Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Blaðsíða 16
Sandkorn M eðferð rússneskra stjórn- valda á þremenningun- um í Pussy Riot hefur vak- ið athygli um allan heim. Þrjár ungar konur sem skil- greina sig sem femíníska aktívista voru dæmdar fyrir pólitískan gjörning í rúss- nesku rétttrúnaðarkirkjunni þar sem þær fluttu pönkbæn, ákall til heilagrar Maríu um að frelsa Rússland undan ofurvaldi Pútíns. Konunum blöskraði hvernig Pútín beitir valdi sínu í gegn- um kirkjuna og vildu mótmæla því með táknrænum hætti. Þannig að þær fóru með pönkbæn við altarið, sungu og dönsuðu, klæddar kjólum og litrík- um sokkabuxum með andlitið hulið á bak við lambhúshettur. Þær voru reyndar fleiri sem fram- kvæmdu gjörninginn og eftir að þær fengu fylgd öryggisvarða úr kirkjunni voru þær allar frjálsar ferða sinna. Það var ekki fyrr en myndband af gjörn- ingnum vakti umtal á internetinu að tvær úr hópnum voru handteknar og færðar í fangaklefa, þær virtust hafa verið valdar af handahófi og seinna var sú þriðja handtekin. Í fangelsi þurftu þær að dúsa á meðan þær biðu þess að formleg kæra yrði lög fram og fengu hvorki að sjá börn sín né maka í fimm mánuði. Refsingin var tveggja ára fang- elsi fyrir óspektir og trúarhatur. Um alvarlega atlögu að tjáningar- frelsinu er að ræða og meðferðin á kon- unum þremur hefur verið fordæmd um allan heim, meðal annars á Íslandi. Borgarstjórinn í Reykjavík og ísfirskar húsmæður hafa látið mynda sig með lambhúshettur. Björk slóst í hóp heims- þekktra listamanna sem hafa sent frá sér stuðningsyfirlýsingu og Bandalag íslenskra listamanna sendi frá sér ákall til rússneskra stjórnvalda þar sem þess var óskað að konurnar yrðu látnar laus- ar úr haldi. Þá hafa bæði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sagt að málið sé brot á mannréttind- um þessara kvenna. „Í lýðræðissamfé- lagi þá eiga borgararnir að geta móðg- að valdhafana án þess að vera stungið í dýflissu. Þannig að ég lýsi hryggð minni yfir þessum atburði,“ sagði utanríkis- ráðherrann. Það skýtur því skökku við að nú hafa fjórir Íslendingar verið kærðir fyrir að mótmæla meðferðinni á Pussy Riot. „Ég var svo bláeygð að halda að maður mætti bara mótmæla,“ sagði einn fjór- menninganna, Snærós Sindradóttir. Brot þeirra var að draga rússneska fán- ann niður úr fánastöng sendiráðsins og draga upp lambhúshettu í anda Pussy Riot í staðinn. Lögreglan hefur það hlutverk að vernda erlend sendiráð hér á landi og rannsakar nú hvort mótmæl- endurnir hafi með þessu smánað er- lenda þjóð opinberlega. Það er refsivert samkvæmt lögum en enn er óvíst hvort ákæra verði gefin út í málinu. Auðvitað eiga allir að fylgja lögum. En mótmælin fóru fram með friðsam- legum hætti og það að smána ein- hvern er mjög afstætt og teygjanlegt hugtak. Rétturinn til þess að tjá skoð- anir sínar sem varinn er í stjórnar- skrá Íslands hlýtur að vega þyngra. Í ofanálag stóð rússneska sendiráðinu eða starfsmönnum þess aldrei ógn af þessum gjörningi íslensku mótmæl- endanna og því synd að sjá málið fara í þennan farveg. Það að kalla mót- mælendur á Íslandi í yfirheyrslur hjá lögreglu fyrir að mótmæla skertu tján- ingarfrelsi í Rússlandi er í senn kald- hæðnislegt og sorglegt, hreint og klárt ofbeldi. Svona fá mótmælendur sem berjast fyrir mannréttindum stimpil óeirða- seggja. Það er það sem gerðist í Rúss- landi. Konurnar í Pussy Riot mótmæltu ógnarstjórn og heimamenn eru margir hverjir sammála skilaboðum þeirra, en þar sem þeir eru ósáttir við vettvang gjörningsins eru þeir ófærir um að meðtaka þau eða styðja þær í baráttu sinni fyrir auknum réttindum. Þegar það skiptir meira máli hvar, hvenær og hvernig orð eru sögð en hvað er sagt verður ansi auðvelt að afskrifa eða af- skræma óþægilegan sannleika. Til þess að knýja fram breytingar og vekja athygli á óréttlæti þarf hins vegar stundum að færa víglínur og ögra valdhöfum. Í viðtali við Spiegel On- line sagði eiginmaður einnar úr Pussy Riot-hópnum að hann vonaðist til að málið myndi vekja athygli umheims- ins á aðstæðum í Rússlandi og hjálpa í baráttunni fyrir bættu samfélagi. Ósk hans var sú að fjögurra ára dóttir þeirra myndi búa í Rússlandi þar sem dómstólar væru sjálfstæðir, lögreglan heiðarleg, kosningar lýðræðislegar og félagslegt öryggisnet sem hægt væri að treysta á væri til staðar. Íslendingar sem kenna sig gjarna við frið og frelsi ættu frekar að leggja lóð sitt á vogarskálarnar en að eltast við meinlausa mótmælendur. Blessun Jóhönnu n Katrín Júlíusdóttir er vænt- anleg úr fæðingarorlofi sínu á næstu dögum. Víst er að hún hefur hug á því að halda áfram í stjórnmál- um. Hermt er að þessa dag- ana sé hún að ráðgast við stuðningsmenn sína um það hvernig baráttunni verði hátt- að. Ekki er ólíklegt að hún geri atlögu að Árna Páli Árnasyni og krefjist oddvitasætisins í krag- anum. Þá er hún sögð vera heit fyrir formannsstólnum að því tilskyldu að hún fái bless- un Jóhönnu Sigurðardóttur, nú- verandi formanns. Bandalag þingmanna n Björgvin Guðni Sigurðsson, þingmaður Samfylkingar í Suðurkjördæmi, hefur verið lítt áberandi allt frá því hann hrökklaðist úr ráðherraemb- ætti. Til eru þeir sem spá hon- um falli í komandi kosning- um. Aðrir benda á að hann sé sannkallað hörkutól í próf- kjörum. Vandinn kann að verða sá að Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra er keppi- nautur hans. Á móti kemur að Róbert Marshall færir sig til Reykjavíkur og fullyrt er að þeir séu í fóstbræðralagi. Hanna Birna sterk n Reiknað er með að Hanna Birna Kristjánsdóttir, leiðtogi borgarstjórnarflokks Sjálf- stæðisflokksins, muni taka eitt af efstu sætunum í próf- kjöri sjálf- stæðismanna í Reykja- vík. Hrollur mun vera í fjandvinun- um Illuga Gunnarssyni og Guðlaugi Þór Þórðarsyni sem fyrir eru á fleti. Hanna tapaði tiltölulega naumlega í for- mannsslagnum við Bjarna Benediktsson og stendur því sterk. Reiknað er með að hún muni gera aðra atlögu að for- manninum eftir að hún hef- ur komið sér fyrir á þingi og þá jafnvel sem fyrsti þing- maður Reykvíkinga. En hún mun mæta harðri andspyrnu Bjarnamanna í komandi próf- kjöri. Fagrar dætur n Páll Magnússon útvarpsstjóri er ekki tæknilega séð falleg- ur. Þetta fullyrti Gissur Sig- urðsson, morgunfréttamaður Bylgjunnar, í Bítinu á föstu- dag. Kveikjan að þeirri pæl- ingu var sú að Gissur slys- aðist til að sjá dóttur Páls, Hildi Sif, á sjónvarpsskjánum. Þótti fréttahauknum konan bera af í þokka og botnaði síðan ekkert í því hvaðan feg- urðin kæmi. Nefndi hann að iðulega væri himinn og haf á milli útlits feðra og dætra. Í framhaldinu viðurkenndi hann síðan að hans eigin dóttir hefði verið kosin feg- urðardrottning. Hún þekkir þessar sögur Íris Kristinsdóttir söng- og leikkona á fimm börn. – DV Noomi Rapace heldur upp á Njálu. – DV Ofbeldið gegn mótmælendunum Leiðari Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 16 20. ágúst 2012 Mánudagur V iðbrögðin við voðaverkunum í Osló og Útey í Noregi hinn 22. júlí í fyrra þar sem alls 77 einstaklingar féllu fyrir hendi fjöldamorðingja hafa vakið margar siðferðilegar spurningar. Í fyrsta lagi hafa sjálf réttarhöldin orðið mönnum umhugsunarefni. Var það rétt að hafa fjöldamorðingjann eins sýnilegan og raun bar vitni þar sem hann baðaði sig í kastljósi fjöl- miðla daglangt vikum saman og virt- ist njóta þess, sperrtur og drýginda- legur? Sjálfur hafði ég um þetta efasemd- ir í ljósi þess sem gerst hafði. Hitt sjónarmiðið heyrði ég líka frá Norð- mönnum sem vel þekkja til, að með sýnileika réttarhaldanna hefði Anders Behring Breivik verið raunveruleika- gerður – handjárnaður, ósköp smár í öllu tilliti – og þannig komið í veg fyrir að hann yrði að hulinni ógn, óþekktur maður, ósýnileg ófreskja. Þetta fund- ust mér sannfærandi rök. Brotalamir lagaðar Eftir útgáfu skýrslu um viðbrögð yf- irvalda við voðaverkunum í Osló og Útey hefur þessi umræða kviknað enn á ný, að þessu sinni snýr hún að brotalömum í kerfinu, hvernig lög- regla og stjórnmálamenn eigi að axla ábyrgð og hvort og þá hvernig koma megi í veg fyrir voðaverk sem þetta. Í skýrslunni kemur fram gagnrýni á boðleiðir og langan viðbragðstíma innan lögreglunnar, nokkuð sem lög- reglan norska hefur að sjálfsögðu tek- ið til gagngerrar skoðunar og endur- skipulagningar frá því atburðirnir áttu sér stað. Í framhaldi af skýrslunni hefur lögreglustjórinn í Osló sagt af sér og heyra má ákall um að fleiri stígi til hliðar. Alltaf má deila um það hver réttu viðbrögðin eru að þessu leyti en sjálfur er ég ekki fylgismaður afsagnar vegna formsins eins. Valdstjórnaraðferðin Krafa um afsögn „yfirmanna“ er ekki aðeins af siðferðilegum toga held- ur byggir hún einnig á kröfum vald- stjórnar-samfélags þar sem toppur- inn á píramídanum á að svara fyrir þá sem neðar standa. Í mínum huga felst hin raunveru- lega ábyrgð í því að laga þær brotala- mir sem komið hafa í ljós, eins og Norðmenn leitast við að gera og hafa gert. Öðru máli gegnir ef menn hafa gerst brotlegir við lög í sínu starfi. Slíkt á að sjálfsögðu að leiða til afsagna og uppsagna og eftir atvikum til rétt- arhalda. Menn vilja ganga mislangt í kerfis- lægum lagfæringum. Það á við hér á landi ekkert síður en í Noregi. Sjálf- um finnst mér eðlilegt að búa svo um hnúta að drápstól, byssur og sprengj- ur séu ekki auðveldlega aðgengileg. Tillögur að slíkum lagabreytingum hef ég lagt fram á Alþingi með frumvarpi til vopnalaga. Þá hef ég viljað efla heimildir til rannsókna á skipulegri glæpastarfsemi. En þar dreg ég mörk- in. Að mínu mati eiga kerfislægar breytingar sér takmörk. Við þurfum að spyrja þeirrar grundvallarspurn- ingar hversu langt eigi að vera hægt að ganga í fyrirbyggjandi aðgerðum gegn voðaverkum. Öllum refsað Slíkar aðgerðir geta kallað á þannig eftirlit að þjóðfélaginu yrði umbylt í lögregluríki í neikvæðri merkingu þess orðs, þar sem allir yrðu undir eft- irliti öllum stundum. Þannig brugðust bandarísk yfir- völd við í forsetatíð George W. Bush í kjölfar hryðjuverkaárásanna á New York í september 2001. Þar var grip- ið til víðtækra eftirlitsaðgerða. Þannig varð refsingin allra. Betur hugnast mér leið Norð- manna. Frelsi og lýðræði var þeirra svar við ofbeldinu, ekki að loka sam- félaginu og stórauka eftirlit. Voðaverk- ið skyldi ekki verða til þess að veikja lýðræðið heldur þvert á móti ætti að leitast við að styrkja það og efla; það mætti ekki undir neinum kringum- stæðum láta þennan hryllilega atburð verða til þess að grafa undan opnu lýðræðissamfélagi. Þess vegna skýtur skökku við þegar norska stjórnarandstaðan setti fram þá kröfu eftir að fyrrnefnd skýrsla kom út að forsætisráðherrann, Jens Stol- tenberg, segði af sér vegna málsins. Með slíku er verið að draga umfjöllun um hræðilegt mál ofan í hefðbundnar, pólitískar skotgrafir; fjöldamorðingi gerður að tæki til að „veikja“ ríkis- stjórn. Samkvæmt skoðanakönnun- um er norska þjóðin þó á öðru máli. Yfirveguð viðbrögð norskra stjórn- valda hafa þegar á heildina er litið vakið aðdáun fremur en hitt. Ekki á kostnað lýðréttinda En jafnan þegar áföll dynja yfir rísa upp öfl sem vilja nota tækifærið til að fá sínu framgengt. Kanadíski þjóð- félagsrýnirinn Naomi Klein skrifaði fræga bók um þetta, Shock Doctrine. Í þeirri bók voru menn á borð við Ge- orge W. Bush í aðalhlutverki. Hann notaði hryðjuverk sem vöktu óhug til að efla eftirlitsþjóðfélagið á kostnað almennra lýðréttinda. Það hafa Norð- menn ekki látið henda sig. Þess vegna dáist ég að Norðmönnum. Dáist að Norðmönnum„Í mínum huga felst hin raunverulega ábyrgð í því að laga þær brotalamir sem komið hafa í ljós Kjallari Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra skrifar Hún hjálpar mér mikið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.