Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2012, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2012, Side 14
Stærsti vopnasali heims n Vopnasala Bandaríkjamanna þrefaldaðist árið 2011 V opnasala Bandaríkjamanna þrefaldaðist árið 2011 og hefur náð áður óþekktum hæðum. Bandaríska blaðið the New York Times vitnar í skýrslu sem unn­ in var fyrir bandaríska þingið þar sem fram kemur að viðskipti Bandaríkj­ anna með vopn og annan vígbúnað, svo sem orrustuflugvélar, hafi numið 66,4 milljörðum dala, eða rúmum átta þúsund milljörðum króna. Þegar litið er til vopnasölu annarra ríkja er ljóst að Bandaríkjamenn eru langumsvifa­ mestir. Alþjóðaviðskipti með vopn í fyrra námu 85,3 milljörðum dala, rúmum tíu þúsund milljörðum króna. Ástæða þessarar aukningar Banda­ ríkjamanna, samkvæmt the New York Times, er aukin vopnasala til banda­ manna þeirra í Persaflóa sem ótt­ ast aukin umsvif Írana. Rússar voru næstumsvifamestir á eftir Banda­ ríkjunum og seldu þeir vopn fyrir 4,8 milljarða dala, 580 milljarða króna. Til marks um aukin umsvif Bandaríkj­ anna má geta þess að árið 2009 seldu þeir vopn fyrir 31 milljarð dala, 3.750 milljarða króna og árið 2010 fyrir 44,9 milljarða dala, rúma 5.400 milljarða króna. Frá árinu 2009 hefur vopna­ salan því aukist um meira en hundrað prósent. Í tölunum frá 2011 er til að mynda samningur við yfirvöld í Sádi­Arabíu um sölu á 84 F­15 orrustuflugvélum og endurbótum á þeim 70 vélum sem fyrir eru í flota hersins. Þá eru einnig í tölunum kaup Sáda á Apache og Black Hawk­þyrlum auk skotvopna og skot­ færa. 10 þjóðarleiðtogar látnir á fjórum árum n Tíu þjóðarleiðtogar Afríkuríkja látnir frá árinu 2008 n Þrír leiðtogar utan Afríku látist Á þriðjudag í síðustu viku söfnuðust þúsundir manna saman í Addis Ababa, höf­ uðborg Eþíópíu, til að minnast Meles Zenawi, forseta landsins, sem lést síðast­ liðinn mánudag. Dánar orsök for­ setans var krabbamein en hann var 57 ára þegar hann lést. Fyrr í þessum mánuði söfnuðust tugþús­ undir Ganverja saman til að minn­ ast forsetans, John Atta Mills, sem lést skyndilega í júlí síðastliðnum. Mills var 68 ára þegar hann lést en hann hafði glímt við krabba­ mein í hálsi. Frá ársbyrjun 2008 hafa þrettán þjóðarleiðtogar látið lífið í embætti, þar af tíu í Afríku. Breska ríkisútvarpið, BBC, fjallaði um þetta og leitaði svara við því hvort dánartíðni meðal leiðtoga Afríkuríkja sé óeðlilega há í sam­ anburði við aðrar heimsálfur. Tíu á fjórum árum Fjórum mánuðum áður en Mills lést ákváðu yfirvöld í Malaví að gefa öllum þegnum landsins frí til að sem flestir gætu séð sér fært að verða við útför forsetans Bingu Wa Mutharika sem lést í kjölfar hjarta­ áfalls. Mutharika var 78 ára. Og í janúar lést forseti Gíneu­Bissá, Malam Bacai Sanha, á hersjúkra­ húsi í París eftir langa baráttu við veikindi. Hann var 64 ára. Það sem af er þessu ári hafa því fjórir þjóðarleiðtogar í Afríku látist. „Ég hef fengið óvenjumörg sím­ töl á þessu ári þar sem mér eru færðar sorglegar fréttir af þjóðar­ leiðtogum í Afríku,“ segir Simon Allison, blaðamaður Daily Ma­ verick í Suður­Afríku, í samtali við BBC. Hann hefur skoðað tölur aft­ ur í tímann um dánartíðni þjóðar­ leiðtoga í Afríku og bendir á að frá árinu 2008 hafa tíu leiðtogar í Afr­ íku látið lífið. Á sama tíma hafa einungis þrír þjóðarleiðtogar í öðr­ um heimsálfum látið lífið embætti; Kim Jong Il í Norður­Kóreu, Lech Kaczynski í Póllandi sem lést í flug­ slysi og David Thomson á Barbados sem lést af völdum krabbameins. Eldri þjóðarleiðtogar? Augljósa útskýringin á þessum fjölda eru sú að þjóðarleiðtogar Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Lífslíkur við 60 ára aldur árið 2009 *Kanada, Bandaríkin, Mið-Ameríka, Suður-Ameríka **Kýpur, Ísrael, Palestína, Jórdanía, Líbanon, Sýrland Ameríka* Evrópa Vestur-Kyrrahaf Suðaustur-Asía Austan- Miðjarðarhafs** Afríka 82 81 80 77 77 75 Meðalaldur þjóðarleiðtoga Afríka Asía Norður- Ameríka Mið- Ameríka Suður- Ameríka Eyjaálfa Evrópa 61 61 59 59 58 5560 H Ei M il d : A lþ jó ð A H Ei lB r ig ð iS S To fn u n in H Ei M il d : A lþ jó ð A H Ei lB r ig ð iS S To fn u n in í Afríku eru einfaldlega eldri en þjóðarleiðtogar annarra ríkja – það er útskýring sem Allison að­ hyllist. Hann segir að Afríkubúar vilji hafa þjóðarleiðtoga sína í eldri kantinum – enda virðing fyrir eldra Muammar ghaddafi Forseti Líbíu frá 1979 og myrtur 2011. orrustuflugvél Bandaríkjamenn seldu fjölmargar svona F-15 orrustuflugvélar til Sádi- Arabíu á síðasta ári. Mynd rEuTErS Harður dóm- ur í Rússlandi Rússneskur aktívisti, Taisiya Os­ ipova, hefur verið dæmd í átta ára fangelsi fyrir að hafa heróín í fórum sínum. Dómurinn hefur vakið mikla athygli enda fóru sak­ sóknarar aðeins fram á fjögurra ára fangelsi. Stuðningsmenn Os­ ipovu, sem lengi hefur haft horn í síðu rússneskra yfirvalda, segja að dómurinn sé pólitískur. Fjögur grömm af heróíni fundust í fór­ um hennar árið 2010, en í undir­ rétti var hún dæmd í 10 ára fang­ elsi. Málið var tekið aftur upp eftir að þáverandi forseti Rússlands, Dmitry Medvedev, sagði dóminn of harðan. Nú liggur niðurstaðan fyrir: Osipova þarf að dúsa í fang­ elsi næstu átta árin. Fórnarlömb viðskiptabanns Tölvuleikjaspilarar í Íran eru nú orðin fórnarlömb viðskiptabanns Bandaríkjanna. Tölvuleikjafyrir­ tækið Blizzard, sem meðal annars gefur út hinn vinsæla leik World of Warcraft (WoW), lokaði á aðgang fleiri hundruð spilara í landinu á dögunum. Ástæðan er sú að fyr­ irtækið þarf að virða viðskipta­ bannið líkt og önnur bandarísk fyrirtæki. Þeir spilarar sem ekki geta lengur spilað leikinn munu auk þess ekki fá endurgreitt þrátt fyrir að hafa borgað fyrir að spila leikinn á netinu. Spjallborð Blizz­ ard hefur logað vegna þessa og á þriðjudag birti fyrirtækið yfirlýs­ ingu þar sem ákvörðunin var út­ skýrð. Elsti notandi Facebook Florence Detlor, 101 árs banda­ rísk kona, er elsti virki notandi Facebook í heiminum svo vitað sé. Detlor hitti á dögunum stofn­ andann Mark Zuckerberg og að­ stoðarforstjórann Sheryl Sand­ berg og birti Sandberg mynd af þeim saman á Facebook­síðu sinni. Myndin vakti mikla athygli og sögðust þeir, sem eiga afa eða ömmur sem eru eldri en Sand­ berg, ætla að freista þess að ná metinu af Detlor. Detlor stofnaði Facebook­síðu sína í ágúst 2009, þegar hún var 98 ára. Hún útskrif­ aðist frá Occidental­miðskólan­ um árið 1932 og býr í Menlo Park – steinsnar frá höfuðstöðvum Facebook. 14 Erlent 29. ágúst 2012 Miðvikudagur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.