Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Síða 25
Mikilvægir leikir botnliðanna Sergio García toppar á réttum tíma
n Rúmur mánuður í Ryder-keppni Evrópu og Bandaríkjanna
Þ
að var ekki seinna vænna.
Spánverjinn Sergio García
fór líklega langleiðina með
að tryggja sér sæti í Ryder-liði
Evrópu sem mætir Bandaríkjamönn-
um eftir rúman mánuð með frábærri
frammistöðu á Wyndham-mótinu í
golfi um helgina.
Var Spánverjinn efstur á mótinu
þegar DV fór í prentun í gærkvöldi
eftir að hafa leitt mótið frá þriðja
keppnisdegi en García, sem er upp-
áhald margra, þurfti að verða með-
al efstu manna til að eiga möguleika
á að verða valinn í Ryder-liðið. Fyr-
ir mótið var hann í þrettánda sæti
stigalista Ryder-liðsins sem varla
hefði dugað til.
Jose Maria Olazabal, stjóri Ryder-
liðs Evrópu að þessu sinni, þarf að
velja þá fimm kylfinga sem efstir
eru á sérstökum lista sem tekinn er
saman fyrir keppnina. Í viðbót þarf
hann að velja fimm aðra kylfinga
sem efstir eru á sérstökum heims-
lista. Fær stjórinn svo að auki að velja
tvo kylfinga algjörlega eftir eigin
höfði. Hafa margir spáð því að Olaza-
bal myndi hvort sem er velja landa
sinn García en það myndi ábyggilega
valda úlfúð þar sem aðrir sprækari
kylfingar voru mun framar en hann
þangað til um þessa helgi.
Bandaríska liðið er nánast orðið
fullskipað ef undan eru skildir fjór-
ir einstaklingar af tólf alls. Þeir sem
staðfestir eru að klæðist búningi
bandaríska liðsins nú eru Keegan
Bradley, Jason Dufner, Zach John-
son, Matt Kuchar, Phil Mickelson,
Webb Simpson, Bubba Watson og
Tiger Woods.
Sport 25Mánudagur 20. ágúst 2012
,
Úrslit og staða
Pepsi-deild karla
Leikir dagsins:
Grindavík – Selfoss
Valur – Fylkir
ÍBV – Keflavík
Fram – Breiðablik
Staðan L U J T Skor Stig
1 FH 14 10 2 2 36:14 32
2 KR 15 8 3 4 28:20 27
3 ÍBV 14 8 2 4 27:12 26
4 ÍA 15 7 3 5 24:28 24
5 Stjarnan 15 5 7 3 32:29 22
6 Breiðablik 15 6 4 5 15:18 22
7 Keflavík 15 6 3 6 26:23 21
8 Valur 15 7 0 8 23:23 21
9 Fylkir 15 5 5 5 20:28 20
10 Fram 15 4 1 10 19:26 13
11 Selfoss 15 3 2 10 19:33 11
12 Grindavík 15 2 4 9 22:37 10
Enska úrvalsdeildin
Man. City – Southampton 3-2
1-0 Tevez (40.), 1-1 Lambert (59.), 1-2 Davis (68.),
2-2 Dzeko (72.), 3-2 Nasri (80.)
Wigan – Chelsea 0-2
0-1 Ivanovic (2.), 0-2 Lampard v. (7.)
WBA – Liverpool 3-0
1-0 Gera (43.), 2-0 Odemwingie v.(64.), 3-0 Lukaku
(77.)
Arsenal – Sunderland 0-0
Fulham – Norwich 5-0
1-0 Duff (26.), 2-0 Petric (41.), 3-0 Petric (54.), 4-0
Kacaniklic (66.) 5-0 Sidwell v.(87.)
West Ham – Aston Villa 1-0
1-0 Nolan (40.)
Newcastle – Tottenham 2-1
1-0 Ba (54.), 1-1 Defoe (76.), 2-1 Ben Arfa v. (80.)
Reading – Stoke 1-1
0-1 Knightly (34.) 1-1 Le Fondre v. (90)
QPR – Swansea 0-5
0-1 Michu (8.), 0-2 Michu (53.), 0-3 Dyer (63.), 0-4
Dyer (71.), 0-5 Sinclair (81.)
Leikur í dag (mánudag):
Everton - Manchester United
Staðan L U J T Skor Stig
1 Chelsea 1 1 0 0 2:0 3
2 Man.City 1 1 0 0 3:2 3
3 Newcastle 1 1 0 0 2:1 3
4 WBA 1 1 0 0 3:0 3
5 West Ham 1 1 0 0 1:0 3
6 Fulham 1 1 0 0 5:0 3
7 Swansea 1 1 0 0 5:0 3
8 Arsenal 1 0 1 0 0:0 1
9 Stoke 1 0 1 0 1:1 1
10 Sunderland 1 0 1 0 0:0 1
11 Reading 1 0 1 0 1:1 1
12 Aston Villa 1 0 0 1 0:1 0
13 Liverpool 1 0 0 1 0:3 0
14 Norwich 1 0 0 1 0:5 0
15 QPR 1 0 0 1 0:5 0
16 Southampton 1 0 0 1 2:3 0
17 Tottenham 1 0 0 1 1:2 0
18 Wigan 1 0 0 1 0:2 0
19 Everton 0 0 0 0 0:0 0
20 Man.Utd. 0 0 0 0 0:0 0
Spænski boltinn
Celta – Malaga 0-1
0-1 Fabrice (85.)
Sevilla – Getafe 2-1
1-0 Fazio (34.), 2-0 Negredo v. (38.), 2-1 Alexis (50.)
Mallorca – Espanyol 2-1
1-0 Hemed (2.), 1-1 Wakaso (6.), 2-1 Hemed (85.)
Athletic – Betis 3-5
0-1 Castro (6.), 0-2 Molina (26.), 0-3 Benat (31.), 1-3
Marcos (48.), 2-3 Jose (66.), 3-3 Jose (76.), 3-4
Pozuelo (79.), 3-5 Molina (86.)
Real Madrid – Valencia 1-1
1-0 Higuain (9.), 1-1 Jonas (41.)
Barcelona – R.Sociedad 4-1
1-0 Puyol (3.), 1-1 Castro (9.), 2-1 Messi (11.), 3-1 Messi
(15.), 4-1 Pedro (41.)
Leikir í dag (mánudag):
Deportivo – Osasuna
Rayo – Granada
Zaragoza – Valladolid
Levante – Atlético
Staðan L U J T Skor Stig
1 Real Betis 1 1 0 0 5:3 3
2 Sevilla 1 1 0 0 2:1 3
3 Mallorca 1 1 0 0 2:1 3
4 Málaga 1 1 0 0 1:0 3
5 Real Madrid 1 0 1 0 1:1 1
6 Valencia 1 0 1 0 1:1 1
7 Atl.Madrid 0 0 0 0 0:0 0
8 Barcelona 0 0 0 0 0:0 0
9 Dep. La Coruna 0 0 0 0 0:0 0
10 R.Sociedad 0 0 0 0 0:0 0
11 Rayo Vallecano 0 0 0 0 0:0 0
12 R.Zaragoza 0 0 0 0 0:0 0
13 R.Valladolid 0 0 0 0 0:0 0
14 Osasuna 0 0 0 0 0:0 0
15 Levante 0 0 0 0 0:0 0
16 Granada 0 0 0 0 0:0 0
17 Espanyol 1 0 0 1 1:2 0
18 Getafe 1 0 0 1 1:2 0
19 Celta 1 0 0 1 0:1 0
20 Ath.Bilbao 1 0 0 1 3:5 0
J
ose Mourinho er vanur að
spreða öllum þeim seðlum sem
hann fær til leikmannakaupa
hjá félagsliðum sínum en nú
horfir svo við að Real Madrid
hefur nánast engan keypt fyrir leik-
tíðina sem hófst um helgina. Sömu
sögu er að segja af Barcelóna þó þar
reyndar hafi Jordi Alba reyndar styrkt
hópinn strax í byrjun sumars og Alex
Song sé rétt ókominn frá Arsenal.
Önnur félagslið landsins hafa veikst
fremur en hitt. Deildarkeppnin á
Spáni hófst í gær en þarlendir spark-
spekingar undrast litlar fjárfestingar
enn sem komið er.
Lumar Mourinho á ás í ermi?
Undrast allmargir dálkahöfundar
íþróttablaðanna spænsku þá væru-
kærð sem verið hefur yfir Jose Mour-
inho, stjóra Real Madrid, en það er
sjaldgæfara en geirfuglinn að þetta
ríkasta félagslið heims kaupi ekki
minnst eina nýja stjörnu ár hvert.
Ekki er reyndar öll nótt úti enn hvað
það varðar og Real Madrid hefur lýst
yfir áhuga á að kaupa Luka Modric
frá Tottenham. Óljóst er hvort það
verður að veruleika. Að öðru leyti
virðist Mourinho sæll og sáttur og
kannski ekki ástæða til annars enda
liðið Spánarmeistari með stæl á síð-
ustu leiktíð þó endasleppt hafi það
orðið í Meistaradeildinni sem Mour-
inho sór að vinna.
Sjálfur setur Mour inho pening
á að það sé einmitt liðsandinn sem
muni fleyta Real Madrid áfram þenn-
an veturinn. „Við erum með sama
hópinn nú og í fyrra og allir leikmenn
þekkja hver annan mætavel. Á því
munum við byggja og samstilltur er
þetta frábær hópur. Með ástríðu og
vilja er okkur ekkert að vanbúnaði að
vinna leiki og vinna þá alla.“
Að feta í fótspor Guardiola
Stóra stundin er runnin upp fyrir arf-
taka hins sigursæla og vinsæla Pep
Guardiola sem þjálfaði Barcelóna til
margra ára með feykigóðum árangri.
Nú sést Pep aðeins í stúkunni með-
an Tito Vilanova stjórnar liðinu.
Hann hefur sömuleiðis farið sér
hægt í leikmannakaupum. Aðeins
einn leikmaður hefur gengið til liðs
við Barcelóna en það er bakvörð-
urinn eitraði Jordi Alba sem reynd-
ar getur auðveldlega spilað fram-
ar á vellinum og mun líklega gera
það. Þannig á liðið nú tvo baneitr-
aða bakverði sem báðum finnst ekki
lítið gaman að spreyta sig fram á við.
Ekki er síður plús í kladdann hjá
Vilanova að sóknarmaðurinn frá-
bæri David Villa er mættur til leiks
að nýju eftir löng meiðsli. Hægt er
að færa rök fyrir að missir liðsins af
honum á síðustu leiktíð hafi kostað
Barcelóna dýrt.
Önnur lið í ruglinu
Því miður er löng hefð fyrir á Spáni
að önnur félagslið þar í landi virðast
sjaldan hafa raunverulegan áhuga á
að etja kappi við stórliðin tvö. Stöku
sinnum kemur eitt og eitt lið sem
hangir í þeim stóru en fyrr en varir
hefur sama lið selt sína bestu menn
og oftar en ekki til stórliðanna tveggja.
Sem fyrr verða það líklega Val-
encía og Sevilla sem gætu gert Real
og Barcelóna skráveifu en það er þó
langsótt. Lið Sevilla er gerbreytt frá
síðustu leiktíð og þar eru níu glæný-
ir leikmenn sem varla finna taktinn
strax í fyrsta leik. Enginn þeirra er
talinn mikið meira en í meðallagi.
Hjá Valencía er þjálfarinn Unai
Emery farinn en hann hafði gott
auga fyrir hæfileikum og kom til að
mynda Jordi Alba í sviðsljósið. Mikl-
ar breytingar hafa sömuleiðis orðið
á leikmannahópnum. Fjórir komnir
en níu farnir annað. Það eru miklar
breytingar hjá liði sem vill láta stimpla
sig stórlið.
Séu gjörbreytingar til hins góða
má búast við góðu einu frá Zaragoza
sem hefur fengið til sín eina þrettán
nýja leikmenn að þessu sinni. Rayo
Vallecano hefur einnig skipt út helm-
ingi síns liðs og þar eru tólf nýir menn
á leikskrá.
Spútniklið síðasta árs, Malaga,
verður varla mikið með enda allt þar
í uppnámi. Liðið hefur engan mann
keypt eða fengið en ellefu eru farnir.
Helst er það Atlético Madrid sem hef-
ur sannarlega styrkt sig þetta sumarið
en það hefur liðið gert áður án þess að
fara langt í spænsku deildinni.
n Litlar breytingar hjá stórliðum Spánar n Færri sterkir keppinautar
Værukærir
á Spáni
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
„Á því munum
við byggja og
samstilltur er þetta
frábær hópur
Súr stórstjarna Þrátt fyrir stór orð þjálfara og leikmanna slefaði Real Madrid aðeins 1–1 jafntefli í sínum fyrsta deildarleik og það á
heimavelli. Fjendur liðsins frá Barcelóna flengdu Real Sociedad á meðan.
Efstu fimm
á Evrópulista Ryder-bikarkeppninnar*
n Rory McIlroy
n Justin Rose
n Graeme McDowell
n Paul Lawrie
n Francesco Molinari
n Peter Hanson
n Luke Donald
n Martin Kaymer
n Nicolas Colsaerts
n Lee Westwood
* fyrir Wyndham mótið
Spilaði vel Sergio García sýndi
loks sitt rétta andlit og lék vel á
Wyndham-mótinu í golfi.