Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2012, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2012, Blaðsíða 17
Ég fékk símtal frá lögregluþjóni Ég á samkyn- hneigða vinkonu Marteinn Sveinsson missti 17 ára son sinn í bílslysi. – DVAgnes M. Sigurðardóttir biskup segist ekki líta öðruvísi á samkynhneigða en annað fólk. – DV Gleraugu, heyrnartæki og ævaforn vefmarkmið Þ að hafa margir haft samband við mig og spurt hvort ég hafi greitt atkvæði með nýjum þing- skapalögum þar sem m.a. var samþykkt að þingmenn fengju styrk til að kaupa sér heyrnartæki og gler- augu. Í stuttu máli sagt þá er svarið einfalt: nei. Ég er hjartanlega sam- mála þingmanninum Merði Árna- syni í þeirri almennu og skynsömu afstöðu að þingmenn eigi ekki undir neinum kringumstæðum að fjalla um og ákveða sín eigin kjaramál. Flókna svarið tengist þeirri staðreynd að ég var ekki stödd í þingsal vegna starfa á vegum Alþingis erlendis þegar greidd voru atkvæði um þingskapamálið og ég hafði þegar ég undirbjó vara- mann minn ekki önnur orð um málið en þær upplýsingar sem fyrir lágu á þeirri stundu sem voru eftirfarandi; öll mál sem ekki er sátt um hafa ver- ið tekin af forgangslista yfir þingmál sem verða kláruð fyrir þinglok, þar á meðal ný þingskapalög. Formaður þingskapanefndar hafði upplýst mig um það að málinu hefði verið sópað af borðinu, vegna samkomulags for- manna stjórnmálaflokka og forseta þingsins um hvaða mál myndu fá af- greiðslu við þinglok. Því tjáði ég vara- manni mínum ekki mína afstöðu til einstakra þátta þessara laga um þing- sköp frekar en annarra laga sem ég hafði beina aðkomu að og ákveðið var að fresta framkvæmd á til haustþings. Foringjaálag og álag varavaramanna Í fullkominni hreinskilni þá var ég ekki með hugann við tillögur aðal- lögfræðings og aðstoðarskrifstofu- stjóra Alþingis um gleraugnakaup og líkamsræktarkort. Mín mótmæli á fundunum snérust enn og aftur um aukagreiðslur til þingmanna sem gegna embættum vara- og varavara- formanna í fastanefndum. En við- komandi fá álagsgreiðslur fyrir að gera nákvæmlega ekki neitt meira en óbreyttir þingmenn sem, nota bene, fá ekki aukagreiðslur fyrir að sitja í fastanefndum enda bara hluti af starfinu okkar. Ég vildi jafnframt afnema að formenn minnihluta- flokka fái greidd 50% af þingfarar- kaupi fyrir að vera foringjar en ég er einmitt formaður Hreyfingarinnar núna og hef eins og hinir fyrrverandi formenn Hreyfingarinnar afþakkað þessar greiðslur frá ríkissjóði. (Þing- menn Hreyfingarinnar skiptast á að vera „foringjar“ á ársgrundvelli.) Þetta eru umtalsverðar fjárhæðir og myndu léttilega slaga upp í ansi mörg heyrnartæki og gleraugu á ársgrund- velli. Persónulega finnst mér að eigi formenn að fá meira fyrir að vera for- menn stjórnmálaflokka, því fylgir jú töluvert mikið aukaálag, borgi flokk- arnir fyrir það sjálfir. Þeir velja að hafa mikið álag á einni manneskju og það hefur nákvæmlega ekki neitt að gera með þingsköp eða skyldur þing- manna. Því miður hefur múgæsingin um þetta mál enn og aftur snúist um að mótmæla aukaatriðinu – þó harla sið- laust það sé – á meðan aðalatriðin fá litla sem enga athygli. Markmið vefs Alþingis eru frá 2001 Ég lagði höfuðáherslu á að aðgengi almennings að málum í vinnslu á Alþingi yrði lagfært í vinnu minni í þingskapanefnd sem og aðgengi að upplýsingum um afgreiðslu mála. Al- menningur væntir þess að geta veitt kjörnum fulltrúum meira aðhald og að geta fylgst í rauntíma með þeim ákvörðunum sem er verið að taka fyrir hann. Það er augljóst að mark- mið vefsins eru börn síns tíma en þau voru sett árið 2001, viðmið verða að ganga út frá þeim veruleika sem við búum við í dag. En eins og sjá má er ekki gert neitt ráð fyrir áhuga al- mennings og hagsmunasamtaka á að fylgjast með og fá tækifæri á að tjá sig um þau mál sem eru til umfjöllunar á Alþingi. Núverandi markmið vefs Alþingis 1. Að veita almenningi, hagsmuna- samtökum og fyrirtækjum aðgang að opinberum gögnum sem varða störf Alþingis. 2. Að veita alþingismönnum og starfsmönnum Alþingis aðgang að þingmálum, þingræðum og öðrum upplýsingum um starfsemi þingsins. 3. Að auðvelda aðgang að fjöl- þjóðastofnunum og erlendum opin- berum stofnunum á vefnum. 4. Að auka þekkingu á Alþingi, sögu þess, hlutverki og starfsháttum. Ný markmið 2012 1. Að veita almenningi, hagsmuna- samtökum og fyrirtækjum beint aðgengi að umsagnarferli mála þegar þau eru til umfjöllunar á nefndarsviði. 2. Að efla tengsl og samskipti á milli almennings og þingmanna. 3. Að auka þekkingu og yfirsýn al- mennings og hagsmunasamtaka á því hvaða lýðræðislega rétt þau hafa með aðkomu að umsagnarferlum mála á meðan þau eru til meðferðar Alþingis. Til þess að þetta sé hægt má nýta sér tækni og aðferðir sem hafa þegar gefið góða raun, eins og t.d. tilraunir stjórnlagaráðs til að hvetja almenning til að koma skoðunum og athugasemdum á framfæri við ráðið milliliðalaust, sem og tilraun- ir með Betri Reykjavík til að efla þátttöku almennings og aðkomu að ákvarðanatöku í málefnum borg- arinnar. Þá er lagt til að fólk geti fengið áskrift að málefnaflokkum sem það hefur áhuga á að fylgjast með, hvort heldur sem það lýtur að sérstökum nefndum eða málefn- um. Forgangsmál vefþróunar fyrir Alþingi ætti að snúast um að þróa áfram rafræna afhendingu um- sagna og gera texta umsagna leit- arhæfan. Það er mjög brýnt að ÖLL skjöl verði rafræn og leitarhæf. Vef- ur Alþingis þarf að vera samþættur við samfélagsmiðla. Í nýju vefum- sjónarkerfi þarf að vera auðvelt fyr- ir aðra að tengja við allar tegund- ir efnis frá vef Alþingis og að kerfið geti fylgt eftir þeirri rauntímaþróun sem á sér stað á samfélagsvefjum sem og leitarvélum. Heimila þarf öðrum vefjum að birta efni af vef Alþingis, síðan ætti ný og öfluð leit- arvél að vera algert forgangsmál. Ég vona að mér takist að koma þess- um nýju viðmiðum að í endurupp- töku þingskapalaga í haust og mun jafnframt leggja til að heyrnartæki, gleraugu og líkamsræktarkortafor- réttindi verði afnumin og kjararáði alfarið falið að fjalla um kjaramál þingmanna. Kátt á hjalla Það var margt um manninn á Flúðum þar sem hin árlega traktorstorfærukeppni fór fram. Eins og sjá má voru tilþrifin mikil. Mynd Eyþór ÁrnasonMyndin Umræða 17Miðvikudagur 8. ágúst 2012 1 Bað hennar í brekkusöngnum Biggi bað unnustu sinnar á Þjóðhátíð í Eyjum. 2 Foreldrar í kapphlaupi við netheima eftir andlát dóttur sinnar Foreldrar Hennýjar kepptust við að láta vini og vandamenn vita áður en fregnirnar bærust á Facebook. 3 Sextán ára stúlka horfin sporlaust Leit að stúlku í Osló hefur engan árangur borið. 4 Andrea „slæma stelpa“ með lág laun Formaður Torpedo Crew með 64 þúsund á mánuði. 5 Magnaðar myndir frá Mars Fyrstu myndirnar úr geimfarinu Curios- ity á Mars eru ansi hreint magnaðar. . 6 Sviku tugi milljóna úr Íbúðalánasjóði en eru ekki launaháir Fimmmenningar tengdir glæpasam- tökum sviku fé út úr Íbúðalánasjóði. 7 Kveiktu í skipinu Rannsókn á eldsvoða í Arnari ÁR 55 leiddi í ljós að um íkveikju hefði verið að ræða. Mest lesið á DV.is Þær hafa nú verið nokkrar Linda Pé hefur upplifað margar skemmtilegar verslunarmannahelgar. – DV „Persónulega finnst mér að eigi for- menn að fá meira fyrir að vera formenn stjórn- málaflokka, því fylgir jú töluvert mikið aukaálag, borgi flokkarnir fyrir það sjálfir. Kjallari Birgitta Jónsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.