Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Blaðsíða 24
Mikilvægir leikir botnliðanna
n Sjö umferðir eftir og fallbaráttan harðnar í Pepsi-deildinni
D
agurinn í dag er æði mik-
ilvægur þeim þremur fé-
lagsliðum sem neðst sitja í
Pepsi-deild karla nú þegar sjö
umferðir eru eftir af deildinni þetta
sumarið. Fram, Selfoss og Grindavík
eru öll komin neðarlega á töfluna og
eru allnokkrum stigum á eftir næstu
liðum. Grindavík tekur á móti Selfys-
singum meðan Fram freistar þess að
ná stigum af Breiðabliki á Kópavogs-
velli.
Eins og staðan er nú situr Grinda-
vík á botni deildarinnar með tíu
stig, Selfoss stigi ofar með ellefu og
Fram hefur þrettán fyrir leiki dags-
ins. Næsta lið þar fyrir ofan, Fylkir, er
með 20 stig og því alllangur vegur að
fara fyrir þau þrjú er verst standa.
Grindvíkingar náðu stigi af Sel-
fossi fyrr í sumar þegar fyrri leikur
liðanna á Selfoss endaði 3–3 en síð-
asti leikur þessara liða í Grindavík
átti sér stað í Pepsi-deildinni 2010.
Þá varð 1–1 jafntefli.
Framarar gerðu góða ferð í Kópa-
voginn fyrr í sumar og sigruðu Blika
þar 0–2. Þann leik þarf liðið að
endurtaka ef ekki á illa að fara.
Markatala þessara liða gæti skipt
máli þegar upp er staðið. Sem stend-
ur er Fram með sjö mörk í mínus,
Selfoss fjórtán og Grindavík hefur
fengið á sig fimmtán mörk umfram
skoruð mörk.
24 Sport 20. ágúst 2012 Mánudagur
Hausverkur
eftir Persie
Hætt er við að áhangendur
Arsenal bölvi því lengi vel til fjand-
ans að Robin van Persie var seld-
ur til erkifjendanna í Manchester.
Þeim hefði líklegast ekki þótt það
mikill missir hefði Arsenal unnið
sannfærandi sigur í sínum fyrsta
deildarleik í ensku úrvalsdeildinni
á heimavelli gegn Sunderland.
Nema það gerði liðið alls ekki.
Markalaust jafntefli manna Wen-
gers á Emirates gegn miðlungs-
liði hlýtur að gera menn strax afar
áhyggjufulla.
Stress yfir
Balotelli
Ítalinn Mario Balotelli á þrjú
ár eftir af samningi sínum
við Manchester City en þar á
bæ telja menn engu að síð-
ur nauðsynlegt að framlengja
og það ekki seinna en nú. Ótt-
ast menn að kappinn falli í
verði um leið og tvö ár verði
eftir af samningnum og setja
nú saman feitan pakka til að
freista þess að halda Balot-
elli lengur en til 2015. Undar-
leg sparsemi skyndilega hjá
eigendum City sem vart vita
aura sinna tal og hafa hingað til
ekki haft sparnað sérstaklega á
dagskránni.
Buðu óvart
í Leo Messi
Talandi um spreð hjá City. Upp úr
dúrnum er komið að félagið bauð
óvart fúlgur fjár í Leo Messi hjá
Barcelóna. Tjáskipti nýrra eigenda
liðsins og forráðamanna voru
ekki betri en svo að orðatiltækið
„it´s all getting messy“ breyttist í
„get Messi“. Vitaskuld var tilboð-
inu hafnað en það hefði verið öllu
betri saga hefði City fengið sinn
mann fyrir hreina slysni.
Ferguson
ekki hættur
Flestir stjórar væru fullsáttir við
að láta ein risakaup nægja en Alex
Ferguson vill meira. Hefur hann
ýjað að því að kaupum United sé
enn ekki lokið þó Robin van Persie
sé kominn til liðs við Rauðu djöfl-
ana. Ferguson segir að ein kaup
til viðbótar áður en kaupglugginn
lokast séu ekki útilokuð en tjáir sig
ekkert meira. Hann lét þó eftir sér
hafa fyrr í sumar að liðið þyrfti að
styrkja vinstri bakvarðarstöðuna.
Leikirnir sem
eftir eru
n Fram
Fram – Breiðablik
KR – Fram
Fram – Fylkir
Keflavík – Fram
Fram – Stjarnan
ÍA – Fram
Fram – ÍBV
n Grindavík
Grindavík – Selfoss
ÍA – Grindavík
Grindavík – Breiðablik
ÍBV – Grindavík
Grindavík – KR
Valur – Grindavík
Grindavík – Fylkir
n Selfoss
Grindavík – Selfoss
Breiðablik – Selfoss
Selfoss – KR
Fylkir – Selfoss
Selfoss – Keflavík
Stjarnan – Selfoss
Selfoss - ÍA
Þurfa stig Það syrtir í álinn hjá Grindavík, Fram og Selfossi í Pepsi-deild karla. Síðustu
forvöð eru að verða að bjarga því sem bjargað verður
A
ðdáendurnir verða að búa
sig undir fleiri slíka daga
enda tekur tíma að byggja
upp,“ sagði Brendan Rod-
gers, nýr stjóri Liverpool,
eftir 3–0 stórtap síns liðs gegn West
Brom í fyrstu umferð ensku deildar-
keppninnar þessa leiktíðina. Á sama
tíma rústaði, Swansea City, gamla lið
Rodgers, liði Queens Park Rangers
0–5 á útivelli og tók þar með efsta
sæti deildarinnar meðan Manche-
ster City lenti í bullandi erfiðleikum
með nýliða Southampton.
Vertíðin er hafin að nýju í enska
boltanum og miðað við fyrstu leik-
ina í úrvalsdeildinni er spennandi
tímabil fram undan. Ýmis óvænt úr-
slit litu dagsins ljós og ein 26 mörk
hafa þegar verið skoruð þó enn sé
einn leikur eftir. Þá tekur Everton á
móti Manchester United sem í fyrsta
skipti mætir til leiks með Robin van
Persie í fremstu víglínu í viðbót við
Wayne Rooney.
Skemmtileg byrjun
Lítið gaman yrði að knattspyrnu
ef aldrei gerðist neitt óvænt og því
ástæða til að fagna óvenju skemmti-
legri byrjun á ensku deildinni þessa
helgina. Hefði það til að mynda ver-
ið nokkur saga til næsta bæjar fyr-
ir svo löngu að eini markalausi leik-
ur helgarinnar væri milli Arsenal og
Sunderland? Boðar það varla gott
fyrir Wenger og félaga. Sömuleiðis
er bjartsýni margra aðdáenda Liver-
pool sennilega þegar úr sögunni eft-
ir að nýi stjórinn, sem miklar von-
ir voru bundnar við, leiddi liðið til
verstu byrjunar um 75 ára skeið. Sáu
leikmenn Liverpool sjaldan mikið til
sólar í 3–0 tapi.
Manchester City hóf titilvörn
sína gegn nýliðum Southampton
og lengi vel leit allt út fyrir að City
tæki þar auðveld þrjú stig. Svo fór
þó ekki þó City kæmist 1–0 yfir því
ekki löngu síðar var staðan orðin 1–2
fyrir gestina fyrir framan pakkfull-
ar stúkurnar í Manchester. City tókst
þó að jafna og sigra að lokum en ný-
liðarnir létu meistarana sannarlega
hafa fyrir sínu.
Markasúpa
Sé hægt að tala um mörk á færi-
bandi átti það við í leikjum helgar-
innar. 26 mörk í níu leikjum gera 2,9
mörk að meðaltali í hverjum leik og
hvaða knattspyrnuáhugamaður er
svikinn af því? Fyrir utan 3–2 sig-
ur City á Southampton unnust tveir
leikir í fyrstu umferðinni með fimm
marka mun og enn er einn leikur eft-
ir. Það verður viðureign Everton gegn
Manchester United en það verður
jafnframt fyrsti leikur markahróksins
Robins van Persie með Rauðu djöfl-
unum.
Wenger sáttur þrátt fyrir allt
Stjóri Arsenal, Arsene Wenger, var
borubrattur í viðtali eftir markalaust
jafntefli sinna manna gegn Sunder-
land. Sagði alveg óumdeilt að mikill
missir væri að Robin van Persie
til erkifjendanna. „Ég tel okkur þó
hafa næga breidd og getu til afreka
í deildinni. Þetta var þó erfitt gegn
Sunderland því þeir náðu að loka al-
veg á okkur á miðjunni. Við þurfum
meiri grimmd til að skapa færin og
klára þau. Ég hef aldrei neitað því að
mikill missir sé að van Persie. Hann
er heimsklassa leikmaður og það er
ekki einfalt mál að finna leikmann
til að leysa hann af með litlum fyrir-
vara.“
Fjarri því eftir bókinni
n Enska deildarkeppnin hafin á ný n Mikið skorað og óvænt úrslit
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
Erfið fæðing Meistarar Manchester City
áttu í bullandi vandræðum með nýliða
Southampton á heimavelli sínum í fyrsta
leik vertíðarinnar. Tvívegis komust nýliðarnir
yfir en leikmenn City höfðu það að lokum.
Góð byrjun Chelsea Lið Di Matteos átti aldrei í verulegum erfiðleikum með Wigan. 0–2
lokastaðan og þrjú fyrstu stig Chelsea í húsi.