Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2012, Qupperneq 11
Fréttir 11Mánudagur 8. október 2012
n Kaup Boga Pálssonar á Flögu í fyrra komin til kasta bandarískra dómstóla
Bogi Blekkti Arion
og græddi svo vel
„Litlir hluthafar sem
voru þvingaðir út á sín-
um tíma eru úti í kuldanum
Bréfið Aðrir hluthafar Flögu seldu
hlutabréf sín fyrir málamyndaverð í
árslok 2008. Hér sést bréfið þar sem
hluthöfum fyrirtækisins var tilkynnt
um innlausnina á hlutabréfunum.
þess að hann léti þess getið við Arion
banka. Meðal annars var sett upp
FTP-heimasíða með gögnum um
Emblu en þetta var gert sem liður í
áreiðanleikakönnuninni fyrir sölu
fyrirtækisins. Í stefnunni kemur fram
að strax í kringum 10. ágúst 2011 hafi
Bogi og Baker vitað að þann 24. ágúst
yrði haldinn fundur til að ákveða
kaupin á Emblu af Flögu. Þann
21. ágúst 2011 heimsóttu forsvars-
menn Natus höfuðstöðvar Emblu til
að ljúka áreiðanleikakönnuninni á
fyrir tækinu. Þennan sama dag fékk
Baker drög að kaupsamningi frá Nat-
us þar sem því var lýst yfir að fyrir-
tækið hygðist kaupa Emblu fyrir 17
milljónir dollara.
Selt einum degi áður
Natus ákvað svo að kaupa Emblu
þann 24. ágúst 2011, einum degi áður
en Bogi keypti skuldir Flögu af Arion
banka fyrir 4 milljónir dollara á þeim
forsendum að enginn kaupandi
hefði fundist að eignum fyrirtækis-
ins. Forsvarsmenn Natus greindu
Baker og Boga frá því í kjölfarið að
fyrirtækið vildi ganga formlega frá
kaupunum á Emblu um miðjan sept-
ember 2011. Stefnan byggir á því að
samkvæmt samningnum við Arion
banka hafi Boga Pálssyni og David
Baker borið skylda til að upplýsa
Arion banka um þessar þreifingar
um söluna á Emblu til Natus.
Fer fram á riftun
Á þessum forsendum fer bankinn
fram á að samningnum við Boga
Pálsson um kaupin á skuldum Flögu
þann 25. ágúst verði rift. Rökstyður
bankinn samningslitin með því að
Bogi hafi í reynd gerst sekur um fjár-
svik (e. rescission based on fraud.)
Kröfur bankans fyrir réttinum eru í
mörgum liðum en byggja allar á því
að Bogi hafi ekki framfylgt ráðgjaf-
arsamningnum sem hann gerði við
bankann í kjölfar efnahagshrunsins
2008 og hafi í reynd brotið hann og
beitt bankann blekkingum til þess að
hagnast á því persónulega. Fer bank-
inn fram á skaðabætur vegna máls-
ins, auk vaxta, sem og greiðslu lög-
fræðikostnaðar og annarra útgjalda
vegna málsrekstursins.
Tóku hlutabréf annarra
En þar með er ekki öll sagan sögð því
í árslok 2008, áður en Flaga Group
lenti í fangi Nýja-Kaupþings, síðar
Arion banka að stóru leyti, leysti
eignarhaldsfélagið Flaga Holdings
LLC til sín hlutabréf annarra hlut-
hafa í félaginu fyrir málamyndaverð.
Þetta eignarhaldsfélag var stofnað í
lok nóvember 2008, einum mánuði
áður en það leysti til sín hlutafé
annarra hluthafa félagsins. Um er að
ræða sama félag og Arion banki hef-
ur stefnt úti í Denver en í dag heitir
það Sleep Holdings LLC. Félagið er
skráð í skattaparadísinni Delaware
í Bandaríkjunum, samkvæmt eina
opinbera skjalinu sem til er um það
hjá fyrirtækjaskrá.
Íslenskur umboðsaðili félagsins
var lögmannsstofan Lex en Helgi Jó-
hannesson, hæstaréttarlögmaður og
einn af eigendum Lex, hefur unnið
fyrir Boga Pálsson í gegnum tíðina.
Hlutabréfin sögð einskis virði
Í ábyrgðarbréfi sem Helgi sendi öll-
um hluthöfum Flögu Group þann 29.
desember 2008 kom fram að Flaga
Holdings LLC ætlaði að leysa til sín
hlutafé annarra hluthafa gegn mála-
myndaverði sem var ein króna á hlut.
Vísaði Helgi í lagagreinar kröfunni
til stuðnings en hún byggði á því að
sökum efnahagshrunsins væri hluta-
fé Flögu Group einskis virði: „Hér
með tilkynnist að Flaga Holdings
LLC er nú eigandi að meira en 90
% hlutafjár í Flaga Group ehf. (fyrr-
um Flaga Group hf.). Ákvörðun hef-
ur verið tekin um að aðrir hluthafar
skuli sæta innlausn á hlutum sínum
í félaginu í samræmi við 16. gr. laga
nr. 138/1994 um einkahlutafélög.“
Þá vitnaði Helgi í mat „virts óháðs
verðbréfafyrirtækis“ sem teldi hluta-
fé félagsins vera einskis virði. „Í ljósi
þess að hlutaféð hefur verið metið
verðlaust er þér boðin málamynda-
greiðsla fyrir allt hlutafé þitt upp á kr.
1,00 (ein króna) á hlut.“
Undir bréfið skrifaði Helgi fyr-
ir hönd Flögu Holdings LLC. Með
þessu var Flaga Holdings LLC orðið
eigandi hlutabréfa minni hluthafa í
Flögu Group sem voru sögð einskis
virði. Tæpum þremur árum seinna
var eitt af dóttur félögum Flögu selt
fyrir nærri 2 milljarða króna og
naut Bogi Pálsson góðs af þeim við-
skiptum eftir að hafa keypt skuldir
Flögu frá Arion með afslætti.
Telur sig hafa verið hlunnfarinn
Einn viðmælandi DV, sem var hlut-
hafi í Flögu Group, segir að hann
líti svo á að litlir hluthafar í fyrirtæk-
inu hafi verið þvingaðir út úr því án
þess að fá rétt verð fyrir hlutabréfin.
Honum blöskri því að Bogi hafi keypt
fyrir tækið af bankanum fyrir lága
upphæð og hafi svo selt hluta þess
aftur fyrir hærra verð. „Það sem fer
aðallega fyrir brjóstið á mér í þessu
máli er að fyrri eigendur, þ.e. Bogi
og aðilar honum tengdir, skuli eign-
ast Flögu Group (heitir raunar Flaga
Holdings eftir snúninginn) aftur að
fullu og koma í verð. Litlir hluthafar
sem voru þvingaðir út á sínum tíma
eru úti í kuldanum.“
Merkilegur snúningur
Staðan er því sú að Bogi Pálsson
náði að eignast Flögu í kjölfar ís-
lenska efnahagshrunsins og selja
hluta af starfseminni fyrir verulegar
upphæðir. Þessi yfirtaka var tvíþætt:
Fyrst eignaðist félag í hans eigu
hlutabréf annarra hluthafa Flögu
Group í lok árs 2008 og svo eign-
aðist hann hlut Arion banka í fé-
laginu eftir að Flaga Group var kom-
in í fang bankans vegna skulda árið
2011. Þá var bankinn búinn að færa
skuldir Flögu Group niður; skuldir
sem stofnað hafði verið til á árun-
um fyrir hrun þegar Bogi var stjórn-
arformaður fyrirtækisins og einn af
ráðandi hluthöfum þess.
6,3 milljarða niðurfærsla
Þar fyrir utan komst Bogi líka upp
með að 6,3 milljarða króna skuldir
eignarhaldsfélags hans, Stofns ehf.,
voru færðar niður að fullu þegar
hluti lánasafns gamla Kaupþings
var fluttur yfir í Nýja -Kaupþing, nú
Arion banka, eftir hrunið 2008. Frá
þessu greindi DV í síðustu viku. Bogi
var, líkt og kunnugt er, einn stærsti
hluthafi Exista, stærsta hluthafa
Kaupþings, fyrir hrunið 2008.
Um þá niðurfærslu sagði Helgi Jó-
hannesson í samtali við DV: „Í spurn-
ingu þinni um málefni Eignarhalds-
félagsins Stofns ehf. kemur fram
misskilningur/villa. Rétt er að Stofn
fékk á sínum tíma lán vegna kaupa
á hlutabréfum í Exista. Sá lánasamn-
ingur var gerður upp samkvæmt efni
samningsins sjálfs án þess að í því
uppgjöri fælist niðurfelling á kröfum
bankans á félagið. […] Bankinn fékk
það greitt sem hann átti rétt til sam-
kvæmt efni lánasamningsins og sá
samningur var óbreyttur frá undir-
ritunardegi hans til þess dags er
hann var uppgerður.“
Líklegt má telja að í þessum við-
skiptum hafi Stofn fengið 100 pró-
senta lán frá Kaupþingi til að kaupa
Exista-bréfin, án allra persónulegra
ábyrgða eða trygginga. Bogi hefur
því farið ágætlega út úr viðskiptum
sínum við Kaupþing og arftaka þess,
Arion banka. n
Tók þátt Helgi Jóhannesson lögmaður
tók þátt í því að aðrir hluthafar Flögu Group
voru látnir gefa eignarhaldsfélaginu Flögu
Holdings LLC hlutabréfin sín í félaginu.
Bogi Pálsson
Hefur fengið á sig
tvær stefnur.