Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Blaðsíða 22
„Erum rétt að
byrja aftur“
Sá hrunið í yfirgefnum Disney-kastala
n Kitty Von-Sometime sýndi vídeóverk frá Kína
Þ
essi yfirgefni skemmtigarð-
ur hafði sterka tengingu hjá
mér við efnahagshrunið á
Íslandi,“ segir fjöllistakon-
an Kitty Von-Sometime sem sýndi
þrjú ný vídeóverk sín í Saltfélaginu
á Menningarnótt en þau eru partur
af The Weird Girls Project sem hef-
ur farið ansi víða. Verkið tók Kitty
upp í yfirgefnum Disney-garði fyrir
utan Peking í Kína en hún vann það
í samstarfi við Munda fatahönnuð og
hljómsveitina Sykur.
Myndbandið er tekið upp í
stærðarinnar kastala sem reistur var
í garðinum en aldrei kláraður. Svo að
hann stendur þar hrár og glittir í bera
steypuna. „Hann táknar Ísland sem
þessi öfga metnaðarfulla bygging
sem ekki tekst að klára þar sem of
langt var seilst í framkvæmdunum,“
en í myndbandinu dansa ásamt Kitty
kínverskar stúlkur sem eiga að tákna
æskuna sem skilin var eftir til þess að
lifa í rústum græðginnar.
Kitty vildi einnig gefa ungum
og færum íslenskum listamönn-
um tækifæri til þess að kynna sig í
Kína. Hún segir verkefnið eingöngu
hafa gengið upp sökum hjálpsemi
annarra og því gott að fá líka tækifæri
til að gefa til baka.
Hægt er að horfa á eitt af mynd-
böndunum á vimeo.com/47267265.
asgeir@dv.is
22 Menning 20. ágúst 2012 Mánudagur
Magnað verk Hægt er að
finna vefslóð á eitt mynd-
bandanna neðst í greininni.
Íslensk
hönnun í
Finnlandi
Íslensk hönnunar- og ljósmynda-
sýning hefur verið sett upp í ís-
lenska sendiráðsbústaðnum í
Helsinki og mun standa fram að
áramótum. Sýningin ber heitið Di-
alogue og er meðal annars byggð
á samstarfi íslenskra og finnskra
hönnuða og framleiðenda.
Helsinki er hönnunarhöfuðborg
heimsins árið 2012 og er þessi
sýning einn af fjölmörgum við-
burðum sem íslenska sendiráðið
og íslenskir hönnuðir taka þátt í af
því tilefni.
Dansar
í Austurríki
Hin íslenska Margrét Sara Guð-
jónsdóttir dansar aðalhlutverk
í verkinu This is how you will
disappear,
eftir Gisele
Vienne og
Dennis
Cooper, á
Salzburger
Festspiele
tónlist-
ar- og leik-
listarhá-
tíðinni í
Austurríki.
Verkið var frumsýnt árið 2010 á
Festival D'Avignon, sem er ein
virtasta leik- og danslistahá-
tíð í Evrópu. Margrét Sara hef-
ur verið að fá lofsamlega dóma
fyrir túlkun sína í verkinu um
allan heim. Sýningar á verkinu
fara fram þann 18., 19., 20. og
22. ágúst á Salzburger-leiklist-
arhátíðinni.
Margrét Sara hefur einnig
verið tilnefnd sem heiðurslista-
maður og sýningarstjóri dans-
hátíðarinnar Les Grandes Tra-
versees 2013.
Stórtónleikar
Andreu
Söngkonan Andrea Gylfadótt-
ir verður fimmtug 13. september
næstkomandi og á sjálfan afmæl-
isdaginn mun koma út plata með
þverskurði af glæsilegum ferli
Andreu frá árinu 1987 til 2012.
Laugardagskvöldið 15. september
mun hún svo halda stórtónleika
í Eldborgarsal Hörpu. Þar mun
hún færa áheyrendum sýnishorn
af ferli sínum á einni kvöldstund.
Með Andreu koma meðal annars
fram hljómsveitirnar Todmobile,
Grafík, Tweety, Borgardætur, Blús-
menn Andreu og Bíóbandið. Gest-
gjafi verður Pálmi Sigurhjartarson.
Miðasala á tónleikana er hafin
á midi.is.
T
ónlistin sem við spilum er
kammerpopp. Og þá segja
menn: „Ha?“ Það þýðir að það
eru frekar lítil læti í okkur og við
reynum að útsetja lögin okkar
svolítið huggulega. Við notum mikið
fiðlur og lúðra og þegar best hefur látið
í sumar hafa verið ellefu manns á sviði
með lúðraþyt og söng,“ segir Karl Roth,
meðlimur hljómsveitarinnar Melchior
sem gaf út plötuna Matur fyrir tvo fyrr
í sumar. Hljómsveitin heldur tónleika
á Café Rosenberg fimmtudaginn 23.
ágúst næstkomandi og lofar Karl góðri
kammerpoppstemningu. „Það er alltaf
voða fín stemning hjá okkur á Rosen-
berg. Fólk kemur og borðar jafnvel á
undan og hefur það huggulegt.“
Fjölskylduhljómsveit
Fastur kjarni hljómsveitarinnar tel-
ur sex meðlimi. Fyrir utan Karl skipa
Melchior Hilmar Oddsson, Hróðmar
Ingi Sigurbjörnsson, Gunnar Hrafns-
son, Kjartan Guðnason og Krist-
ín Jóhannsdóttir. Hljómsveitin fær
þó gjarnan til liðs við sig tilfallandi
aukaleikara á tónleikum. „Við erum
gjarnan með fjölskyldur okkar, börn
og makar spila með okkur og það er
alveg frábært.“ Karl segir Melchior
vera mikið fjölskylduband og mæð-
ur hljómsveitarmeðlimanna eru sér-
legir aðdáendur. „Þær eru mjög dug-
legar að koma að horfa á okkur og
hlusta. Það eru kannski þrjár kyn-
slóðir í salnum. Við og börnin okkar
að spila og svo mæður og ömmur að
horfa á,“ segir Karl hlæjandi.
Tóku sér 26 ára hlé
Melchior kom fyrst saman árið 1974
en lagði svo upp laupana um 1980
eftir að hafa gefið út þrjár plötur. Eft-
ir 26 ára hlé, árið 2006, ákvað bandið
að hrista sig saman á nýjan leik og gaf
út plötu árið 2009. Á þeirri plötu má
meðal annars finna lagið Fiskisúpa
Sigríðar í Fjöruhúsinu, sem náði tölu-
verðum vinsældum. „Við erum bara
rétt að byrja aftur og það er mikið eft-
ir. Margar plötur og margir tónleikar.“
Aðspurður hvers vegna Melchior
ákvað að koma saman aftur eftir svo
langt hlé segir Karl það lengi hafa
blundað í hljómsveitarmeðlimum
að láta verða af því, en þeir eru all-
ir nánir vinir. Þegar eiginkona eins
hljómsveitarmeðlims átti stórafmæli
ákváðu þau að slá til og æfðu saman
nokkur lög. „Þá var ekki aftur snúið.
Þetta er svo skemmtilegt og svo er
þetta svo góð músík hjá okkur líka. Nú
höldum við áfram þar til dauðinn að-
skilur okkur.“
Lærir söng og á gítar
Karl var lítið viðloðandi tónlist á
þeim 26 árum sem Melchior tók sér
hlé. Hann er þó bæði að læra söng
og á gítar um þessar mundir. „Ég er
að læra að spila á rafmagnsgítar. Það
hef ég aldrei á ævi minni gert og það
er æðislegt. Þetta er allt saman eitt-
hvað sem ég er að byrja á, á gam-
als aldri.“ Nokkrir meðlimanna eru
þó þrautreyndir í tónlistarbransan-
um. Hróðmar, sem Karl segir vera
aðalsprautuna í bandinu, er til að
mynda tónskáld og kennir tónlist
við Listaháskólann. Gunnar ba-
ssaleikari og Kjartan trommuleikari
eru einnig atvinnumenn í tónlist. Þá
hefur Hilmar Oddsson, sem betur er
þekktur fyrir kvikmyndagerð, gefið
út tvær sólóplötur á þessum árum.
solrun@dv.is
n Kammerpoppsveitin Melchior heldur tónleika á Café Rosenberg
„Höldum
áfram
þar til dauðinn
aðskilur okkur
Spila kammerpopp Melchior var stofnuð árið 1974 en kom saman aftur árið 2006 eftir
26 ára hlé. Mynd eyþór árnaSon