Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2012, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2012, Blaðsíða 16
Sandkorn A gnes M. Sigurðardóttir, nýr biskup Íslands, ber með sér von Þjóðkirkjunnar um að snúið verði af þeirri ógæfu­ braut sem mörkuð var af forverum hennar í embætti. Síðustu árin hefur kirkjan verið á stöðugu undanhaldi vegna þess að fólk hef­ ur sagt upp nauðungaráskriftinni og flúið samtökin. Þúsundum Íslendinga hefur ofboðið sú ömurlega afgreiðsla sem átti sér stað þegar upp komu kynferðisbrot kirkjunnar þjóna. Verst var samt klúðrið þegar hópur kvenna sakaði Ólaf Skúlason, biskup Íslands, um slíka hegðun. Á meðal þeirra sem sökuðu biskup um óeðli var dótt­ ir hans. Fjölmargir prestar fylktu liði að baki foringja sínum og forsmáðu konurnar. Karl Sigurbjörnsson bisk­ up reyndi að þagga málið niður með því að stinga undan bréfi. Og nokkr­ ir prestar, sem enn sitja í embætt­ um sínum, brugðust með herfilegum hætti trausti safnaða sinna. Afleiðing alls þessa var flótti sóknarbarna í aðra söfnuði og trúnaðarbrestur þjóð­ ar og Þjóðkirkju. Seint og síðar meir hrökklaðist Karl biskup úr embætti. Agnes biskup kemur úr Bolungar­ vík, lítilli sókn úti á landi. Hún er fyrsta konan til að gegna þessu æðsta embætti Þjóðkirkjunnar. Í viðtali við helgarblað DV sagði hún með yfir­ lætislausum og einkar hreinskilnum hætti frá lífi sínu og starfi. Sjálf hefur hún gengið í gegnum hjónaskilnað sem breytir þó ekki afstöðu hennar til hjónabandsins sem hún styður. Hún styður það heilshugar að samkyn­ hneigt fólk fái að ganga í hjónaband. Hún er afdráttarlaus hvað það varð­ ar að mistök fortíðar megi ekki eiga sér stað aftur innan Þjóðkirkjunnar. „Svona mál verða ekki þögguð niður lengur,“ sagði Agnes við DV. Fyrst og fremst kemur fram í við­ talinu að hún er manneskja en ekki einstaklingur sem telur sig hátt yfir aðra hafinn. „Ég vil ekki vaða yfir fólk,“ segir Agnes. Það er ástæða til að ætla að Þjóð­ kirkjunni farnist betur með Agn­ esi sem leiðtoga en forvera hennar. Hugsanlega er mestu niðurlægingu Þjóðkirkjunnar á síðari tímum lokið. Nýr biskup áttar sig á því að kirkj­ an má ekki ofbjóða fólki sínu. Hér ríkir trúfrelsi og enginn þarf að vera nauðugur innan vébanda Þjóðkirkj­ unnar. Agnesar bíður nú það verkefni að bæta skaðann sem syndir forvera hennar hafa valdið. Yfirgaf Jón Ásgeir n Fjölmiðlakóngurinn Ari Edwald er nú fluttur með fjölskyldu sína úr Reykja­ vík í Garðabæ. Ari leigði af samstarfsmanni sínum, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni athafna­ manni, á Laufásvegi. Mun honum hafa þótt fremur þröngt þar enda telur ört stækkandi fjölskyldan níu manns. Hann yfirgaf því hús Jóns í síðustu viku til að flytja í Garðabæ. Bjargvætturinn Jón n Í herbúðum ESB­sinna eru menn uppfullir af þakklæti í garð Jóns Bjarnasonar, fyrrver­ andi sjávarútvegsráðherra. Jón hefur verið grjótharður andstæðingur umsóknar að Evrópusambandinu og beitti valdi sínu sem ráðherra til að tefja framgang mála. Nú er Jóni þakkað að málið er ekki komið lengra. Telja Evrópu­ sinnar augljóst að við núver­ andi aðstæður hefði þjóðin kolfellt samninginn. Aftur á móti muni Evrópa braggast á næstu misserum og staðan gjörbreytast. Sjóðheitur þingmaður n Nokkur spenna er innan Samfylkingar vegna yfirvof­ andi formannsskipta. Ekki er í sjónmáli arftaki Jóhönnu Sigurðardóttur nema ef vera skyldi Sigríð­ ur Inga Inga­ dóttir sem upplýsti um áhuga sinn í DV. Árni Páll Árnason þingmaður er stóð­ heitur fyrir stólnum en óljóst er um bakland hans. Víst er að Jóhanna er fráhverf því að hleypa Árna í formanns­ stöðuna. Því er jafnvel spáð að hún muni fremur halda áfram en láta Árna Páli eftir leiðtogasætið. En þetta mun skýrast á næstu misserum. Skuldakóngar sparisjóðs n Birgir Þór Runólfsson, dós­ ent í viðskiptafræði, hef­ ur tekið sæti í rannsóknar­ setri Hannesar Hólmsteins. Birgir og kona hans skulduðu Sparisjóðnum í Keflavík 436 milljónir króna þegar sjóður­ inn var tekinn yfir af Lands­ bankanum. Þá sat Birgir í stjórn sparisjóðsins sem Fjármálaeftirlitið snupraði. Jónmundur Guðmarsson, fram­ kvæmdastjóri Sjálfstæðis­ flokksins, er stjórnarmaður í rannsóknarsetrinu. Hann átti stóran hlut í félaginu Bergi sem nýverið var tek­ ið til gjaldþrotaskipta eftir að hafa meðal annars þeg­ ið hundraða milljóna lán frá Sparisjóðnum í Keflavík. Jónmundur og Birgir munu væntanlega deila reynslu sinni á rannsóknarsetrinu. Þetta er klárlega draumadjobbið Útihátíðirnar eru að breytast Valdimar Guðmundsson er ekki ennþá orðinn ríkur af söngnum. – DV Gunnar Smári Egilsson reiknar með því að Herjólfsdalur verði lokaður börnum. – DV Einlæg Agnes Leiðari Reynir Traustason rt@dv.is „Svona mál verða ekki þögguð niður lengur Þ jóðin veit að líkt og samhugur er forsenda farsæls fjölskyldu­ lífs eru takmörk fyrir því hve lengi samfélag þolir þá upp­ lausn sem stöðug átök hafa í för með sér. Því heiti ég á þessari stundu á okk­ ur öll, sem sækjum umboð til þjóðar­ innar, heiti á Alþingi og sveitarstjórn­ ir, alla sem kjörnir eru til ábyrgðar, að við tökum upp nýja siði, látum átökin víkja á þann veg að breiður stuðning­ ur verði að baki ákvörðunum.“ Þess­ um orðum beindi forseti Íslands til Al­ þingis nú fyrir nokkrum dögum þegar hann tók við embætti í fimmta sinn. „Sælir eru friðflytjendur,“ sagði annar aðili í annarri ræðu við ann­ að tækifæri og bætti við: „Því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.“ Margur forhertur orðhákurinn hefur sjálfsagt klökknað við að sjá gamlan berserk og baráttujaxl ganga í Guðs­ barnahóp eftir áratuga stjórnmálaátök og hvetja aðra stríðsmenn til að kveðja sitt skítlega eðli og friðmælast. Það fer ekki milli mála að Alþingi er vettvang­ ur átaka flesta þá daga sem þinghald stendur. Það var til að mynda aldeilis ekki skemmtilegt að horfa upp á Icesave­ deiluna. Um hvað snérist sú deila? Átti hún upptök sín í sölum þingsins? Nei, hún snérist um skuld sem stórar þjóðir vilja innheimta hjá ís­ lensku þjóðinni. Hafði Alþingi stofn­ að til þeirrar skuldar? Nei, það gerðu svokallaðir útrásarvíkingar sem for­ seti lýðveldisins lofsöng og prísaði og krossaði í bak og fyrir með orðu­ veitingum. Aðkoma Alþingis snérist um að leysa þetta mál og um hina „réttu lausn“ voru skiptar skoðanir. Engu að síður var að lokum „breiður stuðning­ ur“ við lausn (Buchheit­samninginn) sem á núvirði hefði sennilega kostað um 32 milljarða, eða minna en hrun Sparisjóðsins í Keflavík, að maður tali nú ekki um það alheimsundur sem var gjaldþrot Seðlabanka Íslands. Önnur deila á þingi hefur snúist um þá kröfu að þjóðin komi að því að setja sér nýja stjórnarskrá. Þetta verkefni er ekki óþarfara en svo að unnið hefur verið að því á Alþingi áratugum saman án þess að niðurstaða hafi náðst. Af hverju? Jú, vegna þess að þar er djúpur ágreiningur um ýmsa hluti, t.d. hvort staðfesta skuli sameiginlegan eignar­ rétt á auðlindum lands og sjávar. Þá er komið að málum eins og veiðigjaldi og fiskveiðistjórnunarkerfi. Eiga hagsmunaátök um þau mál upptök sín á Alþingi? Eða annars stað­ ar í þjóðfélaginu? Eða rammaáætlun um notkun eða friðun landssvæða í sambandi við virkjunarframkvæmd­ ir? Er líklegt að stóriðjufíklar og græn­ ingjar og fulltrúar þeirra á þingi fallist orðalaust í faðma yfir því máli? Hvaða átök er forsetinn að áminna okkur um að forðast? Ber að forðast friðsam­ leg – en oft harkaleg – skoðanaskipti á Alþingi, einni elstu lýðræðisstofnun í okkar heimshluta? Hvað og hvers virði væri Alþingi án þeirra átaka sem fylgja friðsamlegum skoðanaskiptum um hugsjónir og hagsmuni? Alþingi án átaka væri átakanlegt. Í vaxandi mæli eru þó hörð átök á Alþingi fullkomlega tilgangslaus. Ástæðan er sú að með tímanum mun koma í ljós að kjarni Búsáhalda­ byltingarinnar var ófrávíkjanleg krafa þjóðar til þings um beint lýðræði í auknum mæli. Frá og með Búsáhalda­ byltingunni hafnar þjóðin forsjá kjör­ inna fulltrúa í hinum stærstu málum. Hinar stærstu ákvarðanir vill þjóð­ in taka sjálf. Mörg slík mál eru óút­ kljáð nú á síðasta hluta þessa kjör­ tímabils, t.d. þau sem áður hafa verið nefnd: stjórnarskrá, auðlindaákvæði, rammaáætlun, fiskveiðistjórnun. Öll eru þau hluti af spurningunni: Hver á Ísland? Þeirri grundvallarspurningu á þingið ekki að svara heldur þjóðin. Það væri því skynsamlegt að láta tilgangslaus átök og fyrirsjáanlegt málþóf ekki yfirskyggja störf þings­ ins fram að næstu kosningum. Sá tími er liðinn að þjóðin veiti Alþingi um­ boð til að taka endanlegar ákvarðanir í málum sem þessum. Notum heldur tækifærið og leitum til þjóðarinnar um afdráttarlausa leiðsögn varðandi þessi stóru mál samhliða næstu þing­ kosningum. Krafan um beinna lýðræði birtist sem vaxandi vantraust í garð Alþing­ is. Þetta á að vera okkur áminning um að nútímatækni gerir þátttöku allra atkvæðisbærra borgara í ákvarðana­ töku í stórauknum mæli ekki bara mögulega heldur sjálfsagða. Málþóf á Alþingi á að heyra sögunni til. Þess í stað á ákveðinn minnihluti þing­ heims að öðlast rétt til að vísa málum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Með beinu lýðræði, aukinni þátt­ töku þjóðarinnar í ákvarðanatöku takmörkum við völd og léttum ábyrgð kjörinna fulltrúa. Réttinn til að eiga síðasta orðið á sá aðili sem er upp­ spretta alls valds. Það er þjóðin sjálf sem á að vera sinn eigin „sterki leiðtogi“. Hinn sterki leiðtogi!„Alþingi án átaka væri átakanlegt Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 16 8. ágúst 2012 Miðvikudagur Kjallari Þráinn Bertelsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.