Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2012, Blaðsíða 8
K
ostnaðurinn við að fá írska
tónlistarmanninn Ron-
an Keating til að skemmta
á Þjóðhátíðinni í Eyjum
nemur um það bil 9 millj-
ónum króna. Upphæðin jafn-
gildir verði 470 miða á hátíðina.
Ákvörðunin var umdeild enda er
hátíðin eins konar fjáröflunar-
viðburður fyrir íþróttafélagið ÍBV.
Skipuleggjendur hátíðarinnar hafa
einnig verið gagnrýndir fyrir að
verja ekki nægilegu fé í forvarnir
gegn kynferðisafbrotum.
„Eyjamenn sýndu góða við-
leitni með því að fara í sýnilegt
forvarnarátak og setja upp öryggis-
myndavélar. En þeir ættu að nýta
mun meiri fjármuni til að berjast
gegn þessari skuggahlið Þjóðhá-
tíðarinnar,“ segir Guðrún Jónsdótt-
ir, talskona Stígamóta. „Það er ekki
ásættanlegt að árlega séu haldnar
hátíðir þar sem fastir fylgifiskar eru
grófustu mannréttindabrot,“ seg-
ir hún.
Ronan Keating spilaði í rúm-
lega klukkutíma á stóra sviðinu á
hátíðinni og eru Þjóðhátíðargestir
sagðir hafa látið vel af því. Keating
er heimsþekktur söngvari og laga-
smiður, hefur selt fleiri en 22 millj-
ónir platna og var dómari í The X
Factor í Ástralíu.
Stefndu of hátt
Páll Scheving Ingvarsson, for-
maður Þjóðhátíðarnefndar, og
Tryggvi Már Sæmundsson, fram-
kvæmdastjóri ÍBV, tilkynntu eftir
brekkusönginn að þeir hygðust
ekki gefa kost á sér til áfram-
haldandi setu í Þjóðhátíðarnefnd.
Ákvörðunin var tilkynnt með há-
tíðlegu myndbandi þar sem
saman fóru myndskeið af Þjóð-
hátíðum fortíðar og kveðjuorð frá
Páli og Tryggva. Þeir telja sig ekki
njóta nægilegs trausts og velvild-
ar í Eyjum og vilja því að aðrir taki
við Þjóðhátíðarkyndlinum. Birgir
Guðjónsson, þriðji nefndarmaður-
inn, hefur ekki ákveðið hvort hann
hyggst gegna starfinu áfram. „Þetta
kom eins og þruma úr heiðskíru
lofti,“ segir hann um ákvörðun Páls
og Tryggva. Hann telur að þeir hafi
„lent undir pressunni“ og bendir á
að oft sé kalt á toppnum.
„Við finnum fyrir því að fólki
finnst við hafa stefnt of hátt og
stækkað hátíðina um of,“ seg-
ir Páll Scheving. „Viðburðurinn er
farinn að reyna á samfélagið, til
dæmis vegna mikillar umferðar og
hávaða. Ég held að fólki hafi þótt
þetta vera orðið of „commercial“
og ekki nógu mikill menningar- og
fjölskylduviðburður.“ Sú ákvörðun
að fá Ronan Keating til að skemmta
á hátíðinni er líklega liður í þeirri
umdeildu þróun sem hér er lýst.
Ósætti um aðferðir
Þjóðhátíð í Eyjum hefur vaxið fisk-
ur um hrygg í seinni tíð og gestum
fjölgað til muna. Þá hafa Eyjamenn
orðið æ lægra hlutfall Þjóðhátíðar-
gesta. „Ég held að Eyjamönnum
finnist þeir tapa ákveðnu rými. Í
fyrstu var hátíðin náttúrlega haldin
fyrst og fremst fyrir þá,“ segir Páll.
Upphaf Þjóðhátíðar í Eyjum má
rekja til þúsund ára afmælis Ís-
landsbyggðar árið 1874. Eyjamenn
komust ekki til meginlandsins
vegna veðurs og ákváðu að halda
hátíð á sínum heimaslóðum. Að-
eins 400 manns voru viðstaddir
fyrstu hátíðina, en í ár voru um það
bil 14 þúsund í Herjólfsdal.
„Þetta skapar auðvitað ónæði
og mörgum finnst þetta vera orðið
of stórt og mikið,“ segir Páll en tek-
ur jafnframt fram að full sátt hafi
verið innan Þjóðhátíðarnefndar
um þróun hátíðarinnar. Hins vegar
hafi ekki verið full sátt um aðferðir
og leiðir meðal stjórnenda íþrótta-
félags ÍBV.
Hátíð breytt í hljómleika
„Þetta er stormur í vatnsglasi,“
segir Leifur Gunnarsson, varafor-
maður ÍBV. „Hér eru engar deil-
ur, held ég.“ Þegar ákvörðun Páls
og Tryggva barst í tal sagði Leifur:
„Þeir mega alveg hætta ef þeir vilja.
Þeir hafa verið gagnrýndir. Þjóð-
hátíðin er náttúrlega stærsta fjár-
öflun íþróttafélags ÍBV og það er
gagnrýnivert þegar miklu er eytt í
kostnað. Til dæmis var kostnaður-
inn við þennan írska gagnrýndur.
Eitthvað hefur kostað að fá hann.“
Leifur segir að enginn ágreining-
ur sé á milli Þjóðhátíðarnefndar
og stjórnar ÍBV. Hann fullyrðir þó
að margir Eyjamenn séu ekki sátt-
ir við þróuina: „Mörgum finnst of
mikið verið að breyta hátíðinni í
hljómleika.“
Tryggvi Már, framkvæmdastjóri
ÍBV og nefndarmaður í Þjóðhá-
tíðarnefnd, bendir á að nefndin
hafi tekið umdeildar ákvarðanir
á síðustu árum og nefnir í því
samhengi sviðið sem reist var í
Herjólfsdal. „Breytingarnar hafa
ekki alltaf fallið í kramið en við telj-
um okkur að mestu leyti hafa tekið
réttar ákvarðanir,“ segir hann. Þeir
Páll og Birgir hafa hjálpast að við
skipulagningu Þjóðhátíðar í Eyjum
í rúmlega áratug.
Keating olli seinkun
Tilkynning Páls og Tryggva var ekki
það eina sem kom Þjóðhátíðar-
gestum á óvart um helgina. Bjarni
Ólafur Guðmundsson, kynnir
Þjóðhátíðarinnar, sem oft er kall-
aður Daddi diskó segir að nokk-
ur seinkun hafi orðið vegna þess
hversu tímafrekt var að ganga frá
eftir Ronan Keating. „Það varð uppi
fótur og fit og smá panikk,“ segir
hann.
Öllu alvarlegra máli lýsir Bjarni
á þessa leið: „Árni Johnsen fór fram
á sviðið en átti ekki að gera það.
Menn áttuðu sig á því að það átti
eftir að spila myndband sem hann
sjálfur er í. Hann fattaði það og fór
út af sviðinu.“ Þessi mistök virð-
ast þó ekki hafa farið fyrir brjóstið
á Þjóðhátíðargestinum Guðmundi
Felixsyni sem hefur þetta um mál-
ið að segja: „Hann kom og sett-
ist en svo fór hann bara. Þá hugs-
aði ég: Já, ókei, hann var bara að
sándtékka.“ Guðmundur segir að
stærsta „drama“-málið sem hann
hafi tekið eftir hafi tengst söngv-
aranum Hreimi og blysum. Hefð
er fyrir því að lagið Lífið er yndis-
legt sé sungið og ótal blys látin loga
á meðan. „Hreimur kom of seint,“
segir Guðmundur. „Það var slokkn-
að á blysunum þegar hann loksins
kom. Þess vegna voru margir mjög
fúlir.“
Brekkusöngnum lauk seinna en
venjulega að sögn Leifs Gunnars-
sonar. „Hann átti að vera búinn
klukkan 12 en var búinn klukk-
an 1. Fólk sem var með börn varð
auðvitað pirrað,“ segir hann.
Bjarni Ólafur segist harma þessi
óþægindi. n
8 Fréttir 8. ágúst 2012 Miðvikudagur
n Umdeild ákvörðun n Skipuleggjendur hætta n Keating olli seinkun á dagskrá
ronan Keating
Kostaði 9
milljónir
Ronan Keating
Poppsöngvarinn
knái skemmti Þjóð-
hátíðargestum.
„Eyjamenn
ættu að nýta
mun meiri fjármuni
til að berjast gegn
þessari skuggahlið
Þjóðhátíðarinnar.
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
Þjóðhátíð í Eyjum Um 14 þúsund manns lögðu leið sína á Þjóðhátíð í ár.
Páll Scheving Formaður Þjóðhátíðar-
nefndar sækist ekki eftir því að sitja áfram
í nefndinni.