Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2012, Blaðsíða 10
Framsókn dreymir
um eigið málgagn
10 Fréttir 8. ágúst 2012 Miðvikudagur
M
ánuðum saman hafa að-
ilar innan Framsóknar-
flokksins íhugað kaup
eða rekstur á fjölmiðli
sem talað gæti máli fram-
sóknarstefnunnar. Svo virðist sem
framsóknarmenn telji á sig halla
í umfjöllun fjölmiðla. Flokkurinn
njóti ekki sannmælis og sjónar-
mið hans komist ekki til skila vegna
fjandskapar blaðamanna gagnvart
flokknum. Þetta kemur fram í sam-
tölum við fjölda viðmælenda DV
sem tengjast innra starfi flokksins,
forustu og aðila sem hafa yfirgefið
hópinn á síðustu misserum.
Af þessum sökum hafa aðil-
ar tengdir Framsóknarflokkn-
um, Sigmundi Davíð Gunnlaugs-
syni, formanni flokksins sem og
Útgáfufélags Tímans sem um
tíma rak vefsvæðið timinn.is, gert
að minnsta kosti tvö sölutilboð í
Fréttatímann. Að flokkurinn eignist
málgagn sem hafi ásýnd óháðs fjöl-
miðils er af hópi flokksmanna talið
lykillinn að góðum árangri í næstu
alþingiskosningum.
Huldumaðurinn Helgi
„Þetta er allt á mjög viðkvæmu
stigi,“ sagði Helgi Þorsteinsson í
samtali við DV undir lok síðasta
mánaðar þegar blaðið spurðist fyr-
ir um kauptilboð hans í útgáfufé-
lag Fréttatímans. Helgi er fulltrúi
hóps fjárfesta sem lýst hafa áhuga á
að kaupa blaðið. Samkvæmt heim-
ildum DV hefur Helgi fram undir
miðjan ágúst til að klára fjármögn-
un á 70 milljóna króna kauptilboði.
Helgi er framkvæmdastjóri Útgáfu-
félags Tímans, félags sem fór með
rekstur á vef Tímans. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem hann gerir tilraun til
að kaupa Fréttatímann samkvæmt
heimildum DV.
„Útgáfufélagið tengist þessu
ekki,“ sagði Snorri Sturluson, eig-
andi Útgáfufélags Tímans, við
sama tækifæri við DV. Blaðið leit-
aði til Snorri til að kanna þátt hans
í kauptilboði Helga í Fréttatímann.
Snorri vildi ekki taka fyrir að hann
kæmi að kauptilboðinu eða aðil-
ar honum tengdir. Helgi sagði við
sama tilefni Framsóknarflokkinn
ekki standa að kaupunum né að-
ila tengda flokknum. „Ég get neit-
að þessu strax. Kaupin eru ekki í
tengslum við Framsókn. Þeir fjár-
festar sem ég hef rætt við er ég ekki
viss um hvar eru en ég mun upp-
lýsa um það ef af verður,“ svaraði
hann spurningum um tengsl Fram-
sóknarflokksins við kaupin en vildi
að öðru leyti ekki tjá sig.
Áður boðið í Fréttatímann
Helgi fór fyrir hópi ónafngreindra
fjárfesta fyrr á árinu. Hópurinn leit-
aði þá til eigenda Fréttatímans um
hvort áhugi væri fyrir að selja út-
gáfuna. Samkvæmt heimildum DV
mun Helgi þá meðal annars hafa
unnið fyrir Snorra. Um 150 milljóna
króna verðmiði Fréttatímans mun
hafa fælt Snorra sem og aðra fjár-
festa frá kaupunum. Þeir sem blað-
ið ræddi við voru allir sammála um
að afar ólíklegt væri að Snorri eða
Helgi stæðu sjálfir að fjármögnun á
kaupum á Fréttatímanum.
Hópurinn gerði þó samkvæmt
heimildum DV sams konar tilboð
og nú er til umræðu í mars en því
tilboði var strax hafnað af eigend-
um Fréttatímans og raunar ekki
talið raunsætt tilboð. Í umfjöllun
DV frá 30. júlí segir að Helgi hafi á
síðasta ári gert kauptilboð í Frétta-
tímann. Nánari eftirgrennslan hef-
ur leitt í ljós að tilboðið var gert fyrr
á þessu ári og náði ferlið hápunkti í
marsmánuði. Helgi hafði skömmu
áður hætt sem auglýsingasali hjá
365 miðlum. Aðspurður hvað tæki
við mun Helgi hafa sagt kollegum
sínum hjá 365 miðlum að það kæmi
í ljós og að eftir yrði tekið.
Eigendur Fréttatímans munu
samkvæmt viðmælendum DV hafa
lagt lánasamning bandaríska fjár-
festisins Michaels Jenkins til út-
gáfufélags Fréttatímans til grund-
vallar að verðmati útgáfunnar í
mars. Lán Jenkins við stofnun út-
gáfunnar nam hálfri milljón dollara
eða rétt umfram 60 milljónir króna.
Ákvæði í lánasamningnum heimil-
ar að láninu sé breytt í hlutafé en
verðmæti lánsins er samkvæmt
samningnum 40 prósent af hluta-
fé útgáfufélags Fréttatímans. 150
milljóna króna verðmiðinn virð-
ist því tekinn nánast hrátt upp úr
mati lánasamningsins. Það er því
ljóst að núverandi kauptilboð upp
á tæpar 70 milljónir króna er í raun
aðeins andvirði Jenkins-lánsins og
því töluvert verðfall frá því fyrr á ár-
inu.
Framsóknartengslin
Þótt opinberlega hafi Útgáfufélag
Tímans ekki aðra tengingu við
Framsóknarflokkinn en að leigja
Tíma-nafnið af flokknum má ljóst
vera að tengsl félagsins við flokkinn
og núverandi forustu eru umtals-
vert meiri en opinberlega er gefið
upp. Varnarþing félagsins er í Fram-
sóknarhúsinu að Hverfisgötu og rit-
stjórn félagsins var með aðsetur á
skrifstofu flokksins, nánar tiltekið
á skrifstofu borgarstjórnarflokks
Framsóknarflokksins.
Útgáfufélagið var stofnað af þeim
Skúla Sveinssyni, lögmanni og fast-
eignasala, og Snorra Sturlusyni lög-
manni. Hlutafé félagsins er skráð
ein milljón króna. Skúli afsalaði sér
öllu hlutafé sínu í október í fyrra.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins, sá
til þess að Skúli, annar stofnenda
félagsins, yrði formaður laganefnd-
ar á miðstjórnarfundi flokksins á
Húsavík árið 2010. Kosning sem
vakti nokkra athygli á sínum tíma.
Eftir framsalið er félagið alfarið
í eigu Snorra. Tilvist útgáfufélags-
ins kom mörgum innan flokksins
nokkuð á óvart. Lögbannskrafa fé-
lagsins á bloggsvæði Illuga Jökuls-
sonar á vefnum eyjan.is varð til þess
að félagið varð opinbert. Illugi hafði
þá haldið úti bloggsíðunni Tíminn.
Útgáfufélagið var stofnað aðeins
nokkrum dögum áður en krafan var
lögð fram.
Auk þess að fara með hlutafé Út-
gáfufélagsins hefur Snorri Sturlu-
n Tvö tilboð í Fréttatímann n Tortryggni gagnvart fjölmiðlum n Baktjaldamakk í kringum Tímann
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
„Þetta
er allt
á mjög við-
kvæmu stigi
Varnarþing miðilsins Tíminn.is var með varnarþing og ritstjórnarskrifstofu á Hverfisgötu
33, skrifstofu Framsóknar. Aðilar tengdir félaginu hafa í tvígang gert tilboð í Fréttatímann.
Vantreysta fjölmiðlum Framsóknarmenn virðast vantreysta fjölmiðlum gríðarlega. Af þeim sökum hafa aðilar innan flokksins lengi látið sig dreyma um framsóknarfjölmiðil.