Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Blaðsíða 18
Veldu réttu fartölVuna 18 Neytendur 20. ágúst 2012 Mánudagur Borguðu fyrir viðskiptavin í stöðumæli n Lofið fær verslunin Móðir, kona, meyja á Laugavegi. „Ég vil fá að hrósa versluninni fyrir að bjóða falleg föt á góðu verði fyrir ófrískar konur, gjafabrjóstahaldara sem kosta ekki hvítuna úr augunum og ýmislegt fal- legt fyrir nýbura. Að auki borga þeir fyrir mann í stöðumælinn sem er bara fallega gert,“ segir ánægður við- skiptavinur. Okrað í Bláa lóninu n Lastið að þessu sinni fær Bláa lónið en viðskiptavinur vildi fá að koma eftirfarandi á framfæri: „Ég fæ erlenda gesti til mín á um það bil tveggja ára fresti og aðalatriðið hjá þeim er alltaf að fara í Bláa lón- ið. Við erum öll yfir 67 ára og höf- um því fengið eldriborgaraafslátt. Nú er búið að leggja hann niður og ég er mjög ósáttur við það því þá þurfum við að borga 5.200 krónur á mann. Það er bara ekki þess virði. Þau eru að koma aftur í vikunni og ég ætla bara með þau í Laugar- dalslaugina og út að borða fyrir mismuninn. Það er verið að okra á túristum því ég held að það séu fáir Íslendingar sem hafa tök á því að greiða þetta verð,“ segir viðskipta- vinurinn ósátti og bendir einnig á að hann hafi rætt um þetta við starfsmann sem sagði að eldri- borgaraafsláttur hefði verið felldur niður árið 2008. Viðskiptavinur- inn segir það þó ekki passa því hann hafi tvisvar farið eftir það og í bæði skiptin fengið afslátt. Magnea Guðmunds- dóttir svaraði fyrir hönd Bláa lónsins: „Verðskrá Bláa lónsins er sambærileg verðskrá annarra einkarekinna spa-staða hér heima og erlendis. Ekki er eðlilegt að bera saman verðskrá Bláa lónsins við verðskrá sundlauga sem eru í raun samfélagsþjónusta og að mestu leyti rekin fyrir skattfé. Við þökkum ábendinguna varðandi afslátt til eldri borgara og mun- um endurskoða þau mál á næstu vikum,“ segir í svari hennar við lastinu. Lof og last Sendið lof eða last á neytendur@dv.is Algengt verð 249.7 kr. 252.7 kr. Algengt verð 249.5 kr. 252.5 kr. Höfuðborgarsvæðið 249.4 kr. 252.4 kr. Algengt verð 249.7 kr. 252.7 kr. Algengt verð 251.6 kr. 252.9 kr. Melabraut 249.5 kr. 252.5 kr. Eldsneytisverð 19. ágúst Bensín Dísil T ölvur eru orðnar mikilvæg- ur þáttur skólagöngu og góð tölva getur verið mik- ilvægt tæki til að auðvelda fólki námið. Þegar kemur að tölvukaupum er mikilvægt að gera sér grein fyrir því til hvers á að nota tölvuna. Sá sem vill eignast tölvu fyrir þung myndvinnsluforrit, tölvuleiki eða kvikmyndavinnslu ætti ekki að kaupa sömu tölvuna og sá sem notar hana einungis til bóknáms og til að skoða vefsíður. DV fékk Atla Stefán Yngvason, rit- stjóra tæknibloggsins Símon.is og áhugamann um tölvur til að gefa ráð þegar kemur að því að velja sér tölvu fyrir skólann. Hvernig tölvu þurfa nemar í menntaskóla? Létta og netta tölvu sem er þægi- legt að bera og þolir smá hnjask. Hversu „litla“ tölvu komast nem- ar af með? Allt undir 12" skjáum er mjög óþægilegt í ritvinnslu og vöfrum. Ég mæli með stærðum á bilinu 12" til 14". Tölvan má ekki vera of þykk eða þung. Því þykkari, því verr hönnuð er hún. Þurfa nemar í raun stóra og dýra tölvu? Það er ekkert samhengi milli „stór“ og „dýr“. Stórar og þungar tölvur geta einmitt verið ódýrar. Margar af þeim eru leikjafartölvur sem henta vel í leiki, en eru alltof þungar til að bera dagsdaglega. Í dag eru „ultrabook“-fartölvur í tísku og því þynnri og léttari, því betra. Hver er sú besta að þínu mati? Ég myndi velja þrjár tölvur til að ná til flestra: undir 200.000 krón- um, á milli 200 til 300 þúsund og ef peningar skipta engu máli. Ég myndi ekki kaupa mér tölvu á mikið minna en 200.000 þúsund. Verðið myndi ekki réttlæta gæða- tapið, sérstaklega ef tölvan á að endast öll fjögur árin. Undir 200.000 krónum: Inspiron 14z ultrabook-fartölva frá Dell. Létt og nett tölva með SSD diska (hraðari) í boði á undir 200.000 krónum. Hún er einnig stílhrein og falleg. Tölvan er því miður með mjög slappan skjá, eins og flestar skólatölvur undir 200.000 krónum. 200 til 300.000 krónur: Zenbook UX31A ultrabook fartölva frá Asus. Fáránlega flott og þunn fartölva frá Asus sem hefur fengið frábæra dóma erlendis. Tölvan býður upp á frábæran skjá. Passið ykkur á að taka hærri upplausn en 1366x768, SSD diska. ef peningar skipta ekki máli: Mac- book Pro 15" Retina fartölvan frá Apple. Þetta er rándýr tölva sem er byggð til að endast og vinna vel. Hún er með skarpasta skjáinn á markaðinum og afkastar ótrúlega vel. Hún er hins vegar rándýr. Hverri mælir þú með fyrir skóla- fólk? Tölvu á kringum 200.000 krónur sem endist í fjögur ár. Veljið þynnri og léttari tölvur og reynið að fá SSD disk. Stærri og þykkari tölvur eru verr byggðar og því líklegri til að skemmast. Er nóg að kaupa spjaldtölvu og bæta við lyklaborði fyrir skólafólk? Nei. Spjaldtölvur eru ekki komn- ar nógu langt fyrir ritvinnslu- og fjölverkvinnslu. Einnig er upp- lausnin sem er í boði á spjaldtölvu- skjáum alltof lág til að nota. Þetta eru fyrst og fremst afþreyingartæki. Hvaða spjaldtölvu mundir þú mæla með? Skásta spjaldtölvan fyrir skólann er iPad, enda eiginlega eina fartölv- an sem er þessi virði að kaupa. Fyr- ir utan kannski Google Nexus 7. Hvorug tölvan hentar þó fyrir skóla. Hvað þarf að hafa í huga eða skoða vel þegar tölva er keypt? Hvernig ábyrgð fylgir með? Þriggja ára ábyrgð er stundum í boði en oftast er hún tveggja ára. Hvernig er þjónustan hjá fyrirtæk- inu? n Þessu á að leita eftir í tölvunum stærð: 12-14", helst þynnri en 2,1 cm og léttari en 2 kg. skjákort: Að minnsta kosti Intel HD 4000 skjákort. Ati og Nvidia skjákort helst. stýrikerfi: Windows 7 og uppfæra í Windows 8 fyrir 2.490 krónur. Harður diskur: Helst SSD, ef ekki þá að minnsta kosti 7.200 snúninga diskur. Hátalarar: Skipta engu máli, þeir eru nánast undantekningarlaust drasl. Eyðið frekar í góð heyrnartól eða utan- áliggjandi hátalara til að nota heima. Ábyrgð: 3 ára ábyrgð er sterkur leikur. n Fjölmargir kaupa sér fartölvu fyrir skólann n Hverju leitar þú að? „Það er ekkert samhengi milli „stór“ og „dýr“. Stórar og þungar tölvur geta einmitt verið ódýrar. Nýherji lenovo ThinkPad e530 n 15,6" skjár n Intel Pentium örgjörvi n 4 GB minni n 500 GB diskur n Windows 7 Home Premium n 3 ára ábyrgð Verð: 109.900 krónur sony Vaio e-series n 15,5“ skjár n Intel Pentium örgjörvi n 4 GB minni n 500 GB diskur n Windows 7 Home Premium n 3 ára ábyrgð Verð: 119.900 krónur Tölvutek Packard Bell easyTone n 15,6“ skjár n 6 GB vinnsluminni n AMD Trinity A8-4500M Quad Core 2.8GHz Turbo 4MB örgjörvi n 750 GB diskur n Windows 7 Home Premium n 2 ára ábyrgð Verð: 129.900 krónur Samsungsetrið samsung RV 515 s04se n 15“ skjár n 4 GB vinnsluminni n AMD Dual Core processor E-450 örgjörvi n 640 GB diskur n Windows 7 Home Premium n 2 ára ábyrgð Verð: 109.900 krónur Tölvuvirkni Toshiba satellite C850-12V n 15“ skjár n 4 GB vinnsluminni n Intel B815 örgjörvi n 320 GB diskur n Windows 7 Home Premium n 2 ára ábyrgð Verð: 69.860 krónur Advania Dell inspiron 15R n 15,6“ skjár n 4 GB vinnsluminni n Intel Intel Core i3-2370M örgjörvi n 500 GB diskur n Windows 7 Home Premium n 3 ára ábyrgð Verð: 149.900 krónur Tölvulistinn Toshiba satellite C850-131 n 15,6" skjár n Intel Pentium örgjörva n 4 GB vinnsluminni n 500 GB diskur n Windows 7 Home Premium n 2 ára ábyrgð Verð: 89.900 krónur Elko samsung Ultrabook n 13,3 skjár n 6 GB minni n AMD A6 örgjörvi n 500 GB diskur n Windows 7 Home Premium n 2 ára ábyrgð Verð: 129.900 krónur Þessum mæla þeir með DV hafði samband við nokkrar verslanir sem selja fartölvur og fékk upplýsingar um hvaða tölvur henta best fyrir skólafólk. Allir voru sammála því að erfitt væri að mæla með einni tölvu fyrir alla og það væri mismunandi hverju fólk leitaði að, þegar kæmi að því að velja sér tölvu. Þeir féllust þó á að gefa upp nafn og verð á tölvum sem annað- hvort henta vel til skólavinnu eða eru vinsælustu tölvurnar í ár hjá skólafólki. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Atli stefán Yngvason Gefur ráð um hvernig tölvu skuli velja. MYnD sigTRYggUR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.