Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2012, Side 26
Þ
að hefur ekkert staðið
til að sýna þessa þætti
og það hafa ekki ver
ið neinar vangaveltur
um það,“ segir Ari Ed
wald forstjóri 365 aðspurður
um það hvort til standi að sýna
Lífsleikni Gillz á Stöð 2 en til
stóð að sýna þættina á þessu
ári. Framleiðsla þáttanna var
langt á veg komin þegar Egill
Einarsson, maðurinn að baki
Gillzenegger, var kærður fyr
ir nauðganir og sýning þátt
anna sett á ís meðan beðið
var niðurstaðna úr kæru
málunum. Lífsleikni Gillz var
sjálfstætt framhald þáttanna
Mannasiðir Gillz sem sýndir
voru á Stöð 2. Saksóknari vís
aði hins vegar öðru málinu frá
og óvíst er hvað orðið hefur um
seinna málið.
Þegar Ari var spurður út í
það í desember síðastliðnum
hvort þættirnir yrðu sýndir þá
sagði hann ótímabært að velta
því fyrir sér hvort hætt yrði við
að sýna þættina. „Það hlýt
ur að koma í ljós hvað verð
ur úr þessari kæru og annað
slíkt. Hvort málið á við rök að
styðjast og í hvaða farveg það
fer. Við sjáum bara hverju fram
vindur með það. Menn eru
náttúrulega saklausir uns sekt
er sönnuð,“ sagði Ari í sam
tali við DV í desember. „Það er
stór áfangi að það sé gefin út
ákæra. Það er allt annar hlutur
en að menn séu kærðir fyrir
eitthvað. Það er hægt að bera
á menn alls konar hluti en ef
ríkis saksóknari gefur út ákæru
þá hefur hann lagt mat á að
þau gögn sem liggja fyrir í mál
inu séu líkleg til sakfellingar,“
sagði Ari við sama tækifæri.
Nú hefur hins vegar verið
tekin ákvörðun. Lífsleikni Gillz
verður ekki á dagskrá Stöðv
ar 2, alla vega ekki á næstunni.
„Þetta var bara slegið af á sín
um tíma. Ég ætla ekki að segja
um aldur og ævi en þetta mál
var bara sett til hliðar á sín
um tíma. Ég sá einhvern tím
ann einhvern mola um þetta
hjá ykkur held ég, að það væri
eitthvað í bígerð eða í skoðun
að taka þetta upp en ég kann
ast ekki við það. Það er bara
einhver lausafregn. Þetta var
bara sett til hliðar og það hef
ur ekki orðið nein breyting þar
á og er ekkert í umræðunni að
taka þá stöðu upp. Ég get ekki
sagt, frekar en endranær, að
það verði aldrei en það hef
ur ekkert verið í umræðunni,“
segir Ari.
Egill hefur hins vegar ekki
endanlega yfirgefið 365 miðla
því að hann er kominn aftur
í útvarpið og stjórnaði meðal
annars þættinum FM95Blö frá
Vestmannaeyjum með Auðuni
Blöndal um verslunarmanna
helgina. Áður en málin komu
upp þá var hann vikulega í
þeim þætti. Hann var hins
vegar settur til hliðar í þættin
um þar til komist yrði að niður
stöðu í málinu en er nú snúinn
aftur. viktoria@dv.is
LífsLeikni GiLLz
ekki á daGskrá
26 Fólk 8. ágúst 2012 Miðvikudagur
Hópferð með Gunna
n Aðdáendur flykkjast til Nottingham
I
ðkendur í bardagaklúbbn
um Mjölni og stuðnings
menn Gunnars Nelson
hafa efnt til hópferðar á
fyrsta bardaga kappans í sept
ember. Eftir að ljóst varð að
Gunnar myndi eiga sinn fyrsta
bardaga í UFC í september
kviknaði strax mikill áhugi á
meðal stuðningsmanna hans.
Forsvarsmenn Mjölnis fóru því
strax í að setja saman ferða
áætlun sem nú liggur fyrir.
Bardaginn fer fram í
Nottingham á Englandi en
búið er að setja saman pakka
sem kostar 105.000 krónur.
Innifalið í honum er flug fram
og til baka, 3 nætur á Hilton
hótelinu í Notthingham, sem
er í um 10 mínútna fjarlægð frá
keppnisstað, og miði á keppn
ina sjálfa.
Keppnin fer fram laugar
daginn 29. september en
Gunnar mun þreyta frumraun
sína gegn hinum þýska Pascal
Krauss. Krauss þessi hefur
viðurnefnið „Skriðdrekinn“ og
hefur einungis einu sinni tapað
í blönduðum bardagaíþróttum
og það var vegna stigamun
ar. Hann hóf feril sinn í hnefa
leikum og varð þýskur ung
lingameistari, en hafnaði síðar
í öðru sæti á þýska meistara
mótinu í hnefaleikum.
Hægt er að afla sér frekari
upplýsinga á Facebooksíðu
Mjölnis en ferðin fer í sölu í
vikunni og má ætla að hún
seljist fljótt upp.
Ekki á skjáinn Lífsleikni
Gillz verður ekki tekin til sýn-
inga á Stöð 2 líkt og til stóð.
Egill hefur þó ekki yfirgefið
fjölmiðlafyrirtækið fyrir fullt
og allt því hann hefur snúið
til baka í þáttinn FM95Blö.
Sett til hliðar Ari Edwald segir
þættina hafa verið setta til hliðar
þegar málin komu upp og það standi
ekki til að endurskoða það á næst-
unni. Þættirnir voru ekki fullunnir en
komnir langt á leið. „Þetta
var bara
slegið af á sín-
um tíma
Sáttur
við Airbus
Rapparinn og skemmtikraft
urinn Halldór „DNA“ Hall
dórsson er sáttur við Airbus
320 vélarnar. Halldór er flug
hræddur með meiru en hef
ur þó ekki látið það stoppa
sig í að ferðast um heiminn.
„Sem afskaplega flughrædd
ur maður, verð ég að segja
að splunkunýjar Airbus 320
vélar IEX eru algjörlega til
fyrirmyndar. Hvorki sviti né
tár,“ sagði Dóri á Facebook
og bætti við: „Lengi vel var
slagorðið – If it aint a boing
– I am not going. En eftir að
hafa grátið í einni 737 á milli
San Fran og Seattle fór það
út um gluggann.“
Stúlka fædd
Stuðmaðurinn Jakob
Frímann Magnússon
eignaðist litla dóttur á
mánudegi verslunar
mannahelgar þegar sam
býliskona hans, Birna
Rún Gísladóttir, fæddi
litla stúlku. Fyrir átti
parið dótturina Jarúnu
Júlíu sem gegnir nú mik
ilvægu hlutverki stóru
systur. Þess má geta að
önnur dóttir Jakobs, tón
listarkonan Dísa, eignað
ist sitt annað barn fyrir
örfáum dögum svo það
er ljóst að barnalán fjöl
skyldunnar er mikið.
Sest á
skólabekk
Tónlistarmaðurinn og
sveitaballapopparinn fyrr
verandi Valur Heiðar Sæv
arsson ætlar að setjast á
skólabekk í haust og hef
ur skráð sig í kerfisfræði
við Háskólann í Reykjavík.
Valur Heiðar sendi frá sér
sína fyrstu sólóplötu í byrj
un ársins en margir muna
eflaust eftir honum með
sveitaballahljómsveitinni
Buttercup. Valur, sem hefur
aldrei áður lært á háskóla
stigi, deildi að sjálfsögðu
fréttunum á fésbókarsíðu
sinni og fékk margar heilla
óskir að launum. „Hér með
er tekið við veðmálum um
hversu margar vikur ég tóri
í þessu enda renni ég blint í
sjóinn en ljóst er að maður
er þó alltaf ogguponsu nær
því hvað maður vill verða
þegar maður verður stór,“
skrifaði hann meðal annars.
Gunnar Nelson Fær
góðan stuðning í fyrsta
bardaganum.
n Kemur til baka í útvarpið en ekki sjónvarpið n Þættirnir verða ekki sýndir