Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Blaðsíða 23
Afmæli 23Mánudagur 20. ágúst 2012
Afmælisbörn
Til hamingju!
N
ú er tími berjatínslunn-
ar genginn í garð og til-
valið að skella sér með
alla fjölskylduna út úr
borginni með nesti og finna
sér bláber, hvort sem það eru
aðalbláber eða venjuleg blá-
ber. Sumum finnst líka kræki-
berin góð og gera jafnvel saft
úr þeim. Það er hægt að gera
margt við bláberin eins og
sultur, hlaup, muffins, súpur
og bökur. Hér er uppskrift að
böku með bláberjum. Hún er
æðislega bragðgóð og frábær
borin fram með ís eða þeyttum
rjóma.
Hráefni
n 5 ½ desilítri hveiti
n 1 desilítri sykur
n 100 grömm kókosmjöl
n 100 grömm smjörlíki
n 3 desilítrar bláber eða blá-
berjablanda (má vera meira)
Aðferð
Smjörið er brætt við vægan
hita og þurrefnin eru mæld í
skál og svo er brædda smjörlík-
inu hrært saman við. Deigið á
að verða mulningur en ekki
eins og venjulegt deig. 2/3
hlutar af deiginu eru settir í
smurt kökumót sem er um 20
sentimetrar í þvermál. Deiginu
er svo þrýst létt í botninn og
þrýst vel að börmum mótsins.
Þar er búinn til 1–2 sentimetra
kantur og svo eru berin sett yfir
allt saman. Restinni af deiginu
er svo stráð yfir.
Bakað við 190°C í um það
bil 20 mínútur.
A
nna Björk er fædd
í Reykjavík „Ég bjó
mín fyrstu ár í Bú-
staðahverfi en flutt-
ist þaðan um fimm
ára aldurinn upp í Breiðholt
og það var mjög gaman að al-
ast þar upp. Á þeim tíma var
hverfið að byggjast upp og
heilmargir krakkar til að leika
við. Við brölluðum ýmislegt
sem vakti mismikla ánægju
fullorðna fólksins,“ segir hún
um fyrstu árin sín.
Fiskur í baðkarinu
Anna Björk segist eiga margar
skemmtilegar minningar frá
æskunni. Ein af þeim uppá-
halds er samt frá því hún var
svona 4–5 ára: „Ég fór með
fjölskyldunni í veiðiferð og
pabbi veiddi nokkuð stóran
fisk og rotaði hann og setti
hann upp á bakkann. Ég var
þarna að leika mér með fötu
og skóflu, sá fiskinn og vissi
auðvitað að fiskar gætu ekki
lifað á þurru landi. Þannig
að ég fyllti fötuna af vatni
og setti fiskinn ofan í og viti
menn, fiskurinn rankaði við
sér og það kom ekki til greina
að drepa hann eða að sleppa
honum aftur. Mamma og
pabbi létu það eftir mér að
taka hann með heim og var
hann látin í baðkarið heima
og vorum við með hann þar
í nokkra daga. Ég var í skýj-
unum yfir þessu nýja gælu-
dýri en við enduðum á því að
keyra upp í Kollafjörð með
hann og sleppa honum þar
eftir miklar umræður. Enda
var ekki hægt að baða sig
heima á meðan fiskurinn var
í baðkarinu.“
Fór í Fjölbraut í Breiðholti
Ölduselsskóli var fyrsti
skólinn sem Anna Björk gekk
í og að honum loknum fór
hún í Fjölbrautaskólann í
Breiðholti. „Ég kláraði stúd-
entinn og sjúkraliðann árið
1995. Ég vann hin ýmsu störf
eftir skóla, á sambýli, spítala,
leikskóla, sem dagmamma,
við verslunarstörf. Ég eign-
aðist dóttur árið 1991 á með-
an ég lærði undir stúdent-
inn. Svo eignaðist ég syni árið
1996 og 1998 og aðra dóttur
2006.
Ég fór í Kennaraháskólann
og lærði grunnskólakennar-
ann með náttúrufræði sem
aðalval og útskrifaðist það-
an 2007. Síðan hef ég ver-
ið heimavinnandi enda með
stórt heimili.“
Anna Björk og Jónas
maður hennar voru ekkert
að flýta sér að ganga í það
heilaga. „Elsta dóttir mín var
að fara að skíra son sinn og
við hjónakornin ákváðum að
gifta okkur í leiðinni eftir 15
ára samband. Okkur fannst
tímabært að gifta okkur
þegar við værum að fara að
skíra fyrsta barnabarnið. Öll-
um var boðið í skírnarveislu,
sem haldin var heima hjá
okkur inni í stofu. Svo þegar
athöfnin var að byrja kallaði
presturinn á mig og mann-
inn minn og tilkynnti að áður
en skírnin færi fram væri á
dagskránni gifting. Foreldr-
ar okkar fengu sjokk og ég
hélt að það myndi líða yfir
mömmu,“ segir Anna Björk
þegar hún segir frá þessum
eftirminnilega degi.
Njóta sumarsins
Í sumar hefur fjölskylda
Önnu Bjarkar verið dugleg
að fara í útilegur. „Við höf-
um farið á Hellishóla, Flúð-
ir og Reykhóla. Svo vorum
við í Úthlíð í sumarbústað og
við hjónin höfum verið ágæt-
lega dugleg að fara í golf, hitta
skemmtilegt fólk og notið lífs-
ins. Það er ekki annað hægt
í veðri eins og því sem hef-
ur verið í sumar. Á afmælinu
ætla ég svo bara að halda smá
boð fyrir vini og ættingja.“
Þegar góða veislu gera skalUppskriftin
Bláberjabaka
Fjölskylda
Foreldrar
n Sveinn H.H. Christensen
f. 29.3. 1943
n Unnur Jórunn Birgisdóttir
f. 14.2. 1944
Systkin
n Ólöf Kristín Sveinsdóttir
f. 4.6. 1965
n Svava Rós Sveinsdóttir
f. 5.6.1969
Maki
n Jónas Heiðar Baldursson
f. 11.11. 1969
Börn
n Þóra Katrín f. 4.11. 1991
n Kristófer Þór f. 18.10. 1996
n Arnþór Daði f. 26.9. 1998
n Kristín Vala f. 7.4. 2006
Stórafmæli
Giftu sig í
skírnarveislu
Anna Björk Sveinsdóttir, 40 ára þann 21. ágúst
20. ágúst
30 ára
Erla María Magnúsdóttir Kjarrhólma 36,
Kópavogi
Hans Jörgen Hansen Drekavöllum 30,
Hafnarfirði
Helena Rós Hrafnkelsdóttir Digranesvegi
46, Kópavogi
Ólöf Ragna Guðnadóttir Ránarvöllum 9,
Reykjanesbæ
Sveinn Þór Vilhelmsson Efstasundi 61,
Reykjavík
Sonja Ósk Gunnarsdóttir Þórðarsveig 24,
Reykjavík
Haraldur Skjóldal Kristjánsson Tröllagili
6, Akureyri
Andri Daði Aðalsteinsson Birkimóa 1,
Borgarnesi
Jónas Kristinn Guðbrandsson Fjallalind 23,
Kópavogi
Sigríður Birna Elíasdóttir Litlakrika 2,
Mosfellsbæ
Halla Dröfn Jónsdóttir Fífumóa 7, Selfossi
Emilía Rós Sigfúsdóttir Vatnsstíg 19, Reykjavík
Kristófer Hannesson Hjarðarhaga 17, Reykjavík
Þórður Einarsson Njálsgötu 7, Reykjavík
Inga Birna Aðalbjargardóttir Einigrund 5,
Akranesi
Steindór Hreinn Veigarsson Æsufelli 2,
Reykjavík
40 ára
Predrag Milosavljevic Ólafsbraut 44, Ólafsvík
Mariusz Jozef Romanczuk Grettisgötu 44,
Reykjavík
Laurie Anne Berg Barmahlíð 23, Reykjavík
Heiður Kr. Sigurgeirsdóttir Smárabraut 5,
Höfn í Hornafirði
Hildur Ýr Guðmundsdóttir Jónsgeisla 41,
Reykjavík
Kjartan Guðmundsson Svöluhöfða 10,
Mosfellsbæ
Páll Einarsson Laugalind 12, Kópavogi
Snjólaug Haraldsdóttir Fífuhjalla 1, Kópavogi
Sólveig Rut W Ragnarsdóttir Vesturbergi
138, Reykjavík
Birgir Heiðar Guðmundsson Hesthömrum
4, Reykjavík
Jökull Freyr Svavarsson Höfðabraut 14,
Akranesi
Hulda Elisabeth Daníelsdóttir Hamrahlíð 3,
Egilsstöðum
50 ára
Djordje Tosic Rjúpufelli 21, Reykjavík
Bóas Börkur Bóasson Álftamýri 4, Reykjavík
Helga Sighvatsdóttir Suðurengi 11, Selfossi
Guðrún Garðarsdóttir Ásbúð 85, Garðabæ
Lárus Ársælsson Furugrund 12, Akranesi
Ásbjörn Elías Torfason Mosarima 31, Reykjavík
Hildur Halla Jónsdóttir Staðarbakka 34,
Reykjavík
Hjörleifur Stefánsson Þórsvöllum 4,
Reykjanesbæ
Erla Sveinbjörnsdóttir Hraunbrún 1,
Hafnarfirði
Birgir Guðnason Furuási 19, Hafnarfirði
Benedikt P. Guðbrandsson Lækjartúni 7,
Mosfellsbæ
60 ára
Benedikt Sigurðsson Sæbraut 15,
Seltjarnarnesi
Gestína Sigríður Gunnarsdóttir Holtaseli
30, Reykjavík
Kristín Þorkelsdóttir Leynisbraut 12a,
Grindavík
Davíð Markússon Merkjateigi 3, Mosfellsbæ
Sindri Sindrason Þingholtsstræti 28, Reykjavík
Margrét Jóna Ólafsdóttir Kálfhóli 2a, Selfossi
Bryndís Guðmundsdóttir Litlagerði 4,
Reykjavík
Hilmar Guðmundsson Mosprýði 6, Garðabæ
Helga Thorsteinsson Kvistavöllum 9,
Hafnarfirði
Steinunn Aldís Helgadóttir Írabakka 20,
Reykjavík
70 ára
Sigríður Sigurðardóttir Urðarbakka 4,
Reykjavík
Garðar Guðjónsson Stóragerði 4, Reykjavík
Antonía Helga Helgadóttir Vaðnesi, Selfossi
75 ára
Erla Guðrún Þórðardóttir Hljóðalind 10,
Kópavogi
Hörður Björnsson Ægisíðu 111, Reykjavík
Unnur Guðbjörg Þorkelsdóttir Smáratúni
8, Álftanesi
Huld Hilmarsdóttir Göethe Grettisgötu 35,
Reykjavík
Jóhann Davíðsson Suðurgötu 8, Reykjanesbæ
80 ára
Andri Páll Sveinsson Lindasíðu 33, Akureyri
Margrét Sigurðardóttir Sléttuvegi 23,
Reykjavík
85 ára
Hulda Sigríður Ólafsdóttir Básenda 1,
Reykjavík
Margrét Rakel Tómasdóttir Hringbraut 50,
Reykjavík
90 ára
Sigmundur Andrésson Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum
21. ágúst
30 ára
Lilja Dóra Altman Langagerði 54, Reykjavík
Daníel Gunnar Sigurðsson Hringbraut 57,
Hafnarfirði
Jóna Elísabet Ottesen Hverfisgötu 65,
Reykjavík
Hafþór Örn Guðjónsson Mávahlíð 46,
Reykjavík
Sigurbjörn Guðjónsson Lálandi 15, Reykjavík
Atli Hrafn Guðbergsson Ferjubakka 2,
Reykjavík
Einar Jónsson Akraseli 5, Reykjavík
40 ára
Sarah Maglasang Valle Háaleitisbraut 18,
Reykjavík
Alfonso Gomez Paz Tjarnarmýri 13,
Seltjarnarnesi
Þórdís Jóelsdóttir Kirkjuvegi 67, Vestmanna-
eyjum
Elsa Hrafnhildur Yeoman Vesturgötu 46a,
Reykjavík
Hinrik Bjarni Pétursson Löngumýri 7, Selfossi
Rósa Guðný Steinarsdóttir Sólbrekku 10,
Egilsstöðum
Haraldur Bergvinsson Kirkjubæjarbraut 4,
Vestmannaeyjum
Gísli Ragnar Sumarliðason Bogabraut 961,
Reykjanesbæ
Hafsteinn Þór Hafsteinsson Straumsölum
2, Kópavogi
Elvar Gunnarsson Furugrund 11, Selfossi
Guðrún Berglind Gunnarsdóttir Háholti
22, Akranesi
Fanney Jóna Jónsdóttir Brekkustíg 6b,
Reykjavík
Gunnhildur Birgit Wessman Þórðarsveig 21,
Reykjavík
Unnur Guðjónsdóttir Gljúfraseli 2, Reykjavík
Hólmfríður Jóna Jóhannsdóttir Egilsbraut
10, Þorlákshöfn
Sóley Sigurðardóttir Höfðabrekku 6, Húsavík
Anna Björk Hyldal Sveinsdóttir Flúðaseli
60, Reykjavík
50 ára
Kjartan Sveinsson Bræðratungu, Selfossi
Elísabet H. Sigurbjörnsdóttir Ársölum 3,
Kópavogi
Atli Ingólfsson Boðagranda 4, Reykjavík
Sturla Friðriksson Hofsvallagötu 59, Reykjavík
Elín Hreindal Bjarnadóttir Þorláksgeisla 43,
Reykjavík
Svanur M. Kristvinsson Torfufelli 8, Reykjavík
Guðrún Þóra Garðarsdóttir Garðhúsum 22,
Reykjavík
Karl Ingi Guðjónsson Reykjavíkurvegi 48,
Reykjavík
60 ára
Guðríður Brynja Guðmundsdóttir Berjarima
49, Reykjavík
Þormar Ingimarsson Hraunbæ 50, Reykjavík
Geir Þórólfsson Langeyrarvegi 16, Hafnarfirði
Guðríður Þorvaldsdóttir Búðagerði 4,
Reykjavík
Sigmundur Þorgrímsson Höfðavegi 20,
Húsavík
Eiríkur Jónsson Öldugötu 42, Reykjavík
Ebba Freyja Arngrímsdóttir Hagaflöt 10,
Garðabæ
Jón Kristján Brynjarsson Heiðarbrún 55,
Hveragerði
Vigdís Hauksdóttir Malarási 2, Reykjavík
Hafdís Jónsdóttir Unnarbraut 26, Seltjarnarnesi
Ingibjörg Dúna Skúladóttir Bogabraut 11,
Skagaströnd
70 ára
Hólmfríður O. Haraldsdóttir Fannahvarfi
4, Kópavogi
Hanna Gunnarsdóttir Laufásvegi 62, Reykjavík
Þórkatla Albertsdóttir Suðurhópi 1, Grindavík
Hjörtur Karlsson Stuðlaseli 40, Reykjavík
Arnór Kristjánsson Fiskhóli 1, Höfn í Hornafirði
Vigdís María Jónsdóttir Hamarstíg 38,
Akureyri
Reynir Bjarnason Marklandi 10, Reykjavík
Hilmar Geir Hannesson Reiðvaði 1, Reykjavík
75 ára
Hörður Eiríksson Mosarima 28, Reykjavík
Sigríður Ásta Guðmundsdóttir Hábergi 3,
Reykjavík
Margrét Ingólfsdóttir Ránargötu 11, Akureyri
80 ára
Jón Sigurðsson Skagabraut 46, Akranesi
Hrefna Hannesdóttir Sautjándajúnítorgi 5,
Garðabæ
Björg Jakobína Hrólfsdóttir Ásgötu 7,
Raufarhöfn
Halldóra Júlíana Jónsdóttir Víðilundi 20,
Akureyri
Jónína Þórarinsdóttir Miðvangi 18,
Egilsstöðum
Sigurrós Ingileif Ákadóttir Sandgerði 13,
Stokkseyri
85 ára
Ragnar Ólafsson Stekkjarhvammi 2, Búðardal
Jón Guðgeirsson Brúnavegi 9, Reykjavík
Rósa Einarsdóttir Þverholti 26, Reykjavík
Sigurlaug Jónsdóttir Lautasmára 1, Kópavogi
90 ára
Hallfríður Magnúsdóttir Ólafsvegi 14,
Ólafsfirði-
Anna og Jónas
Á brúðkaupsdag
sinn og skírnar-
dag Baldurs
Heiðars.
Bláberjabaka með ís
Berjatínslutíminn er genginn í
garð og þá er um að gera að nota
tækifærið!