Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Page 20
Ástarsorg getur verið banvæn Þ að hefur lengi verið þekkt staðreynd innan læknavís- indanna að allt það stress og sorg sem fylgir ástvina- missi getur leitt til ýmiss konar hjartavandamála. Rannsókn- ir hafa meðal annars sýnt fram á að líkurnar á hjartaáfalli geta aukist tí- falt fyrstu 48 klukkustundirnar eftir að þú missir ástvin. Hingað til hef- ur þó verið talið að bregðist líkam- inn svo alvarlega við hljóti að vera um undirliggjandi hjartasjúkdóma að ræða, en vísindamenn hafa nú komist að annarri niðurstöðu. Svo virðist sem hjartavandamál sem koma upp í kjölfar ástvinamis- sis séu af öðrum toga en þau vanda- mál sem orsakast af slæmu matar- æði og æðaþrengingum. Andnauð, verkir og meðvitundarleysi Það virðist sem fólk með fullkom- lega heilbrigt hjarta geti fengið hjartaáfall, einfaldlega af sorg og streitu, og hafa vísindamenn kallað þetta „hjartasorgarheilkennið“. Við slíkt hjartaáfall gerist allt annað í hjartanu en við venjulegt hjartaáfall sem orsakast af undir- liggjandi hjartasjúkdómum. Neðri hluti hjartans bólgn- ar upp og það hættir að geta dælt blóði á eðlilegan hátt. Líkaminn fær þar af leiðandi ekki nóg af súr- efnisríku blóði. Þetta getur valdið einkennum eins og við venjulegt hjartaáfall; andnauð, verkjum og meðvitundarleysi. Í alvarlegustu tilfellunum getur áfallið leitt til dauða, líkt og hjartaáfall af völdum hjartasjúkdóma, þar sem líkam- inn og heilinn fá ekki nóg súrefni til að starfa. Það er sem betur fer þó ekki algengt. Flestir sem þjást af hjartasorgarheilkenninu jafna sig að mestu leyti á nokkrum vikum án þess að hljóta varanlegan skaða af. Of mikið adrenalínflæði Hjartasorgarheilkennið er þó ekki eingöngu bundið við ástvinamissi heldur getur það líka komið fram í kjölfar annarra streituvaldandi að- stæðna og áfalla líkt og skilnaðar, sambandsslita, aðgerða og jafnvel eftir að hafa unnið stóran lottóvinn- ing. Vísindamenn telja að þúsundir Breta þjáist af slíku heilkenni á ári hverju. Talið er að undirliggjandi ástæðan fyrir heilkenninu sé of mikið flæði adrenalíns á skömm- um tíma. Adrenalínflæðið getur komið sér vel í ýmsum aðstæðum þar sem það fær hjartað til að ham- ast örlítið og dæla blóðinu hraðar um líkamann. Fólk þolir adrenalínið þó misvel og of mikið flæði þess um líkamann getur hreinlega valdið eitrun- aráhrifum í hjartavöðvanum með fyrrgreindum afleiðingum. n Fjarnám í spænsku á haustönn 2012 frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu. Skráningargjald er kr. 5.000,- Fjarnámsgjald er kr. 2.500,- á hverja námseiningu. Fjarnám í einum áfanga er því aðeins kr.12.500,- á önn. Upplýsingar um annað fjarnám frá FAS eru að finna vef skólans, www.fas.is, í síma 470 8070 eða í tölvupósti á netfanginu fas@fas.is. Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu Sími 470 8070 | fas@fas.is | www.fas.is SPÆNSKA Í FJARNÁMI Áfangar í boði: SPÆ103, SPÆ203, SPÆ303, SPÆ403. Láttu alla þína drauma rætast n Lífið auðveldara ef þú fylgir draumunum Á ttu þér draum sem vex þér í augum að láta verða að veruleika? Til dæmis að skipta um starfsvettvang eða koma á fót þínu eigin fyrirtæki? Það þarf ekki að vera jafn mikið mál og það virðist í fyrstu og þú þarft jafnvel ekki einu sinni að taka fjárhagslega áhættu. Þetta fullyrðir starfsráðgjafinn Maggie Mistal að minnsta kosti. Hún ráðlegg- ur fólki að vera með mörg járn í eldin- um á sama tíma. Að koma á fót sínum eigin atvinnurekstri meðfram fastri vinnu. Hún bendir á að vissulega þurfi fólk að skipuleggja sig vel og að frí- tíminn verði lítill um tíma. Þó það sé erfitt verði það hvatning þegar þú sérð fram á að draumurinn er um það bil að rætast. Þegar rétti tíminn er kominn þá er um að gera að færa sig um set inn á nýjan starfsvettvang. „Það er kaldhæðið að það er í raun auðveldara að fylgja draumum sín- um en ekki,“ segir Maggie. „Ef þú ger- ir það ekki þá þarftu að eyða lífinu í að stóla eingöngu á launaumslagið frekar en það sem þú hefur raunverulega ástríðu fyrir. Það getur gert lífið mun erfiðara.“ Ef núverandi starf þitt veitir þér ekki lífsfyllingu, finndu þá það sem þú hefur ástríðu fyrir og reyndu að þróa nýjan starfsferil. Ekki bíða eftir að tækifærin komi til þín, leitaðu þau frekar uppi og mundu að hver er sinn- ar gæfu smiður. 20 Lífsstíll 20. ágúst 2012 Mánudagur n Streita og sorg getur valdið hjartaáföllum hjá heilbrigðum einstaklingum Finndu ástríðuna Starfsráðgjafinn Maggie Mistal segir að fólk þurfi ekki að taka fjárhags- lega áhættu til að láta draumana rætast. Hjartasorg Áfall líkt og ástvinamissir eða skilnaður getur leitt til alvarlegra líkamlegra einkenna. Gróðurhús á malbikinu Japanska fyrirtækið Daiwa House hefur sett á markað gróðurhús sem er á stærð við hefðbundið bílastæði. Gróðurhúsið er ætlað fyrir ræktun í borgum þar sem lítið pláss og ræktunarland er í boði. Fyrir fjölbýli og veitingahús til dæmis. Gróðurhúsið heitir Agri- Cube og er fullkomið gróðurhús þar sem hægt er að stýra lýsingu, vökvun og öllu því sem þarf til þess að rækta grænmeti. Eina sem þarf til að reka það er rafmagn og vatn en Agri-Cube gæti gefið inn- sýn í framtíðina hvað varðar rækt- un grænmetis í stórborgum. Skref fyrir skref Snapguide er skemmtilegt snjall- símaforrit sem kostar ekkert. Með þessu appi gefst notendum tæki- færi að deila hverju sem er skref fyrir skref með myndum. Þú getur til dæmis sett upp uppáhaldsupp- skriftina þína, hvernig á að smíða stól eða mála mynd. Þetta er auð- gert í gegnum vefsíðu forritsins en þar er hægt að finna allt milli himins og jarðar. Ef þú ert í vand- ræðum gætir þú fundið lausnina á Snapguide.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.