Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Síða 15
„SjálfSvíg eru erfiðaSti
andStæðingurinn“
Erlent 15Mánudagur 20. ágúst 2012
n Miklu fleiri hermenn svipta sig lífi en deyja á vígvellinum n Júlí versti mánuðurinn í áratug
verið annað árið í röð þar sem fleiri
hermenn sviptu sig lífi en voru
drepnir á vígvöllum. Árið 2010 var
talan 468 gegn 462.
Tíðni sjálfsvíga, samkvæmt út-
tekt Times, hefur rokið upp síð-
an árið 2005. Þrátt fyrir að stríðið í
Írak sé á enda og átök fari minnk-
andi í Afganistan voru geðrænir
kvillar aðalástæðan fyrir spítala-
innlögn hermanna á síðasta ári.
22 þúsund hermenn voru lagðir
inn vegna geðrænna vandamála
árið 2011, það er 54 prósentum
fleiri en árið 2007. Fleiri banda-
rískir hermenn svipta sig nú lífi
en látast til að mynda í bílslysum
utan vígvallar.
Og það er engin ein ástæða fyr-
ir því að svo margir hermenn sjái
enga aðra leið út en að svipta sig
lífi.
Í umfjöllun breska blaðsins
The Guardian í júní síðastliðnum
er bent á nokkra þætti sem hafa
sitt að segja. Bein þátttaka í stríðs-
átökum, áfallastreituröskun, fíkni-
efnanotkun, persónuleg fjárhags-
vandamál og óvissa eru meðal
þeirra helstu. Tölfræðin er raun-
ar orðin það skuggaleg, samkvæm
The Guardian, að hermenn eru
líklegri til að falla fyrir eigin hendi
en í átökum þrátt fyrir að þeir séu
sendir oftar en einu sinni í túra á
stríðssvæði. n
Jafnvel þeir sterkustu
bugast Hermenn eiga að
falla inn í karlmennsku
ímynd sem hindrar þá oft í
að leita sér hjálpar.
Nýtt stríð Hermenn þurfa að lifa með dauðanum. En fæstir virðast undir
það búnir að takast á við sjálfa sig.
M
y
N
d
IR
R
eu
te
R
s
Nornaveiðunum
verður að linna
Julian Assange, forsprakki vef-
síðunnar WikiLeaks, flutti ávarp
af svölum sendiráðs Ekvador í
London á sunnudag þar sem hann
fór fögrum orðum um stjórnvöld
þar í landi um leið og hann þakk-
aði þeim fyrir að hafa veitt sér hæli
í landinu. Assange, eins og margir
vita, getur ekki yfirgefið sendiráð
Ekvador þar sem bresk stjórnvöld
hafa hótað að hann verði hand-
tekinn og framseldur til Svíþjóð-
ar hætti hann sér út fyrir sendi-
ráðsveggina.
Hann hefur dvalið þar um
tíma til að komast hjá því að verða
framseldur til Svíþjóðar þar sem
hann á yfir höfði sér kærur vegna
kynferðisbrota.
Assange þakkaði fyrir stuðn-
inginn en sagði einnig að norna-
veiðum bandarískra yfirvalda yrði
að ljúka. Það yrði að vera hægt að
fletta ofan af spillingu án þess að
vera hundeltur. Þá hvatti hann til
þess að Bradley Manning, sem
sakaður er um að hafa lekið trún-
aðargögnum frá bandaríska hern-
um til WikiLeaks, yrði sleppt úr
haldi. Notaði hann einnig tæki-
færið til að fordæma fangelsis-
dóminn sem meðlimir rússnesku
pönksveitarinnar Pussy Riot hlutu
í síðustu viku.
Heppileg
mistök
Richard Brown frá Massachu-
setts í Bandaríkjunum gerði ekki
mál úr því þegar afgreiðslumað-
ur í sjoppu lét hann hafa ann-
an skafmiða en hann hafði beðið
um. Hann sá ekki eftir því þegar
í ljós kom að hann vann 1 millj-
ón dala á miðann sem honum var
afhentur fyrir mistök. Þessi lukk-
unnar pamfíll ætlar að nota pen-
ingana í að gera við þakið á heim-
ili sínu og fara í langþráð ferðalag
til San Francisco.