Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Blaðsíða 12
D V greindi frá því í helgarblaði sínu að þrettán einstaklingar dvelja nú í fangelsum er- lendis; flestir vegna fíkni- efnamála. Þá hafa 17 íslensk- ir ríkisborgarar í fangelsum erlendis óskað eftir að afplána dóma sína hér á landi frá árinu 2008; af þeim hafa 13 verið fluttir til Íslands, tveir höfðu hafið reynslulausn erlendis áður en að flutningi kom, einum var synj- að þar sem hann hafði notið fanga- flutnings áður. Þá er ein beiðni um flutning til meðferðar í ráðuneytinu. Aðstæður fanganna í fangelsunum eru afar misjafnar en sem dæmi má nefna að evrópsk fangelsi þykja tals- vert betri en þau sem eru til dæmis í Suður-Ameríku eða Asíu þar sem aðstæður þykja afar bágbornar og mannréttindabrot eru framin dag- lega. Þetta er stór baggi á íslensku ut- anríkisþjónustunni, en miklir pen- ingar og mikill tími fer í að sinna málefnum Íslendinga sem komast í kast við lögin erlendis. Takmörkuð áhrif Á vef utanríkisráðuneytisins kemur fram að ef íslenskur ríkisborgari er handtekinn eða settur í fangelsi er- lendis getur borgaraþjónusta ráðu- neytisins aðstoðað viðkomandi. Samkvæmt alþjóðasamningi um ræðissambönd er það er réttur hvers manns í samskiptum við erlend yfir- völd að fá að hafa samband við full- trúa lands síns. Það er hins vegar al- gjörlega í þeirra höndum að leita til íslenskra stjórnvalda. Ræðismenn og sendiráð Íslands víðs vegar um heiminn annast þessi mál. Þjónust- an felst í því að hafa samskipti við hinn handtekna eða fangelsaða og hafa samband við ættingja, óski hinn handtekni eftir því. Þá er það einnig hlutverk borgaraþjónustunnar að huga að því hvort aðstæður hins handtekna eða fangelsaða séu ekki í samræmi við almennt viðurkennd- ar réttarreglur. Ef lög eru brotin á honum, hann beittur illri meðferð, persónulegu öryggi hans ógnað eða honum mismunað getur borgara- þjónustan haft samband við viðkom- andi yfirvöld og krafist úrbóta. Í máli Brynjars Mettinissonar hefur íslenska ríkið til dæmis beitt sér af miklum þunga, en aðstæður Brynjars þykja afar slæmar og ljóst að mannréttindi hans eru ekki virt í fangelsinu. Ríkið borgar ekki Borgaraþjónustan eða íslenska rík- ið getur ekki fengið íslenska rík- isborgara látna lausa úr haldi eða borgað fyrir þá sektir en það getur aðstoðað þá við leit að lögfræðing- um eða sérfræðingum sem gætu aðstoðað þá. Hins vegar greiðir rík- ið ekki lögfræðikostnað fangans. Þá segir einnig á heimasíðu borgara- þjónustunnar að að öllu jöfnu sé ekki hægt að fá betri meðferð fyrir ís- lenskan ríkisborgara en aðrir njóta í því landi sem um ræðir. Að auki getur hún ekki kært ákvarðanir stjórnvalda fyrir hönd ís- lensks ríkisborgara eða að öðru leyti haft afskipti af lögmætri meðferð mála frammi fyrir viðeigandi stjórn- völdum eða rannsakað glæpi á er- lendri grundu. Þá er það ekki í henn- ar höndum að koma í veg fyrir að fanga verði vísað úr landi að lokinni handtöku eða fangelsisvistun eða sjá þeim fyrir nauðsynjavörum og/eða afþreyingarefni í fangelsinu. Gleymast ekki Yfirleitt eru það ræðismenn Íslands sem sjá um að hafa samband við og beita sér í málum íslenskra fanga á erlendri grundu. Ræðismennirn- ir starfa fyrir hönd Íslands, þeir eru gjarnan heimamenn í sínu landi, en eru almennt ólaunaðir starfsmenn og ræðismannstitillinn er yfirleitt að- eins heiðurstitill. Þeir fá í einhverjum tilfellum greiddan útlagðan kostn- að. Þeir vinna því að málefnum Ís- lendinga launalaust. Sendiráðum Íslands hefur verið fækkað umtals- vert á undanförnum árum og treyst- ir utanríkisráðuneytið því í miklum mæli á ræðismenn sína í þeim ríkj- um þar sem ekki eru sendiráð. Á Spáni má sem dæmi nefna finna 10 ræðismenn eða vararæðismenn sem sinna þeim fjórum föngum sem utan- ríkisþjónustunni er kunnugt um að dvelji á Spáni. Það hefur komið fyrir að Íslendingar eru handteknir eða lendi í vandræðum þar sem ekki eru starfandi ræðis- menn Íslands. Í slíkum tilfellum er leitað til ræðismanna eða sendiráða annarra ríkja og þeir beðnir um að huga að málinu. Ræðismennirnir bera oft og tíðum upplýsingar á milli frá fjölskyldu til fanga og öfugt; koma til þeirra nauðsynjum eða gjöfum sem fjölskyldan vill senda og heim- sækir þá í fangelsið og minnir þá á að þó svo að þeir dvelji í fangelsum langt frá vinum og fjölskyldu séu þeir enn íslenskir ríkisborgarar. n Beita sér fyrir fanga 12 Fréttir 20. ágúst 2012 Mánudagur n Íslenskir fangar eru ekki gleymdir n Ræðismenn vinna launalaust Ásta Sigrún Magnúsdóttir blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is Með amfetamín í sjampóbrúsa Karlmaður á þrítugsaldri hefur að undanförnu setið í gæslu- varðhaldi eftir að hann var stöðvaður við komu til landsins með mikið magn af amfetamíni. Maðurinn, sem er pólskur og hefur verið búsettur hér, var að koma frá Varsjá þegar toll- gæslan stöðvaði hann við hefð- bundið eftirlit í Leifsstöð. Hann reyndist vera með tæpt kíló af amfetamíni, sem hann hafði að hluta til innvortis og að hluta í tveimur sjampóbrúsum. Lög- reglan á Suðurnesjum rannsak- ar málið og er rannsókn vel á veg komin. Níræður og ölvaður á bíl Lögreglan á Suðurnesjum stöðv- aði bifreið á ferð um umdæmið á fimmtudag þar sem grunur lék á að ökumaðurinn væri ölvaður. Lögreglumenn voru við umferð- areftirlit þegar sást til bílsins sem ekið var yfir á öfugan vegarhelming, þannig að bifreið sem kom úr gagnstæðri átt þurfti að hægja á sér og víkja. Eftir að lögreglan hafði stöðvað för mannsins kom í ljós að hann var auk þess að vera ölvaður rétt tæplega níræður að aldri. Hann var handtekinn og sviptur bíl- prófinu á staðnum. Kannabisefni og loftbyssur Lögreglan á Suðurnesjum fann kannabisefni og tvær loft- skammbyssur við húsleit í íbúðarhúsnæði í Reykjanesbæ á miðvikudag. Naut lögreglan liðsinnis fíkniefnaleitarhund- ar sem vísaði á staðina þar sem efnin voru falin. Í Reykjanesbæ hefur lög- reglan einnig þurft að glíma við þó nokkur mál undanfarið þar sem reiðhjólum hefur ver- ið stolið. Þrjár tilkynningar þess efnis hafa borist lögreglunni á Suðurnesjum á síðustu dögum. Á einu hjólanna var barnastóll, sem þjófurinn tók einnig. Um er að ræða dýr og góð reiðhjól og tjónið því tilfinnanlegt fyrir eigendur þeirra. Sýknaður Brynjar Mettinisson var fyrir nokkrum vikum sýknaður í Taílandi af ásökunum um fíkniefnamisferli. Hann bíður nú áfrýjunar en dvelur í fangelsi þar sem hann hefur sætt slæmri meðferð. Afplána erlendis Ræðismenn Íslands heimsækja fangana og minna þá á að þó svo að þeir dvelji í fangelsum langt frá vinum og fjölskyldu séu þeir enn íslenskir ríkisborgarar. 17. ágúst sl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.