Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2012, Page 26
26 Fólk 29. ágúst 2012 Miðvikudagur
Saman í „road trip“ um Bandaríkin
n Diljá Ámundadóttir fær félagsskap í heimsreisunni
D
iljá Ámundadóttir, fyrr-
verandi varaborgar-
fulltrúi Besta flokksins,
og Steinþór Helgi Arn-
steinsson, plötuútgefandi og
umboðsmaður, eru að leggja af
stað saman í sjö þúsund kíló-
metra „road trip“ um Banda-
ríkin. Þau munu meðal annars
ferðast um Nevada, Miss-
issippi, Texas, Utah, Florida,
Nýju Mexíkó, Tennessee,
Alabama og Louisiana.
Diljá sagði starfi sínu lausu
í sumar, seldi íbúðina sína og
ákvað að fara í heimsreisu.
Hún er búin að vera á ferðalagi
síðan í byrjun ágúst og nú hef-
ur Steinþór Helgi slegist í för
með henni í Bandaríkjunum.
Steinþór auglýsti eftir tón-
list til að spila í ferðalaginu á
Facebook-síðu sinni og við-
brögðin létu ekki á sér standa.
Hann ítrekaði að þetta væri
langt ferðalag og því þyrftu þau
mikið af tónlist.
Mætir menn á borð við Gauk
Úlfarsson, Birgi Ísleif Gunnars-
son, Snorra Helgason og Grím
Atlason voru meðal þeirra
sem komu með hugmyndir að
góðri roadtrip-tónlist. Kærasta
Steinþórs, Berglind Péturs-
dóttir sem heldur úti síðunni
Berglindfestival, lagði einnig
sitt af mörkum og vill endilega
að þau hlusti á kóratónlist,
þýska tónlist og Tom Jones. Þá
skrifaði Diljá einnig ummæli
við færsluna og sagðist vera
búin að finna margar hug-
myndir að mönnum fyrir leik-
inn „Hver er maðurinn“.
Með aðstoð frá góðum vin-
um vinnum við að setja saman
lagalista, að viðbættum hug-
myndum Diljár fyrir leikinn
„Hver er maðurinn“ ætti þeim
ekki að leiðast á ferðalaginu,
þrátt fyrir að það sé langt.
Ísdrottning á
faraldsfæti
Fyrirsætan Ásdís Rán hefur
notið sumarsins einhleyp í
Búlgaríu en, eins og líklega
allir vita, skildi Ásdís nýlega
við knattspyrnumanninn
Garðar Gunnlaugsson. Ásdís
hefur ferðast um Búlgaríu
síðustu daga og heimsótti
meðal annars legstein Baba
Vanga en Vanga var blind-
ur miðill sem margir telja
að hafi haft yfirnáttúrulegu
hæfileika. Ásdís fór einnig
yfir til Grikklands þar sem
hún heimsótti stórborgina
undirfögru Kavala. Mikill
hiti hefur verið undanfar-
ið í Búlgaríu en aðdáend-
ur ísdrottningarinnar verða
bara að bíða og vona að hún
bráðni ekki í sólinni.
„Varúð!
hauslaus
auðkona“
Rithöfundurinn Andri Snær
Magnason gerði sér leik að
fyrirsögn fréttar sem birtist á
DV.is á mánudaginn. Fyrir-
sögnin var „Hauslaust hrein-
dýr á fjórhjóli auðkonu vekur
óhug“ og fjallaði fréttin um
að það hefði vakið óhug bæj-
arbúa á Egilsstöðum að sjá
hauslaust nýskotið hreindýr
bundið á fjórhjól þar sem
það stóð fyrir utan verslun
Bónuss. Fjórhjólið er skráð á
auðkonuna Ingunni Wern-
ersdóttur.
Andri, sem kann vel að
munda pennann, sá sér leik
á borði og skrifaði færslu á
Facebook-síðu sína: „Varúð!
hauslaus auðkona á hrein-
dýru fjórhjóli vekur óhug,
auðlaus hreinkona vekur fjór-
huga áhuga á óhjóli, áhuga-
laus ókona vekur auðhug á
hreinhjóli! Auðdýr á haus-
hjóli sá ódýr á fjórkonu ...“
Ferðast saman Steinþór Helgi og Diljá eru að leggja af stað í 7.000
kílómetra „road trip“ um Bandaríkin.
M
eð þessu viljum við
heiðra minningu
Arnars og draumur-
inn er að koma
þessu merki á þann
stað sem hann dreymdi um að
koma því,“ segir Árni Ingi Árna-
son, einn þeirra sem standa
að tískumerkinu Slark. Snjó-
og hjólabrettakappinn Arnar
Freyr Valdimarsson, sem lést
langt fyrir aldur fram árið 2006,
á heiðurinn að hönnuninni
en um snjó- og hjólabrettat-
ísku og götufatnað er að ræða.
„Í grunninn er Slark snjó- og
hjólabrettatíska, svona eins og
Arnar skildi við þetta, en svo er
það okkar núna að þróa þetta
áfram. Framtíðarplönin eru
að gera þetta að flottu tísku-
merki. Við vorum búin að tala
um að gera þetta í mörg ár og
svo lokins var slegið til. Það var
bara ekki hægt að bíða með
þetta lengur,“ segir Árni Ingi
en ásamt honum stendur snjó-
brettafólkið Linda Björk Sum-
arliðadóttir, Hreinn Heiðar
Halldórsson og Sigurður Árni
Jósefsson ásamt systkinum
Arnars Freys að merkinu, en
Slark að sögn Arnars heitins,
þýðir að velja ekki léttustu
leiðina.
Arnar Freyr var einn af
betri brettastrákum landsins
þegar hann féll frá. „Hann var
mjög góður á bretti, bæði á
snjóbretti og hjólabretti. Þetta
var líka svo góður drengur,
skemmtilegur og fyndinn og
mikill vinur vina sinna,“ segir
Árni Ingi og bætir við að andlát
hans hafi komið vinum hans í
opna skjöldu. „Þetta kom okk-
ur öllum mikið á óvart. Hann
var svo lífsglaður og hafði
allt. Núna getum við vonandi
haldið nafni hans á lofti en lín-
an sem var að koma út heitir
Snake en Arnar var alltaf kall-
aður „Snákurinn“. Arnar hann-
aði þetta allt saman sem er
komið í sölu en nú ætlum við
að reyna halda minningu hans
á lofti og þróa þetta lengra.
Arnar mun samt alltaf vera
Slark fyrir okkur.“
Hægt er að fylgjast með
Slark og skoða fatnaðinn á fés-
bókarsíðunni Slark Iceland.
indiana@dv.is
Heiðra minningu
„Snáksins“
n Tískumerkið Slark vekur athygli n Halda minningu Arnars á lofti
Arnar Freyr Slark var hugar-
fóstur Arnars Freys en hann lést
langt fyrir aldur fram árið 2006.
Slark Snjóbrettakappar standa
að Slark en fötin eru fyrir hjóla- og
snjóbrettafólk á öllum aldri. MYND JG
Önnur bók frá
Sigrúnu Lilju
Athafnakonan og hönnuður-
inn Sigrún Lilja Guðjóns-
dóttir sendi frá sér nýja bók
á dögunum. Sigrún Lilja,
sem er framkvæmdastjóri ís-
lenska tískumerkisins Gyðja
Collect-
ion, skrif-
aði bókina
The Success
Secret í
samvinnu
með öðru
athafna-
fólki og þar
á meðal fyrirlesaranum og
rithöfundinum Jack Canfield
sem skrifaði meðal annars
Chicken Soup for the Soul
seríuna en þær bækur hafa
komið út á yfir 40 tungumál-
um. Á nokkrum dögum hef-
ur bókin The Success Secret
flogið upp metsölulista am-
azon.com og það verður
spennandi að fylgjast með
framhaldinu.