja veðið,“ segir Elísabet Reynisdóttir, nemi við Háskóla Íslands, sem nýverið fluttist búferlum frá Reykjavík til Reyðarfjarð­ ar. Elísabet tók árið 2006 lán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum upp á 7 millj­ ónir króna, tryggt með fyrsta veðrétti í eign sinni í Barmahlíð í Reykjavík. Sú eign er verðmetin í kringum 30 millj­ ónir. Elísabet seldi nýverið þá eign og keypti einbýlishús á Reyðarfirði fyrir svipaða upphæð. Elísabet vildi í kjöl­ farið flytja veðréttinn yfir á nýju eign­ ina og bauð veðhafanum, Frjálsa fjár festingar bank anum sem nú er í slitameðferð vegna gjaldþrots, fyrsta veðrétt í nýju eigninni – en fékk synjun. Gulltryggðir Samkvæmt veðlögunum fær sá veð­ hafi sem á fyrsta veðrétt allt sitt greitt af andvirði veðandlagsins komi til þess að lántakandi geti ekki greitt af láninu, á undan öðrum veðhöfum. Svo virðist því sem lán Frjálsa fjárfestingarbank­ ans sé jafn vel tryggt hvort sem það er tryggt með veði í fasteigninni í Reykja­ vík eða á Reyðarfirði. ,,Húsið sem ég keypti er eins og danskur herragarður; gífurlega flott eign,“ segir Elísabet. Vegna synjunar bankans þurfti El­ ísabet að taka nýtt lán hjá Íbúðalána­ sjóði til að greiða niður téð lán Frjálsa fjárfestingarbankans – og tapaði háum fjárhæðum á þeim gjörningi. „Fyrir utan að þetta eyðilagði sumarfríið mitt þá tapaði ég í kringum hálfri milljón. Auðvitað veit ég að það eru aðrir sem hafa lent í verri hremmingum í við­ skiptum sínum við þessar lánastofn­ anir en þessi umræða verður að fara af stað,“ segir Elísabet og bætir við að svona viðskiptahættir séu vanvirðing við landsbyggðina, þaðan sem stór partur þjóðarteknanna komi. Hún sakar bankann um að hafa orðið margsaga í rökstuðningi sínum fyrir synjuninni. „Fyrst sögðu þeir að ástæðan væri sú að þeir hefðu ekki úti­ bú á Reyðarfirði. Svo sendi ég tölvu­ póst og tjáði þeim þá skoðun mína að ég væri ekki sátt við gefna skýringu og þá drógu þeir hana til baka og sögðust ekki tryggja lán með veði í fasteignum utan Reykjavíkur og Akureyrar.“ „Þetta er bara vesen“ „Væntanlega vegna þess að Frjálsi hef­ ur aldrei unnið á Reyðarfirði. Það er í rauninni verið að fara út fyrir starfs­ svæði bankans,“ segir Magnús Pálm­ arsson, upplýsingafulltrúi Frjálsa fjár­ festingarbankans, um það hvers vegna bankinn samþykkti ekki téðan veð­ flutning. Aðspurður hverju það skipti að húsið sé á Reyðarfirði ef bankinn er jafntryggður á báðum stöðum segir Magnús: ,,Það er bara valkostur lána­ stofnunarinnar hvort hún vilji veð á Reyðarfirði. Þar erum við ekki með neina samstarfsaðila, enga menn til að meta eignina; þetta er bara vesen ef eitthvað kemur upp á.“ En hvað gæti komið upp á? „Hún gæti hætt að borga. Og þá eigum við eign á Reyðarfirði. Ég held að menn líti á þetta sem síðra veð. Af hverju álíta menn landsbyggðina erfiðari? Vegna þess að hún er erfiðari – það er ekkert sem menn eru að giska á. Það er erf­ iðara að eiga eign á Reyðarfirði; þetta er lítill fasteignamarkaður og þarna er örugglega ekki mikil fasteignavelta.“ Magnús segist þó ekki hafa kann­ að ástand fasteignamarkaðarins á Reyðarfirði. „Hef ég kannað það eitt­ hvað sérstaklega? Hefur þú kann­ að það eitthvað sérstaklega; þú ert að skrifa greinina?“ segir Magnús og bæt­ ir við: „Ef þú ert á einhverjum „Frjálsa­ veiðum“ þá bara verði þér að góðu; hann er dauður. Þú ert ekkert að fæla neina viðskiptavini í burtu.“ Líflegur fasteignamarkaður „Hér er búið að vera mjög líflegur fast­ eignamarkaður að undanförnu og mér finnst mjög furðulegt að heyra þessa sögu,“ segir Páll Björgvin Guð­ mundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggð­ ar, um málið. „Þarna [á Reyðarfirði] er bara svo sterk og mikil atvinnuupp­ bygging að þetta er mjög skrítið. Eðli­ leg fasteignaviðskipti geta farið fram á Reyðarfirði; ég get fullvissað þig um það.“ landsbyggðin þykir óveðhæf n Frjálsi fjárfestingarbankinn neitaði að flytja veð frá Reykjavík til Reyðarfjarðar Baldur Eiríksson blaðamaður skrifar baldure@dv.is „Ef þú ert á ein- hverjum „Frjálsa- veiðum“ þá bara verði þér að góðu; hann er dauður. Þú ert ekkert að fæla neina við- skiptavini í burtu. Elísabet Reynisdóttir Tapaði hálfri milljón. Slökktu hættu- legan varðeld Lögreglan á Vestfjörðum segir í tilkynningu að skemmtanahaldið á Ísafirði hafi gengið vel fyrir sig um helgina. Litlu hafi þó mátt muna að illa færi í Tungudal þar sem varðeldur var kveiktur í skóginum við tjaldstæðið. Með snarræði hafi tekist að slökkva eldinn með aðstoð slökkviliðsins á Ísafirði. „Vart þarf að geta þess að þarna hefði getað farið illa, skógurinn er mjög þurr og margir sumarbústaðir í nágrenninu. Ekki er vitað hverjir voru þarna að verki.“ Lögreglan lýsir yfir ánægju með góða gæslu tengda Mýrarboltan­ um og að sá viðburður hafi gengið vel og stórslysalaust fyrir sig. Nauðgunar- mál óupplýst Enginn er í haldi grunaður vegna kynferðisbrotamálanna sem upp komu í Eyjum á sunnudags­ kvöldinu og mánudagsmorgun. Alls komu upp þrjú kynferðis­ brotamál á Þjóðhátíð og var 22 ára maður handtekinn vegna eins þeirra, sem átti sér stað aðfaranótt laugardags. Sá neitar sök í málinu en hann hefur komið við sögu lögreglu áður vegna minni brota. Enginn er þó í haldi grunaður um aðild að hinum tveimur málunum. Hið fyrra var kært um miðnætti á sunnudeginum en hið seinna undir morgun á mánudeg­ inum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var lögreglu gefin greinargóð lýsing á geranda í öðru málinu en í hinu hafði fórn­ arlambið ekki eins skýra mynd af geranda og atburðarásinni. Málin eru enn í rannsókn og er nú verið að fara yfir upptökur úr eftirlitsmyndavélum í Herjólfsdal. Er lögreglan meðal annars að kanna hvort fórnarlömbin sjáist þar og er vonast eftir því að það muni vísa lögreglu á geranda í málunum.  Sækir um Hjónin Brynjar Níelsson og Arnfríður Einarsdóttir vilja bæði stöðu hæstaréttardómara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.