Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2012, Page 20
20 Sport 12. september 2012 Miðvikudagur
Stórt tap
gegn Eistum
Íslenska karlalandsliðið í körfu
knattleik tapaði fyrir Eistum
á útivelli í lokaleik sínum í
undankeppni EM á þriðjudag.
Lokatölur leiksins voru 80–58 og
áttu Íslendingar litla möguleika
gegn Eistunum. Íslendingar byrj
uðu leikinn þokkalega og voru
tveimur stigum undir, 24–22, að
loknum fyrsta leikhluta. Eistar
sigldu fram úr í öðrum leikhluta
og litu aldrei um öxl. Stigahæstur
hjá Íslandi var Jón Arnór Stefáns
son með þrettán stig en Jakob Örn
Sigurðarson var með tólf stig. Ís
lendingar töpuðu níu af tíu leikj
um sínum í riðlinum og enduðu í
næstneðsta sæti hans.
7 Hannes Þór Halldórsson Var öruggur í markinu eins og í
síðasta leik. Gat ekkert við markinu gert
og steig ekki feilspor í leiknum.
6 Birkir Már Sævarsson Komst ágætlega frá leiknum og
lenti ekki í teljandi vandræðum. Var rang-
lega dæmdur rangstæður þegar hann
fékk sendingu inn fyrir í síðari hálfleik.
Hefði verið í ákjósanlegu færi.
6 Sölvi Geir Ottesen
Spilaði leikinn af
yfirvegun og öryggi en
fékk rautt spjald seint
í leiknum fyrir brot, þegar
hann var of seinn í tæklingu.
6 Ragnar Sigurðsson Skilaði sínu hlutverki ágætlega og vann
mörg skallaeinvígi. Harður af sér og
duglegur.
4 Bjarni Ólafur
Eiríksson Var
mistækur í sendingum
og óöruggur. Hann réði
illa við Kýpverja sem fóru
oft framhjá honum. Var réttilega skipt út
af í síðari hálfleik.
5 Aron Einar Gunnarsson Sást lítið í leiknum og var lítið í
boltanum en vann vel. Tók ekkert þátt
í sóknarleiknum ef frá eru talin löng
innköst í fyrri hálfleik. Úr einu þeirra skap-
aðist hætta.
6 Helgi Valur Daníelsson Var duglegur á miðjunni og örugg-
ur á boltanum, eins og í Noregs-leiknum.
Er að festa sig í sessi í landsliðinu.
4 Rúrik Gíslason Var ekki nema
skugginn af sjálfum sér í
leiknum og kom sjaldnast að
hættulegum sóknum. Þarf að gyrða sig
í brók. Var líka slakur sóknarlega á móti
Noregi.
4 Emil Hallfreðsson Var klaufalegur með boltann og virk-
aði þungur. Spilar ekki sem kantmaður
með sínu félagsliði og það sést glöggt
á leik hans. Var skipt út af í
hálfleik.
6 Gylfi Þór Sigurðsson
Bjó til tvö færi fyrir
Birki í fyrri hálfleik og var
duglegur allan leikinn, eins
og hann er alltaf. Komst þó lítið í boltann
þegar leið á leikinn og hafði úr litlu að
moða.
7 Birkir Bjarnason
Duglegur allan leikinn
og ætti að vera öðrum
leikmönnum fyrirmynd
hvað það varðar. Fékk
tvö fín færi í fyrri hálfleik og
hefði getað skorað. Fór á kantinn í síðari
hálfleik, og svo á miðja miðjuna.
Varamenn:
6 Alfreð Finnbogason Kom inn á í hálfleik og var óheppinn að
skora ekki eftir mark Kýpverja. Skaut þá
í þverslá. Annars sást lítið til hans eins
og annarra sóknarmanna liðsins í síðari
hálfleik, ef stuttur kafli eftir markið er
undanskilinn.
Ari Freyr Skúlason Var miklu
sprækari en Bjarni í bakverðinum og
mætti fá tækifæri í byrjunarliðinu næst.
Jóhann Berg Guðmundsson
Kom inn á seint í leiknum en tókst ekki að
setja mark sitt á leikinn.
Vonbrigði á Kýpur
n Íslendingar töpuðu gegn Kýpur n Í raun heppnir að tapa bara 1–0
Í
slendingar töpuðu 1–0 fyr
ir Kýpur í öðrum leik sínum í
undankeppni HM 2014 á úti
velli á þriðjudag. Óhætt er að
segja að sigur Kýpverja hafi ver
ið sanngjarn enda tókst íslenska
liðinu lítið að ógna því kýpverska.
Ósigurinn þýðir að Íslendingar
eru með þrjú stig eftir tvo leiki en
sigur hefði komið Íslendingum á
topp riðilsins. Næsti leikur Íslands
er 12. október næstkomandi gegn
Slóveníu á erfiðum útivelli áður en
við tökum á móti Sviss fjórum dög
um síðar.
Kýpverjar byrjuðu vel
Það var snemma ljóst í hvað stefndi
hjá íslenska liðinu á þriðjudags
kvöld. Kýpverjar byrjuðu leikinn
mun betur og sköpuðu sér nokk
ur þokkaleg færi á fyrsta stundar
fjórðungnum. Íslenska liðið virtist
vakna til lífsins eftir það og skilaði
góð samvinna Gylfa Þórs Sigurðs
sonar og Birkis Bjarnasonar, sem
léku saman í fremstu víglínu, ís
lenska liðinu tvö ágæt færi. Í bæði
skiptin tókst Gylfa að hrista af sér
varnarmenn kýpverska liðsins
og koma boltanum á Birki. Í fyrra
skiptið fór skot hans af varnar
manni og í horn en seinna skot
hans úr teignum var varið. Ís
lendingar sköpuðu sér nánast
engin færi það sem eftir lifði fyrri
hálfleiks og stjórnuðu Kýpverjar
– sem eru 17. sætum neðar en Ís
land á styrkleikalista FIFA – leikn
um. Íslendingar virkuðu á köflum
kærulausir og voru í raun heppnir
að staðan í hálfleik var 0–0.
Ógnuðu lítið
Landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck
gerði breytingu á íslenska liðinu í
hálfleik. Emil Hallfreðsson, sem átti
afleitan leik, kom út af og í hans stað
kom Alfreð Finnbogason sem skor
aði gegn Norðmönnum á föstudag.
Sóknarleikur íslenska liðsins batn
aði ekkert við skiptinguna og var
það sama uppi á teningnum í síð
ari hálfleik og þeim fyrri; Kýpverj
ar stjórnuðu ferðinni og héldu ís
lenska liðinu algjörlega í skefjum.
Það kom því lítið á óvart þegar Kýp
verjar tóku forystuna á 59. mínútu.
Dimitris Christofi fékk þá boltann
hægra megin í teignum og kom
honum á Constantinos Makri
dis sem skoraði framhjá Hannesi í
markinu sem gat lítið gert. Íslenska
liðið virtist vakna aðeins til lífsins
eftir markið því strax í næstu sókn
átti Alfreð þrumuskot sem endaði
í þverslánni. Íslendingar sóttu að
eins í sig veðrið en tókst aldrei að
ógna marki Kýpverja að neinu ráði,
þvert á móti voru Kýpverjar nær því
að bæta við marki en Íslendingar
að jafna. Það sést best ef tölfræði
úr leiknum er skoðuð því Kýpverj
ar áttu 18 marktilraunir gegn 3 hjá
Íslandi.
Sakna Kolbeins
Íslenska liðið varð fyrir áfalli undir
lok leiksins þegar Sölvi Geir Otte
sen fékk beint rautt spjald fyr
ir brot á Makridis. Hann verður
því ekki með þegar Íslendingar
fara til Slóveníu í október. Ætli ís
lenska liðið sér að eiga möguleika
á að blanda sér í toppbaráttu rið
ilsins er ljóst að liðið þarf að leika
mun betur en það gerði gegn Kýp
ur. Kolbeins Sigþórssonar var sárt
saknað enda hefði hann nýst ís
lenska liðinu vel í leik sem þess
um. Gylfi Þór Sigurðsson og Birk
ir Bjarnason eru báðir frábærir
leikmenn en njóta sín ekki sem
fremstu menn eins og sást greini
lega á sóknarleik Íslands. n
Leikirnir sem
Ísland á eftir
Albanía – Ísland 12. október 2012
Ísland – Sviss 16. október 2012
Slóvenía – Ísland 22. mars 2013
Ísland – Slóvenía 7. júní 2013
Sviss – Ísland 6. september 2013
Ísland – Albanía 10. september 2013
Ísland – Kýpur 11. október 2013
Noregur – Ísland 15. október 2013
Einkunnir íslenska liðsins
„Íslendingar
virkuðu á
köflum kærulausir
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Svekkjandi Það er óhætt að
segja að leikurinn gegn Kýpur
hafi valdið vonbrigðum.
Undankeppni HM:
Norðmenn
sluppu gegn
Slóveníu
Fjölmargir leikir fóru fram í
undankeppni HM á þriðjudags
kvöld og voru liðin sem leika
með Íslandi í riðli í eldlínunni.
Norðmenn sluppu með skrekk
inn gegn Slóvenum á heimavelli
og unnu 2–1 sigur. Sigurmark
Norðmanna skoraði John Arne
Riise úr vítaspyrnu í blálokin.
Þá unnu Svisslendingar nokk
uð sannfærandi sigur á Albaníu,
2–0 þar sem Xherdan Shaqiri og
Gökhan Inler voru á skotskón
um. Svisslendingar eru því á toppi
riðlsins með sex stig en Ísland,
Noregur, Albanía og Kýpur eru
með þrjú stig. Slóvenar eru á botn
inum án stiga.
Leikið var í fleiri riðlum en riðli
Íslands á þriðjudagskvöld. Holl
endingar unnu góðan 4–1 sigur á
Ungverjum í Driðli og Spánverjar
lögðu Georgíu 1–0 í Iriðli þar sem
Roberto Soldado skoraði sigur
markið undir lok leiksins. Holland
og Spánn eru á toppnum í sínum
riðli með fullt hús stiga eftir tvo
leiki. Þá lögðu Ítalir Maltverja að
velli í Briðli og eru þeir því komn
ir með 4 stig eftir tvo leiki. Þjóð
verjar og Svíar unnu sína leiki í C
riðli og eru Þjóðverjar með sex stig
eftir tvo leiki Svíar með þrjú stig
eftir einn leik.
Úrslit
Undankeppni HM
Kýpur - Ísland 1–0
K. Makrides (‘57) Rautt spjald: Sölvi Geir Ottesen,
Ísland (‘87)
Noregur - Slóvenía 2–1
0–1 M. Suler (‘17) 1–1 M. Henriksen (‘26) 2–1 J.A.
Riise (‘90)
Sviss - Albanía 2–0
1–0 X. Shaqiri (‘22) 2–0 G. Inler (‘68)
Staðan í E-riðli
1 Sviss 4-0 6
2 Ísland 2-1 3
3 Albanía 3-3 3
4 Noregur 2-3 3
5 Kýpur 2-3 3
6 Slóvenía 1-4 0