Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Page 19
Neytendur 19Mánudagur 20. ágúst 2012
NÝJUNG
Hefur þú áhuga á umhverfismálum og stóru
spurningunum um verndun og nýtingu auðlinda?
Fjarnám
Stúdentspróf
Samþætting raunvísinda og félagsgreina
Nám fyrir framtíðina
Fáðu nánari upplýsingar í netfanginu:
fjarmenntaskolinn@fjarmenntaskolinn.is
eða í síma 460 4246
Fjölbrautaskóli
Snæfellinga
MENNTASKÓLINN
Á EGILSSTÖÐUM
Umhverfis- og auðlindafræði
Stúdentspróf í fjarnámi
B
ónus hefur komið best út úr
verðkönnun ASÍ um árabil
en breyting varð á því í síð-
ustu viku þegar Iceland, ný
verslun Jóhannesar Jóns-
sonar, var oftast með lægsta verðið.
Verslunin var opnuð í lok júlí og nú
er ljóst að hún er með ódýrustu mat-
vöruverslunum landsins.
Eins og flestum er kunnugt opn-
aði Jóhannes Bónusverslanirnar
árið 1989 og voru þær fyrstu lág-
vöruverðsverslanirnar á Íslandi. Því
hefur verið haldið fram að með til-
komu þeirra hafi orðið bylting hér
á landi fyrir neytendur og spurn-
ing hvort Iceland ógni stöðu Bón-
uss sem ódýrastu matvöruverslun-
arinnar.
Verðstríð hjálpi engum
„Við getum ekki annað en fagnað
samkeppni. Alltaf þegar kemur nýr
aðili inn á markað hefur það áhrif á
verðlag og okkur veitir ekki af því hér
á landi,“ segir Þuríður Hjartardóttir,
framkvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna. Aðspurð hvort hún haldi að nú
fari af stað verðstríð segir Þuríður að
samtökin hafi aldrei mælt með verð-
stríði. „Oft hafa þau verið svo óeðlileg
og ég minni á að það getur verið brot
á samkeppnislögum að niðurgreiða
einhverja vöru til að draga fólk inn í
verslunina. Heilbrigð samkeppni er
hins vegar af hinu góða.“
Hún bendir á að fljótlega eftir að
Krónan var opnuð myndaðist verð-
stríð. „Mig minnir að þegar Krón-
an kom á markað hafi þeir farið að
niðurgreiða mjólk og voru á endan-
um farnir að gefa hana. Það hjálp-
ar engum.“
Þuríður segir að með reglulegum
verðkönnunum höldum við versl-
unarrekendum á tánum og á með-
an fylgst sé með verði trúi hún því
að það verði einhver samkeppni.
Ekki einungis eitthvað tímabundið
heldur til frambúðar. „Það er með
Iceland, eins og allar nýjar verslan-
ir á markaði og í hvaða geira sem er,
þá kemur þetta okkur neytendum til
góða. Það er aldrei gott ef ein versl-
un á markaðinn. Sé það rétt sem
sagt er að fólk flykkist í þessa búð,
eða hvaða búð sem er, út af því að
hún er með gott verð þá er það bara
jákvætt. Við vonum allavega það
besta og erum ánægð með þetta.“
Lægra vöruverð
Ekki náðist í Guðmund Marteins-
son, framkvæmdastjóra Bónuss, en
blaðamanni var bent á að á heima-
síðu verslunarinnar væri tilkynning.
Þar segir meðal annars að Bónus
muni halda áfram að leggja áherslu
á að lágmarka rekstrarkostnað og
stunda magninnkaup á hagkvæm-
ustu verðum. Þeim ávinningi verði
sem fyrr skilað í lægra vöruverði til
neytenda.
Samkaup oftast með hæsta
verðið
Í síðustu könnun verðlagseftirlits
ASÍ var verð á matvöru í átta lág-
vöruverðsverslunum og stórmörk-
uðum víðs vegar um landið kannað.
Í tilkynningu frá ASÍ segir að af þeim
96 vörutegundum sem skoðaðar
voru hafi Iceland verið með lægsta
verðið á 45 tegundum en Bónus hafi
komið þar á eftir með lægsta verðið
á 24 tegundum. Samkaup-Úrval í
Hafnarfirði hafi oftast verið með
hæsta verðið, eða á 58 tegundum
af 96. Nóatún hafi komið þar á eftir
með hæsta verðið á 19 vörutegund-
um.
Flestar vörutegundirnar voru til
í Fjarðarkaupum, eða 93 af 96, og
Samkaup-Úrval átti 92 tegundir.
Minnsta úrvalið var hins vegar hjá
Bónus sem átti 77 af 96 vörutegund-
um sem skoðaðar voru, Iceland átti
78 og Krónan 79.
Mestu munur á ávöxtum og
grænmeti
Mestur verðmunur í könnuninni var
á vöruflokknum ávöxtum og græn-
meti en hann var á milli 54 prósent
og 119 prósent. Sem dæmi var 114
prósenta verðmunur á mangó sem
var ódýrast hjá Iceland en dýrast hjá
Samkaupum-Úrvali.
Minnstur verðmunur var í vöru-
flokknum ostur, viðbit og mjólkur-
vörur, eða 4 til 34 prósent. Verðmun-
ur á nýmjólk var 4 prósent en hún
er seld á 120 krónur í öllum versl-
unum nema hjá Iceland, þar var
lítrinn seldur á 115 krónur. Mestur
verðmunur var á MS bláberjaosta-
köku sem var ódýrust á 895 krónur
hjá Bónus en dýrust á 1.198 krónur
hjá Samkaupum-Úrvali og Nóatúni.
Það gerir 34 prósenta verðmun.
Könnunin var gerð á sama tíma
í eftirtöldum verslunum: Bónus Ak-
ureyri, Krónunni Akranesi, Nettó
Mjódd, Fjarðarkaupum Hafnarfirði,
Iceland Engihjalla, Nóatúni Háaleitis-
braut, Samkaupum-Úrvali Hafnar-
firði og Hagkaupum Holtagörðum.
Nánar um verðkönnunina og töflu
yfir verð má sjá á heimasíðu ASÍ. n
„Alltaf þegar
kemur nýr aðili inn
á markað hefur það áhrif
á verðlag og okkur veitir
ekki af því.
Iceland oftast með lægsta verðið
n Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna fagnar samkeppninni n Atlagan að Bónus byrjar vel
Iceland Verslunin var opnuð í lok júlí og kom best út úr verðkönnun ASÍ. Mynd Eyþór ÁrnaSon
Uppblásið tjald
n Heyra tjaldstangir sögunni til?
U
ppblásin tjöld verða sífellt
meira áberandi en þau eru
þannig uppbyggð að í stað-
inn fyrir hefðbundnar tjald-
stangir er notast við loft til þess að
halda tjaldinu uppi. Hægt er að fá
þessi tjöld meðal annars frá fram-
leiðendunum Nemo, Heimplanet
og nú Kelty. Hugsunin á bak við
uppblásnu tjöldin er aðallega
tvenns konar. Annars vegar eru
þau fyrir göngugarpa sem þurfa
léttan búnað sem tekur sem allra
minnst pláss og hins
vegar auðvelda þau
uppsetningu á
tjöldum.
Tjöldin
hafa hing-
að til aðal-
lega verið
framleidd
sem göngu-
tjöld þar sem
þau eru lítil,
létt og meðfæri-
leg. Núna er hins
vegar hægt að fá upp í allt að
sex manna fjölskyldutjald frá Kelty
eins og það sem er sýnt er á með-
fylgjandi myndum. Uppsetningin
á tjaldinu tekur í kringum eina
til tvær mínútur sem er ótrúlega
skammur tími. Flestar fjölskyld-
ur kannast við hversu mikið ves-
en það getur verið að koma upp
svo stóru tjaldi. Tölum ekki um ef
það er rigning og rok. Ef rignir er
hægt að renna sér inn í tjaldið og
pumpa það upp innan frá. Það er
hins vegar alls kostar óvíst hvort
svo stórt tjald standist íslenskar
aðstæður og hvort að loft eitt og
sér geti haldið uppi svo stóru tjaldi
þegar það fer að blása hressilega. Í
skógarrjóðri gæti Kelty-fjölskyldu-
tjaldið verið góður kostur en á
hefðbundnu íslensku tjaldsvæði
gæti sagan verið önnur.
Tjaldið kemur á markað í
Bandaríkjunum í janúar og mun
fjögurra manna tjald kosta 400 dali
eða 48.000 krónur og sex manna
tjaldið mun kosta 500 dali eða
60.000 krónur.
Kelty air Pitch lofttjald
Kemur á markað í janúar.